Tíminn - 16.10.1962, Blaðsíða 3
Frá hægri: Gunnar, Kristbjörg og Róbert.
Furðulegt
sig á léreftinu
(Ljósm.: TÍMINN, RE)
sjá
Tíminn hringdi í aðal-
leikarana í kvikmyndinni
„79 af stöðinni" til að
spyrja þá, 'hvernig þeim
hefði orðið við að horfa á
frumsýninguna í fyrra
kvöld.
Róbert Arnfinnsson
svaraSi:
Ég var gripinn undarlegri til-
finningu við að sjá sjálfan mig
í fyrsta skipti á léreftinu. Eig-
inlega gat ég ekki notið mynd-
arinnar á sama hátt og venju-
lega, þegar ég horfi á kvikmynd
ir. Fyrst og fremst starði ég
gagnrýnandi og tortryggnum
augum á sjálfan mig. En ég er
samt alls ekki dómbær um
mfna eigin frammistöðu, það er
af og frá, eins og hver hlýtur
að skilja. Ég varð fyrir svipuð
um‘áhrifum að sjá sjálfan mig
og þegar ég heyrði rödd mína
í fyrsta sinn af segulbandi. Ég
þekkti ekki mína eigin rödd. Þó
varð ég samt enn skelkaðri, þeg
ar ég sá sjálfan mig á léreft-
inU í fyrrakvöld. Það var furðu
lega skrýtið. En hvað kvikmynd
ina sjálfa snertir, þá fannst
mér heildaráhrifin góð, ég fæ
ekki betur séð en þeim kvik-
myndatökumönnunum hafi tek-
izt að skapa listrænt verk. Þeir
þurfa alls ekki ag fyrirverða
sig. Ég held, að myndin stand-
ist samanburð við góðar erlend
ar kvikmyndir. Það var góð
stemning meðal bíógesta, frum
sýningin lofar góðu.
Gunnar Eyjólfsson
svaraði:
Mér varð álíka innanbrjósts
og þegar ég heyrði fyrst rödd
mína í útvarpsleikriti, flutt af
segulbandi. Satt að segja varð
ég steinhissa þetta kvöld á
frumsýningu „79“ í Háskóla-
bíói. Hvað hafði undrag mig
mest. Jú, ætli það hafi ekki
einna helzt verið munnsvipur-
inn, sem ég sá, að ég hef. Ósköp
er hann skrítinn. Svo fór ég að
skoða hina aðalleikarana, Krist
björgu og Róbert, og ég fann
ekkert torkennilegt í fari
þeirra, fannst þau vera eins og
þau ættu að sér. Mér þótti ekki
ástæða til að ég væri með neinn
sparisvip í myndinni og því dró
ég Þá ályktun, að þessi furðu-
legi munnsvipur minn væri
hversdagslegt fyrirbæri í allra
augum nema minna. Ósköp er
ég þakklátur, ef aðrir geta um-
borig þennan skrítna svip. En
myndin í heild þykir mér ann-
ars góð miðað við aðstæður. —
Hún e'r dálítið sérstæð að þvi
leyti, að þetta er tæknileg heim
ildarmynd með leikurum þó. Út
frá því verður að dæma hana.
Því miður tókst ekki að ná
símasambandi vig Kristbjörgu
Kjeld, aðalleikkonu myndarinn
ar, og því getum við ekki að
sinni haft neitt eftir henni um
áhrif myndarinnar á hana.
SENDI NASSER OG
HUSSEIN SKEYTI
NTB-Cairo, 15. okt.
Allt frá því uppreisnin var
gerS í Jemen fyrir nokkrum
vikum hafa gengið um það
sögur, að konungur landsins,
Imam Mohammed el Badr hafi
komizt lífs af, þegar höll hans
var sprengd, og nú síðast skýr
ir fréttastofan í löndunum við
botn Miðjarðarhafs frá því, að
konungurinn sé kominn til
Saudi Arabíu.
Imaminn særðist hættulega á
fæti í uppreisninni, en að öllum
líkindum var hann fluttur til
bandaríska sjúkrahússins í D'ahr-
an með bandarískri flugvél, segir
í frétt frá höfuðborg Jemen,
Sanaa.
Hvað eftir annað hafa hin nýju
stjórnarvöld í Jemen tilkynnt, að
konungurinn hafi látið lífið, þeg-
ar uppreisnarmenn gerðu árás á
höll hans, en þrátt fyrir þetta hef-
ur aldrei verið hægt að kveða að
fullu niður orðróm um hið gagn-
stæða.
Fyrrnefnd fréttastofa sagði sið-
ar. frá því í dag, að reyndar hefði
konungurinn verið hætt kominn,
það er að segja, þegar flugvél lýð-
veldissinnanna gerði loftárás á
eyðimerkurvirki, þar sem hann
hafðist við meðal hliðhollra manna
af Mohabcha-þjóð'flokkinum. Eft-
ir þcssa árás hafi Mohammed el
Badr farið yfir eyðimerkursvæðið
Robh A1 Khali og flúið inn til
Saudi Arabíu.
Liðsforingi í lýðveldissinnahern
um, Hussein el Sukkari að nafni,
skýrði Caihedagblaðinu frá því fyr
ir 10 dögum, hvernig hann hefði
drepið Imaninn í höll hans, en í
dag lagði hann fram nýja útgáfu
af sögu sinní, um hvað gerðist á
hinu mikilvæga augnabliki bylting
arinnar.
Segist hann nú ekki hafa drepið
konunginn með byssu sinni, vegna
þess að vopnið hafi brugðist, hins
vegar hafi hann sært konunginn
hættulega. Hafi hann síðan verið
fluttur á brott af hliðhollum fylg-
ismönnum sínum.
Abdullah el Sallal forsætisráð-
| herra í Jemen sagði í ræðu í gær,
eð komið hefði í ljós, að jarð-
sprengjur hefðu verið lagðar með-
fram landamærum Jemens og
Saudi Arabíu, og væri þetta sönn-
un þess, að konungar Saudi Arabíu
og Jórdaníu væru að reyna að
hindra framgang byltingarinnar í
landinu.
Þá sagði hann einnig, að her-
foringjaráð landsins hefði vissu
fyrir því, að 16 jórdanskir liðsfor-
ingjar hefðu farið inn yfir norð-
austurlandamæri Jemens. Auk
þess sagði hann, að hermenn frá
Saudi Arabíu væru komnir inn til
brezka verndarsvæðisins Aden.
Væru þeir vel vopnum búnir, og
reyndu að koma af stað óeirðum
á lándamærunum.
Formælandi brezka utanríkis-
Eramh á 15 síðu
Verður Frakkland án forseta
þings og stjórnar 29. oktdber?
Róttæk öfl í Frakklandi,
svo sem OAS og Andspyrnu-
ráðið hafa nú tekið opinber-
lega afstöðu gegn de Gaulle
Frakklandsforseta varðandi
kosningarnar, sem fram eiga
að fara seint í þessum mánuði.
Frönsku fréttastofunni AFP hef
ur borizt bréf fná Antoine Argoud
ofursta, sem var einn af foringj-
um OAS, en í því segir, að And-
spyrnuráðið í Frakklandi, sem
stjórnað hefur neðanjarðarhreyf-
ingunni þar, hafi ákveðið að fresta
öllum tilraunum til þess að ráða
de Gaulle forseta af dögum Þar
til eftir að þjóðaratkvæðagreiðsl-
an hefur farið fram. Samtökin
ætla að gefa þjóðinni tækifæri
til þess að greiða atkvæði gegn
tillögu de Gaulles, þar sem hann
fer fram á að forseti landsins
verði framvegis kosinn með Þjóð
aratkvæði.
Öryggislögreglan hefur þrátt
fyrir þetta á engan bátt slakað
á eftirliti sínu. f dag flaug for-
setinn til þess að líta á herstöð
í Mið-Frakklandi, og var hafður
mjög strangur vörður um hann,
auk þess sem hann flaug strax til
Parísar aftur eftir að hersýning-
in hafði farið fram.
Af þeim 6 stjórnmálaflokkum,
Bjarga fornleifum vii Asuan
NTB—Oslo, 15. okt.
Fornleifafræðingar frá Norður-
löndunum eru nú í þann veginn
að leggja af stað til Uubiu, þar
sem þeir munu vinna við að
bjarga fornleifum. Einnig eru
fornleifafræðingar að undirbúa
ferð til Egyptalands varðandi
flutning á frægasta klettahofj
landsins Abu Simbel.
Áætlun hefur verið gerð vegna
flutnings á hofinu, og er talið að
það muni kosta um 84 milljónir
dollara, og er þá innifalinn flutn-
ingur þess, og einnig það að koma
því fyrir á öðrum stað.
Vegna þessa mikla kostnaðar
hefur önnur áætlun verið gerð, og
er þar stungið upp á að hofinu
verði lyft upp til að byrja með,
svo það verði fyrir ofan vatnsborð
ið, sem myndast þegar Asuan-
stfflan hefur verið gerð. Síðar
verður ákveðið hvað gert verður
við hofið eftir það.
Alls verða 12 menn í leiðangr-
inum, og mun hann verða fram í
marzmánuð.
sam þátt taka í kosningabarátt-
unni eru það aðeins gaullistar sem
eru fylgjandi tillögu forsetans.
Eru stjórnarmeðlmir þess fullviss
ir, að flokkurinn muni bera sigur
úr býtum, bæði í kosningunum um
forsetakjörið 28. okt. og einnig
í kosningunum til þjóðþingsins,
sem fara eiga fram 18. og 25. okt.
Blöð í París ræddu í dag við
Gmy Mollet, forlngja sósíalista,
um hi'nar væntanlegu kosningar.
Sagði hann, að forsetinn hefði
komið því svo fyrir, að ag morgni
hins 29. okt. gæti Frakkland ver
ið orðið forsetalaust, Þar eð hann
hefði sagt af sér; stjórnarlaust,
því stjórnin er fallin, og þinglaust,
af því að þingig hefur verið leyst
upp, vegna hinna nýju kosninga.
— De Gaulle reiknar með að
hræðslan yfir Því, ag þetta geti
gerzt, sé nægileg til þess, að kjós
endurnir, þrátt fyrir allt, greiði
honum atkvæði. Ég veit ekki
hvernig þetta fer, en jafnvel þó
de Gaulle fái meirihluta, verður
Framh. á 15. síðu
Alsír
fær
aðstoð
NTB—Alsír, 15. okt.
Málgagn alsírsku stjórnarinnar
segir frá því í dag, að Bandaríkin
muni að öllum líkindum veita Al-
sír fjárhagsaðstoð, sem nemi 40
milljónum dollara. Blaðið hefur
þessa frétt eftir fréttaritara sín-
um í New York, sem sagðist hafa
fengið uplýsingarnar hjá ábyrgum
stjórnmálamönnum vestanhafs.
Ben Bella forsætisráðherra Alsír
er nú í heimsókn í Washington, og
ræðir þar við ýmsa stjórnmála-
menn.
Viðræður munu fara fram milli
landanna áður en aðstoðin kemur
til framkvæmda, og er þess vænzt,
að bandarísk sendinefnd komi til
Alsír til þess að ræða málin.
Talið er líklegt, að ákvörðun
hafi verið tekin varðandi þessa
fjárhagsaðstoð nú, á meðan Ben
Bella hefur verig í Bandaríkjun-
um. Blaðið segir einnig, að Ben
Bella sé líklegux til þess að ræða
þar um vandamálið, sem skapazt
hefur vegna þeirra 250 þúsund
flóttamanna, sem nú eru í Alsír,
og sem búa þar í tjöldum. Einnig
mun hann ræða um þær 2 millj-
ónir manna, sem flutt hafa frá
heimilum sínum, og um þær tvær
milljónir, sem nú eru atvinnulaus-
ar. Auk alls þessa er gífurlegur
fjöldi barna, sem ekki hafa tæki-
færi til þess að hljóta nokkra
menntun. Allt þetta hefur orðið
til þess, að Alsír þarfnast mjög
ofangreindrar hjálpar, segir blað-
ið.
Að lokum segir það, að Alsír
muni ekki taka við aðstoðinni,
nema því aðeins að Bandaríkin
veiti hana án nokkurra sérstakra
stjórnmálalegra skilyrða. Telur
blaðið stjórn Kennedys hafa tek-
ið jákvæða afstöðu varðandi lánið.
Ben Bella kom í heimsókn til
Hvíta hússins í dag, og var þar
tekið á móti honum með 21 fall-
byssuskoti og skrúðgöngu her-
manna. Þeir Kennedy forseti og
Ben Bella ræddust við, og lét for-
setinn í ljós þá von, að Alsír
myndi taka á móti vináttu Banda-
ríkjanna, og gera það, sem í þess
valdi stæði til þess að varðveita
friðinn. Síðan þakkaði Bella þá
aðstoð, sem forsetinn hefur veitt
þjóðfrelsishreyfingunni i Alsír.
T f M I N N, Þriðjudagurinn 16. okt. 1962. —
3