Alþýðublaðið - 12.04.1940, Blaðsíða 2
FÖSVUííÁQUfl 12. AF?j’-. 1340
ALÞÝd’JSfjaOE&
DANSLEIKUR LAUGARDAGSKVÓLD 13. Þ. M.
Aðgöngumiðar kr. 3,50 seldir að Hótel Borg (suður-
dyr) frá kl. 4—7 í dag og eftir kl. 1 á laugardag.
Eignist eitthvert glæsilegasta skáldritið,
sem til er á íslenzku:
Halfldór Kiljaa-
Saga Ólafs Kárasonar Llósviklngs
(Ljós heimsins, Höll sumarlandsins og
Hús skáldsins), fæst á 15 kr. óbundin og
20 kr. í bandi séu öll bindin keypt í einu.
Notið þessi einstöku kjör, meðan þau standa.
Sent gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Bðkaverzlnn Heiiskrimlu h.í.
Laugavegi 38. — Sími 5055.
SVIÞJÓÐ
Frh. af 1. sí'ðu.
taka Danmerkur og Noregs af
hálfu Þjóðverja hafi bjargað
allri Skandínavíu og þar með
Svíþjóð frá ofbeldi Vesturveld-
anna.
Pýzkaland ekki I
stríði við Noreg!!
Seoir taismaðnr pýzku stjórn-
arinnar.
BERLÍN í gærkveldi, FÚ.
rT'í ALSMAÐUR þýzka utan-
-*■ ríkismálaráðuneytisins
hélt í dag fund með erlendum
blaðamönnum í Berlín og neit-
aði því, að Þýzkaland ætti opin-
berlega í styrjöld við Noreg.
Hann minnti á það, að í orð-
sendingu þýzku stjómarinnar
til stjórnar Noregs hefði verið
tekið fram, að aðgerðir Þjóð-
verja væru gerðar til verndar
hlutleysi Noregs og því í þágu
Norðmanna sjálfra. Þá sagði
hann, að svör Noregsstjórn-
ar, sem að vísu hafi ekki verið
sjálfum sér samkvæm, hafi ekki
heldur gefið það til kynna,
hvorki fprmlega né raunveru-
lega, að milli Noregs og Þýzka-
lands ætti sér stað styrjöld. Á
þetta bendi einnig sú staðreynd,
að hernaðaryfirvöld Norðmanna
í Oslo hafi lýst yfir, að þau
væru fús til að taka þátt í loft-
vörnum við árásum brezkra og
franskra flugmanna.
Bremen enn ofansjávar?
Um hinar ensku fregnir þess
efnis, að þýzka hafskipinu „Bre-
men“ hafi verið sökkt, er það
tilkynnt í Berlín, að „Bremen11
hafi reyndar tvisvar áður verið
sökkt í fréttaskeytum Vestur-
veldanna og þó að henni hafi
nú verið sökkt í þriðja sinn, hafi
hún komizt klakklaust yfir það
og sé nú á öruggum stað.
Morsku ferbalýðs
[félðgfn eggja verka
menn til varnar.
Stokkhólmi í morgun. FÚ.
NORSKA verkalýðsfé-
lagasambandið birti
í gær ávarp til verkalýðs-
ins í Noregi, og er því lýst
í ávarpinu, hvernig fjand-
samlegur her hafi ráðizt
inn í landið til þess að
undiroka landslýðinn, en
samvizkulausir æfintýra-
menn og svikarar í Noregi
hafi gengið á hönd fjand-
mönnunum og gerzt verk-
færi þeirra til þess að
brjóta niður sjálfstæði og
frelsi síns eigin lands.
Er skorað á alla verka-
menn og konur að berjast
til þrautar og verja land
sitt, hverjar fórnir sem
það kann að kosta.
Undir þetta ávarp ritar
fyrstur Tranmæl ritstjóri,
einn af þekktustu forustu-
mönnum norska Alþýðu-
flokksins.
Góður harðfiskur til sölu.
Hringið í síma 4923. Sendum.
Drengjaföt, matrosföt, jakka-
föt, frakkar, skíðaföt. Sparta,
Laugavegi 10, sími 3094.
HCS.
Sólrík timburvilia á fallegri
eignarlóð, skammt frá bænum,
til sölu. Væg útborgun. — Jón
Magnússon, Njálsgötu 13B, heima
kl. 6—10. Sími 2252.
ibúðir. 2 berbergja á kr. 80,00.
4 herbergja á kr. 160,00, til leigu
á Vitastíg 8A, sími 3763. Sýnd-
ar kl. 5—8.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Sbejtí fráViiljálffl!
Fiasen í ðsló.
T GÆR barst ríkisstjórn-
inni skeyti frá verzlun-
arfulltrúa íslands í Oslo,
Vilhjálmi Finsen. Er skeyt-
ið sent frá Oslo 9. þ. m. kl.
2 Vz eða hálfum öðrum tíma
áður en Þjóðverjar tóku
borgina. Segir í skeytinu
að stjórnin og þingmenn-
irnir hafi yfirgefið borgina
kl. 6 um morguninn. Flug-
vélar svéima yfir borginni
og mikil skothríð heyrist.
Finsen segist dvelja áfrani
í Oslo fyrst um sinn og að
ölllum íslendingum líði vel.
-testamenti
401
¥ DAG eru talin 400 ár síð-
an lokið var prentun Nýja
testamentisins í þýðingu Odds
Gottskálkssonar og jafnframt
liðin 400 ár frá því fyrsta bók
var prentuð á íslenzku, að því
er menn bezt vita.
í tilefni þessa afmælis hefir
verið gefinn út smábæklingur:
Hið Nýja Testamenti í þýðingu
Odds Gottskálkssonar. Fjögur
hundruð ára. 1540 — 12. apríl
— 1940. Útgefandi er Jóhann-
es Sigurðsson, sr. Sigurður
Pálsson hefir ritað eftirmála
um Odd og starf hans, en Haf-
steinn Guðmundsson hefir
teiknað titilblað og síðuumgerð
ir.
Eru þar prentuð nokkur sýn-
ishorn af þýðingunni, enn
fremur formáli Odds fyrir Op-
inberunarbókinni og að lokum
eftirmáli Odds.
Þá verður guðsþjónusta í
kvöld í dómkirkjunni til minn-
ingar um 400 ára afmæli útgáf-
unnar og verður messunni út-
varpað. Dr. Jón Helgason flyt-
ur erindi um Odd Gottskálks-
son og þýðingu hans.
Einar Dorvaldsson
sbábmeistári Isiands
Hana tapaði enpri skák á
skákpinginu.
T T RSLITIN á Skákþingi ís-
lands urðu þau, að Einar
Þorvaldsson var skákmeistari
íslands.
Heildarúrslit á mótinu urðu
þessi: Einar Þorvaldsson fékk
6V2 vinning, tapaði engri skák.
Ásmundur Ásgeirsson fékk 6
vinninga, Eggert Gilfer fékk
5 V2 vinning, Árni Snævarr 4 V>.
Hafsteinn Gíslason og Sturla
Pétursson urðu jafnir með 3
vinninga hvor og Áki Péturs-
son, Jóhann Snorrason (skák-
meistari Norðurlands) og Sæ-
mundur Ólafsson fengu ‘IV2
vinning hver.
Eínar Þorvaldsson er alkunn-
ur taflmaöur. Hann varð
Reykjavíkurmeistari 1938, en
íslandsmeistari varð hann 1928.
----— UM DAGINN OG VEGINN--------------------
Tveir dagar í sögu Norðurlandabúa. Tíðindin og áhrif þeirra.
Spurningar og svör, vonir manna og framtíðardraumar.
Hlutverk og starf Norðurlandabúa í samanburði við at-
hafnir stórveldanna. Fyrirspurn til póststjórnarinnar.
------ATHUGANIR HANNESAR Á HORNINU. ---------
TVEIIt DAGAR í sögu okkar
Norðurlandabúa. Hversu ör-
lagaríkir hafa þeir ekki orðið- í
titrandi undrun höfum við undan-
farin ár horft á aðfarir stórþjóð-
anna, vaxandi óróa, sífellt vaxandi
ofbeldi, svik við gerða samninga
og fyrirlitningu á rétti hinna
smáu. Á sama tíma höfum við
barizt fyrir því og unnið að því að
bæta kjör alþýðunnar, auka ör-
yggi öreiganna, gera æfikvöld
hinna gömlu og útslitnu ekki al-
veg eins ömurlegt og áður var og
bæta skilyrðin fyrir betri þroska
barnanna og unglinganna. Við höf-
um viljað lifa í friði við alla, en
ætlast jafnframt til þess, að við
værum látnir í friði með okkar
starf, okkar viðfangsefni.
ÞEGAR ÉG VAR búinn að
klæða mig á þriðjudagsmorgun-
inn klukkan tæplega 8, opnaði ég
eins og vant er fyrir Lundúnaút-
varpið. Ég varð ofurlítið of seinn
á fætur og heyrði því aðeins
nokkrar setningar: „Þýzkur her
hefir ráðizt inn í Danmörku,
danski herinn hörfar. Þýzkur her
hefir ráðizt á Noreg.“ Hendur
mínar skulfu eitt augnablik.
Hvernig myndi fara fyrir félögum
mínum, persónulegum vinum mín-
um og kunningjum sumum hverj-
um? Áttu þeir það eftir- að lenda
í þýzkum fangabúðum og' verða
myrtir þar, þegar nazistar sæju að
þeir væru að tapa stríðinu? Þann-
ig er að minnsta kosti hlutverk
margra glæsilegra hugsjónamanna
og mannvina á þessari járnöld.
ÉG FÓR í BÍL á skrifstofuna.
Ég ók meðfram höfninni eins og
ég geri svo oft. Ég sá danskan vin
minn og kallaði til hans. Ég sagði
honum tíðindin, en hann svaraði:
„Segðu þetta einhverjum öðrum.“
Ég reiddist honum, slík mál hefi
ég ekki í flimtingum. Ég svaraði:
„Bíddu til hádegis," og hélt áfram.
Það fyrsta, sem ég gerði, var að
fá staðfestingu á því, sem ég hafði
heyrt í brezka útvarpinu, og því
miður fékk ég það staðfest. Fregn-
in var komin út í glugga Alþýðu-
blaðsins og fólk flýkktist að sam-
stundis. Maður, sem staðnæmdist
við gluggann, sagði: „Aumt er það
að vera svo lítill, að. geta ekki
mætt þar sem tíðindin gerast og að
minnsta kosti innsiglað sinn eigin
vilja.“ Mér fannst þetta vel mælt
svona á opinni götu að morgni
dags.
OG SVO KOMU TÍÐINDIN
slag í slag. Þýzkur her rseðst inn
í Noreg, Danmörk er hertekin,
Kaupmannahöfn er fallin, norska
stjórnin hefir yfirgefið Oslo, Þjóð-
verjar hafa lagt tundurduílum í
sænskri landhelgi, Þjóðverjar hafa
tekið Bergen, Þrándheim og Nar-
vik. Tekið Bergen. Þetta færist óð-
um nær manni sjálfum, þegar
þýzkur nazistaher veður yfir kæra
og kunna borg. Myndu Norðmenn
gefast upp fyrir ofbeldinu, viður-
kenna sjálfa sig' sem leppríki
þýzka nazismans, ofurselja allt og
alla geðþótta þýzkra stríðsherra?
— Nei. Norska stjórnin ákvað að
verjast. Norðmenn biðja Vestur-
veldin um hjálp og þau svara með
fullkominni liðveizlu. Brezk her-
skip ráðast inn í landhelgi Nor-
egs, sjóorusta geisar svo að segja
fyrir allri vesturströndinni, hún
færisí inn í Skagerak, jafnvel inn
á Víkina, hinn fagra fjörð, en Os-
lo sendur við botn hennar.
TÍÐINDIN vekja hér meiri at-
hygli en nokkur önnur tíðindi
hafa gert. Jafnvel hinn stórmerki-
legi fundur alþingis aðfaranótt
miðvikudags vekur ekki nærri
eins almenna athygli, og þó er
þetta að líkindum einn af merk-
usfu fundum, sem alþingi hefir
haldið. Hér var um að ræða varn-
arathöfn hjá alþingi, enginn
fjandskapur við bræðra þjóð vora
eða tilraun til að notfæra sér hina
erfiðu aðstöðu hennar. Hér var
aðeins um það að ræða að stað-
festa það fyrir heiminum, að hér
á íslandi væru íslendingar hús-
bændur.
MENN BÍÐA ENN milli vonar
og ótta. Hvor aðilanna vinnur hina
ægilegu sjóorustu, sem ekki er
annað að sjá en að geisi alla leið
frá Tromsö í Norður-Noregi til
Víkurinnar? Ef Bretar vinna, er
setulið Þjóðverja í Noregi inni-
lcróað og Norðmenn verða einfærir
um að eyðileggja það. Það ættu
þeir líka að fá að verða einir um.
Norðmenn taka vel á móti vinum
sínum, sem gista land þeirra, en
þeim, sem heimsækja þá á þann
hátt, sem Þjóðverjar hafa gert,
munu þeir ekki vanda kveðjurnar,
ef ég þekki þá rétt.
MENN SPYRJA hver annan:
„Ef herleiðahgur Hitlers íil Noregs
fer í handaskolum. hefir hann þá
ekki innsiglað ösigur sinn fyrir
fullt og allt? Ég hlustaði á mið-
vikudaginn á ræðu hertogans af
Wellington og hann sagði, að nú
væri Hitler skriðinn úr greninu og
nú væri hægt að taka hann glímu-
tökum á opnum velli. Hertoginn
kvaðst ekki efast um endalok
þessarar glímu. Margir halda því
fram, að hvorki Hitler persónu-
léga né þýzka þjóðin þoli stóra
ósigra. Mætti þá vera að þessir at-
burðir á Norðurlöndum yrðu til
þess að stytta hildarleikinn í heild.
Það verður gleðidagur hjá mörg-
um, þegar stríðinu lýkur og smá-
þjóðirnar losna aftur úr klóm hins
þýzka arnar.
JÓNSI skrifar: „Getur þú upp-
lýst fyrir mig, hvernig á því stend-
ur að póststjórnin íslenzka heimt-
ar nú alþjóðagjald af Norðurlanda-
bréfum, í stað Norðurlandataxta,
\ þótt þau séu send yfir Kirkwall
j til skoðunar? Ég hefi þessa dag-
1 ana fengið mörg bréf, bæði frá
Svíþjóð og Danmörku, — yfir Eng-
land — með óbreyttu burðar-
gjaldi.“
NEI. Þessu get ég því miður
ekki svarað að svo komnu málí.
I
Trletao
Eitt helzta úrræðið til þess að halda hársverð-
inum og hárinu heilbrigðu er að nota hárvatnið
TRICHOSAN-S.
Leiðarvisir um notkun fylgir hverju glasi.
Fæst hjá rökurum og mörgum verzlunum.
Heildsölubirgðir hjá
ÁFENGISVERZLÚN RÍKISINS.