Tíminn - 11.02.1962, Síða 1
Fimm rithöfundar
skrifa á baksíðu
blaðsins
höfundaréft
Fóik er beöið að
athuga, al kvöldsími
blaðamanna er
303
Kompás
spíra
stolið
Vestmannaeyjum, 10. febrúar.
Svo bar til hér í nótt, að brot-
inn var upp kompás í bát í höfn-
inni- og spíritusinn tekinn af hon-
um. Veldur þetta nokkrum ugg
manna á meðal, þar’ sem vitað er
að vínandi sem þessi er eitraður.
Hefur verið birt tilkynning um
þetta, þar sem þeir eru beðnir að
gefa sig fram, sem vínandann tóku.
í nótt þurfti að dæla upp úr manni
sem hafði fengið krampa, og var
það atvik talið standa í sambandi
við spíra-hvarfið. Mál þetta er í
rannsókn.
________________________________________
POWERS í
SKIPTUM
FRANCIS POWERS
Berlín, 10. febrúar.
Bandaríski flugmaðurinn
Francis Powers, sem skotinn
var niður yfir Sovétríkjunum
í maí 1960, var í morgun lát-
inn laus og afhentur fulltrú-
um Bandaríkjanna í Berlín.
Samtímis afhentu fulltrúar
Bandaríkjanna Rudolf Abel, sem
var dæmdur 1957 í Bandaríkjun-
um fyrir njósnir, og A.-Þjóðverjar
afhentu bandarískan námsmann, er
þeir höfðu handtekið í fyrra og
kært fyrir njósnir.
Mál Powers vakti mikla athygli
Framhald á 15. síðu
Mælzt til að börn yrðu sótt í skólana
KENNSLU HÆTT
VEGNA VEÐURS
Á fimmtudaginn geði suð-
vestan kalsaveður hér í
Reykjavík og víða í nágrenn-
inu, og hefur það haldizt síð-
an. í gær var éljagangur um
nær allt landið nema austan
til. í gærmorgun mældust 9
vindstig í Reykjavík, á Kefla-
víkurflugvelli, Eyrarbakka og
Stórhöfða í Vestmannaeyjum,
samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar.
í gær birtist í hádegisútvarpinu
tilkynning frá fræðslustjóranum í
Reykjavík, þar sem því var beint
til foreldra að senda ekki börn
sín í skóla eftir hádegið, nema þau
yrðu sótt þangað aftur. Enn frem
ur var lesin upp tilkynning frá
Austurbæjarskólanum um, að
kennsla félli niður eftir hádegið
ivegna veðurs. — Þegar blaðið
| hafði samband við veðurstofuna
, um tvöleytið í gær, var talið, að
búast mætti við svipuðum élja-
Igangi og vinstyrk það sem eftir
I var dagsins.
I Þegar spurzt var fyrir hjá_yega
j gerðihni í gær, var vérið áð rýðja
Suðurlandsveginn upp frá Reykja
| vík. Krýsuvíkurleiðin var þá fær
|0g Hvalfjarðarleiðin var það einn
;ig í gærmorgun.
Frá Hvarfi langt suður í haf
Rokið og éljagangurinn nær
yfir svæðið frá Hvarfi og langt
suður í haf, en áttin er suðvest-
an. Klukkan átta í gærmorgun var
Gullfoss staddur skammt suður af
Reykjanesi í 10 vindstigum, er. veð
(Framhald á 15 siðu
Dattí
sjáim
Klukkan 1:45 í fyrrinótt
henti það við Ægisgarð, að
kona nokkur datt I sjóinn.
Henni var bjargað um borð
í enska togarann Red Sabre,
sem liggur við Ægisgarð.
Konan var síðan flutt á Slysa
varðstofuna, en þar sem
henni hafði ekki orðið meint
af þessu miðnæturbaði við
Ægisgarð, var hún flutt
heim til sín.
- ■ .............. -
Liósmyndari Tímans tók
myndirnar hér til hliSar í
svartasta élinu í gær. Það
var sannkallaður blindbyl-
ur þá stundina, og fólk
mátti hafa sig allt vlð að
hemja á sér höfuðfötin. —
Fólk gerðl tvennt í einu,
að skýla andlitinu og halda
höttunum kyrrum. Mynd-
Irnar eru teknar á horni
Pósthússtrætis og Austur-
strætrs, en þar er gjarnan
hvasst í bænum, þótt vel
viðri. Því miður var eng-
inn viðstaddur til að taka
mynd af Ijósmyndaranum,
en hann hefur áreiðanlega
þurft að halda vel um vél
sína, sem að sjálfsögðu er
eins og hver önnur kóróna
altra góðra blaðaljósmynd-
ara og því höfuðfat í viss-
um skilningi.
(Ljósmynd: G. E.)
?' ■
í •
■
MSSBSk