Tíminn - 20.05.1962, Blaðsíða 13
'imm
æK««b3Bwl*K< wt<Cvwi
WlíMÉSM
Eo*vX*lX%v*vX« **X*X*X*I«
IwKwMvM* >>%%%v#%
%%%wi>:*:*:*:<*:*:^*:*:*:*:*:*:<>x
v%%#v^%%%*:*:*:*^*:*:*:*:*:*5:.
?^®:*:*^®:*:*:*:*:*:^:*:*:*:*:
»*w**:*:*:*:*:%*F**:*:,‘it:'t:*í
❖::::::::::á«:::::::::::i:*
:*>»:•:*;#:•:*»»»£
HiPlffPPPsJvX^X'X'Iá^X
tV*%v#*Jfé%V*%%VéVÍKvM*!
í>*%%%*^%%%*:*:*:*:*:*2k*»»
r*%%*^%%%%*:*:*:*^:*:*:*:*:*
^%%»:*:*:*:*:*:*:*:*íiv:*:*:*:*:*:*
iKl^^fói:*!:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*;
§$s
iííiít^lw:^*
i&Sjfal
...
sgsi
líS^I
^y*%%%%%%%%%%%%%%%^
*x%%%%*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:*:v
Émmmmd
k*::::::::::::::::::::::::::::::::í
:%í::::::::::::::::::::::::::::::::
í fjöllum Kenfucky
Framhald at 9 síðu
Nemendur geta valið um 64
starfsgreinar til að leysa skyldu
vinnu sína af hendi. Haldin er
nákvæm spjaldskrá yfir allt,
hvað þeir vinna og hvernig þeir
vinna að dómi yfirmanna sinna.
Sum störfin eru hluti af nám-
inu, svo sem bamagæzla, sem er
hluti af húsmæðrafræðslunni,
og sama máli gegnir um störf
á sjúkrahúsinu, þau eru hluti af
hjúkrunarnámi. Allir landbúnað
amemar vinna skylduvinnu sína
við búskapinn, sem er mikill og
fjölbreyttur, o.s.frv. Auk allra
verka, sem beint snerta skólann,
er svo starfað á gistihúsinu, í
brauðgerðarhúsi, við húsgagna-
smíði, leirkeragerð, vefnað og
saum og fleiri greinar handa-
vinnu. í verzlun skólans er
margt eigulegra muna að fá og
húsgögn seljast vel frá Berea, en
þar hafa þeir sérhæft sig í að
smíða húsgögn í gömlum stíl,
sem nú eru mjög í tizku. Þvotta-
hús, matsala, slökkvistöð, — allt
er starfrækt af nemendum.
I Berea geta menn lokið B.A.-
prófi í 22 greinum og Mr. Baker,
sem ráðlagði mér að fara þang-
að, sagði: „Látið ekki hvarfla
að yður, að þótt nemendur í
Berea vinni fyrir sér, þá sé
menntur. þeirra lakari en í hin-
um beztu skólum þessa lands.
Þvert á móti, liggur mér við að
segja“.
Fyrstu áratugina var kennsl-
an í skólanum fyrst og fremst
verkleg og húsmæðrafræðslan
fór t.d. fram þannig, að á skóla-
lóðinni var reist bjálkahús, sem
líkast venjulegum húsum fjalla-
búanna, svo að stúlkurnar lærðu
að vinna við þau skilyrði, sem
biðu þeirra heima. Síðar var
svo reist annað bjálkahús, sem
var lítið dýrara í byggingu, en
haganlegra að öllu leyti og gátu
þær síðan fengið heim með sér
uppdrátt að slíku húsi. Svo smá
stækkaði skólinn og tók að sníða
sig meira eftir hinu almenna
menntunarkerfi landsins, svo að
nemendumir hefðu fullkominn
undirbúning undir háskólanám.
Ekki get ég skilið svo við Ber-
ea, að nefna ekki eina deild
bókasafnsins, sem er undir
stjórn elskulegrar konu, ungfrú
Lewis. Þetta er deild, sem er fyr
ir börn, og auk lestrarstofu og
útlána á staðnum eru þaðan
sendir bókakassar í skóla í
fjallahéruðunum. Margir skólar
þar hafa lítinn bókakost og
skrifa þá til Berea og biðja um
að fá lánaðar bækur um ákveð-
in efni, sem krakkarnir eiga að
læra um hverju sinni. stundum
skrifa krakkamir sjálf og ung-
frú Lewis fékk fyrir skömmu
bréf frá ellefu ára snáða, sem
hljóðaði á þessa leið: „Kæra
ungfrú Lewis. Við ætlum að fara
að skrifa um alheiminn. Viltu
senda mér bækur um geiminn,
ég þarf nefnilega að fá svolitla
hjálp“.
Hvar sem gestúr er á ferli í
Berea, mæta honum brosandi
andlit og kurteisar kveðjur. 1
matstofu stúdenta þykir sjálf-
sagt að setjast við borð, þar sem
heimamenn eru fyrir, kynna sig
og taka tal saman. Stundum var
ég spurð svo margs undir mál-
tíðum, að ég stóð næstum jafn
svöng upp aftur. Eg heimsótti
heimavistir stúlkna, horfði á
dansflokka æfa þjóðdansa, þáði
heimboð til margra kennara,
hlustaði á karlakór syngja, en
missti af leiksýningu vegna þess,
hve mikið var talað yfir mat-
borði. í litla húsið hans dr.
Chang var ég alltaf velkomin og
þáði þar ljúffenga, kinverska
rétti. Allt var svo glatt og
skemmtilegt, ag þegar rektors-
frúin fór að lýsa fyrir mér heil
brigðisástandinu í nærsveitum,
fannst mér illmögulegt að trúa
því, að þetta mennilega unga
fólk væri þaðan upprunnið.
T í M IN N, sunnudaginn 20. maí
Takið eftir. Takið eftir
Þið fjármálamenn og peningamenr
Hvað er betra í dag, en gulltryggð verðbréf? Talið vi?
okkur, hvar sem þið búið á landinu. (Algjört einkamál.)
Allar nánari upplýsingar gefur
UPPLÝSINGA OG VIÐSKIPTASKRIFSTOFAN
Laugaveg 33 B. Rvík. Box 58
Viðtalstími alla virka daga kl. 3—5.
Framkvæmdabankinn óskar að ráða vélritunar-
stúlku nú sem fyrst til starfa í hagdeild bankans.
Skriflegar umsóknir er greini menntun og fyrri
störf sendist bankanum fyrir 23. maí n. k.
1962
„Konurnar eiga tíu og tólf
börn“, sagði frú Hutchins, „og
það eru eiginlega alltaf einhver
ófullburða börn á barnadeild-
inni, því að mæðurnar eru út
slitnar og vannærðar. Mataræði
er hræðilegt, og mörg börn eru
flutt fárveik til okkar þess
vegna. Mjólk fá þau helzt aldrei
og grænmeti örsjaldan. Eg var
að reyna að biðja þær að ala nú
blessuð bömin á einhverju öðru
en uppbakaðri hveitisósu úr
vatni, hveitibrauði og kaffi, þeg-
ar þær fá þau heim af sjúkra
húsinu. Hvergi er rennandi vatn
í híbýlum, hvergi salerni. Vatn
er bor{ð úr misgóðum brunnum
og innyflaormar þjá börnin að
staðaldri. Húsin eru nístandi
köld á vetrum, en þér sjáið
kannske bíl utan við þessi kofa
hró. Já, Berea verður vist önn
ur hundrað ár að mennta nóg
af ungu fólki til að lyfta þessu
héraði á sómasamlegt menn-
ingarstig. En dásamlegt er nú
samt að sjá, hvað þessir ungl-
ingar vinna, þegar þau hverfa
heim aftur. Hjúkrunarkonurn-
l ar okkar eru ekkert léttmeti.
Eg er nú alltaf að brýna fyrir
þeim að kenna takmörkun barn
eigna. Fyrr tekst okkur aldrei
að stemma þessa uppsprettu
fátæktar og fáfræði".
Hjúkrunarnemar frá Berea
hafa nokkur undanfarin ár tek
ið hæstu embættisprófin í ríkis-
spítalanum í Kentucky, svo að
það er full ástæða fyrir frú
Hutchins og aðra, sem kenna
þeim, að vera hreyknar af
þeim.
Andstæður hinna stóru þjóð-
félaga dyljast sjaldan lengi.
Er Mr. Welsh ók mér aftur til
Lexington, komum við við á
tveimur frægum hrossaræktar-
búum, þar sem margir frægustu
veðhlaupahestar landsins hafa
verið aldir. Þessi bú ná hvert
um sig yfir landsvæði, sem
mér fannst vera á stærð við
meðalhrepp á íslandi. Lands-
lag er öldótt með trjálundum
og traustlegar timburgirðingar
skipta landinu í mörg hólf,
sem hrossunum er beitt í til
skiptis. Ekki má girða neins
staðar með vír, þá gætu bless-
aðir kláramir rifið á sér bjór
inn- Hér og hvar á hæðunum
eru hesthús og hlöður og það
er nú eitthvað annað en kof-
amir fjallabúanna. Hvert hest-
hús minnir á fyrirmyndarbú-
garð. Gljáfægðar harðviðar-
hurðir skilja milli básanna og
það stirnir á látúnsstengur og
ístöð í rökkrinu. Úti eru likneski
af frægustu hrossunum, og á
einum stað komum við að
hrossakirkjugarði með virðuleg
um umbúnaði. Á legsteinum
stóðu nöfn og ættartölur kapl-
anna, sem þar hvíldu.
Tré voru að byrja að laufg-
ast í Kentucky þessa síðustu
daga í marzmánuði, og páska-
liljurnar veifuðu gulum krón-
um við- veggina á skrumskæld-
um kofunum í brekkunum. Á
stöku stað var búið að sá
tóbaksplöntum og breiða yfir
sáðreitina hvítar grisjur.
Er ég kvaddi á gistihúsinu,
sögðu brosandi piltar'og stúlk-
ur: „Við vonum, að þér hafi
liðið vel, og vertu velkomin
aftur“.
Eg vildi gjaman mega gista
þann stað aftur.
Sigríður Thorlacius.
Nemendamót
Nemendamót og aðalfundur Nemendasambands
Samvinnuskólans verður að Bifröst 2. og 3. júní.
Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til Ragnars
Gunnarssonar, Langholtsvegi 132, sími 11600 og
34920, eða Friðriks Ágústs Helgasonar, Miðstræti
8, sími 38280 og 16106. Bílferð frá Sambandshús-
inu kl. 2 á laugardag.
Stjórnin.
Vélrítunarstúlka
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum um ailt land
HALLDÖR SIGURÐSSO?
Skólavörðustíg 2