Tíminn - 19.06.1962, Qupperneq 7

Tíminn - 19.06.1962, Qupperneq 7
Utgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábi, Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs- ingastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrií'stofur í Eddu- húsinu: afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka- stræti 7. Símar: 18300—18305. Auglýsingasími 19523 Af- greiðslusími 12323. — Áskriftargjald kr. 55 á mánuði innan- lands. í lausasölu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. — Waifter Lippmann ritar um albiéðamál: ..... Hagsmunir Þjóöverja eru háðir samstarfi Atlantshafsríkjanna Þeír samrýmast ekki Evrópuhugmynd de Gaulle og Adenauers Sundrungarstefna stjórnarinnar Það er meira en rétt, er víða var sagt á þjóðhátíðar- daginn, að það er mikil nauðsyn lítilli þjóð að standa sem bezt saman, en forðast sérdrægni og sundrungu. Því hörmulegra er til þess að vita, að sú stjórnar- stefna, sem nú er fylgt — viðreisnarstefnan svonefnda — er sannkölluð sundrungarstefna. Markmið þeirrar stefnu er það fyrst og fremst að draga þjóðarauðinn sem mest á fáar hendur. Þannig eykur hún stéttaékiptingu og stéttadeilur. Það var samkvæmt þessari stefnu, að gengi íslenzkrar krónu var fellt langt úr hófi fram veturinn 1960 og aft- ur algerlega að óþörfu á síðastliðnu sumri. Engin leið er öruggari til þess en gengisfelling að gera þá fátækn fátækari og ríku ríkari. Það var í samræmi við þessa stefnu, að ríkisstjórnin beitti sér gegn réttmætum kauphækkunum á síðastliðnu sumri og ógilti þær síðan með gengislækkuninni eftir að atvinnurekendur höfðu fallizt á þær. Það var í anda þessarar stefnu, að stjórnarblöðin risu í fyrstu öndverð gegn hinni hóflegu kauphækkun, sem verkamenn fengu á Akureyri og á Húsavík í vor, og kölluðu hana „áhlaup kommúnista á hendur hinu ís- lenzka þjóðfélagi“! Það er afleiðing þessarar stefnu, að hér hefur alltai verið meira og minna af verkföllum og kaupdeilum síð- an núverandi ríkisstjórn kom til valda. Fyrstu mánuð; ársins 1961 var útgerðin meira og minna stöðvuð vegna verkbanna og verkfalla. í fyrrasumar voru hér lengri og almennari verkföll en nokkru sinni fyrr og hefðu alveg getað stöðvað síldveiðarnar nyðra og eystra, ef samvinnufélögin hefðu ekki leyst þau. f kjölfar gengis- lækkunarinnar í fyrrasumar hafa fylgt stöðugar kaup- deilur, og meiri og minni verkföll. Togaraverkfallið er nú búið að standa á fjórða mánuð. JárnsmiðaverkfalT stóð á annan mánuð. Síldveiðiflotinn er búinn að verp stöðvaður á þriðju viku vegna verkbanns Við þetta bætist svo einstætt ráðleysi og fálm ríkis- stjórnarinar, þegar út í deilur er komið Stjórnin stóð uppi eins og þvara í fyrrasumar og vissi hvorki upp né niður, þegar til verkfallanna kom. Stjórnin hefur staðið algerlega ráðalaus frammi fyrir togaraverkfallinu. Stjórn- in sjálf hratt af stað járnsmiðaverkfallinu, því að járn- smiðir og atvinnurekendur voru búnir að ná samkomu- lagi, er stjórnin hindraði á seinustu stundu. Afleiðingin var sú, að verkfall stóð á annan mánuð, en þá lét stjórn- in semja um mun meiri kauphækkun en áður hafði verið búið að ná samkomulagi um. Uppskeran af afskiptum ríkisstjórnarinnar varð þannig meiri kauphækkun og miklar tafir á ýmsum framkvæmdum í sambandi við síldveiðarnar. Þær tafir geta átt eftir að valda tugmilljóna króna tjóni. Það er allt á sömu bókina lært hjá þessari ríkisstjórn Stefna hennar er sundrungarstefna. Afskipti hennar af deilumálum, einkennaðt síðan af fálmi og ráðaleysi. Hún er sannkölluð sundrungarstjórn. Hvað tefur? Langflestir láglaunamenn eru nú búnir að fá nokkr: launahækkun, — auk fjögra prósentanna — áður en lág launaðir opinberir starfsmenn og skrifstofu- og verzlun arfólk. Hvað stendur í vegi þess, að þetta fólk fái einnig hliðstæðar bætur? UPPFYLLING draums de Gaulle um Evrópu — þ.e. vest- urhluta meginlandsins undir forustu Frakka, án þess að hin- ar enskumælandi þjóð'ir komi þar nærri, — væri gersamlega óhugsandi án varanlegs stuðn- ings Vestur-Þjóðverja. Það eina, sem getur gert hana hugs anlega, eru tengslin milli de Gaulle og Adenauers, samfara velgengni Efnahagsbandalags Evrópu. Ég lít svo á, að fransk-þýzk E'vrópa, undir forustu Frakka, sé sjónhverfing, sem hverfi við fráfall öldunganna tveggja, sem hafa brugðið henni upp. Lokað meginlandssamfélag | Þjóðverja og Frakka er and- I stætt. þjóðlegum, stjórnmálaleg Ium, hernaðarlegum og efnahags legum hagsmunum Sambands- lýðveldisins Þýzkalands. Heild arhagsmunip hinnar þýzku þjóð ar eru tengdir miklum mun víð tækara bandalagi, þar sem At lantshafsþjóðirnar mynda kjan- ann ÉG TRÚI ekki, að einstakar persónur eða árekstrar í stjórn málaviðskiptum hafi mikil áhrif á megingang málsins, hvað þá ákvarði hann. De Gaulle er gnæfandi einstaklingur, sem Iteflir tafl alþjóðastjórnmála með þeim hætti, sem Machia- vellj kenndi og aðrir hafa áður beitt, svo sem Richelieu og Talleyrand. Hann veit, að okk- ur greinir ekki á við hann út af smávægilegum misskilningi. sem stafar af ógætilegri eða dónalegri framkomu. Við erurn andstæði honum vegna þess að sá metnaður hans, að ráða yfir Evrópu, er ósamrýmanleg ur okkar sterku þörf á að hald' kjarnorkuveldi okkar óskertu Það verðum við að hafa, því að það erum við, sem berum loka byrðina. De Gaulle hershöfðingi vill hafa mikið í borði í spila- mennsku sinni Hann virðir okkur meira, ef við gerum það einnig. Fagurgali, mútur eða ógnanir hagga honum-ekki. Það gera aðeins þeir leikir, sem hafa áhrif á aðstöðu hans í því tafli, sem hann hefur kosið að tefla. ÞAÐ ERU Þjóðverjar, sem koma til með að leika þá leiki, sem hafa áhrif á aðstöðu de Gaulle. Ef þeir gerðust inn- hverfir og snerust á sveif með Evrópuhugmynd de Gaulle, þá gætu þeir — og þó næsta naum lega — gert hana að veruleika, i ■Mnnw iw r niiT' iwtit ■ ■ - DE GAULLE — stefna hans samrýmist ekki hagsmunum Þjóðverja. með miklum fórnum og mikilli áhættu. En með því að gera þetta myndu þeir greiða Atlants hafsbandalaginu hræðilegt högg, en það er einmitt þeirra skjól og skjöldur. Ef þeir aftur á móti snúast á hina sveifina ^g krefjast viðhlítandi skilmála fyrir Breta og Samveldið, þá verður Evrópa de Gaulle draum trinn einn og ekkert annað. Þessi mikilvæga ákvörðun Þjóðverja veltur ekki á persónu legum tilfinningum Adenauers eða því, hve kostgæfilega Was hington skjallar hann. Að þvi er okkur varðar, þá megum við ekki frýja til metnaðar Þjóð verja og stolts, heldur heil brigðrar skynsemi. Við verðurr að minnast þess, að Adenauer er orðinn rnjög gamall maður. , sem hafði verið að heiman mjög lengi, þegar hann .,sprakk“ 7. maí. Og hann er ekki i beinni, náinni og sam- felldri snertingu við þróun þýzkra utanríkismála. Við verð- um einnig að minnast þess, að endalok valdaskeiðs hans eru svo nálæg, að baráttan um Við takandann er hafin. Vald hans til þess að skuldbinda Þýzka- larid til frambúðar er ámóta mikið og vald Bandaríkjafor- seta síðuslu 'mánuði kjörtíma- bils hans. ENGIN ÁSTÆÐA er U1 að halda að Adenauer—de Gaulle öxullimn gegn „Engil-Söxum“ verði þungamiðjan í stefnu þess eða þeirra, sem við völdunum taka af Adenauer. Schroeder ut anríkisráðherra hefur þegar iýst yfir, að Þjóðverjar muni berjast fyrir því, að Bretum verði veitt innganga í Efnahags bandalag Evrópii. Hinn fransk-þýzki möndull er andstæður hagsmunum Þýzka- lands. í fyrsta lagi teflir hann hernaðarlegum skuldbinding- um Bandaríkjanna á meginland inu í mikla tvísýnu. Þegar Aden auer varð ljóst, hvaða afleiðing ar reiðikast hans í viðtalinu sæla í Berlín ætlaði að hafa, og hann hafði lesið fréttir af blaðamannafundi de Gaulle, þá sagði hann í öðru viðtali: „Við megum með engu móti leysa Bandaríkin frá varnarbandalag inu. Við erum bjargarlausir án beirra.“ í öðru lagi munu Þjóðverjar gera sér ljóst, að Evrópuhug- mynd de Gaulle gerir ráð fyrir áframhaldandi skiptingu Þýzka lands. Evrópa de Gaulle myndi snúast gegn öllum þeim sam- komulagsleiðum í austurátt, sem gætu með tímanum leitt til endursameiningar Þýzka- lands. Við verðum að gera okk- ur það ljóst, að „harðlína“ sú, sem de Gautle aðhyllist í Berlín armálinu og gagnvart Sovétríkj unum, er byggð á grunni þeirr- ar þjóðlegu ákvörðunar Frakka að komast hjá því að búa við hlið stórs, endursameinaðs Þýzkaiands. „Harðlínunni” er ekki fyrst og fremst beint gegn Rússum, heldur þeim Þjóðverj- um, sem vilja leita samkomu- lags i austurátt. Tilgangur henn ar er að láta líta út fyrir að allt fráhvarf frá núverandi á- standi sé óþýzkt og andstætt býzkri föðurlandsást. UPPHEFÐ de Gaulle er ekki hluti af raunverulegum hags- munum Þýzkalands. Hagsmunir þess eru tengdir samtökum At- | lantshafsþjóðanna og víðtæku S samfélagi Evrópuþjóða, nægi- S lega víðtæku til þess, að laða H að' sér Evrópuþjóðirnar hand- W an járntjaldsins. Að koma á 0 þessu víðtækara samfélagi er tt einmitt leiðin til sameiningar B Þýzkajands, sameiningar Evr- 1 ópu. Það er ileiðin til þess( að S nálgast Sovétríkin í friði og I með árangri. —...................■nniwxwi..iif Laugardagskvöldið 2. júní s.l.: öng Karlakórinn Svanir frá j ikranesi í Aratungu, við mikinn, ögnuð áheyrenda. Söngstjóri órsins er Haukur Guðlaugsson, rganleikari frá Eyrarbakka, vel lenntaður tónlistarmaður, og set r hann svip sinn á tónlistarmál Lkurnesinga um.þessar mundir. Haukur beitti valdi sínu, sem öngstjóri, vel og af smekkvísi. taddgæði kórsins eru í góðu lagi g hafa söngmenn notið radd- ennslu Magnúsar Jónssonar. Sér- taka athygli vakti fylling og mýkt . bássa. Allur var söngur kórsins reg ágætum og bar öruggt vilni m lærdóm os. smekkvísi, alúð og Karlakórinn Svanir í Aratunp x - öryggi söngstjórans, ásamt góðri getu söngmannanna, sem nær þó skammt, nema miklum tima sé| fórnag fyrir svona starf. Og það^ gera þeir Akurnesingarnir áreið-: anlega, það har söngúr þeirra' vit.ni um. Söngskráin var myndarleg. Þar var t.d. Söngur prestanna, úr töfraflautunni eftir Mozart; Man- uela eftir Ernst Fischer: Bátssöng urinn eftir A Boito; rússneska lagið: Söngur Plaíoffs; Gullnu vængir, úr óperunni Nabucco efL1 ir Verdi; Pílagrímskór Wagners og Gesturinn. eftir Karl Ó. Run- ólfseon, mikið 'ng, en varla við alþýðuskap til að byrja með. — Smálögum var sk.otið inn á milli, eins og t d.: Nú hr.ígur sól, og Smávinir fagrir,' eftir Jón Nordal. ljúft lag og ír.i’.cgt Margt ifíerra crj.rm Svaiur eiga í fórum sí/.um, þsr á meðal kirkju lega tónilaí, sorc. 'otlu'5 er hcinia- högum Hau‘í-3, á samsöEg i kirkj- uoii á F.yrjarLsk't-a. (FramhaM á 15. eíðu) T í M I N N, þriðjudagurinn 19. júní 1962. 2

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.