Tíminn - 28.06.1962, Síða 3

Tíminn - 28.06.1962, Síða 3
Síðasta vígi OAS fa iarnir flúnir NTB—Oran og Algeirsborg 27. júní Ghristian Fouchet, æSsti erindreki Frakka í Alsír, lýsti því yfir í Oran í dag, a® m væri útlit fyrir, aS ástandið í vesturhluta Al- sír yrði eðlilegt á nýjan leik ,eftir að OAS-samtök in heföu birt uppgjafar- yfirlýsingu sína í síöasta vígi samtakanna, Oran. Fouchet sagði, að nú hefðu hinir gætnari og vitrari menn innan OAS loks náð yfirhöndinni og með aðstoð franskra yfirvalda í Oran, 'hefðu ofstækismennirnir verið ofur liði bornir og nú blasti við friður og ró eftir langa skálmöld. Þá birti OAS-foringinn, Jean Áburðarverksmiðjan kaupir köfnunar- efnisáburð Áburðarverksmiðjan hefur fest kaup á nokkru magni köfnunar- efnisáburðar erlendis, sem mun koma til landsins fyrir miðjan júlí, til að tryggja, að ekki komi til, að slíkan áburð skorti á þessu vori, enda þótt verksmiðjan sé þegar bú in að selja meira magn köfnunar- efnisáburðar en notendur höfðu pantað til notkunar á þessu vori. Með því að mjög er 6^ngiö á Kjarnabirgðir þær, sem fyrir hendi voru, þegar bilunin varð í síðast- liðinni viku, mun kaupendum scm þarfnast Kjarna, nauðsynlegt að hafa samband við verksmiðjuna á næstu dögum, áður en þeir senda bíla til að sækja Kjarna. Engar takmarkanir eru hins vegar á af- greiðslu annarra áburðartegunda. (Frá Áburðarverksmiðjunni;. Jacques Susini, ávarp seint í gær- kveldi. har sem hann hvetur fólk af evrópskum uppruna til að vera um kyrrt í Alsír og biður það, sem þegar hefur flúið til Frakklands, að snúa aftur til Alsír. Ekki seinna vænna Aðeins fjórum dögum áður en íbúar Alsír ganga að kjörborðinu til þess að greiða atkvæði um fram tíðarstöðu landsins, hafa nú OAS- samtökin í Oran tekið sinnaskipt- um, að því er virðist, ef síðasta út- varpssending þeirra reynist hafa við rök að styðjast. Um leynilega útvarpsstöð var seint í gærkvöldi tilkynnt, að OAS-samtökin hefðu ákveðið að hætta öllum hryðjuverk um í Oran og jafnfraint var hvatt til friðsamlegrar samstöðu Evrópu- manna og Serkja í borginni. Þá var einnig frá því skýrt, að einn aðal- foringi samtakanna í Oran, Paul Gardy, hershöfðingi, væri flúinn úr borginni. Ljótur ferill að baki Eins ogjcunnugt er af fyrri frétt- um hafði náð'st samkomulag um vopnahlé milli Serkja og OAS alls staðar í Alsir, nema í Oran, og síðustu dagana hafa veiið framin þar ein mestu skemmdarverk, sem menn muna eftir, siðan styrjöldin í Alsír hófst. Með flótta Paul Gardy og yfirlýsingu útvarpsstöðv- arinnar, svo og hvatningum borg- aralegra og hernaðariegra yfir- valda samtakanna um friðsamlega samúð við Serki í framtíðinni, virðist nú sem þetta síðasta vígi OAS-manna sé fallið og langur og ljótur hryðjuverkaferill þeirra á enda. Engin skilyrði Þessi síðasta orðsending OAS- manna i Oran hefur að vonum vak- ið gleði manna og eftir nákvæmar athuganir á orðalagi útvarpstil- kynningarinnar, hafa yfirvöld bæði í Algeirsborg og í París greint svo frá, að ekki sé hægt að sjá, að OAS-samtökin hafi sett nein skil- yrði fyrir því að hætta nú glæpa- verkum sinum. Fulltrúar Sérkja í bráðabirgðastjórninni í Roche Noir hefur látið sömu skoðun í ljós á þessari orðsendingu OAS. Ruanda og Urundi tvö sjálfstæð ríki NTB-New York, 27. júní í dag var samþykkt á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóð- anna að veita afrikanska gæzluverndarsvæðinu Ruanda Urundi sjálfstæði, sem 2að- greindum ríkjum, þ.e. Ruanda og Urundi, frá því á miðnætti á laugardag að telja. Allsherj- arþingið samþykkti samhljóða að veita ríkjunum sjálfstæði. Ruanda-Urundi var þýzk nýlenda þar til 1918, en síðan hefur oltið á ýmsu um stjórn landsvæðisins, og nú um skeið hefur það verið gæzluverndarsvæði S.þ. Allsherjarþingið vísaði á bug framkominni tillögu frá Sovétríkj- unum, um að allt belgiskt herlið verði farið b.úr Ruanda-Urundi fyrir þann 1. júlí, er ríkin fá sjálf stæði. Þetta mál hefur mikið verið rætt á þinginu og deilur orðið harðar. Áf ótta við blóðugar erjur a ttbálka var þó sámþvkkt að belg ísku hersveitirnar skyldu verða um kyrrt þar til mánuði eftir að ríkin fengju sjálfstæði, þ.e. til júlíloka. Eins og áður segir, verður hér um að ræða tvö ríki, eftir þann 1 júlí, lýðveldið Ruanda og kon- ungdæmið Urundi, og verður stjórnum ríkjanna f sjálfsvald sett að semja við Belgi um frekari dvöl herjanna í ríkjunum. Hvetja til friðar og eindrægni Frá Oran berast og þær fréttir, að eftir útvarpstilkynninguna hafi bæði borgaraleg og hernaðarleg yf irvöld í Oran sent út áskorun, þar sem Evrópumenn og Serkir eru hvattir til að starfa hér eftir sam- an í friði og eindrægni. í Algeirsborg var tilkynnt í dag, að Christian Fouchet, æðs-ti erin- dreki Frakka í Alsír og Michel Fourquet, hershöfðingi og yfir- mað'ur frönsku herjanna í Alsír, hefðu flogið til Oran í dag til að vera viðstaddir jarðarför Ginester, hershöfðingja, sem féll fyrir nokkr um dögum í árás OAS-manna. Hins vegar er fullyrt, að annað' og meira liggi til grundvallar þessari ferð, þ. e. rannsókn allra málavaxta, eins og þeir nú eru í Oran. Forsprakkarnir flúnir í útvarpstilkynningu OAS-manna sagði m. a., að þessi ákvörðun samtakanna hefði verig tekin, til þess að forða evrópsku fólki, sem borgina flýði, frá frekari hörm- ungum. Þá er og komið á daginn, að auk Gardy, hafa margir leiðtog- ar OAS flúið og veit enginn, hvar þeir eru nú niður komnir. Ástæðan til þess, að fréttin um uppgjöf OAS í Oran barst ekki umheiminum fyrr en hálfu dægri eftir útvarpstilkynninguna er sú, að nokkrir OAS-menn, sem eru vig sama heygarðshorn, sprengdu útvarpsstöð'ina í Oran seint í gær- kvöldi, þannig að öll fjarskipti rofnuðu. Framtíðin í Alsír Það var einn af foringjum OAS, Henri Defour, fyrrverandi yfir- maður fjórðu fallhlifaherdeildar útlendingahersveitar Frakka, sem las tilkynninguna upp í útvarpinu, en Defour yfirgaf franska herinn í V-Þýzkalandi fyrir mörgum mán- uðum síðan, en skaut svo aftur upp kollinum í Alsír, sem for- sprakki OAS. í ávarpinu, sem Defour las upp sagð'i m. a., að hafizt yrði handa um flutning þeirra íbúa í Oran, sem til Frakklands vildu fara, fyr- ir þjóðaratkvæðagreiðsluna 1. júlí. Hins vegar var fólki bent á, að framtíðin væri í Alsir, og frönsk yfirvöld og franskur her myndi tryggja hagsmuni þess. deGaulle mun flytja ávarp Þrátt fyrii hinar friðvænlegu horfur, sem nú hafa skapazt í gjörvöllu Alsír, með uppgjöf OAS í Oran, heldur fólk áfram að streyma til Frakklands. í París var frá því skýrt i dag, að strax að aflokinni atkvæða- greiðslu um framtið Alsír, á sunnu- daginn kemur. mýr.'ii de Gaulle, forseti, ávarpa Alsírbúa og frönsku þjóðina og tilkynna valdatöku Serkja í Alsír, en fáum blandast hugur um, að niðurstaða atkvæða- greiðslunnar verði á þann veg. enga fjdr- veldaráöstefnu NTB-Berlín, 27. júní Samkvæmt fréttum austur- þýzkra dagblaða hefur komm- únistaleiðtoginn, Walter Ul- bricht, vísað á bug tillögu Vest urveldanna, sem hagsmuna eiga að gæta í Berlín, um að fjórveldafundur verði haldinn til að ræða möguleika á að binda endi á frekari árekstra milli landamæravarða sitt hvorum • megin við Berlínar- múrinn. Höfð eru eftir Ulbricht þau úm- mæli, að það sé innan verkahrings austur-þýzkra yfirvalda annars veg ar og borgarstjórnar Vestur-Berlín ar hins vegar, að ræða þessi mál og ráða þeim til lykta, og stórveld unum fjórum komi málið alls ekki við. Þegar af þeirri ástæöu sé til- laga Vesturveldanna gagnslaus. Tveir flýðu Aðrar fréttir frá Berlín herma, að seint í gærkvöldi hafi 17 ára gömlum pilti tekizt að komast yfir til Vestur-Beriínar, með þvi að synda yfir landamærasýki. Austur-þýzkir landamæraverðir skutu úr vélbyssum á eftir flótta- manninum. en tókst ekki að hæfa. Áður höfðu verðirnir sent flug- elda á loft til þess að lýsa upp skurðinn, en síðan hófu þeir mikla vélbyssuskothríð á flóttamanninn sem tókst þrátt fyrir allt að komast klakklaust vestur yfir. Þá mun einn austur-þýzkur landamæravörð ur hafa flúið til franska yfirráða- svæðisins, sem er í norður hluta Berlínar. Næsti geim- fari valinn NTB—Washington, 27. júní. — Bandaríkjamenn hafa valið næsta geimfara sinn, sem verður vænt- anlega sendur sex hringi um- hverfis jörðina í geimfari scinua í Sumar. Sá, sem kemur til íeð að fara í þessa ferð heltir Walter Schirra, og er hann 39 ára gam- all, kvæntur og á tvö börn. — Hann cr iSnfræðingur að mcnnt og hefur unnið að ýmsum geim- visindaverkefnum í bandaríska sjéhernum, þar sem hann er, liðs foringi og tilraunaflugmaSur. — íann var uflugmaður í s.íð asts stríði og auk þess í Kóreu- styrjöldlnni. — Æfingu hefur hann hlotiS hina sömu og John Glenn og Scott Carpenter, og var hann varamaður Carpcnters, cr hann fór í sína geimferS. Á móti aðiid Breta að EBE NTB—Lundúnum, 27. júní. — Brezka blaðig Daily Ex- press segir frá því í dag, að vrssar Gallup-kannanir sýni, að þeim fjölgi stöðugt í Bretlandi, sem mótfallnir eru aðild Breta að EBE. Blaðið byggir þessa frá- sögn á niðurstöðum Gallup- rannsókna, sem birtar voru fyrir skömmu í brezka blað inu Daily Mail, en skv. þeim reyndust 43,2 — þeirra, sem spurðir voru, vera mótfallnir aðild. KastaBi blekbyttu í listaverkið NTB—Lundúnum, 27. júní. — Einn af safngestum kon- unglega listasafnsins í Lund únum gerði sér í dag lítið fyrir og kastaði blekbyttu' að einni af teikningutm Leonardo da Vinci, en til allrar hamingju brotnaði ■ekki byttan og skemmdir urðu því ekki teljandi á listaverkinu, sem virt er á 16 milljónir norskra króna. Listaverk þetta var upp- dráttur Vinci af málverki hans María guðsmóðir með barnið. Rtissel áfram í verka- mannaflokknum NTB—Lundúnum, 27. júní. — Miðstjórn brezka verka- mannaflokksins ákvað í dag að falla frá aðgerðum gegn Bertrand Russel, hjnum aldna heimspekningi og Iá- varði, sem er formaður mótmælahreyfingarinnar gegn atómvopnum, og þeim Chorley, séra John Collin^ og frú Vooton, sem öll eru meðlimir verkamannaflokks ins, en öll hafa þau verið beðin að gefa skýringu á stuðningi sínum vig alheims friðarráðstefnuna, sem kem ur saman í M^skvu í næsta mánuði. Þau þrjú siðast töldu hafa öll skýrt afstöðu sína, Russel viU ekkert segja. Með þessum úrskurði mið- stjórnarinnar er komig í veg fyrir, að Russel þurfi að hverfa úr verkamanna- flokknum, en hann hefur verið félagi síðan 1915. Idouia vili afskipti $-b. í Kongó NTB — Leopoldville, 26. júní — Cyrille Adoula, for- sætisráðherra miðstjórnar Kongó sagði í dag, að nú Uti út fyrir, að allar til- raunir til friðsamlegrar lausnar vandamálanna í Kongó og til sameiningar alls landsins, hefðu farið út um þúfur. Viðræður hans og Tsh- ombe um sameiningu Kat- anga við aðra hluta lands- ins hefðu ekki borig neinn árangur og væri þá ekki um annag að gera en biðja S.þ. að grfpa til sinna ráða. í dag flaug Tshombe aft- ur til Elisabethville, eftir að hafa dvalizt í sex vikur í Leopoldville. Á blaðamannafundi, skömmu eftir brottför Tsh- ombe, sagði Adoula, ag ekk ert hefði áunnizt með við- ræðunum við Tshobme. Ekki vildi Adoula láta neitt uppi um það, hvað hann teldi, að Sameinuðu þjóðirnar ættu til bragðs að taka til lausnar vanda- málanna. T f M I N N , fimmtudaginn 28. júní Í962 3

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.