Tíminn - 27.06.1962, Blaðsíða 12

Tíminn - 27.06.1962, Blaðsíða 12
 •SlSS::-? MM xíxSSSSSS. ..i • ihDr isyiIpJíppsiissssi I T P :■» y /.-.ý .v y:,:v: :■:■:■> >:■: y-:*> .'■■■/■ •. • ! i 1 ix f||| rrfi\LJ 1 1 1 IX IIIÍÍil iSl;«::S>::y:SSS: ;SS iSSi' SSi« SiSÍiSÍSiSiSi RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Þriðja jafntefli -ram i sumar í þriðja sinn í sumar léku KR og Fram í meistaraflokki og í þriðja sinn varð jafntefli milli félaganna, svo von er, að mótnefnd sé farin að auglýsa. Verður enn jafntefli? í Reykja víkurmótinu varð 0:0 jafntefli, | fyrri leik liðanna í íslandsmót fnu lauk með 1:1, og nú í síðari leiknum var lokatalan' 2:2, eða fjögur mörk skoruð, og er nokkuð langt síðan svo mörg mörk hafa verið skoruð í leik þessara félaga, enda var leikurinn mun skemmfilegri en fyrri leikirnir í sumar. | Fyrri hálfleikur var óvenju við- burðaríkur og oft brá fyrir| skemmtilegri knattspyrnu hjá báð-j um liðum, þótt endahnúturinn á upphlaupin hefði mátt vera betri,; einkum hjá KR-ingum. Að vísu skoruðu þeir tvö mörk í leiknum,! en þau báru bæði nokkurn svip heppni, en Framarar skoruðu hins vegar tvö falleg mörk. Það varð strax mikið fjör og' við skulum aðeins líta *á minnis- blaðið um fyrstu 12 mínúturnar. 2. mín: Ellert Schram leikur upp miðjuna, leikur á nokkra Framara og gefur knöttinn fyr- ir til Arnar Steinsen, sem fer illa með gott tækifæri, hálf- kiksar og knötturinn rennur til Geirs markvarðar. 3. mín: Hallgrímur Scheving sem nær Jmettinum út við enda- ! mörk — og knötturinn fór sennilega út fyrir línuna, því KR-ingar hættu. Hallgrímur gefur fyrir til Baldurs, sem er frír á markteigi, en skot hans fer hátt yfir KR-markið. 4. mín: Framarar leika aftur upp og Ásgteir Siigurtfea:*n á fast skot, sem strýkst rétt fram lijá stönginni. 6. mín: Gunnar Guðmanns- son gefur vel inn til nafna síns Felixsonar, en á síðustu stundu tókst Halldóri Lúðvíkssyni að bjarga í horn fyrir Fram. 8. mín: Framarar leika upp og Halldór á skot, að vísu ekki t fast, en hættulegt. Gísli Þor- j kelsson — varamaður Heimis — er á réttum stað og ver. 11. mín: Knötturinn berst upp að vítateigi Fram og Hall- dór ætlar að hreinsa frá, en hittir illa og Gunnar Fel. nær knettinum. Hann leikur laglega á Guðjón bakvörð' og Geir er einn til varnar, en á rólegan og öruggan hátt sendir Guftnar knöttinn í netið. 12. mín: Gunnar Fel. kemst aftur innfyrir — og úr þröngri stöðu spyrnir hann á Fram- stöngina og knötturinn hrekk- ur út. Af þessu má sjá, að' knötturinn barst á milli marka, tækifæri sköp- uðust, og talsverður hraði var í Ieiknum. KR-ingar virtust öllu hættulegri, en úr þessu fór það að breytast og Framarar — sem yfir- leitt voru fljótari á knöttinn — fóru að ná yfirtökunum. Og það bar fljótUárangur. Á 18. mín. var Grétar Sig- urðsson með knöttinn um mið- línuna og gaf innfyrir vörn KR til Ásgeirs. Bjarni Felixson kom á móti honurn, en Ásgeir Iék mjög vel á hann, og spyrnti síðan föstu skoti á markið, sem Gísli hafði engin tök á að verja. Gunnar Felixson — lengst til vinstr'r — jafnar fyrir KR í síðari hálfleik. Ljósmynd: RE. úrvalsliðinu í kvöld FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR skipa mikinn virðingarsess í Finnlandi, og engin önnur íþróttagrein þar i landi getur keppt við þær um hylll áhorfenda. Finnar hafa átt marga helmsfræga afreksmenn á þessu sviði og næglr í því sambandi að minna á nöfn eins og Nurmi, Ritola Jarvlnen og Heino. Og nú hefur nýr maður á ótrúlega skömmum tíma komið fram í sviðsljósið — stangarstökkvarinn Pentti Nikula, sem í fyrra stökk bezt 4.26 m , en s.l. laugardag setti nýtt heimsmet, 4.94 metra á mótl i Kauhava. Og nú er hann ókrýndur konungur finnskra frjálsíþróttamanna — og átrúnaðargoð um allt land, elns og Nurmi var á sínum tíma. Nikula er hinn fyrsti um langt árabil, sem hnekkir veldi Bandarikjamanna í stangarstökkinu — og er því von að Finnar fagni eins og sjá má af myndinni, sem við fengum senda frá P.olitiken og er tekin effir heimsmetið á laugardaglnn. Og ánægjan er tvöföld. Nikula er fyrsti heimsmethafi Finna í frjálsum iþróttum í nokkur ár. Úrvalsliðið í knattspyrnu, KR, kom til Reykjávíkur í gær leikur hér í kvöld í boði kvöldi og í kvöld fer fyrsti leikur liðsins fram á Laugar- dalsvellinum. Leikurinn hefst kl. 8,30. Framliðið verður eins skip- að og gegn KR í fyrrakvöld það er: Geir Krist jánsson. Guð- jón Jónsson, Birgir Lúðvíks- son, Ragnar Jóhannsson, Hall- dór Lúðvíksson, Hrannar Har- aldsson, Baldur Scheving, Guð- mundur Óskarsson, Grétar Sigurðsson, Ásgeir Sigurðsson og Hallgrímur Scheving. Danska liðið kom það seint Framhald á 15. síðu. Og tveimur mín. síðar var Fram marki yfir. Ásgeir gaf inní vítate'iginn, og þar kom Guðmundur Óskarsson að á mik flli ferð, náði knettiniun og skoraði með hörkuskoti áður en KR-ingar höfðu svo mikið sem áttag sig á því hvað var að ske. • / Og Framarar héldu sókninni á- fram — en eins og einhver dofi fær'ðist yfir KR-inga. Grétar komst í gott færi, en missti knöttinn frá sér og Ásgeir átti gott skot neðst í hornið, sem Gísli varði. Og rétt á eftir bjargaði Hreið'ar Ársæls- son á marklínunni fyrir KR. Undir lok hálfleiksins vöknuðu KR-ingar til lífsins aftur. Geir varði þá gott skot Garðars og Örn átti skot yfir Fram-markið. í síðari hálfleiknum höfðu KR- ingar yfirtökin nær allan hálfleik- inn — og var knötturínn mest all- j an tímann á vallarhelmingi Fram, en Framarar náð'u af og til snögg- um upphlaupum, sem litil hætta skapaðist þó af. Hins vegar sköp- uðu KR-ingar sér góð færi nokkr- um sinnum, sem þeir fóru illa með, en hins vegar tókst þeim að jafna af hálfgerðri tilviljun. Þegar um 30. mín. voru af hálfleiknum var knötturinn gefimi inn í vítateig Fram. Sig urþór og Halldór stukku upp — og hrökk knötturinn af þeim til Gunnars Fel., sem stóð á mark íeigi. Gunnar spyrnti frekar Iaust á markið, og skotið var svo óvænt, að Geir hafði ekki tíma til að hreyfa sig. Sigurþór sótti mjög inn á miðj- una undir lokin og var vegna hraða síns og leikni hættulegur fyr ir Framvömina — en fór illa mað tækifærin t. d. spyrnti han yfir Fram-markið frá markteig. En Framhald á 15. síðu. Petrosjan efstur Eftir 27 umferðir á skák- mótinu í Curacaso er Petrosj- an efstur með 17 vinríinga á undan Paul Keres, sem á bið- skák við Benkö úr þeirri um- ferð og stendur Keres verr í þeirri skák. Síðasta umferðin var tefld í gærkvöldi — en úr- slit eru ekki kunn. í þeirri urn- ferð hafði Petrosjan hvítt gegn Filip, og Keres hvítt ggen Fischer. í 27. umferð urðu úrslit þau, að Petrosjan og Fischer gerðu jafntefli í 35 leikjum í jafnri stöðu. Biðskák varð hjá Benkö og Keres eftir 42 leiki. Menn voru jafnir, en Benkö hafði stöðuyfir- burði. Korehnoj vann Filip í 42 | leikjum — eftir misheppnaða fóm Filips. Geller átti að tefla við Tal — en skákirnar gegn Tal í síðustu lotunni eru ekki taldar með. í 25. umferð á mótinu varð jafntefli hjá Petrosjan og Keres, og einnig hjá Geller og Filip, en Benkö vann Korchnoj. í 26. um- ferð gerðu Keres og Geller jafn- tefli, og einnig Benkö og Petros- ian, Fischer og Korchnoj. Staðan eftir 27 umferðir var þannig: 1. Petrosjan 17 v. 2. Ker- es l6Vz og biðskák. 3. Geller 16 v. 4. Fischer 13y2 v. 5. Korchnoj 13% v. 6. Benkö 11 og biðskák. 17. Tal 7 og 8. Filip 6y2 vinning. 12 T í MIN N, miðvikudaginn 27. júní 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.