Alþýðublaðið - 28.05.1940, Qupperneq 4
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI 1940.
Munið
Alþýðuprentsmiðjuna h.f.,
ef þér þurfið að láta prenta.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
prentar fyrir yður
fljótt og vel.
ÞRIÐJUDAGUR
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturlæknir er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Söngvar úr
tónfilmum og óperettum.
20.30 Erindi: Kveðjur vestan um
haf (Zófónías Þorkelsson
frá Winnipeg).
20.00 Fréttir.
20.55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Sónata fyrir eelló og píanó,
Op. 102. nr. 2, eftir Beethov-
en (celló: dr. Edelstein; pí-
anó: Árni Kristjánsson).
21.15 Fiðlukonsert eftir Lalo.
21.45 Fréttir.
Dagskrárlok.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir skopleikinn Stundum og
stundum ekki kl. 8,30 í kvöld, en
ekki á fimmtudag. eins og venju-
lega. Að þessari sýningu verða
nokkrir aðgöngumiðar seldir á
1.50 stk. Sennilega eru aðeins 1
eða 2 sýningar eftir á þessum
skemmtilega leik.
Póstferðir, 29. maí 1940.
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-
Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss-
og Flóapóstar. Laugarvatn. Hafn-
arfjörður. Álftanesspóstur. Lax-
foss til Vestmannaeyja. Akranes.
Til Reykjavíkur: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss-
og Flóapóstar. Hafnarfjörður. —
Akranes.
Forðum í Flosaporti,
revyan 1940, verður sýnd annað
kvöld kl. 8V2.
s.o.s.
Árásarflugvélin 803 kallar, heit-
ir myndin, sem Nýja Bíó sýnir
núna. Er það amerísk flugmynd
frá Warner Bros, gerð með aðstoð
ýmsra embættismanna í flugher
Bandaríkjanna. Aðalhlutverkin
leika: James Cayney, Margaret
Lindsay og Pat O’Brien.
Söngfélagið Harpa
hefir æfingu annað kvöld kl.
8.30 í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu.
Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli í kvöid kl.
8V4, ef veður leyfir.
Meistaramótið.
Kappleikurinn í kvöld er frest-
að.
HIÐ NÝJA VOPN HITLERS
Frh. af 3. síðu.
Þjóðverja komst viðstöðulaust
of nálægt hinum sterku varn-
arvirkjum. Önnur brúin var að
vísu sprengd áður en mikið lið
komst yfir hana með þeim
hætti að belgiskur liðsforingi
fórnaði lífi sínu til þess með
fádæma hugrekki og snarræði.
En hvers vegna „mistókst"
þetta? Hvort mun sú skýringin
ekki reynast rétt á sínum tíma,
að hér hafi verið um landráð að
ræða? Ekki væri það ótrúlegt.
Annars hafa Belgar nú eins
og í síðasta ófriði sýnt fádæma
þrek og hugrekki og hjá þeim
hefir borið mikið minna á naz-
istum upp á síðkastið en í
nokkru öðru landi, er að Þýzka-
landi liggur. Hversu margra
flugvéla, skriðdreka og her-
manna virði hafa þeir landráða-
menn ekki verið Hitler, sem
létu sér ,,mistakast“ að
sprengja brýrnar yfir Alberts-
skurðinn. Frh.
Finnnr Jónsson bom-
nn tll Sviþjóðar.
OÍMSKEYTI hefir borizt
^ frá Finni Jónssyni al-
þingismanni, og er hann nú
kominn til Svíþjóðar.
Hann er þar nú í viðræðum
við sænska síldarkaupendur
fyrir hönd síldarútvegsnefndar
um kaup á íslenzkri síld.
Finnur Jónsson kom, eins og
kunnugt er, til Kaupmanna-
hafnar rétt áður en Þjóðverjar
hertóku landið, og þaðan hefir
hann ekki komizt fyrr en nú.
Ekkert er vitað um það, hve-
nær Finnur kemst heim.
Úthlntnn matvæla-
seðla hefst á morpn
UTHLUTUN matvælaseðla
fyrir næstu tvo mánuði
hefst á morgun og stendur auk
þess fimmtudag og föstudag.
Margir hafa flutt síðan úthlut-
un fór fram síðast og er fólk
beðið að tilkynna flutninga sína
á sérstökum eyðublöðum í
skrifstofunni, en gefa sig fram
fyrst með gamla heimilisfang-
inu. Með þessari úthlutun
minnkar sykurskammturinn og
kornvöruskammturinn.
Fjðldi tilboða umjjð
Blegustaði fyrir
trillubáta.
C? ÍÐAN Fiskifélagið gaf
^ út auglýsingu sína um
tilboð í viðlegustaði fyrir
trillubátaflotann héðan af
Suðurlandi, hafa fjölda mörg
tilboð borizt sérstaklega af
Vestur- og Austurlandi.
Jafnframt hafa trillubátaeig-
endur snúið sér til Fiskifélags-
ins, en þó vantar upplýsingar
um trillubáta, sérstaklega af
Suðurnesjum.
Engir samningar munu enn
hafa verið gerðir um viðlegu-
staði, en gera má ráð fyrir, að
samningar verði gerðir og
og fjöldi trillubáta héðan fari
til verstöðva vestur, norður og
austur.
Togari selar fyrir
yfir 6 bús. pand.
SÍÐUSTU DAGA hefir
sala á ísfiski gengið
mjög vel, eftir því sem
sagt er.
Einn togari seldi núna
fyrir yfir 6 þúsund sterl-
ingspund og bátar seldu
fyrir um og yfir 2 þúsund
sterlingspund.
Undanfarið hafa ísfisk-
sölurnar annars verið
mjög með lélegra móti. En
nú virðist verðið aftur
vera að hækka.
RÆÐA REYNAUDS
Frh. af 1. síöu.
Undir forystu Weygands og
Petains hafa franskar hersveitir
tekið sér trausta varnarstöðu.
Vér höfum varizt, — vér höldum
áfram að gera það — og með
þvi að gera það, munum vér
sigra.“
Elzti sonnr pýzka ferón-
prlnsins látinn af sárum
Vilhjálmur, elzti sonur þýzka
krónprinsins fyrrverandi, er lát-
inn af sárum, sem hann hlaut í
orustu á vesturvígstöðvunum.
Hann var 33 ára að aldri og
var lautinant í þýzka hernum.
TÓLF HUNDRUÐ BÖÍ?N I SVEIT
Frh. af 1. síðu.
verður gert, sem mögulegt er,
tii þess að koma sem flestum
börnum burtu í sumar.“
— Hafa mörg tilboð borizt
frá bændum um að taka börn til
dvalar?
,,Nei, sárafá, og þau, sem hafa
borizt, eru ekki hagkvæm.
Margir af þeim, sem hafa sent
tilboð, gera það að skilyrði að
fá meðlag með hverju barni allt
að 60—65 krónur á mánuði.
Þetta er vitanlega allt of hátt
og fullyrða má að sárafáir
Reykvíkingar geti látið börn
sín í sveit með slíku meðlagi.
Þá er verið að rannsaka
möguleika fyrir því að fá styrk
úr Thorkilliisjóði til að koma
börnum í sumardvöl og verður
fundur haldinn um það í dag.
Margir hafa staði fyrir börn sín,
en allmargir eiga erfitt með að
borga fyrir þau og það er ein-
mitt verið að rannsaka mögu-
leika fyrir aðstoð við þetta
fólk.“
— Hafa kennarar barnaskól-
anna lokið rannsókn sinni á því,
hve mörg börn þurfa að komast
í sveit héðan úr Reykjavík?
„Rannsókn þessari er að
verða lokið. Úr skólahverfi
Austurbæjarbarnaskólans hafa
komið um 500 umsóknir og gera
má ráð fyrir að úr hinum skóla-
hverfunum muni koma a. m. k.
um 700 umsóknir.“
í sambandi við ummæli Sím-
onar um Thorkilliisjóðinn skal
það tekið fram, að þessi sjóður
er mjög öflugur og er ætlaður
til hjálpar börnum.
Vitanlega væri heppilegast
að nota styrk úr Thorkilliisjóði
til þess að reka stór barnaheim-
ili í sumar í einhverjum af hin-
um stóru skólum landsins.
,Forðnm i Flosaporti‘
ÞÁÐ eru margir, sem halda
því fram, að þegar um
revyur eða gamanleiki sé að
ræða, þá sé það tóm vitleysa,
sem ekki eigi í raun og veru rétt
á sér á leiksviði. Sem betur fer,
er þessi skoðun mjög að breyt-
'ast I seinni tíð, þar eð menn hafa
séð nauðsyn slíkra leikja, bæði
sem uppeldismeðal og sem tæki
í þágu liklistarinnar. Sem upp-
eldismeðal hafa gamanleikir sér-
staklega mikið verðmæti, því
^AMIA mo
Keppinantar.
(Rivalinder).
Framúrskarandi nútíma-
kvikmynd frá New York.
Aðalhlutverkin leika:
KATHARINE HEPBURN,
GINGER ROGERS og
ANDREA LEEDS.
NYJA BiO
s. o. s.
Árásarflugvél 803 kitllar
Ovenju spennandi amerísk
kvikmynd, gerð með að-
stoð ýmsra hátt settra for-
ingja úr flugher Banda-
ríkjanna. Aðalhlutverkin
leika:
JAMES CAGNEY,
MARGARET LIND-
SAY og PAT O’BRIEN
Börn fá ekki aðgang.
ŒgsmmssmgmBm
LEIKFELAG REYKJAVIKUR.
Stnndum «g stundnm ekki
Sýning í kvöld kluklcan 8V2.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag.
Nokkrir miðar seldir á 1.50.
undir öllum kringumstæðum
þurfa menn að geta séð sjálfa
sig eða meðbræður sína í spegli
samtíðarinnar. Hvað viðvíkur
leiklistargildi gamanleikja er ó-
hætt að fullyrða, að varla er
betra meðal til á því sviði til
þess að kenna leikurum leik-
sviðstækni og andlitsleik (rnimik)
Revya sú, er nú er sýnd hér
í bænum, má fullyrða að uppfyll-
ir öll þau skilyrði, til þess að
skapa þessa möguleika á leik-
sviði. Er hún í senn sprenghlægi-
leg og hæfilega góður spegill á
ýmislegt, sem betur mætti fara í
þjóðfélagi voru. Fer hér saman
gott eíni, öruggur leikur og
skrautleg leiksvið, svo óhætt er
að fullyrða, að hvað íburði og
skrauti viðvíkur stendur hún
ekki að baki öðrum leikritum,
sem hér hafa sézt. Lögin eru
hvert öðru fallegra og smekklega
valin, enda sungin af beztu ungu
kröftum, sem við höfum á að
skipa. Er því í stuttu máli sagt
óhætt að hvetja alla til þess að
sjá leik þenna 0g láta ekki á-
hyggjur dagsins glepja sér sýn,
heldur gleyma þeim eina kvöld-
stund, og er þá án efa ekki til
heppilegra tækifæri heldur en aö
fara og sjá „Forðum í Flosa-
norti“.
H. G.
Vaxandi vHMnaiir
Hízkri ár( s áBretianiisesrla
Einnig írland býr sig nú undir stríð.
ÞAÐ er alis ekki reynt að
leyna því, segir brezka út-
varpið í gærkveldi, að hættan
við innrás í Bretland hefir vax-
ið mikið, og eldarnir á Frakk-
landsströndum, sem sjást frá
suðurströnd Englands, minna
menn á, hve nærri hætturnar
hafa færzt. En það er jafnframt
leidd athygli að því, að Bretar
verði æ betur undir það búnir
að mæta þeim.
„Yorkshire Post“ segir, að ef
Hitler geri tilraun til innrásar
í England, hætti hann á meira
en nokkru sinni og muni koma
í ljós, að aldrei hafi hann farið
glæfralegar að ráði sínu. „Dai-
ly Mail“ segir, að þjóðin geri
sér ljóst, hvaða hættur séu á
ferðum — og það sé fyrsta skil-
yrðið til þess að komast á sig-
urbrautina.
iiiand býr sig undir árás.
Á írlandi (Eire) hefir verið
fyrirskipað, að herinn skuli
aukinn svo, að í honum verði
jafnmargir menn og mest er
gert ráð fyrir, ef landið ætti í
styrjöld. Jafnframt er unnið að
því að búa herinn vopnum og
vistum og sjálfboðaliðsskrif-
stofur hafa verið opnaðar víða
um land.
Jafnframt er unnið að því að
uppræta alla þjóðhættulega
starfsemi í landinu, og hafa
verið gerðar húsrannsóknir á
mörgum stöðum, og fjölda
margir menn handteknir, sem
grunaðir eru um njósnir eða
aðra starfsemi hættulega rík-
inu.
.1 O. 6.
MÍNERVA nr. 172. Fundur annað
kvöld. — Kosning fulltrúa á
stórstúkuþing. Skýrsla frá Um-
dæmisþingi 0. fl. Æt.
DRENGJAFÖT, matrósaföt,
jakkaföt, frakkar. Sparta, —
Laugavegi 10, sími 3094.
FORNSALAN, Hafnarstræti
18, kaupir og selur ný og notuð
húsgögn, lítið notuð karlmanna-
föt o. fl. Sími 2200.