Tíminn - 15.02.1963, Síða 16
íflttl
Föstudagur 15. febrúar 1963
39. tbl. 47. árg.
Blómlegt
starf KEA
ED-Akureyri, 14. febrúar.
í FYRRADAG var haldinn fundur
í félagsráði KEA í Gildaskála KEA.
Maeftir voru 30 fulitrúar frá deild-
um félagsins, sem nú eru 24 talsins.
Félagsmenn í hinum ýmsu deildum
félagsins eru nú 5318 og fastráðnir
starfsmenn munu nú vera um hálf't
flmmta hundrað.
730 MEIRAR EN
VATNIÐ EKKERT
ÞJ—Húsavík, 14. febr.
Borinn er nú kominn 730 metra
iilSur, en ennþá finnst ekkert
vatn. í nótt urðu bormenn varir
við það, að' kælivatnið hvarf jafn-
óðum úr hoiunni. Við rannsókn
kom í ljós, að þeir höfðu hitt á
sprungu, en ekkert vatn hefur
enn komið í ljós. Mun haldið áfram
aö dýpka þessa holu niður í a.m.
k. 1000 metra, þar eð mælingar
sýna, að hitinn vex, eftir því sem
Cgðar dregur.
REYKJANES
AUKAKJÖRDÆMISÞING Fram-
sóknarmanna i Reykjancskjör-
dæmi verður iialdið sunnudaginn
17. febrúar n. k. kl. 14 að Tjarnar-
götu 26 í Reykjavík. Dagskrá: 1)
Jón Skaftason alþingismaður flyt-
ur ræðu um stjórnmálaviðhorfið.
2) Ákveð'ið framboð við alþingis-
kosningarnar 1963. 3) Önnur mál.
— Rétt lil setu á þinginu hafa
þeir sömu, er sátu kjördæmisþing-
ið í október síðastliðnum.
SKORIN
UPP MED
HARINU
GS-ísafirði, 14. febrúar. —
Fyrir nalkkrum dögum fór
ung blómarós, sem vinnur á
simstöðinni hér, á hár-
greiðslustofu, sem út af fyr-
ir sig er ekki í frásögur fær
andi. En sem hún sat undir
hárþurrkunni með rúllur í
h. rinu fékk hún svo heiftar
legt botnlangakast, að flytja
varð hana á sjúkrahúsið í
svo miklum flýti, að ekki
vannst tími til að taka úr
hárinu á henni. Þar var hún
svo skorin upp, með rúll-
urnar í hárinu. Uppskurð-
urinn heppnaðist vel sem
oetur fór, og senn mun ung
frúin svara aftur í símann.
í skýrslu framkvæmdastjórans,
Jakobs Frímannssonar, kom fram,
að vörusala félagsins í flestum
deildum þess hefur aukizt á árinu
sem leið og meðalaukning nemur
12—14%. Vörusala verksmiðjanna
hefur einnig aukizt, einkum hjá
smjörlíkisgerð, Sjöfn og pylsugerð
inni. Innlögð mjólk á árinu var
16.183.083 lítrar og er það um
7% aukning frá árinu áður. Út-
borgað var til framleiðenda mjólk
urafurða á árinu kr. 56.059.668,75
eða sem næst 346 aurar á lítra.
í sláturhúsum félagsins var alls
slátrað 49,974 kindum og nam
kjötþunginn 737.079 kg, eða um
4% meira en árið áður. Ullarinn-
legg nam 62,588 kg og er þar um
sama magn að ræða og árið áður.
í hraðfry-stihúsum félagsins var
unninn mun meiri fiskur en árið
áður. Þau eru f Hrísey og á Dal-
vík og þar voru unnin 912.462 kg.
fisks og er það 13% aukning frá
fyrra ári. Á saltfiskframleiðslu
varð 4,5% aukning.
Allmikið var um verklegar
framkvæmdir á árinu. Opnuð var
ný kjörbúð að Strandgötu 25, lok-
Framhald á 15. síðu.
FLEIRI
EINN
ÁRÁSARMADUR?
JK-Reykjavík, 14. febrúar.
MAÐURINN, sem tekinn var fast-
ur í gær, grunaður um árásirnar á
kvenfólkið, játaði I morgun að
vera valdur að meirihluta árásanna,
sem sagt hefur verlð frá i fréttum.
Síðar tók hann aftur játninguna, og
nú er upplýst, að fleiri en hann
hafa gert kvenfólki ónæði á götum
bæjarins í vetur.
Tvenn atvik valda því, að lög-
reglan grunar fleiri um slíkt. —
Annað er, að konan, sem ráðizt
var að í Norðurmýrinni á mánu-
dagskvöldið, kannast ekki við hinn
handtekna sem hinn seka. Auk
þess hafði maðurinn ávarpað hana
og farið að tala um veðrið, um
leiff og hann þreif til hennar, en
í hin skiptin hafði árásarmaðurinn
ekki mælt orð af vörum. Þá var
í gærkveldi kvartað yfir tveimur
árásum, eftir að handtekni maður
inn var kominn á bak viff lás og
slá. Um hálf átta-leytið var' ráð-
izt á 15 ára stúlku við anddyri
Hamrahlíðarskólans. Hún sló til
hans með tösku, gat losað sig og
hljóp undan honum. Hann elti
hana skamma hríð og gafst síðan
upp. Innan klukkustundar frá þess
um atburffi var kært yfir því, að
maður væri að hræða börn inni
i Laugardal. Þar handtók lögregl-
an drukkinn mann, sem líklegt er
talið að hafi verið að hræffa börn-
in, enda var hann undarlegur í
hátterni.
í dag hafa nokkrar konur verið
látnar segja álit sitt á því, hvort
handtekni maðurinn sé hinn sami
og árásarmaðurinn. í flestum til-
fellum bendir allt til þess, aff
hann sé rétti maðurinn, en oft er
erfitt að átta sig á því, þar sem
venjulega var dimnu, þegar árás-
irnar voru framkvæmdar, og lýs-
Framhald á 15. síðu.
„Dimmuborgir”
frumsýndar næst
UM NÆSTU mánaðarmót verður
frumsýnt nýtt íslenzkt leikrit í Þjóð
leikhúsinu og er það leikritið
„Dlmmuborgir" eftir Sigurð Róberts-
son. Þetta er sjötta frumsýnlngln
hjá Þjóðlelkhúsinu á þessu lelkári.
Höfundur leiksins, Sigurður
Róbertsson, er fæddur að Hall-
gilsstöðum í Fnjóskadal j Suður-
Þingeyjarsýslu árið 1909 Sigurð-
ur fluttist til Akureyrar og var
búsettur þar í mörg ár og þar hóf
hann ritstörf sín. Árið 1945 flutt
ist hann til Reykjavíkur og hefur
dvalið hér síðan. Ungur að árum
fór Sigurður að fást við ritstörf
og kom fyrsta bók hans út árið
11938 og var þáð smásagnasafn,
er heitir „Lagt upp í langa ferð".
Á næstu árum hafa komið út
I eftir hann nokkrar bækur, bæði
' skáldsögur og smásögur og einnig
[ befur hann gefið út tvö leikrit.
! „Maðurinn og húsið“ 1952 og
|, Uppskera óttans“ 1955
Dimmuborgir er fyrsta leikrit
! Sigurðar, sam hefur verið sýnt á
leiksviði
i Æfingai a leiknum hafa nú
staðið yfir j nokkurn tíma og er
Gunnar Eyjólfsson leikstjóri, en
aðalhlutverkið er leikið af Ævari
Kvaran. Auk hans fara þessir leik
arar með stór hlutverk í leiknum
Valur Gíslason, Rúrik Haraldsson,
Sigríður Hagalin, Kristbjörg
Kjeld, Bryndís Pétursdóttir
Brynja Benediktsdóttir og Jón
Sigurbjörnsson.
Dimmuborgir er nútímaleikrit .
tíu atriðum og gerist í Reykjavík
Leiktjöld eru gerð af Gunnari
Bjarnasyni.
(Frá Þjóðleikhúsinu).
•k MONIKA RAGBY, 21 árs
gamall Svíi, var kjörinn „ung-
frú Sámeinuð'u þjóðirnar“ í
samkeppni á sunnudaginn var.
Monika ar tízkusýningardama
heima í Stokkhóimi.
Skipin
merkt
eftir
skoðun
MB-Reykjavík, 14. febrúar.
Eins og skýrt var frá í blaðinu
í dag, er enginn opinber aðili,
sem sér um það, að óskoðuð skip
séu ekki á sjó, og sumir telja
vandkvæðum bundið að koma
sliku eftirliti á. í þessu sambandi
er rétt að minna á tillögu, sem
síðasti aðalfundur slysavarnadeild
arinnar Ingólfs hór í Reykjavík
samþykkti og þar var borin fram
af skrifstofustjóra Slysavawiafé-
lags íslands, Henry Hálfdánar-
'Syni, en þar segir m. a.: „Þá ger-
ir fundurinn það að tillögu sinni
til skipaskoðunar ríkisins, að á
skoðuð skip verði sett, við hverja
skoðun, sérkennileg og áberandi
merki þess, að skoðun hafi farið
fram, svo að það sé sýnilegt
áhöfninni og hverjum, sem vill'
fullvissa sig um það“.
Vissulega ætti það ekki að vera
ofraun skipaskoðun ríkisins og
henni vafalaust kærkomið, að
koma slíkum merkjum greinilega
fyrir. Ef til vill myndu sjómenn
þá síður ráða sig á skip, sem
hættuleg eru öryggi þeirra, og
sömuleiðis ætti að vera unnt fyrir
lögreglu allra útgerðarstaða að
stöðva fljótlega öll þau skip, sem
ekki hafa sína pappíra í lagi,
hvað skoðun snertir.
AKRANES
FRAMSÓKNARFÉLAG Akraness
lieldur skcnnntisamkoinu í félags-
heimili sínu, Sunnubraut 21, n.k.
sunnudag kl. 8,30. Spiluð verður
framsóknarvist og sýndar kvik-
myndir. Aðgöngumiðasala verður
viff innganginn. Öllum heimill að-
gangur.
SIGURÐUR RÓBERTSSON
— höfundur „Dimmuborga".