Tíminn - 19.05.1962, Síða 2

Tíminn - 19.05.1962, Síða 2
LATUM BIÚMIN TALfl - Sú regla hefur komizt á, að einn sunnudagur í ári er helgaður mæðrum landsins, og sýna þá flestir þeim kon- um, sem þeim eru efst í huga, jafnvel en meiri sóma og virðingu en aðra daga ársins. Þetta er gert að er- lendri fyrirmynd og er mæðradagurinn orðinn jafn legur siíur, að tjá mæðrum hug sin með því að gefa þeim blóm á mæðradagmn öðrum dögum fremur, og láta ilmrík og lit- fögur blómin um að lýsa þeim tilfinningum til mæðranna, sem orðin ná ekki að tjá. Það er engin höfuðnauðsyn að hver og ein gefi blóm svo kílóum skipti, heldur aðeins að vera með, allir gefi falleg blóm, börn mæðrum sínum, eiginmenn mæðrum f Reykjahlíð eru 1800 fer- metrar undiir gleri. Þar sáum við Ijónsmunna, gladiolus, chrys antemum og ilmskúf, svo eitt- hvað sé nefnt. Og þar hellti Hákon upp á könnuna og gaf okkur kaffi. Svo sem að framan sést, vinna ekki aðrir við gróðrarstövarnar en minnst verður komizt af með og fjölskyldan leggur öll hönd á plógínn. Samt eru blómarækt- endur ekkert ofsælir af sínum ágóða. Ber þar margt til. Gróð- urhús eru dýr í byggingu, og mikil vinna er við það að hugsa um blóm, sem ekki þola ís- lenzka veðráttu. Það þarf að gæta hitastigs, raka, og áburð- ar, og það þarf að' þrífa til, planta út, grisja, skera upp. ganga frá vörunni fyrir markað og ótal margt annað. Og þeir verða að eiga kæli, til þess að geyma blómin fersk. Við skulum því ek'ki láta neitt aftra okkur á morgun, heldur fara snemma á fætur og kaupa blóm — blómabúðir verða opn- ar frá hálftíu til tvö — og láta þau tala við mæðurnar okkar. Blóm eru öllum til yndisauka. —. s VIÐ MÆÐURNAR Á MORGUN ELSTIKARLAKÚR NOR EGS I SÖNGFÚR HÉR Heimasæturnar i Reykjahlfð hrelnsa fjær en Maja nær. sjálfsagSur og sumardagur- inn fyrsti og verzlunar- mannafríhelgin, svo ekki séu nefndir aðrir hátíSis- dagar. Og mæðradagurinn er á morgun. Það slagorð, sem erlendir aijg lýsingasérfræðingar telja hið bezta sem fram hefur komið og meta á 10 þúsund dollara, er hið fræga „Say it with flowers", sem á íslenzku myndi vera „seg- ið það með blómurn." Einhvern veginn hefur íslenzka þýðingin ekki náð fótfestu, enda færi kannske betur að segja: Látum blómin tala. Og það er einmitt á mæðradaginn, sem flestir fylgja þessu slagorði og láta blómin tala. Það er fallegur og skemmti- Karlakór Reykjavík ur austur fyrir fjall Karlakór Reykjavíkur efnir til samsöngva nk. sunnudag að Hvoli kl. 3.30 og Flúðum kl. 8.30 um kvöldið, og er þetta í fyrsta skipti, sem karlakórinn syngur í hinum nýju félagsheimilum á þessum stöðum. í kórnum eru 40 manns og einsöngvarar verða Sigurveig Hjaltested og Guð- mundur Jónsson. Söngstjóri er Sigurður Þórðarson, tónskáld, en við píanóið Fritz Weisshappel. krlngum chrysantemum — Anna barna sinna, unnustar stúlk- unni, sem þokað hefur móður- inni úr efsta sæti. Þetta kostar ekki mikla peninga, en ber ríku legan ávöxt. Blómaræktendur í Mosfells- sveit buðu fréttamönnum nýlega í heimsókn í gróðurhúsin í Mosfellsdalnum, og þar fengum við að sjá 'breiður af blómum, sem eiga að hjala við mæður Reykjavíkur og nágrennis á morgun á mæðradaginn. Fyrst komum við í gróðrar- stöðina að Reykjadal. Hún er eign Mosfellskirkju, en for- stöðumaður er Einar Kristjáns- son. Einar hefur 1100 fernietra undir gleri, og sýndi okkur breiður af ilmskúfi (levkoj), sem á a?s tala á morgun. Auk Einars vinnur kona hans. Guð- björg Kristjónsdóttir, við blóma ræktina, og krakkarnir í ná- greinninu vinna sér inn vasa- pening með því að reita hjá þeim arfa við og við. Auk ilm- skúfsins hefur Einar mikið af rósum, sem að margra áliti eru blóm blómanna. Því næst komum við í Reykja hlíð, en þar á Reykjavíkurborg gróðrarstöð undir umsjón Jóels Jóelssonar. Auk Jóels vinnur þar Hákon Jóhannsson við stöðina, svo og konur þeirra, Salóme Þorkelsdóttir og Hólmfríður Guðvarðardóttir. Þegar við kom um að Reykjahlíð voru dætur þeirraeinnig að dútla í húsun- um, Anna Jóelsdóttir og Maja Hákonardóttir. Norski stúdentakórinn, sem er elzti og þekktasti karlakór í Nor- egi, er kominn í söngför til Is- lands. Mun kórinn halda tvenna SVERRE BRULAND tónleika, aðra í samkomuhúsinu á Akureyri á sunnudag kl. 5 en hina í Gamlabíói í Reykjavík á mánu- dagskvöld kl. 7. Stjórnandi kórsins er Sverre Bruland, en kórinn skipa 45 eldri og yngri stúdentar. Ölafur Noregskonungur er verndari söng- fararinnar til íslands. Stúdentakórinn noiski var vænt- anlegur til landsins á föstudags- kvöld með flugvél frá flugfélagi Braathens. Dveljast ■ kórmenn á heimilum íslenzkra kórmanna, Nor egsvina, stúdenta og á stúdenta- görðunum. Á laugardag fara þeir í boði Reykjavikurbæjar til Þing- valla og síðdegis heldur norska sendiráðið boð fyrir þá. A sunnu- dagsmorgun fljúga þeir til Akur- eyrar með Flugfélagsflugvél og taka kórmenn á Akureyri á móti þeim. Á mánudag skoða þeir há- skólann og borða hád.verg í boði skólans og um kvöldið, eftir hljóm- leikana í Gamla bíó.munu þeir borða í veitingahúsinu Klúbburinn og taka þar nokkur lög um kvöldið, og eru kórmenn, Noregsvinir, stú- dentar og aðrir, sem vilja hitta þá og heyra, velkomnir. Á þriðjudags morgun halda Norðmennirnir utan aftur. Á söngskrá kórsins eru fjölmörg lög, mes-t eftir norska höfunda, þar á meðal Grieg. Af blaðadóm- um, sem borizt hafa frá Noregi, má sjá að Norðmenn telja þetta sinn bezta kór, og fær hann mjög lofsamlega dóma. Hljómsveitar- stjórinn, Sverre Bruland, er ungur maður, sem hefur fengið alþjóð- leg verðlaun fyrir hljómsveitar- stjórn í Englandi og Bandaríkjun- um. Formaður kórsins er Eyvind I Svensen, tannlæknir. Leiðin til bættra lífs- kjara er að kjósa EKKI Sjálfstæðisflokkinn Eiga þeir, sem reyna allt hvað þeir megna til að koma í veg fyrir að vinnufriSur hald ist í landinu og beita sér gegn liinum minnstu og hóflegustu kauphækkunum, þótt cnginn ábyrgur aðili treysti sér nú lengur til að reikna út, hvernig meðalfjölskylda á að lifa af launum venjulegs vinnudags, eiga þeir skilið traust og aukiS fylgi í þessum kosningum? — Eiga þeir sem hafa gert unga fólkinu nær ókleift að eignast þak yfir höfuðið skilið aukið traust? Eiga þeir, sem hafa stór hækkað vexti, fryst lánsfé og gert framkvæmdir svo dýrar, að aðeins þeir f jársterkustu geta Iagt í verulegar framkvæmdir, skilið að fá sérstaka trausts- yfirlýsingu frá unga fólkinu? Stjómarflokkarnir munu telja atkvæði þau, sem þeir fá í borgarstjórnarkosningunum stuðning við þessar aðfarir. — Vill unga fólkið ýta undir meira af slíku? » Gatnagerðin í hverjum einustu borgar- stjórnarkosningum undanfama áratugi hefur SjálfstæSisflokk- urinn lofað stórbættum vinnu- brögðum og miklum fram- kvæmdum í gatnagerð, lofað ná kvæmum jarðvegsrannsóknum áður en götur em ákveðnar, stórvirkum vinnuvélum, vísinda legum rannsóknum til að fá sem haldbezt efni og hentugar aögerðir til gatnagerðar, eink um þó endurbótum á gatnagerð inni í nýjum íbúðahverfum. — Allt hjakkar þó í sama farinu. Hlutfallið milli moldar og mal argatna annars vegar og malbik aðra gatna hins végar, verður sífellt óhagstæðara með hverju árinu sem líður. f engri borg í heiminum greiða borgararnir þó hærri skatt til gatnagerðar en í Reykjavík. Tækni er næsta óþekkt fyrirbrigði. Á sama sumrinu og ísl. aðalverktakar á Keflavíkurflugvelli malbikuðu 4 km. á einum sólarhring, mal- bikuðu vinnuflokkar borgarinn ar 90 metra á sumrinu. Bláa bókin hefur orðið: Ekki þarf að lýsa fyrir Reyk víkingum ástandinu á götum út- hverfa Rvíkurborgar, en nú gef- um við bláu bókinni orðið: „Að stofnað verði til vísinda- legra rannsókna um hentugasta efni og aðferðir til gatnagerðar og að haldið verði áfram kaup- um stórvirkra vinnuvéla af ný. tízku gerð til gatnagerðar og annarra bæjarvinnu". — Bláa bókin 1946. Þessu var Iofað fyrir 16 ár- um. Reykvíkingar hafa fylgzt með því undanfarna daga hvern ig hinar „nýtízku" aðferðir eru, þ.e. skóbæturnar á malbikinu, sem gera götumar að tómum mishæðum. „Að haldið verði áfram vís- indalegum rannsóknum til þess að fá sem haldbezt efni og hent ugar aðferðir til gatnagerðar og að sérstaklega séu rannsakaðir möguleikar til endurbóta á gatnagerðinni í nýjum íbúða- liverfum. Að hinum ýmsu starfs greinum sé á hverjum tíma séð fyrir nægjanlegum, nýtízku vélakosti og stórvrikum vrek- færum." — Bláa bókin 1950. „Að haldið verði áfram vís- indalegum rannsóknum til þess að fá sem haldbezt og hent- gatnagerða. Að haldið sé áfram (Framhald á 15 síðui 2 TÍMINN, laugardaginn 19. maí 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.