Tíminn - 06.04.1962, Blaðsíða 6
Taka á 61$ milljónir frá bænd um
til stofnlánadeildarinnar á 14 árum
Frumvarpið um stofnlánadeild
landbúnaðarins og launaskattinn
á bændur kom til 1. umr. í neðri
deild í gær. Ingólfur Jónsson land
búnaðarráðherra fylgdi frumvarp-
inu úr hlaði og sparaði ekki stóru
orðin í garð Framsóknarmanna,
eins og harís var von og vísa. —
Þeir Ágúst Þprvaldsson og Ingvar
Gíslason andmæltu honum í snjöll
um ræðum. Hér fara á eftir stutt-
ir kaflar úr ræðu Ágústs Þorvalds-
sonar:
Varla verður um það deilt, að
þær miklu framfarir, sem á und-
anförnum áratugum hafa orðið í
sveitum landsins, hefðu ekki getað
átt sér stað ef ekki hefði við notið
þeirra lánasjóða, sem Framsóknar
flokkurinn beitt sér fyrir að stofn
aðir voru fyrir þremur áratugum,
til stuðnings landbúnaðinum, en
það eru Ræktunarsjóður og Bygg-
ingarsjóður sveitabæja.
Þessir sjóðir hafa með hagkvæm
um lánum gert bændum kleift að
ráðast í byggingar og ræktun. —
Þetta hefur svo leitt af sér gífur-
lega aukningu á framleiðslu land-
búnaðarvara þrátt fyrir það, þótt
fólki hafi á þessu tímabili fækk-
að í sveitum að minnsta kosti um
helming.
Örastar og mestar hafa þessar
framkvæmdir orðið síðasta áratug
inn og jukust þá á því tímabili
útlán þessara sjóða mjög mikið.
Má minna á, því til sönnunar,
hversu mikið fé þessir sjóðir
þurftu til að geta sinnt eftirspurn,
að á árunum 1955 til 1958 lánuðu
sjóðirnir árlega 40—50 milljónir
króna. Eigið fé sjóðanna nægði vit
anlega hvergi nærri til að lána
svona mikið fé. Á því tímabili
Þingstörf í gær
í efri deild voru frumvörp
um ríkisborgararétt, skipun |
prestakalla, sjúkraþjálfun, síld |
arútvegsnefnd og læknaskipun-
arlög til 1. umr. og afgreidd til
2. umr. og nefnda. Frumvarp
um dánarvottorð var afgreitt til
3. umr. og sömuleiðis frumv.
um almannatryggingar. Frumv.
um að afhenda Seðlabankanum
gengisskráningarvaldið var tek
ið til 2. umr. Ólafur Björnsson
mælti fyrir áliti meirihluta fjár
hagsnefndar og þeir Karl Krist-
jánsson og Björn Jónsson fyrir
álitum minnihlutanna.
í neðri deild var frumv. um
Síldarverksmiðjur ríkisins af-
greidd til efri deildar og breyt
ingatillaga Gísla Guðmundsson
ar og Gunnars Jóhannsosnar við
frumvarpið felld. Frumvarp um
lögskráningu sjómanna var af-
greitt til 3. umr. Frumvörp um
happdrætti styrktarfélags van-
gefinna, Háskóla íslands og
skemmtanaskatt voru afgreidd
til 2. umr. og nefnda. Frumv.
um stofnlánadeild landbúnaðar
ins og launaskattinn á bændur
var til 1. umr. Ingólfur Jónsson
fylgdi frumv. um hlaði. en auk
hans töluðu þeir Ágúst Þor-
valdsson, Ingvar Gíslason og
Halldór E. Sigurðssorí. Kvöld-
fundir voru í báðum deildum
í gær.
■nnaHHBBi
Ágúst Þorvaldsson.
varð oft verulegur tekjuafgangur
thjá ríkissjóði. Lánasjóðir þessir
fengu af því fé með sérstökum lög
um 52 millj. kr. Ræktunarsjóði var
auk þess fengið allmikið fé árlega
úr mótvirðissjóði. Þá var til þess
að sjóðirnir gætu lánað eins og
framkvæmdir bænda gerðu nauð-
synlegt, gripið til þess ráðs að
taka útlend lán og Byggingarsj. og
Ræktunarsj. fengu það til láns, til
þess að þeir þyrftu ekki að neita
bændum um lán til ræktunar og
bygginga.
Nú hafa mál skipast svo, að
gengi hefur verii. fellt tvívegis.
Þar með hafa allar þær stofnanir
og einstaklingar er tekið' höfðu
útlent fé til láns, orðið fyrir svo-
kölluðu gengistapi. Rikisvaldið tók
ákvörðun um gengisbreytingar
þær er þessum gengistöpum hafa
valdið. Lánasjóðir landbúnaðarins,
sem voru með útlent fé í veltunni
fengu sinn skell af þessu, en þar
tel ég að ríkinu hafi borið skylda
til að bæta úr. En það var nú ekki
því að heilsa. í ofanálag á allan
þann skaða, sem bændur ia
haft af gengisfellingum hæstv.
ríkisstjórnar þá var lánstími hjá
ræktunarsjóði styttur um V-í og
vextir hækkaðir um %.
Nú á að grípa til þess ráðs að
leggja sérstakan framleiðsluskatt
á bændurna og n„. jan neyzluskatt á
almenning. í vetur voru afgreidd
fjárlög upp á tæpa tvo milljarða
króna. Vissulega má deila um í.auð
syn ýmsa af þeim útgjöldum sem
þar eru, en ekki hefði munað mik
ið um að veita þeim ríkisstofnun
um, sem eiga að lána bændum fé
til framkvæmda nokkra hjá.p og
leysa vandræði þeirra eins og
Framsóknarmenn hafa alltaf gert
þegar þeir hafa einhverju ráðið
þar.
Mcðan framsóknc. ....mn höfðu
vald á þessum málum þá var láns
tími Ræktunarsjóðslána 20 til 25
ár og vextir 3—4%. Bændur f mgu
þá lán í Ræktunarsjóði eins og
þeir þurftu með til framkvæmda
og lán til ibúðarhúsa voru þá hlut
fallslega miklu hærri en þau u
nú.
Nú þegar búið er, með ráðstöf-
unum ríkisstjórnarinnar að nfa
þessar stofnanir niður, þá er farið
að tala um að byggja þær upp að
nýju, og þá á að gera það á þann
hátt að þeir sem enga sök eiga
á þessu niðurrifi. eiga að leggja
til að miklu leyti það fjárn.dgn,
sem til uppbyggingarinnar þarf.
Það er bændurnir sjálfir.
Uppbyggingin á, í stuttu máli,
að vera sú, að 1 stað þess að
vextir voru 3—4%, þá eru þeir
6—61/2%. í stað þess að lánsfími
var 20—25 ár, þá er hann nú
15 ár. Síðan eru bændur skatt-
lagðir í stórum stíl til sjóðanna,
þannig að þeir verða að láta af
sínum launatekjum 2%. Svo á að
lána þeim skattpeninginn sem
dregin er úr vösum þeirra aftur
með háum vöxtum. Þetta fram-
kvæmir sú stjórn, sem notar
hvert tækifæri til að auglýsa það,
að allar peningastofnanir séu nú
að fyllast af sparifé. Ilún sér eng
in ráð til þess að landbúnaðurinn
geti fengið eitthvað af j ssu
sparifé að láni. Nei, hún vill ’d
ur loka það inni í geymsluhóífum
bankanna heldur en Iána það til
bænda.
Áætlunin um( Efnahags- og
rekstrar Stofnlánadailda.innar
sem rui-----rpið gerir ráð fyrir
að komið verði á fót, er fróðlegt,
og sýnir hvernig ætlast er til að
þessi stofnlánadeild verði byggð
upp. Þessi áætlun nær yfir tíma-
bilið 1962 tii 1975 \eða í 14 ár.
» eaeu' hj n
Á þessum 14 árum er ætlaA til
að tekjurnar verði þessar:
Það er í fyrsta lagi vextir af
lánum til bænda 485 og hálf millj.
kr. í öðru lagi framlag ríkissjóðs
á fjörlögum 56 millj. kr. í þriðja
lagi 1% skatturinn á landbúnaðar
vörur og mótframlag ríkissjóðs,
sem er til samans 265 millj. kr.
rúmlega. Af þessu leggja bændur
fram helminginn eða 133 millj.
kr. í fjórða lagi er svo neytenda-
skatturinn, en það er áætlað að
hann geri um 86 millj. kr.,— í
fimmta og síðasta lagi Mótvirðis-
sjóðsframlagið sem á að verða 570
'millj. kr.
Af þessu sést að frá bændum
eiga að koma í framlagi og vöxt-
um nál. 618 millj. króna.
Það er augljóst að í þessari á-
ætlun um uppbyggingu stofnlána
deildarinnar er gert ráð fyrir að
halda 6%% vöxtunum á útlánum
d uldarinnar.
Ég hafði haldið, að hæstv. land
búnaðarráðherra þætti nóg aðgert
með hækkun vaxta á landbúnaðar-
lánum um % og styttingu láns-
tíma um 14, þó ekki kæmi einnig
til stórfelld skattlagning á bænd-
ir :a.
Það hafa margir bændur og
framámenn í þeirra hópi látið í
ljósi kvíða yfir því að meðalaldur
bænda í þeirri og þeirri sveitinni
sem um var rætt, sé alltaf að
hækka. Ungu mennirnir geti tkki
tekið jarðirnar og þegar hinir eldri
falli frá, þá sé ekki útlit fyrir að
nýir komi í staðinn. Það getur
ekki verið neitt vafamál, að efna
hagsráðstafanir þær, sem núver-
andi hæstv. rikisstjórn hefur gert,
hafa nú þegar eftir stuttan íma
orðið bændum svo þungar í
skauti, að í góðu árferði eins og
verið hefur nú tvö síðustu árin,
þá eru erfiðleikar í efnahagsmál-
um bænda mjög vaxandi. Hið -ór
hækkaða verðlag á rekstrarvörum,
svo og vélum og byggingarefni,
hækkun vaxta og stytting láns-
tíma, eru allt samverkandi orsak-
ir til að kippa fótum undan heil-
brigðum búrekstri, í ofanálag bæt
_ist svo það, að dómur sá um verð
’grundvöllinn, sem felldur var af
meirihluta yfirnefndar á s.l. hausti
hefur áreiðanlega dregið kjark úr
mörgum og gert þá vonlitla, og fer
svo alltaf þegar menn sjá að þeir
eru órétti beittir, en geta .kki
fengið aðgert til að rétta hlut sinn.
Sú nýja skattlagning á bænd-
urna sem hér er gert ráð fyrir, er
harkaleg. Framleiðsluskatturinn
samsvarar 2% af launum þeirra að
meðaltali. Auk þess er 0,75%
n eyzluskatturinn, en hann kemur
einnig að talsverðu leyti á bænd-
ur.
Ég býst við að launþegum í land
inu þætti ríkisvaldið leika sig all
grátt, ef lagður yrði á þá sérstak
ur launaskattur, t.d. 2%, sem IIús-
næðismálastofnun rikisins fengi til
að efla byggingarsjóðinn. Ætli
verkamönnum, sjómönnum og em
bættismön. ám þ. „kki muna
um sl'kan skatt. Slík skattlagning
væri þó alveg hliðstæð þeirri sem
hér er verið að koma á fót, og
margt hefur ótrúlegra gerzt en það
fordæmi sem með þessu frumv.
er verið að skapa, verði brátt not-
að og slík skattlagning hafin. Að
sérstakur launaskattur á almean-
ing verði upptekinn til þess að ila
lánastarfsemi í bæjum. Ég veit
ekki hvar skattlagningaræði liæstv.
ríkisstjórnar endar. Það væri svo
■sem auðvelt að raka saman miklu
fé á þennan hátt.
Góðar
fermingargjafir
Skíði, Skautar, Vindsængur,
Ferðamatar-áhöld í tösku,
Ferðagasprísumar,
Svefnpokar, Tjöld,
Bakpokar. Myndavélar,
.Vpiðistangarsett og fl.
PÓSTSENDUM.
Sport
Austurstræti 1,
Kjörgarði, Laugaveg 59,
| sími 13508
Ásgeir Bjarnason hafði í sameinuðu þingi í fyrradag framsögu
fyrir þingsályktunartiilögu, sem hann, flytur ásamt Ólafi ,Tó-
hannessyni um endurskoðun skiptalaga. Gildandi skintalög eru
frá árinu 1878 og þar af leiðandi af skiijanlegum ástæðum úrelt
orðin. Alþingi er nýbúið að afgreiða ný erfðalög, en skiptalögin
og erfðalögin eru í nánum tengslum. Sagði Ásgeir að því frem-
ur væri nú brýnt að endurskoða og lagfæra skiptalöggiöfina.
Nú gilda t.d. ekki sömu matsreglur alls staðar við skipti á dánar-
búum. Mannréttindi hafa tekið miklum breytingum síðan 1878
eins og kunnugt er og þó einkum réttindi kvenna. Ný ákvæði
og margháttuð breyting ýmsra ákvæða laga hefur orðið, sem lög-
gjafinn 1878 gat ekki séð fyrir eða tekið tillit til. — Ásgeir
sagði, að þar sem tillagan færi aðeins fram á það, að endur-
skoðun skiptalaga færi fram og þar sem ágreiningslaust lilyti
að vera um siíka endurskoðun, en mjög liðið á þingtímann og
því ólíklegt að tillagan fengist afgreidd frá nefnd, leggði hann
til, a® tillögunni væri ekki vísað til nefndar, heldur kæmi strax
tii atkvæða. Forseti spurði þingheim, hvort óskaði eftir því að
tiliagan færi til nefndar. Stundarþögn var, en svo hóf Emii
Jónsson ráðherra upp róminn og sagði sjálfsagt að vísa til-
lögunni tii nefndar eða með öðrum orðum að svæfa hana í nefnd.
Fékk hann það samþykkt. — Svo illa stendur nú hnífur í ráð-
herranum, að þeir geta ekki Iiðið, að ein einasta tillaga Frám-
sóknarmanna fái samþykki, — þótt um almenn mál séu og vitað
að enginn ágreiningur ríkir um í raun og veru.
\
Hl Ingvar Gíslason sagði í gær við umræður um landbúnaðarmálin,
að hið eina nýja, sem núverandi ríkisstjórn hefði haft til land-
búnaðarmála að leggja, væru nýjar skattaálögur og hærri kostn
aður við búrekstur, og þarafleiðandi stórum verri kjör bænda.
— Taldi hann þó ekki ólíklegt, að stjórnarflokkamir mvndu
ekki veigra sér við að telja sér sérstaklega til ágætis „afrekin“
í landbúnaðarmálunum.
m í gær var kosið hlutfallskosningu í sameinuðu Alþingi í hús-
næðismálastjórn. Kjörnir voru 5 menn, samkv. hinum nýju
lögum, sem afgreidd voru í fyrradag. Með þeim var hámarks-
heimild lána hækkuð i 150 þús. á hverja ibúð. Leikuripn mun
þó ekki sízt hafa verið gerður til að koma Þorvaldi Garðar
Kristjánssyni í stjórríina, en hann var kjörinn, auk þeirra fjög-
urra sem fyrir voru í húsnæðismálastjórn, þeirra Eggerts G.
Þorsteinssonar, Ragnars Lárussonar, Hannesar Pálssonar og
Guðmundar Vigfússonar.
t
T í MIN N , föstudaginn 6. apríl 1962