Tíminn - 13.07.1962, Síða 3
50 METRA SKOTFÆRI
LANDAMÆRUNUM
í dag hélt indverska
stjórnin skyndifund, þar
sem rætt var hvað gera
skyldi út af ágreiningi
þeim, sem risinn er upp
miill Indverja og Kín-
verja, vegna indversku
herstöðvarinnar í Galwan
dalnum í Ladakh-héraði
í Kasmír, en um 400
kínverskir hermenn um-
kringdu herstöðina í gær.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að indverska stjómin
ræði nú leiðir til að tryggja varn-
ir stöðvarinnar, ef Kínverjar
gerðu árás á hana. i '
Síðustu fréttir frá Galwan-
dalnum herma, að þar sé á-
standið óbreytt frá því í gær.
Báðir aðilar halda kyrru fyrir
í stöðvum sínum, sem eru um
50 metra hvor frá annarri.
Steingrímur Pálsson frá Páfastöðum, nú bóndi að Sökk u í Svarfaðardal; Magnús Jónsson, lögregluþjónn á Akur-
eyri og Þorsteinn Jónsson (sonur Jóns frá Mýrarlóní) í einu tjaldi Norðlendinga á Þingvöllum í gær, Þorsteinn
kom ríðandi norðan Kjöl, en hlnir komu með bflum.
Landsmót hestamanna
hefst í dag á Þingvollum
Á leiðinni til Þingvalla mátti
f gær sjá margt ríðandi manna
á ferð, en landsmót Landssam-
Réðust á
landamæra
verðina
NTB—Oran, 12. júlí.
Fréttastofan í Marokkó skýrði
frá því í dag, að tií árekstra hefði
komið milli marokkónskra landa-
mæravarða og hermanna frá Sa-
hara og Saoura. Marokkómönn-
unum tókst að stökkva árásar-
mönnunum á flótta.
Ben Bella, varaforsætisráðherra
útlagastjórnarinnar í Alsír kom í
dag til Oran og fékk þar innilpg-
ar móttökur, enda á hann þar í
borg mestu fylgi að fagna. —
Bella ók um göturnar, en á undan
fóru þjóðfrelsishermenn á bifhjól
um. Fólkið stóð í þéttum fylking-
um á gangstéttunum og hrópaði:
Lengi lifi Ben Bella.
Græn-hviti fáninn blakti hvar
vetna við hún og Bella bar sjálf-
ur um hálsinn, borða með sömu
litum. Belia stóð upp i bílnum og
veifaði til mannfjöldans, en við
hlið Bella var Khider, innanríkis-
ráðherra.
bands hestamannafélaga er nú
að hefjast við Skógarhóla í
Þingvallasveit. Var farið að
fjölga allmikið þar eystra í
gærdag, bæði að mönnum og
hrossum en mikið mun þó enn
ókomið. Er búizt við, að mótið
verði afar fjölsótt, ekki sízt
ef veður verður jafngott fram
yfir helgi og verið hefur síð-:
ustu dagana.
í gærkvöldi seint kom á móts-j
staðinn flokkur nórðlenzkra hesta-;
manna, sem hafði farið ííðandi ]
frá Akureyn til mótsins. Voru þeir |
þrettán saman og höfðu meðferðis |
110 hesta. Flestir voru þessir menn j
frá Akureyri og nærsveitum, en
þó sumir lengra að t. d. var þarna i
Pétur Jónsson á Egilsstöðum, en:
hann hafði flutt hesta sína bílleið-!
is til Akureyrar, en fór þaðan ríð-!
andi suður.
Blaðið átti í gær tal við nokkra
ferðalangana. Létu þeir vel yfir
ferðinni, sögðu að hún hefði geng-
ið vel og veður hið fegursta. Þeir
lögðu upp frá Akureyri sl. fimmtu
dag, fóru vestur Öxnadalsheiði, en
upp úr Skagafirði héldu þeir Kjal-
veg milli byggða. Lögðu þeir af
stað úr Skagafirði suður síðdegis
á laugardag og voru komnir suður
að Geysi á mánudagskvöld. Róm-
uðu þeir mjög allar móttökur syðra
einkum báðu þeir blaðið að flytja
þakkir sínar til heimilisfólksins að
Efri-Reykjum í Biskíipstungum, en
þar var komið í veg fyrir þá og
þeim boðið upp á kaffi.
Fleiri en þessi hópur munu og
hafa komið ríðandi milli lands-
hluta eða vera væntanlegir, en
rnargir þátttakendur í mótinu hafa
flutt hesta sína bílleiðis suður.
Hafa þeir flutningar yfirleitt geng-
ið vel, og er ekki talið að hestarn-
ir séu á nokkum hátt eftir sig eft-
ir ferðalagið.
í dag munu dómnefndir skoða
sýningarhross, en dómar verða
ekki tilkynntir fyrr en á laugar-
dag. Mun þessi skoðun hefjast ár-
degis og standa yfir allan daginn.
Hefur dómnefnd, sem Þorkell
Bjarnason hrossaræktarráðunaut-
ur veitti forstöðu, en í áttu sæti
auk hans þrír menn tilnefndir af
L. H., áður ferðazt um landið og
valið úr þáu hross, sem á sýning-
Framhald á 15 síöu
Vantraust
á Pompidou
i i
Þingmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna fjögurra í
Frakklandi, iögðíi í dag
fram á jsingfundi van>
trauststillögu á stjórn
Pompidou, foréætisráð-
herra, eftir að stjérnin
hafði samþykkt aukafjár>
veitingu til kjarnorku-
stofnunarinnar á Pierre-
sléttu við Rín.
! NTB—París, 12. júlí.
í greinargerð me^ vantrausts-
; tillögunni segir m.a., að stjórnar-
! andstæðingar þeir, sem að van-
traustinu standi, séu ekki á móti
frönskum kjarnorkuiðnaði, en að
ætla sér að komaiá fót sjálfstæðu
varnarkerfi atómvopna, eru skýja
borgir einar, segir j greinargerð-
inni.
Stjórnarandstöðuf]okkarnir
halda því fram, að hægt sé að
isamræma slefnu Bandaríkjanna í
varnarmálum og stefuu frönsku
•stjórnarijinar um sjálfstæðar
varnir með kjarnorkuvopnum.
Við hryggjumst yfir því, að'
Framhald á 15. síðu.
HHAaMúffiUMUll i »5,' ss^,
Grunaður um Gyð-
ingaofsóknir
NTB—Hamborg, 12. júlí.
Vestur-þýzkum manni, Wil
helm Vestring, hefur verið
vísað úr embætti, sem yfir-
manni eins af lögreglusvæð-
um Hamborgar, meðan rann
sakaður er ferill hans í síð-
asta stríði, en grunur leikur
á, að hann hafi tekið þátt í
Gyðingaofsðknum þeirra
tíma.
Reknir fyrir njósnir
NTB—Wellington, 12. júlí.
Forsætisráðh. Nýja Sjá-
lands, Keith Holyoaue,
skýrði frá því í dag, að
tveimur starfsmönnum við
sovézka sendiráðið í Well-
ington, hafi verið vísag úr
embætti, sökuðum um
njósnir.
Churchill með
iungnabólgu
NTB—Lundúnum, 12. júlí.
Winston Churchill, sem
nú liggur á sjúkrahúsi til
að jafna sig eftir lærbrot,
hefur nú fengið lungna-
bólgu og nokkurn hita af
hennar völdum. Ekki er þó
talið, að um alvarieg veik-
indí sé að ræða.
Öfgamenn í París
handfeknir
NTB—París, 12. júlí.
Franska lögreglan skýrði
frá því í dag, ag handteknir
hefðu verið 12 öfgamenn til
hægri, þar á rneðal þrjár
konur, sem Öll eru sökuð
um samsærrsfyrirætlanir.
Lögreglan segir, að ætlun
öfgamannanna hafi verið,
að koma á fót þjóðernislegu
andspyrnuráði, sem styðja
mundi OAS-samtökin í Par-
ís og næsta nágrenni.
Á handtökustaðnum fann
lögreglan töluvert af vopn-
um og sprengiefni, og var
allt gert upptækt.
Símtöl yfir Atlants-
hafið um Telsfar
NTB—Andover, 12. júlí.
Ákveðið hefur verið að
freista þess í nótt að af-
greiða símtöl yfir Atlants-
hafið, frá Evrópu til Banda-
ríkjanna, með aðstoð gervi-
hnattarins Telstar.
Phouma boðið
til Bandaríkjanna
NTB—Washington, 11. júlí.
— Bandaríkin hafa boðið
Souvanna Phouma, prins
og forsætisráðh. Laos, að
heimsækja Washington f-
lok þessa mánaðar. Þeir
sem standa að heimboðinu
eru fulltrúar bandarísku
sendinefndarinnar, sem set-
ið hafa Laos-ráðstefnuna í
Genf.
Enn sprengja Banda-
ríkjamenn í Nevada
NTB—Washington, 6. júlí.
Bandaríkjamenn sprengdu
í dag vetnissprengju 210 m.
í jörðu niðri í Nevada-eyði
mörkinni. — í tilkynningu
frá tilraunastöðinni segir,
að tilgangurinn með spreng
ingunni hafi verið að ganga
úr skugga um, hvort hægt
myndi vera að nota vetnis
sprengjur í stað venjulegs
sprengjiefnis við sprenging
ar í fjöllum. — Erlendir
blaðamenn fengu ekki að
vera viðstaddir tilraunina,
og or ástæðan til þess sögð
sú, að á tilraunasvæðinu
fari nú fram margar atóm-
vopnatilraunir.
T í M I N N. föstudagurinn 13. jiilí 1962
3