Tíminn - 17.02.1962, Blaðsíða 13
M I N N I N G:
Pétur HjáSmtýsson
í dag er kvaddur í Fossvogs
kirkju Pétur Hjálmtýsson,
Barðavogi 36, en hann lézt í
sjúkrahúsi 11. þ. m.
Jóhann Pétur hét hann
fullu nafni, fæddur 29. sept.
1875 á Svínhóli í Miðdölum
í Dalasýslu. Foreldrar hans
voru hjónin Hjálmtýr hrepp-
stjóri Magnússon og Sigríður
Jónasdóttir, er lengi bjuggu
á Svínhóli, en síðast á
Kvennabrekku. Voru þau
hjón vinsæl og vel metin,
enda af traustum og merkum
ættum komin, sem of langt
yrði að rekja. Skal hér að-
eins fárra atriða getið. Hjálm
Ritgerðarsamkeppni
um vernd tannanna
Fræðslunefnd Tannlæknafélags
íslands hefur ákveðið í samráðl
við fræðslustjóra Reykjavíkur og
fræðslumálastjóra, að efna til rit-
gerðarsamkeppni um efnið: —
„Hvernig get ég verndað tennurn-
ar?“
Tilgangurinn er að hvetja sem
flesta nemendur á barna- og ungl-
ingastiginu til umhugsunar um
hirðingu og vernd tanna sinna.
Öllum börnum á fræðsluskyldu-
aldri, er gefinn kostur á að taka
þátt í keppninni og ritgerðirnar
skulu ekki vera lengri en 350 orð.
Þær skulu samdar með hliðsjón
af væntanlegum blaðagreinum
fræðslunefndar Tannlæknafélags
íslands og öðnim upplýsingum, er
börnin geta aflað sér.
Greinar fræðslunefndar verða 5
að tölu, og mun hin fyrsta birtast
í öllum dagblöðum Reykjavíkur
laugardaginn 17. febrúar og Mðan
hver greinin af annarri á sama
hátt með viku millibili og sú síð-
asta hinn 17. marz.
Ritgerðir í sama skóla skal
skiifa á arkir af sömu stærð og
gerð til þess að auðveldara verði
að vinna úr þeirn. Ritgerðirnar á
að skrifa í skólanum undir um-
sjón kennara, og vinnur hver skóli
úr sínum ritgerðum, en sendir_3
þær beztn til Tannlæknafélags ís-
lands, Reykjavik, merktar nafni
höfundar og aldr'i, bekk og skóla.
Fræðslumálaskrifstofan hefur Iof-
að að annast miUigöngu, ef skól-
um þykir hentara að senda rit-
gerðirnar þangað.
Við mat ritgerðanna verður tek-
ið tillit til aldurs nemendanna.
Skólar, sem taka þátt í keppn-
inni, þurfa að hafa lokið henni fyr
ir 1. apríl og póstleggja ritgerðim
ar fyrir 10. sama mánaðar.
Bezta ritgerðin úr hverjum
skóla fær viðurkenningarskjal.
Þar að auki verða veitt verðlaun,
bækur o. fl., fyrir nokkrar beztu
ritgerðh'nar, og tvær þær, sem
skara fram úr, verða verðlaunað-
ar með flugfari innanlands.
týr hreppstjóri var fimmti
maður í beinan karllegg frá
Brandi hreppstjóra Skeggja-
syni, er bjó í Hvammsdal í
Saurbm 1703 og var kvæntur
Halldóru Teitsdóttur prests í
Bitruþingum, af Eydalaætt.
Sigríður kona Hjálmtýs var
dóttir Jónasar á Vatni í
Haukadal Marteinssonar. En
afi Marteins var Egill Egils-
son hinn auðgi á Vatpi. Dótt-
ursonarsynir hans voru hinir
nafnkunnu Sívertsens-bræð-
ur: Ólafur prófastur í Flatey,
Þorvaldur umboðsmaður í
Hrappsey og Matthías á Kjörs
eyri.
Pétur var yngstur barna
þeirra Hjálmtýs og Sigríðar.
Elzt var Sigurrós húsfreyja á
Hörðubóli (d. 1925), næstur
Magnús í Miðskógi (d. 1936),
þá Jónas (d. 1885) og næst-
yngstur Hildiþór á Harrastöð-
um (d. 1922), nafnkunnur
fyrir gestrisni og greiðasemi,
enda voru Harrastaðir í mik-
illi þjóðbraut í hans búskap-
artíð.
Þegar Pétur var níu ára,
drukknaði faðir hans í kaup-
staðarferð. En hann átti að,
auk móður sinnar, góð systk-
in, og naut því öryggis og
góðrar aðbúðar um öll æsku-
ár sín. Kom snemma í ljós,
að hann var starfh'neigður
og lagvirkur, athugull og
hagsýnn. En þröngt varð
mörgum svigrúmið í þá daga,
er þeir vildu fara að eiga með
sig sjálfir. Skortur var á
jarðnæði við hæfi framsæk-
inna ungra manna. Pétur hóf
búskap á Hörðubóli, en síðar
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andiát og
iarða rför
Friðjóns Jónssonar,
frá Bjarnasföðum
Rósa Þorsteinsdóttir og dætur.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er auðsýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför
Sigurðar Breiðfjörð Sigurðssonar
frá Hofakri, Hvammssveit.
Sesselía Bæringsdóttir,
börn og tengdabörn.
bjó hann á Gautastöðum og
í Skógskoti, lengst af þessi ár
í tvíbýli. Búnaðist honum þó
farsællslega þrátt fyrir erfið
ar aðstæður að ýmsu leyti og
mikinn tilkostnað. Eftir 15
ára búskap í Dölum fluttist
hann að Ytra-Leiti á Skógar
strönd. Blómgaðist þar hagur
hans. Bú hans var stórt,
eftir þeirrar tíðar mæli-
kvarða, og að því skapi gagn-
samt. Er búskaparsaga hans
vissulega fagurt dæmi um
það, hve miklu iðjusemi, ár-
vekni og hagsýni fær áorkað.
Kona Péturs var Helga
Þórðardóttir á Harrastöðum,
síðar lengi á Glitsstöðum í
Norðurárdal, Þorsteinssonar,
ágæt kona að mannkostnm
og í starfi, eins og hún átti
kyn til. Hún lézt fyrir 13 ár-
um. Börn þeirra, öll búsett í
Reykjavík, eru: Sigríður kaup
kona, Hjálmtýr kaupmaður,
Fanney, starfar við Þjóðleik-
húsið, og Þórdís Valgerður;
sér um heimili beirra.
Vorið 1935 brá Pétur búi og
fluttist tii Reykjavíkur. Ekki
settist hann þá í helgan stein,
heldur vann sleitulaust, eink-
um í smíðastofu sinni, meðan
kraftar entust. En öruggt
skjól átti hann hjá börnum
sínum til æviloka.
Pétur Hjálmtýsson var hæg
látur maður í framgöngu og
lítt gefinn fyrir ag Játa bera
á sér, ljúfur í viðmóti og
íhugull, en óhlutdeilinn um
annarra hagi. Með þökk og
virðingu er hann nú kvaddur
af mörgum vinum frá fornri
og nýrri tíð.
Jón Guðnason.
Sænsku samvinnufélögin
FramhaJd al 7 síðu
og verkalýðshreyfingarinnar í
Svlþjóð. Formaður sænsku
verkalýðsfélaganna, Arne Geij-
ir, flutti ýtarlegt ávarp á sein-
asta aðalfundi KF, þar sem
hann lýsti þeirri skoðun sinni,
ag leiðir samvinnuhreyfingar-
innar og verkalýðslhreyfingar-
innar lægju saman á mörgum
sviðum og frá sjónarmiði verka
lýðshreyfingarinnar hefði sam-
vinnuhreyfingin mikilvægu
hlutverki að gegna í þjóðfélagi
nútímans. Samstarf samvinnu-
hreyfingarinar og verkalýðs-
hreyfingarinnar hefur nýlega
verið áréttað með því, að þess-
ar hreyfingar beita sér nú
sameiginlega fyrir fjársöfnun,
sem síðar á að verja til náms-
styrkja handa væntanlegum
leiðtogum samvinnufélaganna
og verkalýðsfélaganna í
Asíu og Afríku. Á síðasta
aðalfundi KF var þetta mál
mjög rætt og hafði hinn þekkti
kvenskörungur Alva Myrdal
framsögu um það. Hún rakti
það m. a. í þessu eri.ndi sínu,
að forustumenn flestra þessara
landa hefðu mikla trú á því,
að samvinnufélagsskapurinn
gæti átt góðan þátt í uppbygg-
ingu þeirra. í þeim efnum væri
skemmst að minnast þeirra
orða Nehru, að þrennt væri
nauðsynlegt í hverju sveita-
þorpi í Indlandi í framtíðinni.
eða skóli, lýðræðislega kosin
sveitarstjórn og samvinnufélag.
Menntun, lýðræði og samvinna
eru beztir hornsteinar heil-
brigðs þjóðfélags. Þ.Þ.
Tannlæknaþjónusta
Framhald £f 8. síðu
Hið opinbera þarf auðvitað að
hafa forustuna, því ag þetta er
mikið fjárhagsatriði, og varðar
alla þjóðina.
Þyrfti að fá tannlækni til þess
að sjá u;m þessi mál og skipu-
leggja þau frá grunni. Gera
þyrfti framtíðaráætlun og fylgj-
ast síðan stöðugt meg þeim
miklu framförum, sem nú eru að
verða á sviöi tannlækninga, aðal-
lega hvað tækjum viðvíkur, til
aukinna afkasta og minnkunar
sársaukans. Sérstaklega til þess
að nýta til fullnustu þá fámennu
starfskrafta, sem völ er á. En
sum þau tæki, sem nú eru notuð
hér í skólum bæjarins, þyrftu
nauðsynlegra endumýjunar með
til þess að fylgjast með þeim kröf-
um, sem gerðar eru nú til dags
til slíkra tækja.
Því má heldur ekki gleyma,
þegar gerðar eru áætlanir um
skólabyggingar, að gera strax í
upphafi ráð fyrir góðri aðstöðu
til tannlæknisþjónustu í sjálfum
skólunum.
Ekki er að búast við að fáist
tannlæknir til starfa við alla skól-
ana strax, en frumskilyrðig er, að
stöðumar séu opnar, starfsskil-
yrðin góð og launin sæmileg,
þegar menn bjóðast og koma frá
námi. Skortur er á tannlæknum
víða, t.d. á Norðurlöndum, en
þess vegna er nauðsynlegt að nýta
sem bezt þá starfskrafta, sem
kostur er á. En hvergi nýtast
starfskraftarnir betur en við skóla
tannlækningar, þar sem haft er
reglulegt eftirlit með tönnunum
og skemmdirnar verða því aldrei
mjög útbreiddar og miklar.
Þetta er sjúkdómur, sem draga
má verulega úr, með tiltölulega
lítið tfmafrekum aðgerðum, séu
þær framkvæmdar á réttum tíma.
Sé aðgerðin aftur á móti dregin,
verður hún margfalt tímafrekari,
eða kannski óframkvæmanleg.
Við höfum fengið erlenda sér-
fræðinga í efnahagsmálum, um-
ferðamálum, loftvarnamálum o.s.
frv. En vig þurfum ekki s'iður að
fá sérfræðing og þá láklega helzt
frá Skandinavíu, til að skipu-
leggja tannlækningar í skólum
frá grunni og varnir gegn tann-
skemmdum. Einmitt núna er rétti
tíminn til slíks, þegar byggja þarf
allt frá grunni.
Tannlæknafélag íslands.
Getur Tomy
(Framhald af 2. síðu).
Englandi og víðar, og skoðanir
manna skiptar á þessari ráðstöf-
un. Vissulega er Sunday Times
réttu megin í pólitíkinni og hef-
ur slíkt álit, að ef menn vilja
teljast betri tegundar, þá kaupa
þeir Sunday Times. Enda er það
talið fullvíst, að ef um annað
dagblað hefði verið að ræða,
hefði þetta alls ekki komið til
greina, jafnvel þótt Tony hefði
bráðlegið á aurum.
Aumingja Tony! Það er svo
sem von, að hann vilji vera eins
og aðrir menn, þó að hann sé
giftur Margréti prinsessu. En það
er vandlifað í þeirri stöðu, menn
fylgjást með hverju skrefi hans
óg tala um allt, sem hann tekur
sér fyrir hendur.
Svitaperlur
(Framhald af 4 síðu)
en maður á að vera bjartsýnis-
maður — er það ekki? — Ann-
ars er þetta allt saman skrifað
í stjornurnar.
— Við erum að fægja stjörn-
urnar, segir Bidsted, — svo að
við getum lesið, hvað stendur
þar.
— Já, þetta er allt skrifað í
stjörnurnar, segir leikstjórinn
og horfir þögull fram í áhorf-
endasalinn.
Birgir.
Sænsk
úrvalsframleiðsla
L E VIN-FRYSTIKISTUR
150 — 250 — 410 lifra.
Samband ísl. samvinnufélaga
Véladeild.
TÍMINN, laugardagur 17. febrúar 1962.
13