Tíminn - 16.01.1963, Qupperneq 16

Tíminn - 16.01.1963, Qupperneq 16
KB—Reykjavík, 15. jan. Heildarsíldveiðin var um siðustu helgi komin yfir milljón tunnur, 1.055.902 nánar tiltekið, en var á sama tíma 1 fyrra 833.398 tunnur. Síðaslliðna viku var síldveiðin mjög góð', og bárust þá viku á land rútnar 254 þúsund tunnur. Fjögur skip höfðu síðastliðið laugardagskvöld aflað yfir. tuttugu þúsund tunnur. Þau eru: Víðir II. 23.133, Hafrún 23.072, Haraldur 21.508 og Halldór Jónsson 20.977 tunnur. Síldveiðin var lítil síðast liðna nótt. Aðeins 7 skip fengu afla, sam tals 3350 lunnur. Skipin voru þessi: Stapafell 450, Sæúlfur 600, Heimaskagi 100, Fákur 500, Krist- björg 1100, Vonin 400 og Höfrung- ur II. 200. Þessi síld veiddist öll á nustursvæðinu, en veður var þar mjög tekið að spillast og er í kvöld útlit fyiir áframhaldandi brælu. Guðrún Stefáns- dóttir látin Guðrún Stefánsdóttir, kona Jón- asar Jónssonar, fyrrverandi ráð- herra, andaðist í fyrrinótt á 78. aldursári, en hún er fædd að Granastöðum í Köldukinn 5. októ- ber 1885. Hún giftist Jónasi Jóns- syni í apríl 1912 og eignuðust þau hjónin tvær dætur, sem báðar eru á lífi. Guðrún var merk kona og mikilhæf, og tók mikinn þátt í störfum manns síns. Hjónaband þeirra var frábærlega gott. Guð- rún hafði verið vanheil nú síðustu árin. Hennar verður getið nánar síðar í blaðinu. SKIP ERU KOMIN ÞÚSUND tunnur Kr< »1 ■ ini ■ ra: í Sif LJÓSMYNDARI TÍMANS tók þessa mynd af Sif eft Ir áaksturinn. Sést á henni Ijóslega, hver spjöll j§f kranabíllinn vann á vinstri væng flugvélarinnar. (Ljósm.: TÍMINN-GE). KB-Reykjavík, 15. janúar. * í MORGUN var ekið á flug. vél landhelgisgæzlunnar, Sif, fyr- ir utan flugskýli á Reykjavíkur. flugvelli. Var þar að verki krana bíll frá Landssmiðjunnl, og skemmdist flugvélin allmiklð. Sif hefur staðið í flugskýli að undanförnu, en var tekin .út í gær, og stóð hún utan við skýlið. Bill Landssmiðjunnar var þarna við vinnu og hafði rafsuðutæki á palli og var það fest í gálga uppi yfir tækinu. En engu er líkara en að öku- maður bílsins hafi gleymt, að gálginn var uppi, því að hann ók undir væng vélarinnar og rakst kraninn upp undir væng- inn, fór gegnum hliðarstýri aftan á honum, reif ytra byrð- ing á vængnum og hjó gat á benzíntank, ca. þrjá metra frá vængbroddi. Streymdi benzín- 1 ið niður á völlinn og var kall- að á slökikvilið vallarins, sem kom skjótlega á vettvang, en eldur kom enginn upp. Enn er ekkj vitað, hve um- fangsmiklar skemmdirnar eru. Vængurinn er mikið rifinn, en eftir er að kanna, hvort styrkt arbitar innar í væflgttum hafa farið úr s'korðum. Verður vélin tekin inn á morgun til athug- unar. Þá verður búið að tæma tanka hennar o-g lofta þá út, en það er nauðsynlegt að gera, áður en farið er að eiga við vélina að öðru leyti. Er því að svo stöddu ekki vitað hve mik- ið tjónið er, mælt í reiðufé, en ekki er ólíklegt, að algerlega tiýjan væng þurfi að setja á vélina. Gera má ráð fyrir að kostn- aður við skemmdirnar geti orð- ið bitbein milli tryggingarfé- laga. Vélin er að sjálfsögðu vá tryggð fyrir sköðum i lofti og á láði, en Landssmiðjan og tryggingarfélög hennar munu án efa vera ábyrg fyrir tjón- inu að verulegu leyti. Engan veginn er heldur ótrúlegt, að þeir, sem brúsann fá að borga, muni telja sig eiga bakkröfu á ökumann þann, sem skemmd- unum ólli, a. m. k. ef ætla má, að óaðgæzlu hans sé um að kenna. DAGLANGUR BARDAGI VIÐ HLÖÐUELD HJÁ HVOLSVELLI 24 NYIR STYRIMENN UTSKRIFAÐIR •fc í GÆR fengu 24 ungir menn 120 tonna prófið úr Sfýrimannaskólanum. Allir, sém þreyttu prófið, stóð- ust þaS. Ljósmyndari TÍMANS, GE, tók þessa mynd a f hópnum um það leyti, er einkunnir v: u afhentar. Um kvöldið var sfðan haldin árshátíð. JK-Reykjavík, 15. janúar. Snemma í morgun varS vart við mikinn eld í heyhlöSu á bænum Vestra-GarSsauka hjá Hvolsvelli og hefur veriS bar- izt viS eldinn í allan dag, og horfur á því, aS slökkviliSs- störfin mundu standa yfir fram á næsta dag. Blaðið náði í kvöld taJi af Þor- láki Sigurjónssyni, slökkviliðs- stjóra á Hvolsvelli, þegar hann skrapp heim í mat. Þorlákur sagði einsýnt, að logað hefði í hlöðunni í nokkra daga, áður en eldsins varð vart. Svo mikill eldur'var i hlöðunni, að loginn stóð hvað eft- ir annað upp úr heyinu, meðan slökkvistörf stóðu yfir. Þorlákur sagði, að Jón Einars- son, bóndi á Vestra-Garðsauka, hafi komið á Hvolsvöll um kl.' hálf tíu í morgun og sagt frá brunan- um. Kom hann beint frá hlöðunni. en þaðan er aðeins nokkurra nundraða metra vegur til Hvols- vallar. Slökkviliðið fór þegar á vettvang og síðan menn víðs vegar að úr nágrenninu. Hafa um 30 manns unnið að slökkviliðsstörfum í ali- an dag. Hlaða þessi er gríðarlega stór skemma úr bárujárni og með braggalagi. Skemman er tvískipt (Frunhald á 15. síðu). FULLTRUARAÐ - KÓPAVOGI AÐALFUNDUR fuUtrúaráð's Framsóknarfélaganna í Kópavogi verður haldinn fimmtudaginn 17. þ. m. kl. 8,30 síðdegis í barnaskól- anum við Digranesveg. — Ólafur Jensson, forseti bæjarstiórnar, ræðir um fjárhagsáætlun Kópa- vogskaupstaðar. — Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.