Tíminn - 27.03.1962, Blaðsíða 16
........ ^............................
Óku hratt
og ultu
Á sunnudaginn fór bíll út af
veginum á Sandskeiði og enda-
sentist utan vegar nokkurn
spöl. Tveir menn voru í bíln-
um, ökumaður og eigandi, og
meiddist ökumaðurinn svo á
öxl, að hann liggur nú á
Landakoti
Þessir piltar voru að koma ofan
úr Skíðaskála á gömlum Ford, R
2379, en þegar þeir komu að beygj-
unni austan við Sandskeiðið missti
ökumaðurinn vald á bílnum, sem
þá fór út af vinstra megin vegar.
Bíllinn hlýtur að hafa verið á þó
nokkurri ferð, þvi þegar hann loks
nam staðar á hliðinni, sneri hann
í sömu átt og þeir komu úr. Önnur
hliðin var alveg úr bílnum, og lágu
hurðirnar 10—20 metrum austar
en bíllinn.
Sama kvöld valt VW bíllinn R
12887 við Grafarholtsendann. Var
hann að koma ofan að, en fór svo
greitt að ökumaðurinn náði ekki
beygjunni og bíllinn valt eina og
hálfa veltu. Bíllinn er mikið
skemmdur, en þau tvö, sem í hon-
um voru, sluppu við stórmeiðsli.
AÐSOKN VEXAÐ
STARFSFRÆÐSLU
S.l. sunnudag var haldinn 7. al-
menni starfsfrœðsludagurinn í
Reykjavík. Mikil aðsókn var að
deginum, og komu um 2608 manns
í Iðnskólann, eða nœrri 660 fleiri
en í fyrra. Fyrstu 15 mínúturnar
komu 700 manns inn í Iðnskólann.
Ekki liggja enn fyrir endanlegar
tölur um aðsókn að hinum ein-
stöku starfsgreinum, en þær voru
milli 130—40, enda er stundum
allerfitt að kasta tölu á þá, sem
leita fræðslu, því oft koma margir
í einu.
Nú í. ár spurðu 14—23 um skó-
smíði, og er það nýbreytni, því að
á undanförnum árum hefur enginn
spui't um þetta fag.
Flugfreyjur komust í efsta á-
hugasætið hjá ungu stúlkunum, en
hjúkrunarkonur, hárgreiðslukonur
og flugfreyjur keppa jafnan um
efsta sætið. Alls komu 270 stúlkur
til fulltrúa flugfreyjanna, 217 leit-
uðu sér upplýsinga um hárgreiðslu
og við fulltrúa hjúkrunarskólans
og hjúkrunarkvenna ræddu 253,
þar af tveir piltar.
Fulltrúi Samvinnuskólans sýndi
skuggamyndir frá skólanum alls 6
sinnum og fluttar voru leiðbeining-
ar af segulbandi um skólann sjálf-
an. Var þar um algera nýjung á
starfsfræðsludeginum að ræða, og
gafst hún mjög vel, og munu um
550 unglingar hafa komið til full-
trúa skólans.
Samband matreiðslu- og fram-
reiðslumanna hafði í tilefni dags-
ins gefið út mjög smekklegan
myndskreyttan bækling um námið
og störfin, og var hann vel þeginn
af unglingunum. Er þetta í annað
skipti, sem fulltrúar iðngreinarj
gefa út smekklegan fræðslubækl-!
ing í tilefni starfsfræðsludagsins, j
en fyrstir urðu skósmiðir. Alls'
Framhalri t> !5 s'ðu
Ljósmynd: Sigurður Bjarnason. Bílinn, sem valt á Sandskeiðinu í fyrradag.
EITURLYFJA-
SALI TEKINN
Á sunnudaginn var maður>
úr Reykjavík staðinn að sölu-
eiturlyfja á Akranesi. Varj
hann þá með á sér nokkurj
hundruð töflur af amfetamíni,
en það lyf verkar f jörgandi og
æsandi. Það er oft gefið eftir
læknisráði, og skólanemar
hafa oft neytt þess til þess að
halda sér uppi í prófum, og
hafa þá fengið það ýmist út á
lyfseðil eða hjá kaupahéðnum,
sem hafa smyglað því til lands-
ins. Mjög er hætt við, að þeir
sem taka að neyta amfetamíns,
verði háðir því og eigi erfitt
með að venja sig af því.
A sunnudaginn var lögreglunni
á Akranesi bent á að athuga Reyk-
víking, sem hafði aðsetur sitt á
hótelinu þar. Þegar lögreglan kom
þangað, hittist svo vel á, að mað-
urinn var að verzla með vöru sína,
og var hann þegar tekinn. Hann
seldi töfluna á kr. 6.
Reyndist hann hafa talsverðar
birgðir af lyfinu með höndum, og
auk þess skammbyssu og nokkuð
af skotum í hana. Var maðurinn
fluttur suður, og tók rannsóknar-
lögreglan málið í sínar hendur.
Málið er í rannsókn, og er ekkert
látið uppi um það að svo komnu,
en álitið er, að hér sé um smygl-
hring að ræða. Raddir hafa heyrzl
um það, að skip sé á leið hingað til
lands með meiri birgðir af amfeta-
míni, og að ráðstafanir hafi verið
gerðar til þess að fylgjast með
skeytasendmgum til þess.
Þa8 er trú manna, að ef Við-
eyjarkirkja stendur ekki opin,
verði sjóslys á Viðeyjarsundi.
Að undanförnu hefur Viðey
verið i eyði, en þar sem hún
er kostaland, hafa hestar oft
gengið þar af veturinn, og svo
er einnig nú í vetur. Þar sem
hrossunum er beitt þarna, en
kirkjan verður að standa opin,
nota þau tækifærið og leita
sér þar skjóls í kalsaveðrum,
en hrossataðið á kirkjugólfinu
ber því vitni.
Um helgina fór skátaflokkur út
í Viðey og skoðaði hann kirkjuna
m.a. Höfðu hrossin augsýnilega
lagt leið sína þangað inn, því að
gólfið bar þess greinilegar menjar.
Úrbætur von bráðar
Eigandi Viðeyjar, Stefán Steph-
ensen, gaf íslenzku þjóðkirkjunni
nýlega kirkjuna í Viðey og afhenti
biskupi formlega. Síðan mun hafa
verið ákveðið, að hún yrði fram-
vegis í vörzlu og umsjá þjóðminja
varðar, og er hún um þessar mund
ir að komast „á skrá“ þeirra húsa,
sem hann hefur umsjón með. Er
því engin von til þess, að hann sé
búinn að gera ráðstafanir til að
hindra, að menn og skepnur geti
valsað þar um að vild, en úr því
verður eflaust bætt á næstunni,
þar eð kirkjan er nú komin á skrá.
■------------——j—-——j—. . . , —, ,,------, , . , _ , „ . Annað væri ekki vanzalaust, því
Myndin er tekin á starfsfræðslunnl í iðnskolanum t fyrradag. Plltarnir eru að leika ser að toflu, sem symr raf. ag kirkjan j yigey mun Vera með
[kerfið í bíl. Þarna eru aðalljós, stefnuljós, flauta og þess háttar, og var s'töðug ös við töfluna. Umsjónarmaður elztu kirkjum ^ Jandinu. reist af
[hennar stóð álengdar og sagði: — Eg verð alltaf að taka hana í gegn lið fyrir lið, eftir að strákarnir hafa kom. SfcÖla^MagnÚssyni. Á gamalsaldri
í hanaí Liósmynd: Runélfuiv igaÉ'iSkúIi kirkjunni-.4caleik-og pat-
ínu með sérstakri áletrun, og eru
þessir munir nú geymdir í þjóð-
minjasafninu samkvæmt upplýsing
um þjóðminjavarðar, en verður að
öllum líkindum komið aftur fyrir
á sínum stað, þegar fært þykir og
bætt hefur verið úr ástandinu á
eynni.
Patreksfirði, 26. marz:
Þegar v.b.’Jónas Jónasson frá
Patreksfirði var að koma úr róðri
um kl. 23 á laugardagskvöldið varð
það slys, að Davíð Þórðarson varð
undir fisklöndunarkassa í lest báts
ins. Beið hann þegar bana.
Skipverjar höfðu verið að landa
afla bátsins, en við það voru not-
aðir þar til gerðir járnkassar, er
dregnir voru í land með spili og
bómu bátsins. Davíð var við vinnu
í lest bátsins og féll löndunarkassi
í höfuð honum, og lézt hann þegar.
Dráttarvír í kassanum hafði slitn-
að.
i ; '
Davíð var ókvæntur, en á móður
á lífi á Þingeyri. Hann var 22 ára
gamall.