Tíminn - 01.09.1962, Side 15

Tíminn - 01.09.1962, Side 15
Humar- veiSin Leyfi til humarveiSa rann út á miðnætti í gærkvöldi, hálfum mánuði síðar en gert hafði verið ráð fyrir. Enn er þó talsverðan humar að fá, en hann er afar smár og mik- ið magn aflans, sem fer til ónýtis vegna smæðar. Yfir 100 ieyfi voru veitt til hum arveið'anna, en bátarnir munu þó ekki hafa verið fleiri en 70—80, þegar flest var. Leyfi voru veitt bátum á svæðinu frá Hornafirði til Akraness, en mest var veitt á Eldeyjarbanka. Ekki er enn fengin vitneskja um aflabrögð humarbátanna í heild, er, talið er, að aflamagn hafi verið allmikið. Síðasta kastið var hum- arinn þó orðinn svo smár, að sjáv- arútvegsmálaráðuneytið sá sér ekki annað fært en banna veið- arnar. Bannið, sem gekk í gildi miðnætti s.l., er almennt, þó að göghin, sem liggja fyrir um smæð humarsins, séu aðeins fengin af svæðinu frá Vestmannaeyjum og vestur fyrir. Aðalsteinn Sigurðsson, fiskifræð ingur, sagð'i Tímanum í gær, að úr síðustu prufu, sem hann hefði fengið til rannsóknar, hefði smæsti humarinn verið rétt eins og væn rækja. Sagði hann, að þetta hlyti að vera ungur stofn, og væri óvarlegt að leyfa honum ekki að vaxa upp í friði, enda færi þessi smái humar bara í úr- kast. Ekki sagði Aðalsteinn, að til væru neinar reglur um, hve humarinn ætti að vera stór, en fyrir nokkru munu Svíar hafa bannað að fluttur væri á land humar, sem væri minni en 13—15 sm frá hala að trjónu. Allt að 70 % þess humars, sem veiddur hef- ur verið hér við land síðasta kast- ið, hefur verig minni en 14 sm., og má af þessum samanburði sjá, hvernig veiðin var orðin. Preniaraverkfall < Framhaia .ii ols 1. stunda vinnuviku. Þá voru ákvæði um, að fleiri laugardagar en áður yrðu hálfir vinnudagar, veikinda- dagar færðust með mönnum milli vinnustaða og auk þess ýms atriði í sambandi við aðbúð prentara á vinnustað. Vinnuveitendur voru samþykkir fjórtán prósent kauphækkun, ákvæðinu urn veikindadaga og lýstu sig fúsa til að taka upp við- ræður á samningstímabilinu, yrðu fjarsetjarar teknir í notkun, og jafnframt, að stuðzt yrði í því efni við hliðstæða samninga á Norður- löndum. | Fundur prentara í gærkveldi hafnaði þessu, en sendi vinnuveit- endum gagntilboð. í því tilboði voru m. a. ákvæði um að laugardag ar í janúar yrðu unnir hálfir og eftirvinnukaup yrði reiknað út frá 44 stunda vinnuviku. Fundur- inn samþykkti að þetta skyldi vera úrslitatillaga frá félaginu. Það, sem vinnuveitendur , svöruðu ekki gagntilboðinu, hófst verkfallið klukkan 12 í nótt. Haustsýnircg Framhald aí 16. síðu. verða sýningu að ræða. Sér- stök ástæða er til að geta um þrjú málverk eftir Svav- ar Guðnason, sem hefur slak að á formspennunni og birt- ir mjög ferskar, hálf natúr- aliskar myndir. Þá munu verk Eiríks Smith vekja at- hygli, en hjá honum er frek- ar um þróun en skyndibreyt ingar að ræða. Steinþór Sig- urðssop á tvö athyglisverð verk á sýningunni. Þeim hefur verið komið fyrir á gaflvegg skálans. Scheving kemur á óvart fyrir þá sök, að margur hefði ætlað þær myndir gamlar, er hann sýn ir nú, en þær eru flestar nýj ar af nálinni. Sýningin er opnuð kl. 2 í dag og verður opin á venju- legum sýningartíma fram til 16. þ. m. — Það verður góður tími fyrir myndlist- arunnendur. Söltunarmet F-a -<h^iri a, i síðu. Síldarbræðslan var á fimmtu- dagskvöldið sem hér segir: Rauðka 102.681 mál, SR Siglufirði 431.527, Raufarhöfn 278.669, Húsavík 12. 403, Skagaströnd 29.987 og Reyð- arfirði 1221 mál. Frá Ægisslóðum í gær. Jakob Jakobsson sagði í gær- kvöldi, að góð veiði hefði verið á svæðinu út af Hvalbak allt fram á morgun í gær, og þar sást mikil vaðandi síld fram undir hádegi. Iíann sagðist ekki vita, hversu lengi mætti enn búast við að síld- veiðar héldu áfram, en vel mætti veiða síld fram undir jól, ef hún væri sótt nógu djúpt út. Líklegt væri að síldin væri að búa sig und ir langa göngu núna, þar eð hún safnað'ist yfirleitt aldr'ei saman í eins stórar torfur og hún hefur gert fyrir austan síðustu dagana, r.ema hún væri að leggja upp í langa göngu. Fanney var að leita síldar á Vestursvæðinu, og fann síld norð- ur af Langanesi. Þetta var milli- síld, og ekki eins góð, og sú, sem veiðzt hefur við sunnanverða Aust firði undanfarna daga. Pétur Thorsteinsson leitar sildar á Húna flóa, en hefur ekki orðið neins var þar. Heybruni Mýrdal Milil kl. 10 og 11 á fimmtudags- morguninn kom upp eldur í hlöðu að Höfðabrekku við Vík í Mýrdal. Illa gekk að slökkva eldinn og eyði lagðist meiri hluti þess heys, sem í hlöðunj var. Um sjálfsíkveikju mun hafa verið að ræða, og réðist ekkert vig eldinn, sem magnaðist fljótt. Þakið var rifið af hlöðunni, og reynt að moka einhverju af heyinu út úr henni, en meiri hluti þess eyðilagðist, en í hlöðuni voru um 150 hestar. Menn úr nágrenninu og frá Vík í Mýrdal komu til þess að aðstoða við slökkvistarfið, en ekkert dugði. Þegar við áttum tal við fréttaritara blaðsins í Vík í gær hélt hann, að enn logaði í heyinu en það hafði verið þakið með torfi til þess að reyna að kæfa eldinn. Bóndinn á Höfðabrekku heitir Ragnar Þorsteinsson, og hafði hann tryggt hlöðu sina í sumar, svo tjónið varð ekki eins tilfinn- anelgt og hefði annars getað verið. 7-8 þús. kr. þjófnaðurí Kaffí Höl! f fyrrinótt var brotizt inn í Kaffi Höll í Austurstræti og stol- ig þar 7—8 þúsund krónum. Lög- reglan sagði, að ekki hefði verið fulljóst, hvernig þjófurinn komst inn. Þá var framið innbrot hjá Gefjun-Iðunni, en engu stolið. — f fyrrakvöld, milli kl. 9 og 11, var stolið bílgrammófón eða plötu- spilara af gerðinni Philips, úr bíl við Háskólabíó. Félagsheimili á Blönduósi Blönduósi, 31. ágúst. ANNAÐ kvöld verður haldinn dansleikur í nýja félagsheimilinu hérna, en vígsluathöfnin fer ekki fram fyrr en lokið hefur verið við báðar álmurnar. f þéirri álmu, sem tekin hefur verið í notkun, er dans- og veitingasalur, snyrting ar og fundarherbergi. Dans- og veitingasalurinn tekur 360 manns við borð. — S.A. GRECO famir Ballett flokkur Jose Greco fór utan s.l. miðvikudag eftir að); hafa sýnt níu sinnum í Þjóðleik-1 húsinu fyrir troðfullum húsum. | Óhætt ei að fullyrða að sýningar , hefðu getað orðið miklu fleiri, en af því gat ekkj orðið sökum anna ballettdansaranna. Guðlaugur I Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, fór, utan með ballettflokknum og mun hann verða erlendis næsta hálfa mánuðinn. Dagur ungmenna- félaganna. DAGUR ungmennafélaganna í Möðruvallaklaustursprestakalli verður að þessu sinni haldinn sunnudaginn 2. sept. í boði ung- mennafélagsins Dagsbrún í Glæsi- bæjarhreppi og hefjast hátíðahöld in með guðsþjónustu í Glæsibæ kl. ?, síðd. — Ágúst Sigurðsson stud. theol prédikar, en sóknarprestur inn séra Sigurður Stefánsson, vígslubiskup, þjónar fyrir altari. *?íílvsið Í Tímanum Framleiðslan heldur áfram Eftir að gert hafði verið við spenni þann sem bilaði í verk- smiðjunni í sumar, og hann verið notaður siðan í einn mánuð, bil- aði hann aftur hinn 28. þ.m. Næsta dag var nýr spennir tekinn í notk- un, sem verksmiðjan hefur fengið að láni hjá Rafveitu Hafnarfjarð- ar. Framleiðsla verksmiðjunnar heldur því áfram, þó eitthvað skorti á, að fullum afköstum sé náð. v Sérfræðingur frá framleiðanda spennisins, sem einnig annaðist viðgerð'ipa í sumar, er kominn til landsis og rannsakar nú hina síð- ari bilun. Frá áburðarverksmiðjuni h.f, Varð undir bílhræi, sem drengur kom af stað í gær mjaðmargrindarbrotnaði fjögra ára drengur, Lárus Ingi Kristjánsson, B-götu 17 í Blesu- gróf, er hann var með fleiri börn- i um að leik við gamla mannlausa vörubifreið þar í hverfinu. Lárus: hafð'i farið inn í bifreiðina, sem i stóð í halla, skorðuð með steinum | við hjólin. 11 ára drengur hafði tekið steinana frá, en í þvi rann hifreiðin af stað. Drengurinn ætl- aði þá að kippa Lárusi litla út, en svo illa tókst til, að Lárus varð undir hjóli bíls'krjóðsins. Hann var íluttur á Hvítabandið. — Það er að sjálfsögð'u vítavert að geyma slík bílhra> í halla, þar sem alltaf er hugsanlegt, að börn geti komið þeim af stað. Formaimaskipti Á kjördæmisþingi Framsóknar- manna í Austurlandskjördæmi, sem haldið var á Reyðarfirði um síðustu helgi, baðst Stefán Einars- son á Egilsstöðum undan endur- kosningu sem formaður kjördæm- issambandsins, þar sem hann er að flytja úr héraðinu. Þingið þakk- Mikið ógert aði Stefáni mikil óg farsæl störf í þágu Framsóknarflokksins, en hann hefur um langt skeið verið með'al fremstu forustumanna Framsóknarmanna á Austurlandi, m.a. formaður Framsóknarfélags Suður-Múlasýslu og formaður kjör dæmissambandsins frá upphafi. Núverandi formaðúr er Vilhjálm- ur Hjálmarsson, fyrrverandi al- þingismaður. Strákavegur Framhald ai l síðu. gili, og svo að sjálfsögðu í gegnum Strákana sjálfa. Jarðgöngin í gegnum Stráka verða 900 metra löng. Ekkert hefur enn ver- ið byrjað á þeim að vestan- verðu, en grafið hefur verið 30 m. inn í bergið að austan. Fjárveiting til vegarins á síðustu fjárlögum var 700 þúsund krónur, en auk þess voru veittar 300 þús. krón- ur upp í fjárveitingu næsta árs, en eins og áður hefur verið skýrt frá, var aðeins mögulegt að leggja á þriðja kílómetra fyrir þessa fjár- veitingu. Þess má einnig geta, að végalagningin verð ur þeim mun erfiðari, sem nær dregur Strákunum, og um leið fjárfrekari, og er því óvíst, hvenær henni get- ur lokið. Tvö til þrjú ár eru síðan vegur var ruddur frá Siglu- firði að Strákunum, til þess að hægt væri að koma þang- að verkfærum. Vegur þessi er ekki fullgerðum ennþá, en þó fær flestum bílum, — enda hefur verig borið lítils- háttar ofan í hann. Hann er 2 til 3 km. á lengd. Framhald af 16. síðu. vinnunáms bóknámsdeildanna og æfingadeildanna. Nemendur Kennaraskólans verða í vetur nálægt 200. I. og II. bekkur eru fjölmennastir, og starfa þeir báðir í tveimur deild- um. Um 40 hafa sótt um sæti í stúdentadeild, en allmiklir örð- ugleikar eru áað veita þeim öll- um viðtöku. Breytingar á kennaraliði skól- ans verða ekki aðrar en þær, að bætt verður við stundakennurum eftir þörfum. Útsvarsskráin Framhald af 16 síðu. Svavar Gests meS um 200 þúsund Eftirtaldir einstaklingar greiða yfir 100.000 krónur í útsvar og aðstöðugjald. Fyrri talan er út- svar og aðstöðugjald samanlagt, ■síðari talan er tekjuskattur. ’ Þorvaldur Guðmundsson, veit- ingamaður, kr. 299.900; 33.946. Þorsteinn Sch. Thorsteinsson lyf- sali kr. 253.100; ' 227.805. Ottó Kornerup Hansen stórkaupm., kr. 164.400; 89.879. Þorsteinn J. Jóns- son verkstjóri kr. 150.400; 72.215. Jóhann Ólafsson kaupm. kr. 139. 600; 110.968. Magnús Vigfússon trésm. kr. 136.600; 37.703. Friðrik Jörgensen stórkrn. kr. 133.800; 56.337. Lárus G. Lúðvíksson kpm. kr. 124.900; 17.614. Svavar Gests hljómsveitarm. kr. 115.900; 78-365. Herbert Jósef Jósefsson gler- augnas. kr. 114.900; 101.969. Stef- án Thorarensen lyfs. kr. 113.000; 67.397. Haraldur Ágústsson skip- stjóri á Guðmundi Þórðarsyni kr. 110.300; 120.149. Þóroddur E. Jónsson heilds. kr. 104.500; 33.946. Karl Lúðvíksson lyfs. kr. 103.200; 68.760. Ragnar Þórðarson í Mark- aðnum kr. 100.000; 49.762. Félög, sem greiða útsvar og að- stöðugjald og hafa yfir 500 þúsurid eru: SÍS kr. 4.312.600. Loftleiðir hf. 3.282.500. Eimskipafélag íslands h.f. 2.876.100. Slippfélagið h.f. 1.349.300. Eggert Kristjánsson & Co. h.f. 1.046.800. Olíuverzlun ís- lands h.f. 1.012.900. Olíufélagið hf. 999.900. Jöklar M. 814.900. Heild- verzlunin Hekla b.f. 77L400. O. Johnsön & Kaaber ih.f. 686.400. Kassagerð Reykjavíkur !hí. 684. 300. Ræsir h.f. 614.800. Sláturfélag Suðurlands svf. 644.700. Flugfélag fslands h.f. 555.600. Útsvarsskráin muri liggja frammi næstu daga á' Skattstof- unni og í Gagnfræðaskólanum vig Vonarstræti. ÞAKKARAVÖRP Öllum þeim er sýndu mér ógleymanlega vináttu á sjötíu ára afmælisdaginn, þakka ég hjartanlega og sendi mínar beztu kveðjur. ________.___________Ágústa Ingjaldsdóttir frá AuSsholti Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim er sýndu mér hlýhug á áttræðis afmæli mínu 20. ágúst sl. með heim- sóknum, gjöfum, kveðjum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. ;;KirK GuSrún Sigurjónsdóttir,, Lóni Kelduhvarfi Maðurinn minn, JÓN MAGNÚSSON Hvassaleiii 26, sem lézt 26. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellunni mánu- daginn 3. sept. kl. 10,30. Athöfninni verður útvarpað. Blóm vin. samlega afþökkuð. _ Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið. Aðalbjörg Óladáffir. Bróðir okkar, , ■: \ Jón M. Jónsson frá Mófellsstöðum, Skorradal, andaðlst ( Landakctsspitalanum 31. ágúst. Ólína Jónsdv'tir og systur. T í M I N N, laugardagurinn 1. sept. 1962. 15 %

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.