Tíminn - 27.09.1962, Blaðsíða 14
Eg vissi ekki þá, hvílik uppspretta
rósemi og styrktar þú áttir eftir
að verSa mér, en ég held, ag ég
hafi ftmdið, að við yrðum vinir.
Þrátt fyrir ákveðið fótatak þitt þeg
ar þú komst til mín, greinilegt
valdsmannsfas, rannsakandi augna
ráð grárra augna þinna, var eitt-
hvað móðurlegt yfir þér.
En þú varst „varðhundur“ Oli-
vers um leið og þú varst ráðs-
kona hans, og þú sagðir dálítið
strengilega:
— Eg er því miður hrædd um,
að gestir geti ekki fengið að skoða
húsið án þess að panta tíma, og of-
urstinn er ekki heima.
— Eg veit það . . . Eg hef víst
brosað. Hanna sagði, að ég hefði
brosag eins og feimið barn, sem
veit, að það hefur þrengt sér inn
á bannsvæði. Eg fann aftur til
feimni, ég var uppáþrengjandi,
ókunnug manneskja með slæma
samvizku. Það verk, sem ég hafði
tekizt á hendur, viitist bjánalegra
en nokkru sinni fyrr — Eg hitti
hann rétt fyrir utan hligið. Hann
var mjög vingjarnlegur og sagði,
að ég . . . að ég mætti fá að sjá
húsið og að ég ætti að biðja yður
. . . að gefa mér te . . . ég kom
með lestinni frá London og ég
hafði ekki tíma . . .
Hún hlustaði þolinmóð á mig.
Eg sá, að hún horfði á einken.nis-1
búninginn minn. Hún brosti og
yppti öxlum. — Það er ekki líkt
ofurstanum, hann kærir sig ekk-
ert um, að fólk skoði húsið, þeg-
ar hann er ekki heima, en ef hann
hefur sagt þetta, þá gerið svo vel
að koma inn. Vatnið sýður eftir
stundarkorn.
Hún veik til hliðar, svo að ég
gæti gengið inn um dyrnar og inn
í geysistóran forsal. Herbergið var
langt og baðað sólargeislum, eig-
inlega hu]ið gullinni þoku, sem
náði alveg að bjálkunum í loft-
inu.
Þag voru ekki mótg húsgögn
þarna. Nokkur snjáð teppi, fáeinir
stólar með góbelínísaumi, tveir
stórir, útskornir armstólar og mat-
borð i hinum endanum. Á þeirri
stundu, sem ég gekk þarna inn,
mætti mér þessi óútskýranlega
lykt, sem má finna í gömlum hús-
um. Það er alls ekki safnlykt, held-
ur húslykt, lykt, sem stafar af því,
að í þeim hefur verið búið árum
saman. Það er ekki unnt að líkja
þessari lykt við neitt.
Aftur stóð ég grafkyrr, full-
ánægð með að virða fyrir mér
allt sem fyrir augun bar, og á ný
óskaði ég, að faðir minn hefði
verið með mér. Eg stóð þama,
böðuð í gullinni þoku eins og töfr-
að, heillað og frá sér numið barn.
„Eins og prinsessa í ævintýr-
inu, þú varst heilluð", sagði Hanna
mér löngu síðar. „Við erum vön,
að fólk ói og æi yfir Mullions og
kalli það fullkominn gimstein og
eilthvað í þá átt, en þú sagðir:
„Upphækkunin hefur verið tekin
verið tekin burt“, á svo dreym-
andi hátt, að maður gat ætlað, að
þú hefðir lifað hér fyrir heilli
öld.
Eg gat ekki útskýrt fyrir Hönnu,
hvorki þá né síðar, þá óskiljan-
legu tilfinningu, sem fyllti huga
minn, eíns og ég hefði' komið
heim eftir langan langan tíma.
Fjölskylda mín hafði aldrei búið
í Cornwall, svo að það hlaut bók-
siaflega að vera af áhrifunum af
þessum fagra og frjðsæla stað. Eg
vissi ekki neitt að ég hefði sagt,
að upphækkunin hefði verið tekin
burt á hásætjnu, þar sem óðals-
herrann neytti máitíða sinna.
Hanna lokaði dyrunum að baki
sér og leit forvitnislega á mig.
— Já, hún var tekin burtu í stríð-
inu, þá var húsið notað sem hress-
ingarheimili fyrir særða flófta-
menn. Þessi forsalur var þá borð-
salur og gamli hr. Trevallion
sagði, að það væri bezt að fjar-
lægja hana, svo að þeir, sem áttu
erfitt með gan.g, þyrftu ekki að
auka sér erfiði að príla upp eitt
óþarfa þrep,
Hún brosti eins og hún minnt-
ist þess tímabils með gleði. — Það
er nóg af tröppum og stigum í
þessu húsi samt, en þér eruð of
ungar til að hafa verið hér þá,
ungfrú . . . ?
Eg sagði nafn mitt og að ég
væri fóstra. Svo b-ættj ég hlýlega
við og meinti það: — Það var
sannarlega fallegt af Trevallion-
fjölskyldunni að opna heimili sitt
fyrir særða menn . . . þeir hefðu
kannski fundið upp á að rista
nöfn sin í bjálkana eða eitthvað
svoleiðis.
Hanna hló.
— Ó, já, þeir fundu upp á ýmsu,
en gamli hr T-evallion átti sjálf-
ur son í striðinu, svo að hann
sagði ekki mikið við því. Og hann
sagði alltaf: Mullions ætti að vera
nógu traust til að þola «itt af
hverju, það var byggt sem hejm-
ili, ekki safn eða kastali, þar sem
fjársjóðirnir eru læstir bak við
lás og slé.
— Hann hefur venð mjkill
sómamaður!, hrópaði ég upp yfir
mig og roðnaði, því að Hanna ]ejt
aftur forviða á mig
— Hann var góður maður og
elcki veikgeðja, svaraði hún rólega.
Og ofurstinn er líkur honum. Fjöl-
skyldan Trevallion hefur verið
óðal'seigendur og dómarar í marg-
ar aldir, og þeir eru réttlátir
menn, en þeir geta verjð harðir
við þann, sem reynjr að leika á
þá!
Þelta var vitanlega ekki meint
sem viðvörun, en í sakbitnum eyr
um mínum hljómaði það svo.
— Og frú Trevallion ?
spurðj ég hikandi. — Haldið þér,
að hún sé andvig því, að ég skoði
húsið núna . . ?
Hreinskilnislegt andlit Hönnu
myrkvaðist þegar, eins og hana
iðraði að hafa verið svona opinská
við bláókunnuga manneskju:
— Það er engin frú Trevallion,
sagði hún stuttaralega, — hún dó
fyrir tveimur árum. En komið nú
og drekkið te, áður en þér skoðið
meira.
Hún leiddi mig gegnum her-
bergi, sem var dagstofa, en gaf
mér ekki tíma til að virða það
neitt nánar fyrir mér. Síðan leiddi
hún mig inn f litla stofu, þar sem
eldur skíðlogaði á arni og vasar
með krókusblómum lýstu af bjarm
anum frá eldinum. — Þetta er
einkadagstofan mín, sagði hún —
Setjizt nú niður og hvílið yður,
góða mín. svo skal ég koma með
teið.
Seinleg rödd hennar bar allar
greinilegar áherzlur vesturstrand-
í arinnar. Eg var heilluð af Hönnu,
| sem skyndilega hrópaði upp yfir
sig:
— Æ, finnið nú bara! Litlu
laukarnir hafa soðið of lengi —
| og svo hvarf hún eftir ganginum.
| Eg áti eftir að komast að raun um
það. að röddin var það eina leti-
, lega við Hdnnu Nesbitt — hún
| eldaði mat, skúraði, fágaði og
i söng frá morgni til kvöids. Hún
fyjgdjst vandlega með aðstoðar-
stúlkunni, Polly Penworth, og
verkamönnunum á óðalinu líka.
Hún hafðj verið Oliver Trevallion
sem sönn móðir og hún var miklu,
miklu meira en bara ráðskona.
Þetta var starfssvið hennar, ævi-
starf hennar, stolt og gleði.
Eg fylgdist -með henni fram *
stóra eldhúsið og stóð kyrr andar-
tak í opnum dyrunum, svo hrifin
var ég af því, sem fyrir augun
bar. Þetta var ekki lítið, skínandt,
nýtízku eldhús með ryðfríu stáli.
Þetta var stórt, férhyrnt herbergi
með bjálkum i lofti og gluggaröð
vjð á annarri hliðinni. Þetta her-
bergi var skapað til skrafs og
hlátra. Stórt, hvítskúrag tréborð
var á miðju gólfinu. Indælis mat-
arilmur og bökunarlykt barst að
vitum mínum.
Og þá fór ég enn að hugsa um
Carolyn. Þetta var ekki aðeinS
yfirlitsferð hjá mér, ég var næst-
um búin að gleyma erindi mínu
hingað, Nú, þegar ég vissi, að
móðir hennar var látin, var meiri
162
aðalmannfallinu.
Winston var samt í ágætu skapi
og fús til að rökræða málin með
fyllstu sanngirni. Hann sagði jafn
vel, að í öllum hernaðarlegum mál
um væri ég hans „alter égo“. Að
lokum bauð hann mér að koma til
miðdegisverðar á morgun, þar
sem einnig yrðu þeir- Eisenhower
og Bedell Smith.
Klukkan 6 e.h. langur ráðherra-
fundur, sem stóð yfir til klukkan
8,45 e.h. og þar sem ekki var tek-
in endanleg ákvörðun í neinu . . ■
27. júlí. Með allra annasömustu
dögum. Byrjaði með því að kynna
mér margvíslegustu skeyti í eina
klukkustund. Fór á herráðsfor-
ingjafund klukkan 10,30, þar sem
rætt var um mörg þýðingarmikil
áform og athyglisverðar tillögur.
Þaðan aftur til hermálaráðuneyt-
isinS, til að ræða um stjórnarstefn-
una eftir stríð í Evxrópu. Átti að
sundyrlima Þýzkaland, eða gera
það smátt og smátt að sambands-
ríki? Eg mælti með hinu síðara og
er sannfærður um, ag hér eftir
verðum við að skoða Þýzkaland í
mjög breyttu ljósi. Þýzkaland er
ekki lengur hið drottnandi vald
í Evrópu — það er Rússland. Því
miður er RúSsland ekki algert
Evrópuríki. En það hefur hins
vegar óteljandi ráð og úrræði og
hjá því fer ekki, að það verður
orðið höfuðógnunin innan fimmt-
án næstu ára. Þess vegna verður
að ala Þýzkaland upp, byggja það
smátt og smátt upp að nýju og
koma því { vestul-evrópskt banda-
lag. Því miður verður þetta allt
að gerast undir yfirskini heilags
bandalags Englands, Rússlands og
Ameríku. Ekki auðveld stefna og
krefst mikilhæfs utanríkismáð-
herra.
Langur fundur eftir hádegisverð
með þeim Weeks og Kennedy.
Klukkan 6 e.h. ráðherrafundur,
þar sem fjallað var um þýzkar eld-1
flaugar og fljúgandi sprengjur.
Fundurinn stóð yfir til klukkan 8
e. h. Því næst miðdegisverður með
forsætisráðherranum, Ike og Be-
ell Smith, { þeim tilgangi að færa
mig nær Ike og stuðla að betra
samkomulagi milli þeirra Ike og
Monty. Það bar mikinn og góðan
árangur. Eg hef boðizt til að ganga j
í lið með Ike, ef nauðsyn krefst, j
til þess að'verða honum til aðstoð-
ar í viðskiptum hans við Monty.
Það er enginn vafi á því, að
Ike vill gera allt sem f hans valdi
stendur til að viðhalda hinu bezta
•sambandi milli Breta og Banda-
ríkjamanná. En hitt er alvég jafn
augljóst, að Ike þekkir ekkert til
herlistar. Bedell Smith hefur hins
vegar heila, en enga hernaðarlega
menntun, í sönnustu merkingu
þess orðs. Hann er vissulega einn
af beztu liðsforingjum Bandaríkj'
anna. Með þann yfirhershöfðingja
er ekki að furða þótt menn geri
sér ekki alltaf fulla grein fyrir
hinum miklu hæfileikum Montys.“
Næsta morgun skrifaði Brooke
Montgomery um viðtal sitt við
Eisenhower.
„Ágreiningurinn milli yðar og
forsætisráðherrans hefur nú verið
jafnaður að mestu, en ósamkomu-
lag ykkar Eisenhowers fer ískyggi
lega versnandi og krefst ýtrustu
varkárni ykkar beggja, ef ekki á
illa að fara.
Ike borðaði aftur hádegisverð
með forsætisráðherranum í þess-
ari viku, og sem afleiðingu þess
sendi forsætisráðherrann eftir
mér og sagði mér, að Ike væri á-
hyggjufullur vegna þess sjónar-
miðs amerísku dagblaðanna, að
Bretar bæru ekki sinn hluta bar-
daganna og mannfallsins. Ike sjálf
ur virtist líka vera þeirrar skoð-
unar ag brezki herinn ætti og
gæti verið sóknharðari. Svo bað
forsætisráðherrann mig að snæða
i miðdegisverð með Ike» og sér,
sem ég gerði í gærkvöld. Bedell
var þar einnig.
Það er augljóst, að Ike telur að
Dempsey ætti að gera meira en
hann gerir. Hitt er jafn augljóst,
að Ike hefur mjög takmarkaða
þekkingu á styrjöld. Eg reyndi
að beina athygli hans að því hver
grundvallarstefna yðar hefði ver-
ið. Hann gat ekki afsannað gildi
hennar, en spurði mig þá, hvort
ég teldi ekki að við værum í þeim
kringumstæðum að við gætum
hafið stórsókn á báðum vígstöðv-
unum samtímis. Eg reyndi að
sýna honum fram á allt sem mælti
á móti því, en svo illa vill til, að
forsætisráðherrann er einmitt
hlynntur þessari hugmynd, og því
kynni Ike að fá einhvern stuðn-
ing frá honum.
Ég sagði Ike, að ef hann hefði
einhvern grun um að þér höguðuð
framkvæmdum yðar ögruvísi, en
hann vildi sjálfur, þá ætti hann
tvímælalaust að skýra yður frá
því og útskýra sjónarmið sitt. Að
það væri langtum betra fyrir
hann, að leggja öll spil sín á borð-
ið og að hann ætti að segja þér
nákvæmlega sitt álit. Hann er
auðsjáanlega dálitið feiminn við
að gera það. Eg sagði einnig, að
ef ég gæti á einhvern hátt orðið
honum ag liði, með því að tala við
yður, þá skyldi ég gera það með
mestu ánægju. Hann sagði, að
hann myndi kannski biðja mig að
koma meg sér i heimsóknarferð
til yðar. Svo að ef vig skjótum
einhvern tíma upp kollinum þarna
hjá yður, þá vitið þér hvernig í
öllu liggur.
Af fréttum og hinum raunveru-
legu kringumstæðum á vígstöðv-
um yðar, dreg ég þá ályktun, og
er persónulega sannfærður um, að
Dempsey verði að hefja stórárás,
eins fljótt og mögulegt reynist.
„Við megum ekki leyfa þýzkum
her að flytja sig frá vígstöðvum
hans, til vígstöðva Bradleys, ef
við viljum ekki verða enn meiri
skotspónn alls konar gagnrýni, en
orðið er “
Þessu svaraði Montgomery þá
um kvöldið.
„Þakka bréf yðpr, sem ég fékk
klukkan 18,30 . . . Gaf Dempsey
skipun í morgun um ag hefja á-
rás með öllu tiltækilegu afli, láta
alla varasemi sigla sinn sjó og
taka ekkert tillit til mannfalls, og
að hann verði að hraða sér sem
mest til Vire . . . “
Þann 28. júlí heldur Brooke á-
fram dagbókarinnfærslu sinni.
„28. júlí. Herráðsforingjafund-
ur eins og venjulega með sínum
marvíslegu viðfangsefnum og
vandamálum. Því næst viðræður
við forsætisráðherrann. Annar ráð
herrafundur klukkan 3 e. h., sem
stóð yfir í tvær klukkustundir, og
litið annað tekið til umræðu en
eldflaugar og fljúgandi-sprengj-
ur, Öllu þessu hefði átt að vera
lokið í gær. Winston skýrði frá
öllum sínum gömlu endurminn-
ingurrí í sambandi við margvíslega
róðherrafundi, sem hann hefur
haldið, en sem enginn kom þó
neitt því máli við, er hér var til
14
T í M I N N. fimrntiiflaonrinn 27. sept. 19G2.