Alþýðublaðið - 16.04.1940, Síða 2
ÞRIÐJUDAG 16. APRÍL 194«
AlÞÝÐUELAÐIÐ
Bsar tiorvaldssðn skák-
meistari íslanls 1940.
.--------UM DAGINN OG VEGÍNN -----------------------
| Fréttamennska útvarpsins. Hvað er hægt að finna að nýja
| þulnum? ÞjóSsöngvarafob í bréfi frá M. Stríðið, dýrtíðin og
Íi'átæklingarnir. Verðlagsnefndin, kolin, álagningin á ýmsar
vörutegundir.
-------— ATHUGANIR HANNESAR Á .HGRNINU. -——
SKÁKÞINGI ÍSLANDS fyr-
ir árið 1940, er nýlega lok-
ið. Þeir, sem fylgst hafa með
þinginu frá upphafi, munu yfir-
leitt vera sammála um, að sjald-
an hafi orðið eins hörð átök um
%rsta sætið og einmitt á þessu
móti. Fjórir efstu mennirnir eru
löngu landkunnir fyrir afrek
sín á skákborðinu og mjög svip-
aðir að styrkleika, enda mátti
lengi vel varla á milli sjá. hver
sigra mundi.
í síðustu umferðum tókst Eim
ari Þorvaldssyni, þó að ná for-
ystunni, halda velli og þannig
verða skákmeistari íslands
1940.
Sigur Einars á þessu móti er
Mjög glæsilegur. Af 8 skákum
vann hann 5 og gerði þrjú
jafntefli = 81,25%. Hann var
sá eini, sem engri skák tapaði,
allir hinir meistararnir urðu að
láta sér það lynda að vera að
velli lagðir.
Næstur varð Ásmundur Ás-
geisson með 6 vinninga. . 3.
Bggert Gilfer með 5íú vinning-
4. Árni Snævarr með 414 vinn-
iag. 5. og 6. Sturla Pét-
ursson og Hafsteinn Gíslason
með 3 vinninga hvor. 7.—9. Áki
Pétursson, Jóhann Snorrason og
Seemundur Ólafsson með 2Vi
vinning hver.
Skákin milli Ásmundar og
Einars ræður í rauninni úrslit-
um mótsins, finnst mér því vel
viðeigandi að hún birtist hér
jafnframt.
Mvítt: Ásmundur Ásgeirsson.
Svart: Einar Þorvaldsson.
Drottningarindverskt.
1. d2—d4 Rg8—f6 2. Rgl—
n e7—e6 3. c2—c4 b7—b6 4.
Rbl—c3 Bc8—b7 5. g2—g3
Bf8—b4 6. D1—b3 Bb4Xc3
7. b2Xc3.
7. DXc3 er tvímælalaust
betra, eftir hinn gerða leik hefir
hvítur verri peðastöðu með til-
liti til endataflsins.
7. —o— d7—d6 8. B71—g2
Rb8—d7 9. 0—0 0—0 10. Rf3
—d2 Bb7Xg2 11. Kgl'Xg2. e6
—e5 12. e2—e4 Hf8—e8 13-
Db3—c2 Rd7—b8! 14. Bcl—b2
Rb8—c6 15. Hal—el Rf6—h5.
Hvítur ógnaði 16. f4, en þessi
leikur útilokar þann möguleik
fyrst um sinn.
16. Rd2—f3 Dd8—c8!
Hótar 17. —o— R—f4f næst
D—g4.
17. h2—h3 Rc6—a5 18. Dc2
—e2 Dc8—e6 19. d4—d5?
Betra er R—d2.
19. —o— De6—e7 20. Bb2—
cl g7—g6 21. Bcl—g5 De7—
d7 22. Rf3—d2 f7—f6 23.. Bg5
—h6 He8—e7 24. g3—g4 Rh5
—f4 25. Bh6Xf4 e5X±'4 26.
De2—f3 g6—g5 27. Df3—d3
Dd7—e8 28. Hfl—hl De8—g6
29. f2—f3 h7—h5 30. Kg2—f2
h5Xg4 31. h3Xg4 He7—h7 32.
Dd3—bl!
Nær jafnvægi á h-línunni og
hótar jafnframt 33. D—b5.
32. —o— Kg8—g7 33, Hhl
Xh7 Kg7xh7 34. Hel—hlf
Kh7—g7 35. Dbl—b5 Dg6—e8
3«. Db5xe8 Ha8xe8 37. Kf2
—e2 He8—h8 38. HhlXhS Kg7
EINAR ÞORVALDSSON
Xh8 39. Ke2—d3 Kh8—g7.
í þessari stöðu bauð Einar
jafntefli, en Ásmundur hafnaði.
Rannsóknir á stöðunni hafa leitt
í ljós, að veikleika gætir fremur
í stöðunni hjá hvítum.
40. Rd2—bl Ra5—b7 41. Rbl
—a3 Rb7—c5f 42. Kd3—e2 a7
—a6 436. Ra3—c2 Kg7—f7 44.
Rc2—d4 Rc5—a4 45. Ke2—d2
Ra4—b2 46. Rd4—e6 Rb2Xc4f
47. Kd2—-e2 c7—c5!
Vinningsleikurinn. — Þess-
um leik mun Ásmundur ekki
hafa reiknað með þegar hann
lék sínum 41. leik og hugðist að
sækja á reitinn c7 og vinna
þannig.
48. Re6—d8f
Vonlaust væri R—c7 vegna
K—e7! 49. RXa6 Kd8 50. R—
b8 R—e5! 51. R—c6 RXc6 52.
dXc6 c5—c4! og vinnur létt-
48. _o— Kf7—e8 49. R—c6
b6—b5 50. Ke2—d3 K—d7 51.
K—e2 K—c7 52. R—e7 R—e5
53. R—g8 R—d7 54. R—e7 a5
55. R—c6 K—b6 56. R—e7 b4
57. R—c8f K—c7 58. R—a7
R—e5 59. cXb4 aXb4 60. R—
b5f K—d7 61. R—a7 R—f7 62.
R—c6 K—c7 63. R—e7 R—e5
64. R—g8 c5—c4 65. RX±6 RX
f3! 66. Kxf3 b2—b3. Gefið-
Endataflið er mjög nákvæmt
og þarfnast víða skýringa, sem
því miður er ekki'rúm fyrir.
Núverandi skákmeistari ís-
lands, Einar Þorvaldsson, er öll-
um íslenzkum skákmönnum
löngu kunnur. Hann var skák-
meistari íslands 1928. síðan hef-
ir hann oft teflt á kappmótum
með þeirri útkomu, sem hver
meistari er fullsæmdur af. Sem
dæmi má nefna, að á Islands-
þingi 1935 og 1938 fær hann í
bæði skipti önnur verðlaun. Á
haustmóti Taflfélags Reykja-
víkur 1937 fékk hann önnur
verðlaun. Var skákmeistari
Reykjavíkur 1938. í úrslita-
keppninni um Argentínuförina
var hann no. 3 og nú árið 1940
Skákmeistari íslands.
Hann hefir keppt fjórum
sinnum sem fulltrúi íslands á
erlendum skákmótum. í Ham-
borg 1930; Folkesíone 1933.
Munchen 1936 og Buenos Aires
1939. Heildarútkoma hans á
þessum mótum mun vera kring
um 50% — og má það teljast
ágæt frammistaða-
Þetta yfirlit gefur talsverða
hugmynd um frammistöðu Eip-
ars frá því hann byrjaði að tefla
opinberlega. Að vísu hefir hann
ekki oft verið efstur, en minna
má líka gagn gera.
Stíll hans og frammistaða hér
heima og erlendis sýnir greini-
lega, að hann er tvímælalaust
mjög sterkur skákmaður og erf-
iður viðureignar, sennilega ein-
hver öruggasti meistarinn. Þess
vegna, Einar Þorvaldsson: „Til
hamingju með unninn sigur-“
í raun og veru er það afar
athyglisvert og einkennandi, að
flestir beztu skákmenn landsins
svo sem Einar Þorvaldsson, Ás-
mundur Ásgeirsson og Jón Guð-
mundsson eru allir handverks-
menn og eiga ættir sínar að
rekja til alþýðunnar. Þetta mun
vera mjög sjaldgæft víðast er-
lendis, eins og bezt má sjá af
því, að á skákmótinu í Buenos
Aires í sumar munu þeir þrír
hafa verið þeir einu af hátt á
annað hundrað keppendum, sem
talist gætu til „hinnar vinnandi
stéttar.“
Hafa nú þessir menn, sem
vinna erfiðisvinnu, haft beztu
aðstöðuna til að ná góðum ár-
angri. sýna framtak sitt, vilja
og þrek, eða aðrir af sama bergi
brotnir. sem sýnt hafa dugnað
sinn og afköst á öðrum vett-
vangi?
Þess vegna vaknar hjá mér
sú spurning: — Hvaðan er
kjarni íslenzku þjóðarinnar
kominn? Er það ekki einmitt
frá hinni vinnandi stétt — al-
þýðunni, fólkinu, sem framleiðir
verðmætin og byggir landið?
ÓIi Valdimarsson.
HOSALEIGULÖGIN
Frh. af 1. síðu.
húsaieigu eða annara samnings-
rofa af hálfu leigutaka.
I Reykjavík skai skipa húsa-
leigunefnd. Eiga sæti í henni þrír
menn, tveir skipaðir af ríkis-
stjórninni, en hæstiréttur skipar
þ^nn þriðja, og , er , hann for-
maður nefndarinnar. Þrír vara-
menn skulu skipaðir á sama hátt.
Skyit er að leggja fyrir húsa-
leigunefnd til samþykktar alia
leigumála, sem gerðir eru eftir
gildistöku þessara laga.
Heimilt er leigutaka, telji hann
húsnæði leigt óhæfilega hátt
vegna ásigkomulags þess, að
beiöast mats húsaleigunefndar á
húsaleigunni.
Utan Reykjavíkur skulu fast-
eignanefndir í bœjum og útttekt-
armenn í hreppum ásamt hrepps-
nefndaroddvita gegna þeim störf-
um, sera með lögum þessum eru
lögð undir húsaleigunefndina í
Reykjavík.
Sá, sem áskilur sér hærri leigu
en heimilt er samkv. lögunum,
tekur við hærri leigu eða brýtur
ákvæði þeirra á annan hátt, skal
sæta sektum frá 5—2000 krónum.
Ie TT*
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
miðvikudagskvöld kl- 81/?- —.
Hagnefndaratriði: stud. theol.
Magnús Már Lárusson: Erindi.
Einnig upplestur? Fjölsækið
fundinn. Æt.
ST. IÞAKA nr. 194. Fundur í
kvöld á venjulegum stað og
tíma. Ýms fundarstörf. Br.
Steindór Björnsson flytur er-
indi.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
YMSIR RÍFAST núna út úr
fréttastarfsemi ríkisútvarps-
ins. Starf fréttastofunnar er vitan-
lega mjög erfitt, en ef útvarpiS
tilkynnir að á vissmn tíma verði
útvarpað fréttnm, þá verður að
gera það, ef þær eru til, og má
það ekki fara eítir því, hvort
fréttamönnunum sjálfum finnast
fréttirnar vera merkilegar eða
ekki. — Ríkisútvarpið má ekki
„plata“ svona oft þesSa 40—50
þúsund hlustendur, sem beðið hafa
eftir fréttum undanfarna daga.
NÆSTA MÁL Á DAGSKRÁ er
Helgi Hjörvar, nýi útvarpsþulur-
inn. Vitanlega fara nú skammirnar
að dynja á honum. Að líkindum
kemur enginn æfintýraprins, festir
sér hann fyrir konu og fer með
hann úr landi. Um þennan nýja
þul vil ég hér með hefja umræð-
ur. Röddin er góð, framburðurinn
ágætur, hraðinn í sjálfum fréttun-
um góður og það er mikill
kostur — en það er annar galli
á honum, sem er mjög slæmur.
Hann „rövlar“ allt of mikið.
frá eigin brjósti um fréttirnar.
Hann á ekki að segja eitt einasta
orð um þær. „Litlar merkilegar
fréttir", „ómögulegt að reiða sig
á það hvort þetta sé rétt... “ „Yf-
irleitt er ákáflega erfitt . . .“ o. s.
frv. Ekki eitt orð um þetta, Helgi
minn! Bara fréttirnar sjálfar!
SÖLVHÓLSGATAN er svo að
segja alveg ófær. Hvernig stendur
á því að ekki er gert svo við þessa
götu, að hún geti talist fær? Þetta
er þó mjög fjölfarin gata.
„EINSTÖKU SINNUM hafa
heyrst raddir um, að „Ó guö vors
lands,“ sé ekki sem heppilegastur
þjóðsöngur og aðallega færð fyrir
því þau rök, að lagið sé of erfitt
til söngs, fyrir allan almenning, en
auk þess er eins og yfir því hvíli
einhverjir helgitöfrar, sem valda
því, að menn veigra sér við að
taka það föstum tökum. Þetta kem-
ur greinilega fram í flutningi þess,
hvort sem um hljóðfæraleik eða
söng er að ræða. Oftast hljómar
það sem raunalegur útfararsálmur,
en ekki hvetjandi óður til þess fall-
inn að vekja hrifningu og guðmóð
ættjarðarástar, eða þjóðernis-
kendar.“ Þetta segir M. í Bréfi til
mín nýlega.
„ÞJÓÐSÖNGVAR annarra landa
— er við þekkjum bezt — til dæmis
Norðurlanda og Frakklands, eru
mun hressilegri. Eins og kunnugt
er, sýnum við þeim nú ekki meiri
hlífð en svo, að við notum þá alla
við ýmsa íslenzka texta). Frum-
textar þeirra eru að vísu annars
eðlis en kvæði Matthíasar, sem er
Kofsöngur trúarlegs efnis, en þrátt
fyrir það virðist ekki ástæða til að
taka á ljóði og lagi þeim silki-
hönskum, sem þjóðsöng, og venju-
lega á sér stað. Má í þessu sam-
bandi minna á hinn alkunna lof-
söng Beethovens: „Þitt lof, ó
drottinn vor,“ sem ætíð er fluttur
með krafti og myndugleik, eins og
höfundurinn hefir ætlast til.“
„EINHVER KYNNI að koma
með þá athugasemd, að höfundur
„Ó guð vors lands“ hafi markað
skýrt meðferð þess með styrkleika
og hraðatáknum, en slíkt er eigi
að síður háð skilningi og smekk
þeirra er söngstjórn hafa á hendi.
Einnig má geta þess, að lagið mun
upphaflega ekki samið í þeim til-
gangi að það yrði hefðbundinn
þjóðsöngur og ætti því minningu
hins ágæta tónskálds, ekki að vera*
nein vansæmd gerð, þó meðferð
lagsins væri höfð í betra samræmi
við núverandi hlutverk þess. —
Hljómplata sú, ' er um nokkurn
tíma undanfarið, hefir verið leikin
við dagskrárlok útvarpsins, er gott
dæmi um þunglamalega meðferð á
þjóðsöng vorum. Plata, (leikin af
hljómsveit), er notuð var um skeið
þar áður. finnst mörgum mikið
betri. Hversvegna var breytt um?“
ÁRNÝ SKRIFAR: „Sennilegt er
það, að þeir, sem búa í Reykjavík
nú, þurfi ekki að óttast þann skar-
þef af stríðinu að falla í valinn
íyrir sprengjum eða öðrum dráps-
tólum þess hernaðar, sem háður er
nú. íbúar höfuðstaðar íslands geta
þess vegna notið lífsins í starfi
og hvíld, eftir atvikum. En það er
dýrtíðin, sá vígreifi vágestur og af-
kvæmi ófriðarins, sem allir horfast
í áugu við nú. Þótt margir geti
mætt þessum óvini þannig, að þeir
haldi velli og voninni um, að tóra,
eru hinir öreigarnir einnjg margir
sem spyrja: „Á hverju eigum við
að lifa?“ Og þetta er fólkið, sem
sú margmenna fátækrastjórn R-
víkur hefir haldið í viðjum hugs-
ana sinna hingað til. Og þetta fólk
mun nú þegar vera farið að liða
skort á daglegu brauði. Hvað er nú
þarna í framsýn, ef sú dökka hugs-
un borgarstjórans okkar, sem hann
lét nýlega í ljós á Alþingi, fær að
ráða framvegis? Eftir því, sem ég
hefi hlerað hugsanir manna, vérð-
ur niðurstaðan þessi: Fólkið deyr
drottni sínum fyrir skort á bróður-
legri hluttekningu samfélagsins,
fátækrastjórn Rvíkur til verðugs
lofs í seinni tíma sögu 20. aldar-
innar.“
„ÓSKÖP held ég að blessuð
verðlagsnefndin sé syfjuð, Hannes
minn, eða það finnst okkur, sem
þurfum að kaupa nauðsynjar dag-
lega. Reyndar tilkynnir hagstofu-
stjórinn að dýrtíðin hafi ekki vax-
ið nema um 21%, og dettur mér
ekki í hug að rengja hanri, — en
„bölvaðar staðreyndirnar“ eru á
annarri skoðun, segir Gamli — og
hann heldur áfram:
KAFFI, ÓBRENNT, kostar nú í
heildsölu 2.10 kg„ en stærri kaffi-
brennslurnar, sem flytja inn beint,
munu ekki kaupa það yfir. 1.85 til
1.90. Við brennsluna rýmar kaffið
um 20% og brennslukostnaður
mun vera um 25 aurar á kgr., en
umbúðir líklega 10 aurar. Kaffið
kostar því stærri brennslurnar
tæplega yfir 2.60. Heildsölu-
verðið er 3,60, en smásöluverðið
4.00 til 4.20 kgr., væntanlega eftir
gæðum. Er því heildsöluálagningin
um 1 krónu, en smásöluálagningin
40 til 60 aurar. Er þetta ekki
nokkuð mikið? En kaffi er nauð-
synjavara okkar fátæklinganna,
sem ekki getum keypt rándýra
mjólk.“
„EN ÞAÐ er lítið ’oetur sett með
margar aðrar nauðsynjavörur. —
Hvaða vit eða þörf er til að sam-
anlögð álagning smásala og heild-
sala á nauðsynjar sé 30 til 60%
og jafnvel hærri, eins og nú mun
undantekningarlítið. Og í skjóli
nýkeyptra vara hafa kaupmenn og
kaupfélög getað hækkað eldri
birgðir. Með því er ekkert eftir-
lit. Innlendar iðnaðarvörur hækka
líka stöðugt, oft tilefnislítið. Kaffi-
bætir.hefir til dæmis hækkað um
40 aura og sum þvottaefni um
meira en helming."
„í HAUST átti ”jafnt að ganga
yfir alla.“ Eitthvað held ég þetta
hafi brenglast strax í meðförúnum,
í birgðasöfnun einstaklinga og hér
aða. Til dæmis er mé» sagt, að
verzlun á Siglufirði hafi getað birgt
sig svo vel af hrísgrjónum, að hún
geti enn selt þau á 40 aura kgr.,
en hér er verSið löngu hækkað í 1
krónu. Rúgmjöl er mér sagt að
kaupmenn hér hafi keypt austur á
Selfossi — og selji það með prýði-
legum hagnaði, þó það hafi sjálf-
sagt verið vel verðlagt áður.”
Frk. af 4. síðu.