Alþýðublaðið - 09.05.1940, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
FIMMTUDAGUR 9. MAI 1940.
106. TÖLUBLAÐ
Breytingar á stjórn Cham^
berlains eða stjórnarskipti ?
---*---
Talað um Churchill eða Lord Halifax
sem forsætisráðherra nýrrar stjórnar.
Churchill.
Lfk rak í gær í f iðejr
"1" GÆR rak Iík á fjöru í Við-
■®- ey. Var það mjög skadd-
að og hefir ekki ennþá verið
hægt að þekkja það, nema ef
vera skyldi af Marel Einars-
syni, sem hvarf hér í vetur.
Kl. 8,30 í gærmorgun tóku
skipverjar á sænska skipinu,
sem liggur hér á ytri höfninni,
eftir því, að lík rak fram hjá
skipinu. Klukkan 3 ¥2 í gær til-
kynnti sænska konsúlatið lög-
reglunni þetta.
Fór lögreglan strax á báti að
leita og fannst líkið í gærkveldi
rekið við Viðey.
INUM SÖGULEGU UMRÆÐUM í brezka þinginu
lauk seint í gærkveldi með atkvæðagreiðslu, sem
leiddi það í ljós, að stjórn Chamberlains hefir aldrei haft
minni meirihluta í þinginu en nú. Með stjórninni greiddu
| atkvæði 281, en á móti 200.
Brezku blöðin skýra í morgun þessi úrslit atkvæða-
ij greiðslunnar sem raunverulegan ósigur fyrir Chamberlain,
i'; og mörg þeirra telja óhjákvæmilegt, að stjórn hans verði
endurskipulögð með því, að Alþýðuflokkurinn og Frjáls-
*lyndi flokkurinn taki sæti í henni, eða alger stjórnarskipti
verði, ef þessir flokkar skyldu neita að vera með í stjórn
undir forsæti Chamberlains. í því tilfelli er helzt húizt
við, að hin nýja stjórn yrði mynduð af ChurchiII, núver-
andi flotamálaráðherra, eða Lord Halifax, núverandi ut-
anríkismálaráðherra.
Það vekur þó eftirtekt, að blað Alþýðuflokksins, „Dai-
ly HeralcT, krefst þess í morgun að Lord Halifax segi af
sér. En hingað til hefir gagnrýni stjórnarandstæðinga að-
allega beinzt að Chamberlain sjálfum, Sir Samuel Hoare,
flugmálaráðherra og Sir John Simon, fjármálaráðherra.
Það er húizt við, að Cham-
berlain reyni til að byrja með
að endurskipuleggja ráðuneyti
sitt og bjóði í því skyni stjórn-
arándstæðingum að taka sæti í
því einhvern allra næstu daga,
og í öllu falli áður en ársþing
hrezku verkalýðsfélaganna
kemur saman á annan í hvíta-
sunnu. En neiti þeir því tilhoði,
er talið mjög ólíklegt að kom-
izt verði hjá algerum stjórnar-
skiptum, sem þá sennilega yrðu
í næstu viku.
Flóttamenn frá Noregi komn
ir á vélbát til Seyðisfjarðar
----$.-
Þeir sluppu nauðulega undan loftárás*
um Þjáðverja á Molde við Romsdalsf jðrð
NORSKUR VÉLBÁTUR, um 70 brúttótonn að stærð,
með 10 flóttamenn frá Molde í Noregi, kom til Seyð-
isfjarðar kl. 5 í fyrradag. Molde er á Mæri, í Romsdals-
firði, skammt fyrir norðan Álasund, en í botni Römsdals-
fjarðar er Ándalsnes. í Molde eru um 3000 íbúar. Er bær-
inn alkunnur fyrir náttúrufegurð og mjög sóttur af ferða-
mönnum. Vélbáturinn kom beina leið upp að bryggju og
hafði norskan fána uppi. Skipverjar gengu þegar á land
og snéru sér til yfirvalda á staðnum, en bæjarfógeti mun
hafa farið um borð í bátinn í gær og rannsakað hann.
Fréttaritari Alþýðublaðsins á Seyðisfirði, sem hefir haft við-
tal við skipstjórann á bátnum, skýrir svo frá í símtali í morgun:
„Skipstjórinn, sem er þrítug-
ur að aldri, skýrir svo frá:
„Á bátnum eru alls 10 menn.
Þeir eru allir ókvæntir nema
ég. — Við flýðum frá Molde
kl. 12 á hádegi á laugardaginn
og sluppum út úr höfninni rétt
í sömu svifum og Þjóðverjar
tóku bæinn. Nokkrum mínút-
um áður en við stigum um borð
í bátinn var ég á heimili mínu,
Allt í einu vajð ég var við það,
að sími minn hafði verið slit-
inn úr sambandi og jafnframt
fékk ég vitneskju um það, að
Þjóðverjar væru að ganga inn
í bæinn. Við söfnuðumst sam-
an í einni svipan og létum úr
höfn. Samtímis vissi ég um tvo
aðra báta með flóttafólk. Voru
þeir báðir miklu stærri en minn
og voru á öðrum þeirra 8 fjöl-
skyldur. Við fylgdumst að
nokkurn tíma, en ég hygg að
báðir þessir bátar hafi tekið
land í Færeyjum. Ferðin hing-
að gekk mjög vel.
Flðttian frð Mslde.
Við flýðum frá Molde vegna
þess, að við vissum, að Þjóð-
verjar myndu taka af okkur
bátinn og neyða okkur til að
vinna gegn okkar eigin lands-
mönnum. Við vildum heldur
leggja út í óvissuna, en verða
að sæta því hræðilega hlut-
skipti.
Á fimmtudag og föstudag
Frh. á 4. síðu.
2% ffiiljón kvadd
ar til vopna ð
Bretlandi i dag.
M'
LONDON í morgun. FÚ.
’ EÐ konunglegri til-
skipun voru 2%
milljón manna kvaddir
til vopna á Bretlandi í
dag.
Eru það 8 árgangar alis
og menn þeir, sem kvadd-
ir eru í herinn, eru á aldr-
inum 27—36 ára.
Lord Halifax.
Sígarettum stolið.
í fyrradag var stolið 150 sígar-
ettupökkum úr sendiferðabifreið
Tóbakseinkasölunnar. Rannsóknar-
lögreglan hefir haft uppi á þjóf-
inum, en hann var búinn að losa
sig við sígaretturnar.
Aðalfundur Norræna félagsins
er í kvöld í Oddfellowhúsinu.
Grænlendingar biðja
Íslendinga um hjálp!
----4.--
Landfógetarnir snúa sértil stjórnarinnar
R
IKISSTJÓRNINNI hef-
ir borist símskeyti frá
landfógetunum á Grænlandi,
þar sem þeir, sem hin lög-
legu yfirvöld í landinu, fara
þess á leit við íslendinga, að
þeir veiti Grænlendingum
hjálp til að koma sjávaraf-
urðum landsins í verð.
Ríkisstjórnin hefir sent þessa
málaleitun til Sölusambands
íslenzkra fiskframleiðenda með
tilmælum um, að það athugi
möguleika fyrir því að verða
við þessara beiðni og hefir
stjórn S.Í.F. tekið vel í að at-
huga þetta mái.
. .Á þessu stigi málsins er svo
lítil vitneskja fyrir hendi, bæði
um magn þessarar framleiðslu
og ásigkomulag, að ekki er
hægt að svo stöddu að segja um
á hvern hátt heppilegast yrði
að koma til móts við þessa
málaleitun.
Landfógetarnir á Grænlandi
eru tveir og eru þeir æðstu em-
bættismenn dönsku stjórnar-
innar í landinu. Heitir annar
þeirra Svane, og situr í Godt-
haab, er hann landfógeti í Aust-
ur-Grænlandi og hinn Brun, —
situr hann í Godhaven og er
landfógeti í Vestur-Grænlandi.
Vorosjilov hermálaráðherra
Stalias, er nt (allinn i ðnáð.
.. ,4b ' , ,
Kennt um ófarirnar í Finniandsstríð-
inu og sviftur embætti.
1T OROSJILOV hefir al-
* veg óvænt látið af
störfum sem hermálaráð-
herra sovétstjórnarinnar og
yfirmaður rauða hersins.
Við starfi hans hefir tekið
Timotsjenko hershöfðingi,
sem stjórnaði innrás rauða
hersins í Austur-Pólland í
haust.
Jafnframt hefir Timotsjenko
verið sæmdur marskálksnafn-
bót. Vorosjilov hefir verið gerð-
ur að varamanni Molotovs sem
forsætisráðherra sovétstjórnar-
Frh. á 4. síðu.