Tíminn - 28.06.1962, Side 16

Tíminn - 28.06.1962, Side 16
Fimmtudagur 28. júní 1962 144. tbl Olíuvegir lagðir á tveim stöðtsm hér Nú í sumar verða gerðar til- raunir með olíumalarvegi hjá tveimur aðilum á landinu. Það er Vegamálastjórnin og Akur- eyrarfyrirtækið Möl og sandur s.f., sem eru að undirbúa þess- ar tilraunir, hvort í sínu lagi. Verður þetta í fyrsta sinn, sem eiginlegar siíkar tilraunir eru gerðar hér. Svíar munu hafa um það bil 10 ára reynslu í lagningu slíkra vega, en hugmyndin er fengin þaðan. Þar þykir olíumölin vera mjög svipug að gæðum og malbik, svo framarlega sem umferðin um þá er ekki meiri en 1000 bílar á dag, en það er sjaldgæft hér. Sveinn Torfi Sveinsson verkfræðingur hef ur kynnt þessa aðferð hér, og telst honum til, að vegurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar rhuni ekki kosta nema 35 milljónir króna með þessari aðferð. Um 2 km í sumar Möl og sandur á Akureyri verð- ur sennilega fyrst til ag leggja slíkan vegarspotta, en þeir hafa nú öll tæki í höndunum og bíða að- eins eftir olíunni, sem von er á eftir nokkra daga. Þeir vita ekki enn, hvaða spotti á Akureyri verð- ur lagður svona, en það verða sennilega um 500 metrar, lagðir í júlí, ef veður leyfir. Þeir leggja hann á eigin kostnað. Vegamálastjórnin hefur fengið flest þau tæki, sem þarf til slíkra tilrauna. Þau eru fengin fyrir mjlligö'ngu sænsku, vegamála- stjórnarinnar. Ætlar vegamála- Framhald á 15. síðu. Uppsögn samninga fyrir félagsdóm? í siávarþorpi elnu hér fannst fyrir örfáum dögum ritan, sem sést hér á myndinni. Einhver hafði leikið sér að því að betta á öngui og festa girnið við steln. Ritan gleypti agnið með önglinum og reyndi síðan að fljúga, en skall jafnóðum til jarðar vegna steinslns. Vonandi hefur aðeins verið um barnaskap að ræða, er agninu var komið fyrir, en ástæða þykir til að vara börn við þessum leik. Ýmislegt virðist nú benda til þess, að uppscgn LÍÚ á samningum við skipstjóra- og stýrimannafélögin Kára í Hafnarfirði og Vísi í Keflavík fari fyrir félagsdóm. VIÐRÆÐUR FARID Tímanum barst í gær eftir- farandi yfirlýslng frá stjórn Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands: Vegna bráðabirgðalaga ríkis- stjómarinnar frá 25. þ.m. vill stjóm Farmanna- og fiskimanna- sambands fslands taka fram eftir- farandi: í forsendum laganna er skýrt svo frá að margra vikna samninga umleitanir hafi átt sér stað milli fulltrúa Landssambands íslenzkra útvegsmanna og Farmanna- og fiskimannasambands íslands um kaup og kjör yfirmanna á síld- veiðum. Þessar forsendur bráðabirgðalag- anna eru ekki réttar. Engar við- ræður hafa farið fram milli þess- ara aðila, frá því sammngum var sagt upp af hálfu L.f.Ú. 10. mai síðastl. F.F.S.Í. telur sig ennþá samniþgs bundið L.Í.Ú. um kaup og kjör sinna sambandsfélaga á síldvaið- um, þar sem véfengt hefur verið lögmæti áðurgreindrar uppsagnar á gildandi samningum .gerðum 14.2. 1961. Því leyfir stjórn F.F.S.Í. sér að mótmæla, að hagsmunir sambau s- félaga þess séu á röngum forsend- um og að tilefnislausu teng-lir deilu þeirri, er staðið hefur milli L.Í.Ú. og undirmanna á síldveiði- flotanum. Varðandi skipan Gerðardóms, samkvæmt bráðabirgðalögunum hefur stjórn F.F.S.Í. ákveðið að taka ekki þátt í skipan manns í dóminn af sinni hálfu, þar sem sambandið telur sig ennþá moð bundna samninga. Hins vegar leyfir F.F.S.Í. sér að vekja athygli ríkisstjórnarinnar á, að sambandinu þykir ákvæði lag- anna um skipan manna i Gerðar- dóminn mjög óeðlileg. Vér teljum A.S.Í. og Sjómanna- sambandið einn aðila, sem fulHr ia undirmanna síldveiðiskipanna. — Samt sem áður er þessum aðilam ætlað % atkvæðis þess eina -uil- trúa, sem skipta skal milli F.F S.f. og nefndra tveggja aðila og hefur F.F.S.Í. þar af leiðandi 1/15 at- kvæða í 5 manna Gerðardómi. Ef miða skal við launatekjur skipshafnar, munu yfirmenn, sem eru 4 menn af 10 manna áhöfn, bera úr býtum, samkvæmt stöðu sinni á skipinu, um helming þess kaupgjalds, sem greitt er áhöfn- inni. Stjórn F.F.S.Í. telur að með bráðabirgðalögunum hafi verið tek in upp ný og varhugaverð stefna við lausn alvarlegra vinnudeilna; að síðustu samningar séu ekki látnir gilda þar til úrlausnai’á- kvæði laganna hafa náð fram að ganga. Eðlilegást hefði verið, úr því lög festing var talin óhjákvæmileg og miðlunartillaga ekki fyrir hendi, að lögbinda síðustu gilda samn- inga, eins og áður hefur tíðkazt. Stjórn FFSÍ 10. maí sl. sendi LÍÚ til Far- manna- og fiskimannasambands fs lands uppsögn á kjarasamningum skipstjóra og stýrimanna. LÍÚ sagði upp samningum með skírskot un til gengisbreytingarákvæðis samningsins. Stjórnir skipstjóra og stýri- mannafélaganna Kára í Hafnar- firði og Vísis í Keflavík mótmæltu við LÍÚ uppsögn samninganna á þeirri forsendu, að hún væri ó- gild, þar sem samningunum væri ekki sagt upp beint við félögin heldur send FFSÍ. 20. júní sl. barst félögunum svar frá LÍÚ, þar sem mótmælum félaganna er al- gerlega vísað á bug. Stjórnir fé- laganna Kára og Vísis óskuðu þá eftir því við stjórn FFSÍ, að sam- bandið leitaði eftir ógildingu upp- sagnarinnar fyrir félagsdómi. Var stjórn sambandsins gefinn frestur til hádegis 23. júní að gefa svar við málaleitan félaganna, Svar frá FFSÍ barst ekki fyrr en sá frest- ur var útrunninn og var í svarinu slcgifs úr og í. Síðan hefur þó FFSÍ mótmælf setningu bráða- birgðalaganna og uppsögn samn- inganna. Stjórnir Kára og Vísis ráða nú ráðum sínum og munu sameiginlega gera viðhlítandi ráð- stafanir til að reka réttar síns gagnvart LÍÚ. SKEMM TIFERÐ SkemmtiferS Framsóknarfélaganna í Reykjavík verð- ur farin sunnudaginn 22. júlí n.k. Síðar verður auglýst hvert farið verður og nánari tilhögun ferðarinnar. Framsóknarfélögin í Reykjavík J Litlu flugfélögunum, sem stunda áætlunar- eða leiguflug út á land, var núna eftir helg- ina sent bréf frá samgöngu- málaráðuneytinu, þar sem far- ið var fram á, að þau hættu að auglýsa áætlunarflug, vegna bess að það bryti í bága j við reglugerð um löggildingu 1 Hugvélaáhafná. I Undanfarið hafa nokkur ný flug i félög staðið fyrir áætlunarflugi til ýmissá staða á landinu, þar sem hentugt er að koma fyrir litlum flugvélum Flugsýn hefur haft fast a; .jrðir r•! /opþafjarðar. Nes- kaupstaðar. Hólmavíkur, Gjögurs, Þingeyrar, Hellissands og Patreks- fjarðar. Nokkrir menn, sem kalla sig Flugfélag Reykjavíkurj hafa flogið föstu áætlunarflugi til nokk- urra sörnu staða, og Sveinn Eiríks son hefur stundað áætlunarflug til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Þessi nýbreytni hefur verið íbúum þess- ara staða til mikils hagræðis. Gallinn við þessar flugferðir mun að áliti samgöngumálaráðuneytis- ins vera sá, að flugmenn þessara flugfélaga hafa ekki þau réttindi, | sem krafizt er hér á landi til flug stjórnar á áætlunarleiðum. Venju- legt atvinnuflugpróf veitir aðeins réttindi til óreglulegs leiguflugs.. 1 Einnig þurfa flugfélög sérleyfi til áætlunarferða, sem þessi flugfélög munu ekki hafa. Til flugstjórnar á áætlunarleið- um er krafizt ákveðins lágmarks- 1 flugtíma og vissra aukaprófa fram yfir atvinnuflugpróf Fra. iáo.c a 15. síðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.