Tíminn - 12.10.1962, Side 3

Tíminn - 12.10.1962, Side 3
Eigendur á móti banni NTB—Lundúnir, 11. okt. Félag skipaeigcnda í Bretlandi hefur lýst sig mótfallið siglinga- banni á Kúbu, og hefur félagið scnt út frá sér yfirlýsingu þess efn is, að það telji ekki rétt, að al- þjóðlega siglingastofnunin lýsi sig samþykka tillögu Bandaríkja- manna urn siglingabann, þar eð stofnunin sé ekki stjórnmálalegs eðlis. Brezka skipaeigendafélagið seg- ir einnig í yfirlýsingu sinni, að ekki sé rétt að ætla, að stjórnir hinna ýmsu landa geti blandað sér í siglingar þarlendra skipa. Á- herzla er lögð á það, að ekki liggi fyrir neinar skýrslur um það, að brezk skip hafi fram til þessa stundað vopna- eða hergagnaflutn- inga til Kúbu. Mörg hinna brezku félaga hafa nú langvarandi samninga um leigu s-lglingar og hafa leigutakar leyfi Framh. á 15. síðu ,Synda gjöld' Þrír töglærðir áhrifa- menn á Akureyri höföu lagt blessun sína yfir útsvarslög- in á@ur en þau tóku gildi. Dagur á Akureyri gerir deilurnar milli Akureyrar og Reykjavíkur um útsvar SÍS að umtalsefni í síðasta tölublaði. Upplýsir Dagur m.a., að þrír löglasrðir Ak- ureyringar höfðu fjallað um frumvarpið um tekju- stofna sveitarfélaga, áður en það varð að lögum. Fyrstur var þar að verki sjálfur bæjarstjórinn á Ak- ureyri, Magnús Guðjónsson, sem fjallaði um málið á- samt með starfsbræðrum sínum, áður en það var lagt fyrir Alþingi og síðan tveir lögfræðingar og alþingis- menn stjórnarflokkanna, þeir Friðjón Skarphéðins- son, bæjarfógeti og alþing- ismaður á Akureyri og Jón- as G. Rafnar, lögfræðingur og alþingismaður á Akur- eyri. Segir Dagur, að „þessir menn virðast hafa hugsað um annað meira en bæjar- sjóð Akureyrar er þeir lögðu blessun sína yfir hina nýju tegund „fjárdrátt ar“, eða verið jafn fávísir um hvað var að gerast á Alþingi og baksvipinn á ;unglinu.“ Ennfremur segir Dagur: „Tveir þessara manna eru nú að taka út „syndagjöld- in“ fyrir glópsku sína. Bæj- arstjórinn hefur látið hafa það eftir sér, að aukaniður- jöfnun væri nauðsynlég, ef Akureyri tapaði nefndu út- svari. Bæjarfógeti úrskurð- aði á föstudaginn, sem lög- lærður maður, að Reykja- víkurborg ætti útsvarið. Hvorugt er ánægjulegt fyr- ir þessa mætu menn.“ BEN BELLA forsætisráherra Alsír hefur nú haldi'ð sína fyrstu ræðu í Alsherjarþinginu, sem fulltrúi lands síns, en Þag hefur verið tekið inn í Sameinuðu Þjóðirnar sem 109. aðildarríkið. Myndin var tekin á Orly-flugvellinum í París fyrir nokkrum dögum, þegar Bella fór þar um á leið sinni til New York til þess að sitja fundi Allsherjarþingsins. FERÐASKRFSTORR SLÁST UM LEIGUNA TK-Reykjavík, 9. okt. Eins og kunnugt er af frétt- um hér í blaðinu hefur náma- félagið Nordisk Mineselskab ákveðið að hætta rekstri blý- námanna í Meistaravík í Norð- austur-Grænlandi. En nú bend ir ýmislegt til þess, að „Draugabærinn" — eins og dönsk blöð nú kalla Meistara- vík — verði miðstöð ferða- mannastraumsins til Austur- Grænlands. Nordisk Mineselskap hefur fengið mörg tilboð frá ferðaskrif- stofum um leígu á stöðvum og mannvirkjum félagsins í Meistara- vík eftir að „blýævintýrinu“ lauk. Ein dönsk ferðaskrifstofa, Aero- Lloyd, hefur óskað eftir samn- ingum um leigu óg er Aero Lloyd talin sigurstranglegust í keppni ferðaskrifstofa um stöðina í Meistaravík. í Meistaravík eru mikil mann- virki, stórar og traustar bygging- ar. Þar er rafstöð, kyndimiðstöð fyrir bæinn, vatnsveita og fl. svo unnt er þar að veita hina full- komnustu þjónustu og nú þegar mætti með góðu móti koma þar fyrir rúmlega 50 ferðamönnum til langrar dvalar. z z z z Á undanförnum árum hefur Flugfélaðg íslands haft mikla flutninga með höndum fyrir Nor- disk Mineselskab til og frá Meist- aravík. En nú er hún Snorrabúð s.tekkur, þa^ hljóðnar óðum yfir námabænum í ísnum. Að sögn Sveins Sæmundssonar, blaðafull- trúa Flugfélags íslands, flutti Flugfélagið 42 menn frá Meistara vík s.l. sunnudag og er þar nú fátt manna eftir og í vetur verða það aðeins 2 vaktmenn við gæzlu mannvirkja. Aero-Lloyd, sem sótt hefur um leigu á stöðvunum í Meistaravík, hóf skipulagðar Grænlandsferðir fyrir 2 árum og hafa ferðir þessar orðið mjög vinsælar og fjölsóttar og er það ekki sízt að þakka öt- ulli stjórn hinnar kunnu Ninu Holm, forstjóra Aero-Lloyd. — Einkum hafa ferðir þessar verið til Arsarsuaq í Eiríksfirði — eins og ferðir Ferðaskrifstofu rikisins o.g Flugfélagsins á fornar slóðir fslendinga í Grænlandi. Ef að ráði verður að gera Meist aravík að ferðamannamiðstöð mun astaða til ferðalaga til Austur- Grænlands g.iörbreytast. r ■ ■■ ■ -■ Lange og Ohira ræSast við í Tokyo NTB-Tokyo, 11. okt. í dag ræddi Harvard Lange utanríkisráðherra Noregs við Ohira utanríkis- ráðherra Japans. Ræddu þeir um öll helztu vanda- málin í dag, svo sem af- vopnun, tilraunir með kjarn orkuvopn og Berlínardeil- una. Einnig ræddu þeir um aukin viðskipti milli land- anna tveggja. Eins og kunn ugt er, er Lange nú í viku opinberri heimsókn £ Jap- an. Ánægóir með stjórnina NTB-Llandudno, 11. okt. Yfirgnæfandi meirihluti fundarmanna á landsfundi íhaldsmanna í Bretlandi samþykkti í dag ályktun þess efnis, að þeir væru á- nægðir með stefnu stjórnar- innar í efnahagsbandalags- málunum. Mannfall hjá báóum NTB-New Delhi, 11. okt. Fregnir herma, að Ind- verjar hafi misst 17 menn í bardögunum, sem urðu í gær við landamæri Ind- lands og Tíbets, og munu 33 hafa fallið úr liði Kín- verja. DEILT UM AÐILD DAN- MERKUR 0G NOREGS NTB—Briissel — Kaupmanna- höfn, 11. október. | Sá orðrómur hefur komizt' á kreik, a3 Noregur og Dan-' mörk eigi ekki að fá fulla að- ild að EBE ,heldur verði Bret-i landi einu veitt aðild að banda ! laginu. Fréttaritari danska út- varpsins í New York segir hins vegar, að um málið hafi verið rætt í Washington, og verði bandaríska stjórnin spurð um álit hennar á mál- inu muni hún ráða ríkjunum frá því, að verða aðeins auka-| aðilar að bandalaginu. Þegar í september var rætt um það meðal stjórnmálamanna í Evrópulöndunum, að Frakkar væru fylgjandi því einu, að veita Bretlandi fuila aðild að EBE. Síð- an ætti að gera sérstaka viðskipta- samninga við hin löndin. Nú segir i fréttum frá frétta- t ritara danska útvarpsins í New York, að málið hafi verið rætt á fundum Per Hækkerup utanríkis- ráðherra með' fulltrúum banda- ríska utantíkisráðuneytisins, og hafi þeir látið þar koma skírt fram, að verði leitað álits Banda- ríkjanna í málinu muni þeir ráða frá þessu. Bandaríska stjórnin ós'ki þess, að bæði Noregur og Danmörk fái fulla aðild að Efna- bagsbandalagi Evrópu. Á fundi Evrópuráðsins í Strass- borg lét fulltrúi Danmerkur þess getið, að stjórn hans gæti aðeins sætt sig við fulla aðild Danmerk- ur að EBE, og vildi að orðrómur- inn yrði borinn til baka hið fyrsta Utanríkisráðherra Danmerkur, Per Hækkerup, mun að öllum lík- indum eiga viðræður við fulltrú- ana í Briissei um tflBild Danmerk- ur að EBE, og nú hefur danska ut anríkisráðuneytið lýst yfir því, að aí hálfu Danmerkur komi ekki annað en full aðild til greina. Adenauer kanslari Vestur-Þýzka iands sagði í ræðu, sem hann hélt í dag, að hann væri hlynntur aðild Breta að bandalaginu. Honum hef- ur verið legið á hálsi fyrir það að sýna málinu ekki nægilegan áhuga, en hann bætti við, að ef svo væri, þá væri það eingöngu vegna þess, að hann bæri fyrst og fremst mál Þýzkalands fyrir brjósti, mál Bretlands yrðu að koma á eftir Fréttamaður NTB í Briisscl segir, að viðræðurnar þar milli fultrúa Breta annars vegar og full trúa EBE hins vegar gangi mjög hægt, og í dag hafi þær einna helzt líkzt fyrirlestrum. Fjallað var um óskir Breta varð- andi nokkrar vörur, sem þeir vilja að verði toilfrjálsar, þ.á.m. blý, sink og aluminíum, auk dagblaða- pappírs. en engin ákvörðun var tekin. EBE býður Bretum að dagblaða pappír verði tollfrjáls, en þeir óska enn fremur eftir því, að þeir megi að vild flytja inn pappír frá Xanada. Vcrði fylgt stefnu band- Mgouu i pcaou samuauui, og iai Noregur aðild að bandalaginu verð ui þetta ekki hægt, þar eð hin mikla dagblaðapappírsframleiðsla Noregs mundi breyta miklu um markaðinn innan bandalagsins siálfs. Kona fyrir bíl MB—Reykjavík, 11. okt. Um hálfátta leytið í kvöld var ekið' á fullorðna konu, Þorbjörgu Ingimundardóttur, á mótum Laug- arássvegar og Sundlaugarvegar. kvartaði hún um eymsli í mjöðm og var farið með hana á Slysa- varðstofuna. KEFLAVÍK Fundur i Framsóknarfélagi Keflavíkur í Ungmennafélagshús- inu í kvöld klukkan 21,00.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.