Tíminn - 27.09.1962, Blaðsíða 13
Loksins!
r
Gu&i&wjC-
Litblær svo eðlilegur að öllum sýnist hann ekta
Stórkostleg uppgötvun frá Noxzema! Hressandi Cover Girl smjnrst svo eílilega
og fullkomlega. ÞatS inniheldur sérstök sóttvarnarefni, sem Hæta húÖina og
hjálpa a<$ koma í veg fyrir húÖtruflanir.
Hið nýja Cover Girl er svo létt og
fer svo yndislega vel á andlitinu
... og þar að auki dásamlega gott
fyrir húðina. Ólíkt mörgum
,,Make-ups“, sem bæta húðina
ekki neitt (oft jafnvel skaða
hana) fær húðin með notkun
Cover Girl, sérstök bætandi efni.
Berið á yður „Cover Girl Make-
upp“ á hverjum morgni. —
Strjúkið yfir með Covér Girl
steinpúðri á daginn. Með þvi fá-
ið þér ekki aðeins fegurra útlit,
heldur verður húðin fallegri. Það
er því ekki að undra þótt Cover
Girl sé uppáhalds fegurðarlyf
milljóna stúlkna.
NÝTT COVER GIRL með sérstakri
efnasamsetningu frá Noxzema.
Heildsölubirgðir:
FRIÐRIK RERTELSEN & CO.
Sími 36620 — Laugavegi 178
H.F.
Kjördæmisþing
Framhald af 8 síðu.
flokksstarfi í Framsóknarfélögum
kjördæmisins óg raunhæfri
fræðslu um stjóriimálaástandið í
Iandinu.
Kjördæmisþingig telur núver-
andi stjórnarstefnu íhalds og aft-
urhalds leið til öfugþróunar. Hún
stofnar m. a. til ranglátrar skipt-
ingar á þjóðartekjum, lamar fram-
tak almennings, torveldar æskunni
að hefja nýliðastörf sín og upp-
byggingu, sýnir landnámsstarfi
þjóðarinnar í heild hið mesta tóm
læti, tekur ekki tillit til nauðsynj-
ar á jafnvægi í byggð landsins og
fer gálauslega með fjöregg þjóðar-
innar, sjálfstæð'ið, í samskiptum
við erlendar þjóðir.
Kjördæmisþingið bendir á þau
augljósu sannindi, að eina trygga
leiðin til að breyta stjórnarstefn-
unni, er að veita stjórnarflokkun-
um áminningu með fylgistapi í
næstu Alþingiskosningum, svo að
þeir missi meirihluta sinn á Al-
þingi. En hins vegar auka styrk
Framsóknarflokksins — eins og
m.iðaði mjög vel áleiðis í nýaf-
sl öðnum sveitarstj órnarkosningum
— svo að ekki verði fram hjá hon-
um komizt,. þegar stefnan verði
mörkuð að alþingiskosningunum
loknum.
b) Framsögumað'ur fjárhags- og
skipulagsnefndar, Hólmsteinn
Helgason hafði ýmis innanfélags-
mál til umræðu og voru gerðar
álvktanir um þau efni.
c) Framsögumaður allsherjar-
r.efndar var Óli Halldórsson. Sam-
þykkt var m. a. svohljóðandi álykt-
anir:
„Kjördæmisþingið beinir því til
sýslunefnda • og búnaðarsambanda
á sambandssvæðinu að beita sér
fyrir skipun nefndar til þess að
leggja á ráð um, hvernig komið
verði í veg fyrir fólksfækkun i
þeim hreppsfélögum á sambands-
svæðinu, þar sem mest brögð eru
að því að jarðir fari í eyði og
byggð dragist saman. Því öllum
hlýtur að vera ljóst það fjárhags-
lega tjón, er af því leiðir, bæði
fyrir einstaklinga og þjóðarbúið
sem heild.
Að því er sveitir varðar, telur
þingið, að sérstaklega beri að at-
huga möguleika á að auka og
tryggja fóðuröflun með ræktun og
auknum vélakosti og bættum hey-
verkunaraðferðum. Enn fremur
bendir þingið á nauðsyn þess að
hækka að mun verð sauðfjáraf-
urða, svo að sauðfjárrækt verði
samkeppnisfær atvinnugrein. ,
Kjördæmisþing F.F.N.E. haldið
að Laugum 16. júní 1962 telur þá
stefnu rétta, sem framkvæmd var
fyrir forgöngu Framsóknarflokks-
ins fram til ársins 1960 urn kjara-
jöfnun í sjávarútvegi milli hinna
ýmsu landshluta í formi verðupp-
bóta á þær fisktegundir, sem dýr-
astar eru i vjnnslu."
Kosningar:'
a. í stjórn F.F.N.E. voru kosn-
ir: <,
Valtýr Kristjánsson, bóndi í
Nesi, Baldur Halldórsson, skrif
stofumaður á Akureyri, Jón Jóns
scn, kennari á Dalvik, Hreinn
Þormar, iðnfræð'ingur á Akureyri
Ketill Guðjónsson, bóndi á Finna
stöðum, Þórhallur Björnsson, kaup
félagsstjóri á Kópaskeri. Ingi
rnundur Jónsson, kennari á Húsa-
vík.
b. í varastjórn:
Sverrir Guðmundsson, Lóma
t.rörn, Sigurður Jónsson, Yzta
Felli, Hólmfríður Jónsdóttir, Ak
ureyri, Kristján Helgi Sveinsson
Akureyri, Jón Hjálpiarsson, Vill-
irgadal, Jóhannes Kristjánsson
Krísey, Eggert Ólafsson, Laxárdal
c. Endurskoðendur:
Jón Samúelsson, Akúreyri, Jó
hann Helgason Akureyri. ,
Formaður sambandsstjórnar hej
ir nú verið kjörinn Valtýr
Krístjánsson bóndi í Nesi.
T í M I N N, fimmtudagurinn 27. sept. 1962.
13