Alþýðublaðið - 18.03.1940, Síða 3
MÁNUDAGUR 18. MARZ 1946.
ALÞYfftUBLAJÍIÐ
RTTSTJÓKt:
F, R. VALOSMARSSON
í
í
Baráttai n ifi
1 íjarveru taaoe:
STBFÁN PÉTURSSON.
AFGREEÐSLA:
ALÞÝÐUHÖSIND
(Inngangur trá Hveríkgötu).
SlMAR:
4900: AfgreiSsIa, auglýjlníar.
4901: Ritstjórn (innl. trétttr).
4902: Ritstjóri. i
4903: V. S. Vilhjálma (heima).
4905: AlþýðúprentamiBjan.
4906: Afgreiösla.
15021 Stefán Péturason (heinaa).
A1.ÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
♦---------------------------*
Iftir tvð ár.
AÐ er táknrænt fyrir útkom-
una á deilum peim, seni
geysuðu innan Alþý'ðuflokksins
f yrir einu til tveimur árum,
málstaði hinna deilandi aðilja og
þá reynslu, sem fékkst við þær
deilur, að nú hefir Alþýðuflokk-
urinn fengið hér í Reykjavík
margfalt öflugra og heilsteyptara
flokksfélag en hann hefir nokkru
sinhi haft áður.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
hefir, eins og formaður þess, Har-
al'd-ur Guðmundsson, sagði á árs-
hátíð félagsins siðast liðið laug-
ardagskvöld, vaxið meira og orð-
ið öflugra en hinir bjartsýnustu
þorðu að vona, þegar það var
stofnað í skyndi eftír að hið
gamla fiokksfélag hafði verið af-
hent kommúnistum af Héðni
Valdimarssyni. Stefán Jóhann
Slefánsson forseti Alþýðusam-
bandsins tÓk og undir þetta í á-
varpi sínu: „Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur hefir orðið sú skjald-
borg fyrir alþýðusámtökin, sem
því var ætlað að verða. Pað hefir
meira en nokkur önnur samtök
varið þau gegn spjétaiögum ó-
vinanna á hasttulegustu tímum,
sem yfir samtökin hafa gengið."
Árshátíð Alþýðuflokksfélagsins
á laugardagskvöl dið var giæsi-
iegasta samkoma, sem flokksfé-
lag Aiþýðuflokksins hér hefir
nokkru sinni haldið, allt frá 1917,
að fyrsta flokksfélagið var stofn-
jað hér í bænu-m. Húsið var þétt
setið uppi og niðri af verkafólki,
ungu og gömlu, og öðru flokks-
fólki. Þarna ríkti eining og sam-
stilltur áhugi fyrir máiefnum
flokksins, sem hvað eftir annað
kom áþreifanlega í ijós, og var
það sannarlega mikil hvatning
fyrir foiystumennina um að halda
sínu starfi áfram og sömu stefnu:
að nota hvert tælrifæri og hverja
aðstöðu, er skapast, til að bæta
kjör alþýðufólksins, verja það,
sem unnizt hefir, og sækja á.
Það er lfka athygtísvert, að svo
að segja sama daginn og Alþýðu-
flokksfélagið heldur þessa glæsi-
legu tveggja ára afmælishátíð
sína, birtíst yfirlýsing frá aðai-
forvígismanni þess hóps, sem
klauf Alþýðuflokkinn fyrir tveim-
ur árum, um, að það sé sjáifsagt
að viðurkenna, að honum og fé-
lögum hans, hinum svo kölluðu
samfylkingannönnum, hafi hrap-
aliega skjátlast.
Það var líka auðséð á þessari
árshátíð og hefir verið auðséð á
fundum Alþýðuflokksfélagsins
undanfarið, að fleiri höfðu séð
þetta en Héðinn Valdimarsson,
því að bæði á fundum félagsins
og ekki síður á þessari árshátíð
voru allmargir menn og konur,
sem yfirgáfu flokkinn um stund,
en eru nú komin aftur í raðinnar.
Árshátíðin sýndi hinn vaxandi
þrótt Alþýðuflokksins hér í höf-
uðstaðnum, en hér beið hann á
sínum tima mest afhroð við
sundrungina, og það er sérstak-
i«g* gl«ðil«efí ®ð veita því ot-
ESSA dagana er nýr kapí-
tuli að byrja í sögu Eystra-
salts. Hve langur þessi kapítuli
verður og hverjar breytingar á
valdahlutföllunum umhverfis
Eystrasalt hann hefir í för
með sér er enn of snemmt að
mynda sér skoðun um. Fyrst um
sinn er óhætt að fullyrða, að
veldi Stalins stefnir þangað eins
og veldi Péturs mikla fyrir
rúmum 200 árum. Þá jókst veldi
Rússa við Eystrasalt og stund-
um réðu þeir lögum og lofum
þangað til rússneski Eystrasalts-
flotinn eyðilagðist árið 1905 í
Tsushima-sundinu hinum meg-
in á hnettinum. Þær ráðagerðir,
sem zarveldið hafði á prjónun-
um þar á eftir um endurreisn
valdsins við Eystrasalt, á þann
hátt að koma sér upp nýjum
flota og nýjum flotahöfnum í
Reval og Helsingfors, voru
hindraðar af heimsstyrjöldinni.
Viðburðir síðustu daga hafa
sýnt, hvernig Sovét-Rússland
tekur nú upp Eystrasaltspólitík
zartímabilsins.
Þegar veldi Péturs mikla óx
við Eystrasalt, var þar með lok-
ið Eystrasaltsveldi Svía. Jafn-
vel þótt Svíar hefðu nokkurt
vald við Eystrasalt um tíma þar
á eftir, var mjög dregið úr valdi
þeirra. Hin langa barátta milli
Dana og Svía, sem einnig hafði
verið háð út af valdinu yfir
Eystrasalti, endaði með ósigri
beggja ríkjanna.
Upphaflega var það Dan-
mörk, sem gerði kröfuna um yf-
irráðin yfir Eystrasalti, Domini-
um maris Baltici. En það var í
raun og veru aðeins á skömm-
um tímum, sem yfirráð Dana yf-
ir Eystrasalti voru meira en
orðin tóm. Stjórnarár Valdimar-
anna í Danmörku var eitt af
þessum tímabilum, sem lauk
með hinni frægu orustu í Eist-
landi 1219 þegar Dannebrog
„féll af himnum ofan“ og
danski konungurinn lagði und-
ir sig Eistland og kristnaði þjóð-
hygli, að hið innra starf Alþýðu-
flokksfélagsins undanfarm tvö ár
er nú farið að bera hinin glæsi-
legasta árangur. Svo að segja
allÍT starfskraftar árshátíðarinnar
voru eigin félagar. Það með
mörgu öðru sýnir, að það eru
eklri aðeins nokkrir forystumenin
í flokknum sem starfa, heldur
leggur fjöldi féiaga hönd á plóg-
inn og vinnur sín störf, hver
maður á sínum stað, en þetta er
eánmitt höfuðskilyrði fyrir hvaða
samtök sem er. Hver félagi verð-
ur að inna starf af höndum og
skila þvi eins góðu og honum
er frekast kostur. Þetta skapar
áhuga og kraft, sem hægt er aö
beina sameinuðum að stórum og
voldugum áformum, þegar á
þarf að halda.
Alþýðuflokkurinn er vaxandi
flokkur. Hann hefir algerlega
sigrazt á sundrungkmi frá 1938.
Nú stígur hann fram öflugri og
heilsteyptari innbyrðis en nokkru
sinni áður og gefur fyrirheit um
'nýja sigra í framtíðirmi.
Það er líka óhætt að segja, að
flokksforystan hefir ekki legið á
liði sínu þessi tvö ár og að félag-
amir hafa ekki skorazt undan
því að leggja frarn starf og fórn-
ir, hver eftir sinni getu. Sagan
um fórnir félaganna í Alþýðu-
flokksfélaginu þessi ár hefir enn
ekki verið skráð og er enn ekki
kunn nema innan félagsins, en
starf þessa fólks og fórnir þess
hafa lagt grundvöllinn að þeim
sigrum, sem unnir verða í fram-
j; fíðtnni,
Kort af austanverðu Eystrasalti.
ina. En þessi sigur var skamm-
góður vermir og árangur hans
varaði ekki nema fáein ár. Síð-
ari tilraunir Dana til þess að
leggja undir sig Eistland, báru
ekki betri árangur, og árið
1346 seldu Danir þýzku ridd-
arareglunni yfirráðarétt yfir
Eistlandi fyrir níu þúsund mörk
í silfri. Valdaaðstaða Dana var
aldrei byggð á áhrifum á strönd
um hinna núverandi Eystra-
saltslanda, heldur á yfirráð-
um yfir dönskum. sænskum og
finnskum strandsvæðum. Sterk-
ust var aðstaða Dana, þegar
Margrét drottning með Kalmar-
sambandinu 1937 náði yfirráð
um allra Norðurlandanna í sín-
ar hendur. Þá ríkti Margrét
drottning yfir ströndum Eystra-
salts frá Finnska flóanum, þar
sem Kronstadt liggur nú, norð-
ur yfir Finnland og Svíþjóð og
suður yfir dönsku eyjarnar til
Holtsetalands. Þá lenti þetta
stóra Eystrasaltsveldi í baráttu
við Hansastaðina, hið mikla
samhand norður-þýzkra verzl-
unarborga. Á ýmsu gekk í bar-
áttunni um yfirráðin yfir
Eystrasalti, þangað til Svíar í
byrjun 16. aldar náðu völdum
yfir Eystrasalti, en vald Hansa-
staðanna varð minna og minna.
Með þrjátíu ára stríðinu
breyttist valdaafstaðan við
Eystrasalt. Svíþjóð varð stór-
veldi og náði yfirráðum yfir
Eystrasalti. Þegar friðurinn var
saminn í Vestfalen 1648 fengu
Svíar Vestur-Pommem, Rúgen,
Austur-Pommern, ásamt Stett-
in og Wollin, ásamt nokkrum
þýzkum héruðum. Áður höfðu
Svíar haft yfirráð yfir Finn-
landi, Ingermanlandi, Eistlandi
og Lettlandi. Þar með réði Sví-
þjóð yfir öllum stærstu árósum
við Eystrasalt, en þær eru —
Wesel, Elba, Oder, Dyna, Nova
og Neva. Aðeins Memel og Vistla
hjá Danzig voru utan yfirráða-
svæðis Svía.
Nokkrum árum seinna reyndu
Svíar meðan Karl X. Gustav
var í stríði við Dani að treysta
vald sitt ennþá meira við
Eystraland. Þegar friður var
saminn við Hróarskeldu 1658,
var tekin sú ákvörðun, að loka
Eystrasalti fyrir herskipum
framandi þjóða. Þessu var snú-
ið gegn vaxandi herskipaflota
Hollendinga og Englendinga og
tilraunum þessara ríkja til þess
að ná áhrifum í Eystrasalti. —
Karl X. Gustav gerði því næst,
þegar stríðið hófst á ný, tilraun
til þess að loka hringnum við
Eystrasalt með því að taka
Danmörku. Það misheppnaðist
að miklu leyti vegna þess, að
Holland, sem þá átti öflugan
flota, kærði sig ekki um að Sví-
ar fengju meiri yfirráð yfir
Eystrasalti, en þeir þegar höfðu.
í rúma hálfa öld ennþá var-
aði vald Svía yfir Eystrasalti.
Því lauk gersamlega í styrjöld
Karls XII. við Pétur mikla. —
Þegar Svíar árið 1721 eftir fall
hetjukonungsins, sömdu frið við
Rússa, urðu þeir að láta þá fá
Ingermanland.Eistland Lettland
Usel, suðurhluta Kyrjálaness og
borgina Viborg. Tveim árum
áður höfðu Svíar orðið að láta
af hendi við Prússa Pommern
og önnur héruð í Norður-
Þýzkalandi. Auk þess fengu
Danir því til vegar komið, að
þeir næðu yfirráðum yfir sund-
inu, sem er hlið Eystrasalts.
Það er almennt vitað, að eitt
af endurreisnarstörfum Péturs
mikla var það, að auka vald
Rússa á sjónum. Hinn rúss-
neski zar nam í þessu skyni
skipasmíði í Hollandi. Og hann
var svo ákveðinn í því, að
tryggja Rússlandi aðgang að
Eystrasalti, að hann byrjaði
að byggja hina nýju höfuðborg
Rússlands, Pétursborg, í Inger-
manlandi, sem hann hafði náð
frá Svíum, áður en stríðinu var
lokið.
Eftir sigurinn yfir Svíum
varð rússneska strandlengjan,
sama svæði og nú er rússneskt,
ásamt Eistlandi og hluta af
Lettlandi. Á næstu öld þar á
eftir fengu Rússar, þegar Pól-
landi var skipt, það sem eftir
•var af Letlandi og Lithauen og
því næst allt Finnland.
Það er lærdómsríkt að sjá
það þessa dagana, hvernig sag-
an endurtekur sig. Þegar Napo-
leoii, eftir að hafa lagt undir
sig Prússland, gerði einskonar
samkomulag og árið 1807 við
Alexander I. Rússazar um það,
að þessir tveir einvaldsherrar
skyldu skipta á milli sín
heimsyfirráðunum, voru aukin
yfirráð yfir Eystrasalti eitt að-
alatriðið á rússneska program-
inu. Og fyrsta krafan var sú,
að Rússar fengju Finnland.
! Tveim árum seinna höfðu
B«rg*rklif í R«r*l (Tailim) frá dcgiua Vald«marauua.
Aðalfundnr
Alþýðuhúss Reykjavíkur h. f.
verður haldinn í Alþýðuhúsinu, föstudaginn 29. marz n.k.
klukkan 8,30 síðdegis.
Verkefni fundarins:
Venjuleg' aðalfundarstörf. Hluthafar, sem hafa rétt til að
sitja aðalfurid, vitji aðgöngumiða að fundinum í afgreiðslu
Alþýðublaðsins, Alþýðuhúsinu, kl. 5-—7 síðdegis síðustu 7
virku dagana fyrir fundinn. Á sama stað og tíma liggja þar
frammi reikningar félagsins, til athugunar fyrir hluthafa.
StjórnÍH.
*#########F#####################J#######4##############W#tf#4W###^W
þeir náð Finnlandi á sitt vald,
en vörn Finna var svo hetjuleg
að af henni slær ljóma í sögu
Norðurlanda, og um þau hefir
Runeberg ort hin ódauðlegu ljóð
sín, „Fándrik Stáls Ságner.“ —
Þar með höfðu Rússar tryggt
sér yfirráðin yfir Eystrasalti.
En valdaaðstaða Svía og Dana
við Eystrasalt, sem hafði verið
töluvert mikil, þegar Napoleon-
styrjaldirnar hófust versnaði
mjög'. Valdi Svíþjóðar hafði
mjög verið hnekkt, þegar hún
missti Finnland, og vald Dana
á sjónum var í molum eftir að
Bretar sóttu danska flotann
1807. Hvorugt þessara ríkja gat
keppt við Rússa um yfirráðin
yfir Eystrasalti og Prússland,
sem varð mikið herveldi eftir
fall Napoleons gerði sig ekki
gildandi á sjónum. Svo veikt
var vald Prússa á sjónum, að
Danir gátu bæði 1848 og 1864
lokað Norðurþýzku höfnunum.
En eftir 1864 breyttist aðstað-
an snögglega. Hið nýja þýzka
ríki skapaði sér stórkostlega
flotahöfn í Kiel, sem árið 1895
var sett í samband við Norður-
sjóinn með skipaskurði, þannig,
að þýzki flotinn átti nú aðgang
að Eystrasalti og Norðursjón-
um. Við lok aldarinnar, þegar
Þjóðverjar juku flota sinn, var
Kielarskurðurinn stækkaður og
var tilbúinn til notkunar mán-
uði áður en heimsstyrjöldin
brautzt út 1914.
Níu árum áður hafði eins og
áður er sagt, hinn mikli rúss-
neski Eystrasaltsfloti eyðilagst
þegar hann mætti japanska
flotanum í Tsushimasundinu.
Þegar heimsstyrjöldin braust
út var fjarri því að zarveldið
væri búið að endurbyggja
Eystrasaltsflota sinn, og hinar
nýju herskipahafnir í Reval og
Helsingfors, voru heldur ekki
tilbúnar. Eystrasaltsfloti Þjóð-
verja var í heimsstyrjöldinni
að minnsta kosti fimm sinnum
stærri en floti Rússa, og verk
rússneska flotans var aðallega
það, að halda hluta af þýzka
flotanum bundnum í norður-
hluta Eystrasalts við að halda
vörð um innsiglinguna til
Kronstadt.
Ósigur Rússa og Þjóðverja í
heimsstyrjöldinni skapaði enn-
þá nýja valdaaðstöðu við
Eystrasalt. Eftir árið 1918
sigldi enski flotinn inn í
Eystrasalt og það var að miklu
leyti í skjóli hinna ensku fall-
byssna, að hin nýju ríki Eist-
land, Lettland og Lithauen, —
héldu velli fyrstu árin. Hvorki
þessi litlu ríki né hið stóra Pól-
land, varð þó nokkru sinni
Eystrasaltsveldi. — Pólverjar
höfðu það þó í huga með því að
stofna til herskipahafnar í
sambandi við Gdnya, en voru
ekki komnir langt áleiðis, þegar
flotasamningurinn milli Þjóð-
verja og Englendinga árið 1935
rauverulega gaf Þjóðverjum
yfirráðin yfir Eystrasalti.
Þessi flotasamningur var hið
fyrsta stjórnmálaþrekvirki nú-
verandi utanríkismálaráðherra
Þjóðverja, von Ribbentrop. —
Samkvæmt þessum samningi
máttu Þjóðverjar hafa 35 skip
gegn hverjum 100, sem Eng-
lendingar hefðu. Allir litu svo
á, að raunverulega þýddi þessi
samningur það, að Englending-
ar létu Þjóðverjum eftir yfir-
ráðin yfir Eystrasalti,
Nú, fimm árum seinna, kem-
ur Rússland aftur í dagsljósið,
sem Eystrasaltsveldi. Og þetta
skeður í góðu samkomulagi við
Þjóðverja, enda þótt þeir á síð-
ari árum hafi vafalaust álitið
það eitt af verkefnum sínum að
tryggja sér áhrif í Eystrasalts-
löndunum, til þess að hindra
áhrif Rússa þar.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma, er rússneski Eystrasalts-
flotinn um þessar mundir mikið
veikari en þýzki Eystrasalts-
flotinn. Rússar eiga sennilega
um 50 kafbáta í Eystrasalti, 2
stór nútíma herskip og fáein
herskip af meðalstærð. En
Rússar hafa á síðustu árum
treyst mjög Eystrasaltsflotann.
Og þá komum við að þýðingu
lofthernaðarins. Rússar eiga að
minnsta kosti mjög margar
flugvélar, enda þótt menn viti
ekki með vissu hve mikils virði
þær eru. En nú fær rússneski
loftflotinn góðar stöðvar við
Eystrasalt. Þess hefir þegar ver-
ið getið í sænskum blöðum, að
þaðan geti rússneskar flugvélar
náð til Svíþjóðar og' jafnframt
til þýzkra hafna. Enda þótt
Þjóðverjar séu nú sem stendur
sterkasta þjóðin við Eystrasalt,
þá má gera ráð fyrir því, að
bráðlega verði Rússar þeim jafn
sterkir, ef ekki sterkari. Svo
lengi, sem vinátta Rússa og
Þjóðverja helzt, gerir það ekki
svo mikið til. Og ef vináttan
varir ekki, álíta núverandi
ráðamenn í Þýzkalandi, ef til
vill, að þeir gætu sigrað Rússa
svo algerlega á landi, að lausn-
in um yfirráðin yfir Eystrasalti
komi af sjálfu sér.
Kominn heim
Bjarni Bjarnason,
læknir.
Drengjaföt, matrosföt, jakka-
föt, frakkar, skíðaföt. Sparta,
Laugavegi 10, sími 3094