Tíminn - 11.02.1962, Síða 15
í skiptum
(Framhald af 1. siðu).
á sínum tíma. Hann flaug U-2 flug
vél yfir Sovétríkjunum og var skot
inn niður. Hann var síðar sakfelld-
ur af sérstökum dómstóli fyrir að
hafa verið á njósnaferð.
Réttanhöldin vöktu mikla at-
hygli, en þeim var bæði útvarpað
og sjónvarpað. Powers játaði sekt
sína og var dæmdur í 10 ára frels-
isskerðingu, þar af þriggja ára
fangelsi og sjö ára þrælkun. Hann
hafði afplánað tæplega tvö ár, þeg
ar 'hann var látinn laus.
Toppfundurinn fór út um
þúfur
Stuttu eftir flug Powers átti þrí-
veldafundur þeirra Eisenhowers,
Macmillans og Krústjoff að hefj-
ast i Paris. Krústjoff sneri heim á
leið, þegar fundurinn skyldi hefj-
ast, þar' sem Eisenhower vildi ekki
biðjast afsökunar á flugi Powers
yfir Sovétríkjunum. Fór toppfund-
urinn þar með út um þúfur.
Langur aSdragandi
Skiptin á Powers og Abel og stú
dentinum fóru fram á landamær-
um Vestur-Berlínar og Austur-
Þýzkalands við Potsdam. Það er
almennt álitið, að þessar náðanir
og afhendingar hafi átt sér langan
aðdraganda og hafi farið fram marg
ar viðræður milli fulltrúa frá Sov-
étríkjunum og Bandaríkjunum.
Powers fer nú umsvifalaust til
Bandaríkjanna og hittir þar fjöl-
skyldu sína, en síðan mun hann
hafa viðr’æður við embættismenn
þar vestra.
Islenzk orðabók
.Frumnaid al 9 siðui
útgáfur, áður en hún verður nokk
urn veginn villulaus.
Og þar með kveðjum við Árna
Böðvarsson og þökkum fyrir við-
talið, en hann heldur áfram að
glíma við sögnina að ausa.
Kannske einhver góðviljaður les
cndi geti i snatri skilgreint merk-
inguna í þessari sögn? En útskýr-
ingin má ekki vera lengri en fjög-
ur eða fimm orð. Reynið nú.
Hætt er þó við að lausnin komi
of seint, því að ekki má dvelja
lengi við livert orð. Þau verða um
60 þúsund í allri bókinni.
Jökull.
Er blaðamaðurinn gekk út úf
húsakynnum Orðabókar Háskólans,
var kallað á eftir hounm og sagt,
að orðinu blaðasnápur mundi
verða bætt í bókina í próförk.
Skrifaft og skrafaft
[l'iamhald al b siðu i
gjald af hreinum tekjum fé-
laga til ríkissjóðs.
Þetta var gifurleg breyting
frá þvi sem skattarnir voru
orðnir á árunum 1939—1949,
en öll þau ár voru fjármála-
ráðherrar úr Sjálfst.flokknum.
Síðan 1958 hafa ríkisskatt-
ar á félög verið lægri hér en
-t.d. í Bretlandi, Danmörku og
Noregi, og það samkvæmt lög-
gjöf, sem Framsóknarmenn
beittu sér fyrir.
Ríkisskattar hafa því ekki
síðan 1958 staðið atvinnu-
rekstri hér fyrir þrifuin, hvað
sem segja má á hinn bóginn
um tímabilið 1939—1949, þeg
ar fjármálaráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins höfðu foryst-
una.
Öðru máli er að gegna um
útsvörin, en þar hefur stefnan
verið mörkuð af Gunnari Thor
oddsen sem borgarstjóra í
Reykjavík. Höfuðeinkenni
þeirrar stefnu er veltuútsvars
farganið, sem Gunnar lét svo
lögfesta á síðasta þingi.
Útsvarsálagningin á atvinnu
rekstur undir forystu Gunnars
Thoroddsen, hefur verið slik,
að engin dœmi þekkjast ann
ars eins i nálœgum löndum.
Framsóknarmenn hafa því
samkvæmj; þessu (1958) beitt
sér fyrir skattalöggjöf fyrir fé
lög, sem er þeim hagstæðari
en í nálægum löndum, en Sjálf
stæðismenn hafa staðið fyrir
útsvarsálagningu (veltuútsvör
um) á atvinnurekstur, sem er
harðdrægari og óviturlegri á
alla grein en til þekkist í ná-
lægum löndum.
Fjárkrafa Matthíasar
Meðal þeirra mála, sem vak
ið hafa athygli síðustu dagana
,er fjárkrafa Matthíasar Jó-
hannessen, skálds, fyrir til-
vitnanir í ljóð hans. Tilvitn-
anir þessar birtust í ritdómi,
sem Hjálmtýr Pétursson rit-
aði um ljóð hans og Jóns úr
Vör. Hér skal enginn dómur
lagður á réttmæti niðurstöðu
þeirrar greinar, enda um hana
skiptar skoðanir, og það skipt-
ir ekki máli í þessu sambandi.
Það, sem athygli vekur, er sú
Steypujárn
8 — 12—16 m/m.
Harðviður
Teak
Afromosía
Camwood
Smíðafura þurrkuð
Krossviður
Alukraft einangrunarpappír
Aluminium sorplúgur
Cempexo málning
SAMBAND
fSLENZKRA
BYGGINGAFÉLAGA .
LAUGAVEGI 105 SÍMI - 17992
nýlunda, sem kemur fram í
fjárkröfunni. Ef þessi fjár-
krafa verður réttmæt fundin,
er augljóst að þeir menn sem
bregða því fyrir sig að skrifa
um ritverk annarra, ljóð eða
laust mál, geta ekki tekið til
dæmis kafla úr bókum, Ijóð
eða ljóðabrot, vísur eða hend-
ingar, án þess að eiga á hættu
háar fjárkröfur og dóma —
að minnsta kosti ef að er fund
ið. Það er eins og ekki sé eins
hart eftir gjaldi gengið, ef lof
hefur fylgt.
Flestir munu sammála um,
að nauðsyn sé til, að umræður
um þessi mál séu frjálsar, og
það er blátt áfram ekki hægt
að skrifa um bækur að gagni —
allra sízt ljóð — nema sýna í-
vitnanir. Og fer nú skörin að
færast upp í bekkinn, þegar
höfundar ætla að fara að
leggja hömlur á slík skrif. Út
yfir tekur þó, þegar höfundur
er einnig ritstjóri dagblaðs, og
ætti að skilja þetta sjónarmið,
og ekki er vitað til að haf i tekið
sig fram um að borga hverja
vísu eða ljóðlínu, sem tekin er
upp í greinum í blaðinu. Ann-
ars segja nokkrir kunnir rit-
höfundar álit sitt um þetta
mál hér í blaðinu í dag, og er
rétt að skírskota til þeirra.
Sjór gekk yfir
Eiöiö í Eyjum
Vestmannaeyjum, 10. febr.
Óvenju mikið hafrót er nú við
Eyjar og gekk sjór yfir Eiðið á
flóðinu í morgun. Slíkt skeður
ekki nema í aftökum, og mikill
háski á ferð, sjórinn nær að brjóta
sér leið inn í höfnina. Svo mikill
kraftur var á briminu í morgun,
að það ruddi grjóti úr malarkamb-
inum og inn á veg, sem er hafnar-
megin við kambinn.
Fyrir nokkrum árum var byrjað
á framkvæmdum til að styrkja
Eiðið með því að hækka það með
grjóti og byggingu garða sem ætl-
Sagan af manninum
Framhald £t 8. síðu.
taki um mig, hóf hnífinn á
loft og í sömu andrá og hann
snart mig, vaknaði ég.
Vinir Shays hlýddu á sögu
hans, og geðshræring þeirra
var mikil, vegna þess, að hvert
smáatriði í frásögninni var
háríétt pg sannleikanum sam
kvæmt. Sumir sögðust hafa
séð fiskinn opna og loka túl
anum, en enginn hafði heyrt
minnsta hljóð.
Eftir þetta náði Shay full-
um bata og vinir hans snæddu
ekki vatnakarfa upp frá þeim
degi.
Jóhanna Kristjónsdóttir
þýddi.
Fiskibátar til sölu
8 rúml. bátur, byggður
1960, með dragnótarspili,
línuspili og stoppmaskínu.
Fylgt geta 20 bjóð af ný-
legri línu.
10 rúml. báfur, byggður
1958, með 54 hestafla List-
er dieselvél, Simrad dýpt-
armæli, fjögurra manna
gúmmíbjörgunarbát og
miklu af veiðarfærum.
22. rúml. bátur með drag-
nótaveiðafærum. Einnig
heppilegur til loðnuveiða.
Einnig höfum við nú 40—
180 rúml. báta, með og án
veiðarfæra.
SKIPA- OG
VERÐBRÉFA-
SALAN
SKIPA-
LEIGA
VESTURGÖTU5
Vesturgötu 5.
Sími 13339.
Höfum einnig keppendur
að vel tryggðum skulda-
bréfum.
Kennslu hætt
(Framhald al l. síðu).
urskip, sem þá var statt um 600
km. suður af landinu mældi einn
ig 10 vindstig. — Milli Hvarfs og
íslands var mjög hvasst í gær-
morgun, og veðurekip, sem þar
var statt þá kl. 9, mældi 11 vind-
stig. — Veðurfræðingar töldu í
gær, að veðrið gengi niður í nótt
og snerist til sunnanáttar, en þá
var lægð yfir Nýfundnalandi.
Kl. 2,30 í gær var orðið fært
upp í Skíðaskála, en Hellisheiði
annars lokuð. Reykjanesbraut mun
þá hafa verið nokkurn veginn auð,
svo og Vesturlandsvegur fyrir
Hvalfjörð, en Brattabrekka var þá
talin lokuð og Holtavörðuheiði
sömuleiðis, en þar var orðið þung
fært í fyrrakvöld.
að var að brjóta ölduna. Þarna va
aðeins um byrjunarframkvæmdi
að ræða og vantar mikið á að verk
ið sé fullunnið. Eins og sást
morgun er sú hætta enn til staðai
að sjórinn brjótist þarna í gegn.
Skattamálih
Sú íimmta
(Framh. ai 16. síðu).
en Loftleiðir greiddu þriðjung
kaupverðsins við undir’skrift samn
ingana.
Verið er nú að búa flugvélina
undir afhendingu til Loftleiða, sem
fer fram í Miami á Flerida eftir
rúman mánuð:
Ný gerð af sætum verður sett
í flugvélina áður en Loftleiðir taka
við henni, en ákveðið hefur verið
að fá ný og þægilegri sæti í allar
flugvélar félagsins fyrir 1. apríl
n.k., en þá hefst sumaráætlun Loft
leiða, og verða úr því flognar 11
ferðir fram og aftur milli Evrópu
og Amerrku í viku hverri. Þessi
nýju sæti eru léttari og rýmri en
hin fyrri, en þeir er svo haganlega
fyrir komið, að auðvelt er að
fjölga um nokkura stóla í farþega-
sölunum frá því sem nú er, en þó
fer þar betur um farþega en áður.
Hinni nýju flugvél Loftleiða er
einkum ætlað að verða til taks ef
hlaupa þarf í skörð til þess að
firra töfum. Hefur það nokkuð háð
starfsemi Loftleiða að undanförnu
að félagið hefur ekki sjálft haft
ráð á slíkri varaflugvél, en alkunna
er að öll stærri flugfélög hafa slík-
ar vélar jafnan til taks, ef á þarf
að halda, og er að þeim mikið ör-
yggi til tryggingar því, að áætlan-
ir standizt. Verður ?essi ráðstöfun
Loftleiða því til,hins mesta trausts,
en auk þess að Verða til afleysinga
mun nýja flugvélin notuð til auka-
ferða, eftir því sem þörf kann að
krefja hverju sinni.
Eftir rúman mánuð munu um
425 manns geta setið í hinum fimm
farþegasölum Cloudmasterflugvéla
Loftleiða, en að viðbættum 35 af
140 manna flugliði Loftleiða, má
gera ráð fyrir, að eftir 1. apríl n.k.
verði þess ekki langt að bíða, að
460 manns fljúgi samtímis í öllum
flugvélunum fimm á flugleiðum
Loftleiða milli Ameríku og Ev-
rópu, réttum 18 árum eftir að lít-
il Stinsonsflugvél flutti 3 farþega
Loftleiða frá Reykjavík til ísafjarð
ar. — (Frá Loftleiðum).
Framhald al 7. síðu.
ir, þegar peningarnir rýrna í
gildi, þá þyngist skattbyrðin hlut
fallslega. Maður, sem byrjar a5
borga skatt við 70 þúsund króna
tekjur, hann byrjar í rauninni
að borga skatt við 35 þúsund kr„
ef verðlagið hefur tvöfaldazt.
Hafi skattstiginn verið réttur þeg
ar hann var settur og mannin-
um gert áð borga skatt við 70
þúsund krónur, hlýtur skattstig-
inn að vera orðinn meira en lítið
rangur, miðað við tilgang lög-
gjafans, eftir að verðlagið hefur
tvöfaldazt og hver króna aðeins
50 aura. virði. Einkum vex stig-
hækkunin (progressionin) ákaf-
lega ört. Þetta er nú samt það
ástand, sem ríkt hefur hér á und
anförnum árum og ríkir enn í
dag. Vegna hækkandi verðlags
hefur hlutfallsleg skattbyrði sí-
fellt þyngzt, án þess að löggjöf
in hafi sett þar um neinar regl-
ur, eða gert þar um samþykktir.
Er þetta þá ekki mjög erfitt mál
viðureignar? Nei, það er einfalt.
Það eru fá mál einfaldari viður-
eignar heldur en það að leiðrétta
skattstiga fyrir breytingum á
verðgildi peninganna.
Til þess að leiðrétta skattstig-
ann þarf ekki annað heldur en
margfalda bilin í skattstiganum
með 100 plús þeirri prósentu-
hækkun, sem orðiö hefur á verð
laginu og deila með 100. (Við
25% verðlagshækkun þarf því að
margfalda með 1,25). Og þarf
einnig að margfalda peningaupp
hæðina. sem á að borga í skatt,
(í bilinu) með sömu tölu. Þetta
er allur vandinn. Þessa margföld
un skattstiganna getur einn mað
ur gert á einum degi.
Skattstigarnir, sem nú gilda,
bæði fyrir tekjuskatt einstakl-
inga og eins fyrir útsvarið, voru
settir í apríl 1960. Þeir eru tæp
lega tveggja ára gamlir. Á þess
um tveimur árum hefur verðlag
ið, neyzluvöruverðlagið, hækkað
um 25%. Maður, sem borgar
skatt við 70 þúsund króna tekj
ur samkvæmt lögunum þegar
þau voru sett, borgar því í dag
í rauninni við 56 þúsund, og síð
an stighækkandi meira, eftir því
sem hann hefur meiri tekjur.
Beinu skattarnir hafa þess vegna
hækkað stórkostlega á þessum
tveimur árum, eða langtum
meira en um 25%, vegna aukinn
ar stighækkunar. í frumvarpi rík
isstjórnarinnar í skattmálum er
ekki eitt einasta orð um þetta
mikilvæga atriði. Á þá að hækka
alla beinu skattana um miklu
meira en 25% vegna fyrr byrj-
andi og stórlega aukinnar stig-
hækkunar? Hafi skattstigarnir
verið álitnir réttlátir af ríkis
stjórn og Alþingi fyrir tveim ár
um, þá eru þeir í dag mjög mik
ið úr leið; þeir eru ranglátir,
nema viðhorf þessara aðila sé
breytt. En hið nýja frumvarp
bendir ekki til slíks. Eða á að
láta handahófið ráða áfram?
Er ekki nóg að gert með því
að halda dauðahaldi í mjög
slæmt skattakerfi, þótt ekki sé
líka haldið dauðahaldi í það
handahóf, sem réttnefnt er
skattabrjálsemi?
T f MIN N, sunnudaginn 11. febrúar 1962
15