Tíminn - 01.09.1962, Qupperneq 13
ALLIR ÞURFA AÐ LESA
sönnu sögurnar og skopsögurnar í
heimilisblaðinu SAMTÍÐIN
MuniS hið einstœða kostaboð okkar:
960 bls. fyrír aðeins 100 kr.
er þér gerizt áskriíandi að þessu fjölbreytta og skemmti-
lega blaði. sem flytur auk þess:
Ágætar greinar, fjölbreytta kvennaþætti, skákþætti,
bridgeþætti, margvíslegar skemmtigetraunir, stjörnu-
spár fyrir alla daga ársins o. m. fl.
10 BLÖÐ A ÁRI FYRIR AÐEINS 75 KR.
og nýir áskrífendur fá árgang 1960 fyrir aðeins 25 kr.
og árg. 1961 í kaupbæti, ef 100 kr. fylgja pöntun. Póst-
sendið eftirfarandi pöntunarseðil:
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að SAMTÍÐ-
INNl og sendi hér með árgjaldið 1962. 75 kr. + 25 kr.
fyrir árg. 1960. fVinsaml. sendið þetta I ábyrgðarbréfi
eða póstávísun.)
Nafn .......................................
Heimíli ....................................
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN Pósthólf 472. Rvík.
VALVER VALVER
Húsmæður
Höfum á ný fyrirliggjandi eldhúsbolla á kr. 32,35
með diski einnig án disks á kr. 19,85.
Einnig fjölbreytt úrval af alls konar búsáhöldum
og leikföngum.
Strauborðin landsþekktu á 385 kr. komin aftur.
Einnig barnastrauborð með straubolta á;180 kr.
Hringið eða skrifið og við sendum yður heim og
í póstkröfu um land allt.
VALVER
Laugavegi 48
sími 15692
Skrifstofuhúsnæði
rétt við miðbæinn til leigu nú þegar (heil hæð).
Upplýsingar gefur Kristinn Ó. Guðmundsosn, sími
13190, milli kl. 3 og 6 e. h.
flkið sjálf
nýjum bíl
Almenna bifreiðalelgan b.t.
Hringbraut 106 — Sími 1513
Keflavík
AKIÐ
SJÁLF
NÝJUM fiíl
ALM BIKREIBALEIGAN
Klaonarstis 40
SÍMI 13716
DD
////y, /,'f/
CZefijre
00 Fimm
□ □ ára ábyrgð
00
00
Einangrunargler
FJÖLIÐJAN H.F.
ísafirði.
Söluumboð:
Korkiðjan h.f.
Skúlagötu 57
Trúlofunarhringar -
Fljót afgreiðsla.
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Símt 14007
Sendum gegn póstkröfu
IPAUTGCRB RIKISINS
Ms. SkjaldbreiS
vestur um land til ísafjarðar
5. þ.m. Vörumóttaka árdegis í
dag og mánudag til ísafjarðar.
Suðureyrar, Flateyrar, Þingeyr-
ar, Bíldudals, Sveinseyrar, Pat
reksfjarðar, Flateyrar, Stykkis-
hólms, Grundarfjarðar og Ólafs
víkur. Farseðlar seldir á mánu-
dag.
Skólafímgnn
nálgasf
Skólaföt á drengi
frá 6 til 14 ára
Stakir drengjajakkar /
Stakar drengjabuxur
Drengja-frakkar
Drengja-peysur
Matrósaföt og kjólar
Sevjot ódýrt buxnaefni tví-
breitt kr. 150 metr.
Vöggusængur
Æðardúnss^ngur
Hálfdúnn — Fiður
Sængurver — Koddar
Pattons ullargarn
fyrirliggjandi
sex grófleikar, litaúrval
PÓSTSENDUM
Vesturgötu 12 - Sími 13570
Danmörk — Noregur
Framhald af 12. síöu.
í sleggjukastinu sigraði Oddvar
Krogh, Noregi, kastaði 61,89 m.
en annar varð landi hans Sverre
Strandli með 62,02 ni. í langstökki
sigraði Hans Jörgen Fláthen, Nor-
egi, stökk 7,30 m. og í kringlu-
kasti sigraði Stein Haugen, Noregi,
kastaði 54.43 m. í 4x400 m, hoð-
hlaupi sigraði da’nska sveitin á
3:15,8 mín., en norska a-sveitin
var dæmd úr lejk vegna rangrar
skiptingar.
Landsliðið
Framhald af 12. síðu.
því elns og áður hefur komið
fram má ekki skipfa um leik-
menn effir að leikur er haf-
inn. Þess má gefa, að ef f.d.
Helgi Daníelsson meiðist í
leiknum verður Ellert Schram
að taka stöðu hans.
Landsliðið kemur saman eft
ir hádegi í dag og verða leik-
mennirnir saman í dag og
kvöld — en flestir írsku lands
liðsmennirnir koma með flug-
vél frá Glasgow í kvöld.
Bænadför
Framhaid af 9. síðu.
þá sem endranær því að á Egils-
stöðum rak hver ræðan aðra. Þeg-
ar Sveinn á Egilsstöðum hafði lok
ið máli sínu bað Guðmundur skáld
á Egilsá um orðið og síðan hver
af öðrum: Sigríður Fanney á
Egilsstöðum, Þorsteinn á Reyðar-
firði, Einar Jónsson á Hvanná, Jón
á Hofi, Björn í Bæ, Pétur á Egilí?
stöðum, Sigurbjörg í Brekkukoti
í Skagafirði, Jón Sigfússon á Eið-
um, Sigurmon Hartmannsson í
Kolkuósi, Vigfús Helgason, kenn-
ari á Hólum, Gísli í Eyhildarholti,
Hallur á Rangá, Vilhjálmur Hjálm
arsson á Brekku, Friðrik á Þor-
valdsstöðum í Skriðdal, Björn
Stefánsson, kaupfélagsstjóri á Eg-
ilsstöðum, Gísli í Skógargerði, Her
fríður Valdimarsdóttir, Brekku í
Skagafirði, Erlingur Sveinsson á
Víðivöllum í Fljótsdal, Ragnar Ás-
geirsson, Jón Kerúlf á Hrafnkels-
stöðum og loks sleit Sveinn á Egils
stöðum hófinu með snjallri ræðu.
Milli ræðna var mikið sungið og
myndarlega, enda var fullkomið
þriggja manna verk að stjórna
söngnum og skiptust þeir á um
það, Jón Kerúlf, Friðbjörn Trausta
son, söngkennari á Hólum og Rögn
valdur Jónsson í Flugumýrar-
hvammi.
Framúrskarandi ánægjulegum
samfundum með Austfirðingum í
Egilsstaðaskógi er lokið. Menn
kveðjast með kærleikum og Skag-
firðingar dreifast til gistingar um
Egilsstaðakauptún, Vellina, Eiða-
þinghá og Skriðdal. Okkur hjónum
hlotnaðist að þessu sinni gisting
hjá Páli kunningja mínum Lárus-
syni í Miðhúsum og konu hans.
Miðhúsabærinn er 126 ára gamall,
frábærlega snyrtilegur og vel um
genginn og er það út af fyrir sig
ærinn viðburður að fá að gista
slíkan kjörgrip. En okkur Páli
var hvorugum nokkur svefn á aug-
um þótt áliðið væri orðið nætur.
Eftir að hafa hresst okkur vel í
Miðhúsaeldhúsinu, sem raunar var
að bera i bakkafullann lækinn,
yfirgáfum við hin öldnu húsakynni
og héldum út í vornæturkyrrðina.
Bar þá margt á góma, sem hér verð
ur ekki rakið. Klukkan að ganga
sex hölluðum við okkur á eyrað.
Framundan var tveggja tíma svefn.
—mhg.
Leiguílug
Simi 20375
Frægðin fellur í gleymsku
Framhald af 2. síðu.
inn með í ættarskrám absurdist-
anna, sem hefði getað hresst eitt
hvað upp á frægðarorð hans.
Hins vegar er Strindberg það,
en hann leit á Maeterlinck sem
meistara sinn og hefur sótt tals-
veit af tækni sinni til hans.
í Óboðni gesturinn er aðalper-
sónan enginn annar en maðurinn
með Ijáinn, sem kemur til að
sækja unga móður á bamssæng.
Fjölskyldumeðlimirnir sitja uppi
vakandi um nóttina og reyna að
telja hver öðrum trú um, ag ekk
ert sé að óttast. En afi gamli,
sem er blindur oiðinn, heyrir
það, sem fer fram hjá hinum.
Næturgalamir eru hættir að
syngja úti í garðinum, og í
fjarska er hvattur ljár. Þarna er
einnig saklaus ung stúlka, —
skyld Elenoru í Páskum Strind-
bergs —, sem er skyggn, og að
lokum verða hún og gamli mað-
urinn þess vör, að Dauðinn er
kominn inn í herbergið til að
ná uppskerunni með Ijá sínum.
í Blindingjum situr hópur vist
manna frá blindrahæli úti í skógi
einum og bíður leiðsögumanns
síns, gamals, sjóndapurs prests,
sem hefur leiðbeint þeim til
þessa, en hefur nú farið til að
sækja þeim vatn. En hann kem-
ur ekki aftur, og það kemur
kvöld og blindingjarnir fálma
sig áfram í örvæntingu án þess
að finna veginn. Gamli prestur-
inn finnst örendur, og öll von
þeirra blindu um frelsun slokkn-
ar.
Inni fjallar einnig um dauð-
ann.. Ung stúlka hefur drukknað,
og meðan ókunnir fundarmenn
tala fremst á sviðinu við gam-
almenni og tvö barnabörn þess
um slysið, sést í baksýn um upp-
ljómaða glugga inn í húsið, þar
sem ættingjar stúlkunnar eru
saman komnir. Hvað þeir segja
þar inni, heyrist ekki, en það
má sjá, að þeir eru enn þá á-
hyggjulausir og án sorgar. And-
látsfréttin er ekki komin. En
þegar hún kemur, sést einnig
breytingin, örvæntingin, lam-
andi sorg. Að lýsa þannig sorg-
arsögum úr hvei'sdagslífinu á ó-
beinan og sefandi hátt, var nýtt í
leiklistinni, en Maeterlinck hef-
ur eflaust talið að með þessum
þremur auk fáeinna annarra leik
rita, hefði hann tæmt möguleika
aðferðarinnar. í Monna Vanna
hverfur hann aftur til hefðbundn
ara forms og lýsir persónum, sem
vita vel, hvað þær gera og hvað
þær vilja, og í Blái fuglinn
reyndi hann að draga saman
kjarnann úr hinni symbolisku
heimspeki sinni í ljóðrænt leik-
ævintýri.
Það virðist svo, að Maeterlinck
hafi aldrei gert nokkuð sjálfur
til að auka frægð sína. Honum
stóð á sama, hvort leikrit hans
voru sýnd eða ekki, og hann
forðaðist blaðamenn og ljósmynd
ara. Hann kaus helzt að lifa þann
ig, að sem minnst færi fyrir sér.
Hann fór snemma á fætur á
morgnana og settist strax að
skrifborðinu, svo að hann gat
þegar um hádegið lagt ritstörf-
in til hliðar og farið að sinna á-
hugamálum sínum öðrum, íþrótt-
um, (hnefaleikum, sundi), vél-
fræði (bílum, bifhjóli) og síðast
en ekki sízt garðrækt.
Þetta síðast talda áhugamál
erfði hann frá föður sínum, og
það var einnig frá honum, sem
hann hafði vináttu sína við bý-
flugurnar, en þeim hefur hann
lýst í einni vinsælustu bók sinni
Líf býflugnanna.
Hann var það sem kallað er
lífslistamaður, og kannski fremri
sem slíkur en sem listamaður í
venjulegri meikingu. Samt kem-
ur það að engu haldi, ef öll rit-
störf hans eru nú vegin og létt-
væg fundin. Það hlýtur að vera
eitthvað að voginni.
(Þýtt úr Politiken)
T í M I N N, laugardagurinn 1. sept. 1962. —
13
(