Alþýðublaðið - 25.04.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.04.1940, Blaðsíða 1
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR FIMMTUDAG 25. APRÍL 1940 95. TÖLUBLAÐ eiigur ekkl sinn vana gang, eins og undanfarín ár ----♦-- Þal verlisr sð ver|a framlelðslnbéta« féffia til arðbærra framkviemda. Þrjár milljónir ganga nú árlega til styrkþega. SAMKVÆMT bráðabirgðaákvæði hinna nýju fram- færslulaga var í vetur stofnsett „framfærslumála- nefnd ríkisins.“ Nefnd þessi var skipuð þeim Kjartani Ól- afssyni, bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, Jens Hólmgeirssyni, fyrrverandi bæjarstjóra á ísafirði og Sigurði Björnssyni, framfærslufulltrúa í Reykjavík. Kjartan Ólafsson er for- maður nefndarinnar, en Jens Hólmgeirsson skrifstofustjóri hennar. Hlutverk nefndarinnar er samkv. fyrrgreindu bráða- birgðaákvæði, eins og hér segir: „Nefndin skal gera tillögur um ®g hafa með höndum, eftir nánari fyrirmælum ráðherra: 1. Ráðstöíun á fé því, sem veitt ler í fjárlögum til framleiðslubóta ®g atvinnuaukningar í erfiðu ár- ferðl. Nefndin skal gera tillögur til ráðherra um, hversu miklu fé bæjar- og sveitarfélög skuli verja flf sinni hálfu á móti rikissjóðs- framlagi til framleiðslubóta og atvinnuaukningar í bæjar- eða sveitarfélaginu. Fé þessu skal -einkum varið til garðræktar, hag- nýtingar fiskúrgangs til áburðar, þaratekju, framræslu lands, fyrir- hleðslu, lendingarbóta, eldiviðar- vinnslu, smíði smábáta, byggingu liúsa úr innlendu efni, svo sem vikri, torfi, vegagerða og annara hagnýtra framkvæmda og til þess áð stuðla að því, að atvinnulausu fólki sé komið til starfa við fram- 'feiðsluvinnu. 2. Framkvæmdir og ráðstafanir £ framfærslumálum í samráði við 'ffiftirlitsmann sveitastjórnarmál- efna. Skal nefndin einkurn hafa eftir- lit með framkvæmdum bæjar- og -sveitarfélaga í framfærslu- og fá- tækramálum, og þá alveg sér- staklega vaka yfir því, a'ð sveitar- '<og bæjarstjórnir notfæri sér alla möguleika að koma mönnum til siarfs í stað þess að veita þeirn framfæri án vinnu, allt í sam- ræmi við nánari fyrirmæli laga þessara, og er ráÖherra heimilt ;að fela nefnd þessari að gera þær ráðstafanir í síðast nefndu skyni, sem sveitar- og bæjarfélögum er heimilað að gera samkvæmt lög- um þessum.“ Byrjunarstarf framfærslu- nefndar. Alþýðublaðið hafði í morgun samtal við Jens Hólmgeirsson skrifstofustjóra um starf nefndar- innar, það sem af er, og skýrði hann þannig frá: Nefndin tók til starfa um rniðj- an febrúar. Hennar fyrsta verk var að skrifa sveitar- og bæjar- stjórnum og tilkynna hina nýju ráðstöfun framleíðslubótafjárins, og óska jafnframt eftir greinar- gerö um notkun þess, árið 1939. Svör við þessum bréfum eru nú smátt og smátt að koma. „Annars vil ég vekja athygli á þvi,“ segir Jens Hólmgeirsson, að framleiðslubótaféð er ekki ný fjárveiting, heldur nýtt nafn á sams konar fjárhæð, sem undan- farin ár hefir verið veitt til at- vinnubóta, að upphæÖ kr. 500000 á ári. Af upphæðinni eru kr. 100 þús. lögum samkvæmt ákveðnar til Suðurlandsbrautar til atvinnu- bóta fyrir Hafnfirðinga og Reyk- víkinga. Eru því ekki eftir nema kr. 400,000, sem við höfum til- lögurétt um. Vegna hins óvenjulega at- vinnuástands er búið að eyða án íhlutunar nefndarinnar liðlega helmingnum af þeirri upphæð hér Atvinnubótaféð til arðbærra framkvæmda. í Rvík og Hafnarfirði. Svo sem ákvæðin um starfssvið nefndarinnar bera með sér, er ætlunin að framleiðslubótafénu sé eingöngu eða sem allra mest var- ið til arðgæfra framkvæmda, sem ætla má að skapi varanlega at- vinnumöguleika, jafnframt því að bæta úr brýnni framleiðslu- þörf. Við höfum reynt að þræða þessa leið í þeim tillögum, sem við höfum gert um úthlut’un fjár- ins. Má þar einkum nefna: alls konar ræktunarmál kauptúna og sjávarþorpa, sem eru og verða þeirra lífæð og öryggi. Þá hefir verið veittur styrkur til frillu- bátakaupa gegn ákveðnum skil- yröum til móvinnslu o. s. frv. Þessi stefna verður meðal ann- ars ljós af bréfi því, er við send- um sveitar- og bæjarstjórnum, þar sem segir svo meðal annars: „Umsóknum um framleiðslu- bó'afð iyfirstandandi árs þarf að fiyigja: Gleðilegs sumars óskar Alþýðublaðið öllum lesendum sínum oglþakk- ar þeim fyrir veturinn. Jens Hólmgeirsson. * m a. Áætlun um framleiðslubætur ársins 1940, og sé þar tekið fram, hve mikiÖ fé bæjar- eða sveitar- sjóöur ráðgeri að leggja frarn af sinni hálfu. b. Nákvæm greinargerð um, til hvers konar framkvæmda fram- leiðslubótafénu skuli varið. Eigi að leggja það í sjálfstæð fyrirtæki (útgerð, bátakaup, frystihús, eldiviðarvinnslu eða önnur slík fyrirtæki, sem vænta má að skapi varanlega atvinnu), fylgi sem nákvæmust greiriargerð um það, hverrar og hve skjótrar atvinnuaukningar megi vænta af fyrirtækinu, svo og, hvaða líkur eru til, að það geti sjálft staðið undir rekstri sínum framvegis. Þá sé þess og getið, hvort féð er látið sem lán, hlutafé eða beint framlag, og með hvaða skilyrð- um. Eigi að leggja féð í rækt- ún eða annað, er að því lýtur, skal skýrt frá, hvers árangurs megi vænta og á hvern hátt landið skuli nytjað. Sé um aðrar framkvæmdir að ræða, svo sem vegi, götur, skolpleiðslur, vatnsleiðslur og fleira þess háttar, skal þess getið, hve mikil sé þörf þeirra fram- kvæmda á hverjum stað.“ — Hafið þið orðið varir við það, að fólk hafi hug á að flytja úr bænum? „Já, á því hefir borið eigi ali- lítið. Atvinnulausir menn hafa leitaÖ til nefndarinnar um það, að komast burt og fara að búa í sveit, og ég hygg, að það fari vaxandi. Menn vilja leita sér ör- yggis og finnst þaÖ meira við ræktun jarðarinnar en hér á möl- inni, sem líka er eðlilegt. Þessir menn geta ekki stofnsett bú alls- lausir. Við höfum varið 2000 krónum til hjálpar tveimur slík- um mönnum, sem eru allstórir fjölskyldumenn. Þetta er ekki mikið, enda er hér um tilraun að ræða, og að mínu viti væri því fé ekki illa varið, sem færi til þess að hjálpa snauÖum mönnum hér í bænum til að stofnsetja bú i sveit.“ Ráðning verkafólks til sveitavinnu. — En ráðningarstofan fyrir landbúnaðinn? „Það var Búnaðarfélag íslands, Frh. á 4. síðu. Bnffligariar á alpjiitryigimiii. ----+--- Ýmsar verulegar réttarbætur eru fólgnar í þeim. Eftir Jón Blðndal. 11 INS OG AlþýÖublaðið hefir áður skýrt frá, gerði nýafstað iÖ alþingi ýmsar breytingar á lög unum um alþýðutryggingar og samþykkti auk þess tvenn önnur merk lög, sem lúta að trygg- ingarmálum alþýðu. Ýmsar af breytingunum á al- þýðutryggingalögúnum snerta aðallega framkvæmd þeirra, og skulu þ.ær ekki raktar, en aðeins skýrt frá þeim breytingum, sem mesta almenna þýðingu hafa. Trjrpiniar sjémanna. Tvær mikilsverðar umbætur voru gerðar á tryggingarmálum sjómanna; önnur hvað snertir sjúkratryggingarnar, en hin lýtur að stríðsslysatryggingu sjómanna, en um hana voru sett sérstök lög. Var það forma'ður Sjómannafé- lagsins, Sigurjón Á. Ólafsson, sem bar fram jjað frumvarp. Samkyæmt sjómannalögum ber útgerðarmönnum að greiða veik- indakostnað skipverja sinna. Eftir að sjúkrasamlögin voru stofnuð hafa sjómenn samt sem áður víðast hvar orðið að greiða fullt iðgjald til sjúkrasamlaganna, eða a. m. k. nokkurn hluta iðgjalds- ins, og verið þannig í raun og veru tvítryggðir. Var upphaflega gert ráð fyrir, að útgerðannenn semdu við sjúkrasamlögin um að taka að sér gegn sérstöku gjaldi þá áhættu, sem þeir bera samkvæmt sjómannalögunum, og yröi þá iðgjald sjómannanna til- svarandi lægra. En slíkir samn- ingar munu hvergi hafa komizt á nema á ísafirði. Nú er þessu máli ráðið þannig til lykta, að útgerðarmönnum er gert að skyldu að greiða sjúkra- samlagsiðgjöld lögskráðra sjó- manna, og annast sjúkrasamlögin þá framvegis sjúkrahjálp sjó- mannanna. Stríðsslysatryggingu sjómanna var komið á i haust, skömmu eftir að stríðið brauzt út, með samningúm milli útgerðarmanna og sjómanna. Tryggingin var þó allt önnur fyrir flutningaskip heldur en fyrir fiskiskip, en þörf- in fyrir tryggingarnar þó svipuð, að því er ætla má. T. d. eru ör- orkubælur togarasjómanna hæst- ar 15 000 kr., en á flutninga- . skipum eru iþær 22 000 kr. Á toguranum eru hins vegar dag- peningar, en engir á flutninga- skipunum. Dánarbætur á togur-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.