Tíminn - 28.09.1962, Page 16
W'
»
Föstudagur 28. september 1962
215. tbl.
46. árg.
Malargryfja full af úrgangs.Skarna og öðru drasli.
(Ljósm.: TÍMINN-RK).
SKARNALYKTINA
MÁ LOSNA VlÐ!
Fárviðrið fór
illa með korn
FB-!Reykjavík, 27. sept.
TALSVERT tjón varð á korn
ræktinni í Gunnarsholti í ó-
veörinu, sem gekk yfir landiS
um sáðustu helgi. Um korntil-
raunir Atvinnudeildaninnar er
það að segja, a'ð mikill hluti
kornsins, sem í þeim var, hafði
þegar verið skorinn upp, en ein
áburðartilraun eyðilagðist þó
alveg.
Um þriðjungur af svokölluðu
jötubyggi, sem ræktað hefur
verið í Gunnarsholti skemmd-
ist algjörlega í veðrinu, en það
hafði verið á 15 hektara lands-
svæði.
Hjá SÍS tapaðist þriðjungur
til helmingur af^Sjellabyggi, og
eins og fyrr se^gir eyðilagðist
áburðartilraun Atvinnudeildar-
innar algjörlega. Er að því
mikill skaði, því ekki er hægt
að dragá neinar ályktanir af
því, sem vitað var um spreltu
kornsins áður en það fauk.
Hins vegar hefur Atvinnu-
deildin gert um 20 samanburð-
artilraunir á korni í sumar, og
skemmdust þær ekki, enda var
búið að skera mikinn hluta
þeirra upp, þegar óveðrið skall
á.
í Gunnarsholti var í gær bú-
ið að skera upp 40 hektara af
um 170, og búizt var við, ,að
skornir yrðu upp 10 hektarar
í gærdag.
Hertabygg, sem mikið er
ræktað af í Gunnarholti hefur
ekkert skemmzt í óveðrinu, og
þolir það vind betur en flestar
hinna tegundanna. Um hafr-
ana er það að segja, að þeir
hafa lagzt og þvælzt á ökrun-
um, en þeir eru ekki eyðilagð-
ir, og þykir furða hvað þeir
þola.
JK-Reykjavík, 27. sept.
Komiö er á daginn, að unnt
er að losna við stækjuna af
hinum fræga áburði, Skarna,
aðeins með því að geyma hann
lengur, áður en hann er seld-
ur. Hins vegar fer þriðjungur
og stundum allt að helmingur
hans í úrgang, þannig að það
litla, sem selt er af honum,
stendur mjög skammt við í
Sorpeyðingarstöðinni og er
selt of hrátt.
Guðjón Þorsteinsson, forstöðu-
maður Sorpeyðingarstöðvarinnar,
tjáði blaðinu f gær, að Skarninn
þyrfti að standa í sex til níu mán-
uði, til þess að mestur hluti stækj
unnar hyrfi. Núna í sumar
hefur Skarninn yfirleitt verið
seldur eftir skemmri geymslu, af
því að tiltölulega lítið hefur verið
framleitt af seljanlegum Skama.
Þegar Skarninn kemur úr völs-
unum, er hann síaður, og aðeins
það fínkornaðasta selt. Hinu er
ekið upp í malargryfjur fyrir inn-
an Elliðaár og dembt ofan í þær.
Það er grófari Skarni og nokkuð
blandaður gúm- og járndóti.
Sorpeyðingarstöðin selur Skarna
fyrir tæpa hálfa milljón króna á
ári, en rekstrartapið á henni er
nú komið yfir 1,7 milljónir á ári.
ÆSKULYDSHOLL
VERDUR í LÍDÓ
FB—Reykjavík, 27. sept.
Von er nú til þess, að ekki
líði á löngu þar til Lido verð-
ur gert að skemmtistað
æskunnar í Reykjavík. Virðast
forráðamenn Lido hafa mik-
inn áhuga á þessu verkefni,
og segjast jafnvel muni hrinda
þessari hugmynd í fram-
kvæmd, þrátt fyrir það, að
þeir fái ekki aðstoð annarra
til þess.
Þorvaldur Guðmundsson í Síld j
og Fisk skýrði blaðinu frá því íi
gær, að hann hafi nú þegar látið
skrifa mörgum aðilum um málið,
þar eð hann heyri stöðugt, að mik- j
il nauðsyn sé á að koma upp sér-
stökum stað þar sem æskufólk
geti skemmt sér. Hins vegar
kvaðst hann enn ekki hafa feng-1
ið nein endanleg svör frá þeim,
sem hann hefði haft samband við.
Kvað' Þorvaldur, að þarna yrði
að vera um að ræða stað með
skemmtiatriðum og ýmsu öðru svo
unglingarnir gaatu komið og
skemmt sér á heilbrigðan hátt.
Bragi Friðriksson framkvæmda-
stjóri Æskulýðsráðs, sagði að
Æskulýðsráð hefði mikinn áhuga á
að vinna með stjórn Lido að þess-
um málum. Hefði verið skrifað til
Borgarráðs, og málið lagt fyrir
það, en sérstaka fjárveitingu þyrfti
að veita Æskulýðsráði til þess að
það gæti tekið fjárhagslegan þátt
í framkvæmdum málsins.
Nýtt Æskulýðsráð verður kosið
r.k. fimmtudag, og sagði Bragi
það líklegt, að Borgarráð tæki
málið ekki fyrir fyrr en hið ný-
kjörna ráð hefði fjallað um það
fyrst.
Hún hefur reynzt talsvert erfið-
ari í rekstri en áætlað var í
fyrstu. Miklu af mslinu, sem flutt
er til stöðvarinnar, er brennt á
víðavangi, þegar búig er að tína
það úr. Einnig virðast síurnar í
stöðinni vera of fínar, svo að áburð
urinn nýtist illa, eins og sést af
því, hversu mikið af honum fer
í úrgang.
Þannig kostar þarf. bprgarbúa
1,7 níilljón króna á ári að'hafa í
vitunum fýluna af Skarnpnum, og
talsverðum hluta .hinpax . dýru
framleiðslu er fleygt í gryfjur, og
síðan mokað yfir þær.
Prestamál Hús-
víkinga leyst
MB-Reykjavík, 27. sept.
Fyrir nokkru fór fram prests-
kosning á Ilúaavík og var séra
Ingimar Inigimarsson á Sauðanesi,
kjörinn lögmætri kosningu. En
þegar til kom haf.naði hann hnoss-
4 INGÓLFUR GUÐMUNDSSON
inu og kaus ag sitja áfram að
brauði sínu. Hefur þetta mál vak-
ið allmikia athygli og urðu Hús
víkingar heldur fáir Við i fyrstu,
en eftir að hafa fengið skýring !
ar prestsins munu þeir hafa fyrir
gefið honum ag fullu.
Framh. á 15. síðu 1
v w :
Séö yfir þilfar ísborgar eins og það lítur út í dag.
(Ljósm.: TIMINN-GE).
LESTARRYMIÞREFALDAÐ
BÓ-Reykjavík, 27. sept
í sumar hefur verið unn-
ið að endurbyggingu togar-
ans ísborgar, sem á að fara
á flot sem flutningaskip eft
ir næstu áramót.
Búið er að setja lestarlúgur
og karma á skipið og færa
brúna aftur að vélarreisn. Sem
stendur er unnið að því að loka
þilfarinu.
Blaðið talaði í gær við hina
nýju eigendur skipsins, Guðfinn
Þorbjörnsson, Bjarna Pálsson
og Guðmund Kristjánsson, og
Birgi Þorvaldsson, forstjóra
vélsmiðjunnar Járn, sem ann
ast framkvæmdina. Þeir sögðu.
að vélin í skipið væri væntan-
leg um miðjan næsta mánuð,
en það verður 750 bremsuhest-
afla Skandia-diesel. Um svip-
að leyti verður skipið tekið í
slipp til botnhreinsunar. Þar
verður skipt um skrúfu og nýj-
um ölxi komið fyrir. Þá er eft-
ir að setja niður vélina, stytta
mastrið og koma því fyrir og
smíða hús fyrir vökvadælurn-
ra. Undirstöður vélarinnar
verða smíðaðar áður en skipið
fer í slippinn.
Lestin nær nú fram í stafn
á skipinu, en lestarrými verð-
ur nálega 40 þúsund kúbíkfet,
eða nærri þrefalt stærra en það
var. Skipið verður því ágæt-
lega fallið til að flytja fyrir-
ferðarmikla léttavöru svo sem
skreið, en hlutföllin milli lest-
arrýmis og burðarmagns eru
þannig, að rýmið verður ekki
fyllt með þungavöru. Skipið
verður um 750 lestir brúttó.
Verkinu hefur miðað vel þótt
járnsmiðaverkfallið ylli fimm
vikna töf, og gert er ráð fyrir,
að skipið verði tilbúið laust eft-
ir áramót Guðfinnur Þorbjörns
Framh. á 15 síðu
J