Tíminn - 19.05.1962, Qupperneq 3
Taldi skipun Kennedys
áfuieqa
NTB—Bangkok, 18. maí. —
Bandaríski hershöfSinginn,
Paul Harkins, hvatti í dag öll
aðildarríki SEATO til að senda
hersveitir til Thailands. Rétt
áður höfðu blöðin skýrt frá
því, að forsætisráðherra Thai-
lands, Sarit Thanarat marskálk
ur, hefði látið svo um mælt,
að bandarísku hersveitirnar í
landinu væru nógu öflugar til
að verja landið gegn árásum
og ógnunum kommúnistahers-
ins í Laos.
STOKKHOLMUR
- REYKJAVÍK
Svart: F. Ekström
Harkins sagði, að með því. að
senda her til 'l'hailands legðu
SEATO-ríkin_ áherzlu á sterka sam
stöðu sína. í Bankok er sagt, að
Thanarat hafi skýrt frá því, að öll
! SEATO-ríkin hafi boðið Thailandi
aðstoð sína, nema Frakkland, og
væru reiðubúin að senda liðstyrk
þangað, ef þess yrði óskað. Enn
hefur ekki verið óskað eftir því, en
ríkjunum hefur verið þökkuð hug
ulsemin. Þau ríki, sem um cr að
ræða, eru, auk Bandarikjanna:
Bretland, Pakistan, Filippseyjar,
Ástralía og Nýja-Sjáland. í thai-
lenzka utanríkisráðuneytinu eru
raddir uppi um, að Thailand hafi
ekki beðið Bandaríkin um aðstoð,
heldur tekið tilboði þeirra.
Hverfa yfir landamærin
Harkins hélt því fram, að enn
væri alls ekki víst, að tekizt hefði
að kveða niður bardagana í Laos,
og hann áliti, að enn ættu sór stað
smáværingar hinum megin við
landamærin. Hersveitir þær, sem
nú lúta stjórn hans í Thailandi,
1000 landgönguliðar og 1800 flota
hermenn, munu taka þátt í ströng
Hvítt: F. Ólafsson
16. Bxc4 — Re6a5
17 Bc4a6 — Rf6e8
18. b2b3 — De7c7
Friðrik segir: Hvítur vinur nú
markviss að því að hrekja riddar
ann á a5 í burtu, en svartur reyn
ir að hindra það.
Nú vantar skip
NTB—Algeirsborg, 18. maí.
— Síðdegis í dag var vitað um
18, sem höfðu fallið í Algeirs-
borg og Oran síðan í morgun.
13 voru Serkir, þar af 6 konur.
Fólk heldur áfram að streyma
úr landi.
Tíu menn með grímur ruddust í
dag inn i skattstofu í Oran. Eyði-
lögðu þeir öll þau skjöl og pappíra,
sem þeir komust yfir og kveiktu
síðan í húsinu. Evrópumenn halda
áfram að streyma úr landi, og í
morgun lagði skipið Ville de Mar-
seille af stað með 1600 farþega um
borð. Verið er að kanna þann
möguleika að fá fleiri skip til þess-
ara flutninga í næstu viku. Michel
Fourquet sagði í dag, að ósannar
væru erlendar blaðafregnir um al-
varleg átök franskra hersveita og
FLN-hersveita á landamærum Al-
sír og Túnis. Eina atvikið, sem um
geti verið að ræða, gerðist 15. maí,
þegar FLN-herinn setti upp landa-
mæravirki við Sidi Freidji. Þetta
var í ósamræmi við Evian-samning
inn, og herinn dró sig síðan til
baka. í Túnis sat alsírska útlaga-
stjórnin á fundi og ræddi ástandið
í Alsír og framkvæmd Evian-
samningsins, og sérstaklega ástand-
ið við landamærin.
um heræfingum, meðan þeir dvelja
í Thailandi. Ambassador Banda-
ríkjanna, Kenneth Young, var
spurður, hvort til greina kæmi, að
bandarísku hermennirnir færu yf-
ir landamærin til að berjast. Hann
kvað það algerlega háð því, hvort
Thailandi yrði ógnað, herinn væri
til að verja landið gegn árásum
og tryggja öryggi þjóðarinnar. —
Nokkur hundruð flóttamenn frá
Laos hurfu i dag aftur yfir landa-
mærafljótið Mekong, og allir Laos
hermennirnir, sem flúðu til Thai-
lands um daginn hafa nú verið
fluttir heim, og flutningaflugvélar
fljú.ga nú látlaust til þeirra með
vopn og vistir. Búizt er við fram-
sókn kommúnistahersins á hverri
stundu á ákveðnu svæði, en i
Singapore eru brezkar þotur til-
búnar til flugtaks með nokkurra
mínútna fyrirvara. Ný-Sjálending-
ar eru og fúsir að senda her, ef
óskað verður.
Souvanna Phouma til London
í London segir talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins, að ástandið í
Laos sé óbreytt, og ríki þar ró
og spekt. Bretar hafa ekki verið
beðnir um aðstoð enn. Utanríkis
ráðuneytið skýrði frá því, að hlut-
lausi prinsinn, Souvanna Phouma,
kæmi til London i fyrramálið og
ræddi við Home lávarð, utanríkis
ráðherra Breta á sveitasetri hans,
áður en prinsinn leggur af stað
heimleiðis, sem verður á morgun.
Gert er ráð fyrir, að Home brýni
(Framh á 15. síðu i
Kvennaíundur
Félag framsóknarkvenna í
Reykjavík heldur fund í Tjarnar-
götu 26, mánudaginn 21. þ.m. og
hefst hann kl. 8,30 e.h. Stutt á-
vörp flytja Kristján Benediktsson
Ásta Karlsdóttir, Hjördís Einars-
dóttir, Halla Eiríksdóttir og Sig-
ríður Björnsdóttir. Auk þess mun
Sigríður Thorlacius segja frá ný-
lokinni Bandaríkjaför sinni og
sýna litskuggamyndir. — Allar j|
stuðningskonur B-listans í Reykja-
vík eru velkomnar á fundinn með-
an húsrúm leyfir.
Stjórnin.
0AS HOTAR AD
DREPA DÓMARA
NTB—París 18. maí. — í
dag hótaði OAS dómurum Sal-
ans dauða, ef Salan og Jou-
haud yrðu dæmdir til dauða
og teknir af lífi. Hótunarbréf-
ið var lesið upp í réttinum af
Vill tala
við Rusk
NTB—Genf 18. maí
Á afvopnunarráðstefnunni í dag
lagði sovézki fulltrúinn, Zorin,
til að hann og utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Dean Rusk,
reyndu ag brúa bilið milli þeirra
sjónarmiða, sem fram hafa komið
i sambandi við fyrsta stig afvopn
unar. Margt hefði skýrzt á ráð-
stefnunni og ágreiningsefnuim
fækkað, og allt yrði að gera til
að reyna að finna lausn á vand-
anum. Aðeins tveir möguleikar
eru til að forðast ógnir kjarnorku
stríðsins: að eyðileggja kjarn-
orkuvopnin eða hindra notkun
þcirra, sagði hann. Brezki full-
trúinn, Godber, kvag ef til vill
vera hægt að finna leið til sam-
komulags, ef Sovétríkin féllust á
eftirlit, og þó að komið yrði á
eftirliti, þýddi það ekki að Vest-
urveldin ætluðu að grandskoða
öll Sovétríkin og gægjast inn u.m
hverja rifu. en þau vildu fá að
framkvæma eftirlitið, ef og þegar
þau vildu
leikaranum André Gavalda, en
það er undirritað OAS. í bréf-
inu segir, að það sé sent sam-
kvæmt skipun Yves Godard,
ofursta, sem er einn af leið-
togum OAS.
Forseti réttarins, Charles Born-
et, skýrði frá því, er bréfið hafði
verið lesið upp, að flestir dómar-
arnir hefðu þegar fengið slík bréf.
Verjandi Salans, Vignancourt,
reynir enn að fá ýmsa fræga menn
til að vitna í réttinum, þ.á.m. De-
bré, fyrrverandi forsætisráðherra,
en hann er einn þeirra, sem ekki
hefur orðið við þeirri ósk verjand-
ans að mæta. Ætlun Vignancourts
er að spyrja þá, hvaða skipanir
og fyrirmæli ríkisstjórnin hafi gef-
ið Salan, meðan hann var æðsti
yfirmaður franska hersins í Alsír,
og sömuleiðis um Bazooka-árásina.
Francois Mitterand, fyrrverandi
dómsmálaráðherTa, sagði í réttin-
um í dag, að Bazooka-árásin á Sal-
an 1957 hefð'i verið fyrsti vottur
borgarastríðs, sem beinzt hefði
(Framh. á 15. síðu)
Hvetja til nánara
samstarfs
NTB—Strasbourg 18, maí.
Ráðgjafaþing Evrópuráðs-
ins lauk í dag vorfundi sín
um í Strasbourg og sam-
þykkti aS hvetja til nýrra
ráðstafana til að koma á
nánu samstarfi í efnahags-
málum milli Norður-Amer-
íku og Evrópu. Það var
sænskur fulltrúi, sem bar
fram þessa tillögu i efna-
hagsnefndinni. Skorað er á
aðildarríki EBE og EFTA
og önnur Evrópuríki að
stuðla aS efnahagssam-
vinnu og samstarfs milli
þessara tveggja bandalaga
og hraða undirbúningi að
samræmdri efnahagsmála-
stefnu Bandaríkjanna og
EBE Þinrrið samþykkti fjöl-
margar álvktanir um sam-
vinnu i sviði menningar- og
félagsmála og vísinda.
Stersfa yðrusýning
Brets
NTB—Stokkhólm 18. maí.
Tage Erlander, forsætisráð
herra Svía, opnaði í dag
mikla brezka vörusýningu í
Stokkhólmi, og er það mesta
kaupstefna, sem Bretar hafa
efnt til erlendis. Kostnað-
urinn nemur hundruðum
milljóna, Þarna er sýnt allt
frá tennisboltum upp í geysi
stórar vélar, og um 500
brezk iðnfyrirtæki sýna þar
framleiðsluvörur sínar. Við
opnun sýningarinnar voru
margir tignir gestir, auk
kaupsýslu^manna, þ. á. m.
Gústaf Svíakonungur og
drottning.
Ulbricht neitar
eftirliti
NTB—Berlín 18. maí Aust
urþýzki kommúnistaleiðtog-
inn Walter Ulbricht sagði í
ræðu í Prag í dag, að Aust-
ur-Þjóðverjar gætu ekki
fallizt á eftirlit með sam-
gönguleiðunum til Berlínar,
og slíkt eftirlit væri móðg-
un við fullveldi Austur-
Þýzkalands. En Ulbricht
lagði áherzlu á, að Austur-
Þjóðverjar væru hér eftir
sem hingað til fúsir að fall
ast á, að komið yrði á fót
sérstakri stofnun, sem allir
gætu snúið sér til með kær
ur vegna tiltekta Austur-
Þjóðverja i simbandi við
samgöngur til Berlínar, ef
til kæmu. Ræðuna hélt Ul-
bricht á þjóðþingi Tékkosl-
óvakíu, og var henni útvarp
að og sjónvarpað.'
Talið ófært að
rýra skiptakjör
Sjómannaráðstefna á vegum A1
þýðusambandsins var haldin dag-
ana 11. og 12. þ. m. og gerði hún
eftirfarandi ályktun:
„Sjómannaráðstefna haldin á
vegum AlþýSusambands íslands í
Reykjavík dagana 11. og 12. maí
1962, vegna uppsagnar Landssam-
bands ísl. útvegsmanna á gildandi
sainningi um síldveiðikjör, álykt-
ar eftirfarandi:
Ráðstefnan telur ekki vera rök
fyrir lækkun á skiptakjörum sjó-
manna á síldveiðiskipumim þar
sem á móti kostnaði við hin nýju
tæki við síidveiðarnar, þ.e. sjálf-
virk fiskleitartæki og kraftblökk,
hefur útgerðinni sparazt mikill
kostnaður á móti, svo sem:
1. Kostnaður við nótabáta, við-
hald þeirra og endurnýjun.
2. Lækkun vátryggingagjalda af
nót og bát, sem nemur tug-
um þúsunda á skip á hverri
vertíð.
3. Mikill sparnaður á olíueyðslu
vegna tíðra ferða veiðiskip-
anna upp að landi í slæmum
veðrum vegna nótabátanna.
Auk þess liefur skipverjum
nú verið gert að grciða til
jafns við útgerðarmenn út-
flutningsgjald af aflanum tii
að standa strauin af vátrygg
ingjagjöldum skipanna, sem
er einn af hæstu útgjaldalið
um útgerðarinnar, sérstak-
lega hinna nýju og dýru
skipa.
Telur ráðstefnan því ekki fært
að skiptakjör verði rýrð frá því
sem þau hafa verið.
Vegna uppsagnar L.Í.Ú. á samn
ingunum fyrir hönd útgerðar-
manna víða um Iand, telur ráð-
stefnan æskilegt, að sem flest af
þeim félögum, sem aðild eiga að
sfldveiðisamningunum, vinni sam-
an að nýrri samningagerð, og skipi
sameiginlega samninganefnd. —
Verði kjörin ekki fámennari en 9
ínanna nefnd tii að fara með samn
(Framh. á 15. slðu).
TÍMINN, laugardaginn 19. maí 1962
3