Tíminn - 25.03.1962, Síða 11

Tíminn - 25.03.1962, Síða 11
mftiHfcapnrmál Pramihalld af 7. síðu. ggrt af mi.killi snilld og þó í s>tuttu máli. Einar lifði f tímum mikilla bjfltinga í íslenzku þjóðlífi. AI<írei hafa jafnsterkir erlend- ir straumar ffætt yfir landið, síðan kristnin kom. Kirkjan féddk nýjan anda og þurfti að fá sáteia og söngva nýja. Voru þeir sóttir til Lúthers og lærisveina hans, en umkveðnir á íslenzka tungu. En þeir meistarar málsins, sem um þá fjöHuðu, lögðu til hliðar mikig af þeim éinkennum, sem áður bar hæst í ljóðagerð ís'lend- inga. Þótti þá mörgum íhalds sömum manni, að miikils væri misst. En meistararnir svöruðu því til, að lúthersk hugsun, frjáls og kristileg, yrði ekki fjötruð í spennistakk ríms og stuðla og ekki sómdi nákvæmri hugsun nýrrar kirkju að bind ast úreTtum formum. Er svo að sjá af skrifum Guðbrands biskups, að hann hafi noklcuð látig undan síga fyrir þessurn áhrifamiklu röksemdum, og vildi hann þó vera fastheldinn á fornar ljóðvenjur. Einn af sálmum þessara daga hefst á þessa leið: „Ó, gug vor faðir, sem ert altið himnum á hátt yfir oss, því, andlega viltu tilheðinn vera, þitt heilaga nafn þú lát útbreiðast svo veglega að það sé prísað ævinlega á jarðríki sem himni þitt ríki til komi vor náð- lega, sem oss kann friðinn gefa.“ Hér var þá á 16. öld fundið það form, sem ekki setti frjálsri hugsun og fagurri fram setníngu óeðlilegar skorður. Þá kom Einar Sigurðsson fram á sviðið. Hrærði hann vöggu lausnarans svo snilldar- iega mcð rími og stuðlum fornrar venju, að sú hræring nær hjörtum íslendinga enn í dag. „Pjármenn hrepptu fögnuð þann, þeir fundu bæði guð og mann, í lágan stall var lagður hann, þó lausnarinn heimsins væri. Með víshasöng ég vögguna þína hræri.“ Þetta kvæði er nú orðið einn af sálmum íslenzku kirkjunn- ar, og stuðlar þess hafa staðið yfir moldum allra þeirra siða- bótarsálma, sem ættu ag heita atómsálmar á nútíðarmáli. Ég er einn þeirra manna, sem játa skuldir mínar við Einar í Eydölum. Ég hygg, að sigur hans yfir ljóðleysum Gísla biskups og stefnuhræðra hans hafi valdið reisn og feg- urð íslenzkrar ljóðagerðar í 300 ár. Andi hans er í sálmum Hallgríms og Matthíasar, og sami kliðurinn er enn í orðum Davíðs: „Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré.“ Svo segja hinir fróðustu menn, að Einar Sigurðsson hafi fyrstur íslenzkra manna ort ættjarðarkvæði. Heitir það „Vísnaflokkur um gæði ís- lands.“ Síðan hafi margir far- ið í fótspor Einars, og allt fram á þessa öld bera íslands- kvæðin sama hug og hreim. Einar Sigurðsson fæddist að Hrauni í Aðalreykjadal. Snill- ingur 19. aldar, Jónas Hall- grímsson, fæddist að Hrauni í Öxnadal. En hvar er nú það Hraun, sem elur bjargvætt þessarar aldar? Ritað í Holti í Önundarfirði á góu 1962. Guðm. Ingi Kristjánsson. Auglýsið í Tímanum Bezta bygging yðar BOKUNAR- DAGINN Hreinlætistæki frá Hollandi Handlaugar margar gerðir. W.C. samstæður S og P gerðir. VIS þökkum innilcga öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Guttorms S. Jónassonar, frá Svínafelii Vandamenn. Faðir minn og fóstri okkar, Jón Þórðarson, frá Hausthúsum andaðist í Landakotsspítalanum, föstudaginn 22. marz. Jarðarförin ákveðin fimmtudaginn 29. þ.m. kl. 10,30 fyrir há- degi í Fossvogskirkju, — Útvarpað verður frá athöfninni. Ketill Jónsson Þóra Árnadóttir, Ingólfur Kristjánsson Húsmæður Aukið fegurð augnanna með Kurlash augnsnyrtivörum. Kuriash Fæst í snyrtivöruverzlunum. Heildsölubirgðir: H. A TULINIUS Nú er kominu tími til að vekja blómin eftir vetrar- hvíldina og flýta fyrir þroska þeirra með töfra- mætti SUBSTRAL sem inni- heldur m. a. hið bráðþrosk- andi Bl. vitamín. SUBSTRAL er viðurkennt af vísindamönnum og ( fagmönnum á sviði blómaræktarinnar. SUBSTRAL fæst í öllum blómaverzlunum. íslenzka Verzlunarfélagið h.f. Laugavegi 23 Sími 19943. Vönduð vara Kynnið yður verð og gæði. Félagar í Byggingarsamvinnufélagi starfsmanna ríkisstofnana, sem hafa áhuga fyrir byggingu íbúða í sambýlis- húsi á vegum félagsins, eru beðnir að hafa sam- band við skrifstofuna í Hafnarstræti 8 næstu daga kl. 5—6 e. h. Stjórnin. BOKAMARKAÐUR Stærsti og fjölbreyttasti bókamarkaður, sem haldinn hefur verið hefst í Lista- mannaskálanum 30. marz n. k. Fjöldi fágætra bóka, sem ekki hafa verið á boðstólum lengi, með 50% afslætti Erá gamla verðinu. Einstakt tækifæri, sem ekki býðst aftur. BÓKAMARKAÐUR BÓKSALAFÉLAGS ÍSLANDS Listamannaskálanum. T í M I N N, sunnudagur 25. niarz 1962. 11

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.