Alþýðublaðið - 06.06.1940, Qupperneq 1
r
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARGANGUR FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1940. 129. TÖLUBLAÐ
KORT AF NORÐUR-FRAKKLANDI OG BELGÍU.
Vígstöðvarnar ná nú frá Abbeville, neðst við Somme (til vinstri
á kortinu), meðfram þeirri á, um Amiens og Péronne, til St.
Quentin, þaðan suðaustur að ánni Oise, sjá La Fére, og suður að
fljótinu Aisne, milli Laon og Soissons. Þaðan liggur herlínan
meðfram Aisne, um Rethel og austur að Montmedy. Þar fyrir
austan tekur við Maginotlínan.
Brezkar loftárásir á maro-
ar stærsta borgir við Rin.
Logarnir úr oliubirgðarstöðvum
og verksmiðjum sáust langt að.
"D REZKA flugmálaráðu-
neytið tilkynnti í gær,
að brezkar sprengjuflugvél-
ar hefðu gert stórkostlegar
loftárásir á olíubirgðastöðv-
ar, járnbrautarlínur og ýmsa
hernaðarlega mikilvæga
staði og ýmsa hernaðarlega
staði meðfram Rín norðan
frá bænum Emmerich og alla
leið suður að Mannerheim.
Varpað var mörg hundruð
sprengikúlum og íkveikju-
sprengjum á fjöldamarga staði
við þessar tvær borgir og við
stóriðnaðarborgirnar Essen,
Diisseldorf, Dortmund, Köln og
Frankfurt am Main. Urðu af
miklar sprengingar og gaus
víða upp eldur, sem sást í
margra mílna fjarlægð. Er talið
að tjónið bafi orðið gífurlegt
bæði á olíubirgðastÖðvum og
vopnaverksmiðjum.
Franskar sprengjuflugvélar
gerðu loftárásir í gær á marga
staði í Suður-Þýzkalandi, þar á
meðal á Munchen, Angstborg
og stóriðnaðarborgina Ludwigs-
hafen við Rín.
Þjóðverjar héldu í gær áfram
loftárásum sínum á franskar
borgir, aðallega í Mið-Frakk-
landi, en greinilegar fregnir
hafa ekki enn borizt af þeim.
Ein loftárásin var gerð á Rouen.
Samkvæmt tilkynningum frá
innanríkisráðherranum brezka
hafa Þjóðverjar einnig gert
loftárásir á England. Sprengi-
Bretar hafa fieiri
flngvéiar en þegar
sókoHitlersbyrjJI
VÍ var lýst yfir í
Lundúnaútvarpinu í
gærkveldi, að þrátt fyrir
flugvélatjónið í viðureign-
inni á vesturvígstöðvun-
um, ættu Bretar nú fleiri
flugvélar en í byrjun hinn-
ar þýzku sóknar og væri
flugvélafloti þeirra stöð-
ugt að vaxa í hlutfalli við
hinn þýzka.
Þetta er skýrt þannig,
að flugvélatjón Breta hafi
ekki verið mikið, flugvéla-
framleiðsla þeirra fari ört
vaxandi og innflutningur
á flugvélum frá Ameríku
einnig.
kúlum og íkeikjusprengjum var
varpað yfir staði í Lincolns-
hire, Essex og Sussex, en tjón
varð lítið, þar sem sprengikúl-
urnar komu víðast niður á ber-
svæði. Eldur kviknaði í þökum
á tveimur verksmiðjum, en var
fljótlega slökktur. Ein sprengi-
kúla kom niður um þak á húsi
þar sem kona svaf með' tvö
börn sín, og sakaði ekkert
þeirra, því að kúlan sprakk
ekki.
Hln nýja sókn Þjóðverja
er enn á byrjunarstigl.
Fyrirætlanir þeirra sagðar enn óljósar.
OÓKN ÞJÓÐVERJA við Somme og Aisne, sem færðist í4~
^ aukana seinnipartinn í gær, en hlé varð á í nótt, hófst
aftur í morgun. Eru orusturnar ákafastar á svæðinu frá
Amiens við Somme austur að veginum milli Laon og Sois-
sons við Aisne.
Talið er í tilkynningum Bandamanna, að sóknin sé
enn á byrjunarstigi, og óvíst hver fyrirætlun Þjóðverja sé,
hvort heldur sú, að sækja yfir Somme suður með Ermar-
sundi til þess að ná hafnarborgunum Dieppe og Le Havre
á sitt vald, eða hin að reyna að brjótast í gegn milli Oise
og Aisne þar sem skemmst er til Parísar, eða ekki nema
rúmir 100 km.
Þjóðverjar héldu því fram í tilkynningum sínum í
gærkveldi, að þeir hefðu þegar brotizt yfir Somme á öllu
svæðinu milli Abbeville og Ham, suðaustur af Amiens.
Frakkar viðurkenndu, að þeir hefðu á stöku stað komizt
með skriðdreka gegnum fremstu vígstöðvar þeirra, en töldu
sig þó hafa haldið öllum þýðingarmiklum stöðvum og
horfurnar ekki vera slæmar.
SóbDlnni hagað Itkt og
i lieimstyrjöldinm.
Talið er að Þjóðverjar hafi
þarna 40 herfylkjum fótgöngu-
liðs á að skipa og 5 berfylkjum
búnum vélknúnum hernaðar-
tækjum. Til samanburðar má
geta þess, að fullyrt er, að þeir
hafi haft 65 herfylki fótgöngu-
liðs í orustunum í Flandern og
15 herfylki með sltriðdrekum,
bifhjólum og bifreiðadeildum.
Það er tekið fram í tilkynn-
ingum Bandamanna, að áhlaup
Þjóðverja við Somme og Aisne
hafi í gær verið með mjög líku
móti og í heimsstyrjöldinni.
Þau hefðu byrjað með ógurlegri
stórskotahríð á vígstöðvar
Frakka og Breta (það er tekið
fram í fréttunurn, að brezkur
her verji nokkurn hluta varnar-
línunnar sunnan við Somme) og
síðan liafi ógrynni fótgönguliðs
sótt fram í skjóli skothríðarinn-
ar.
Eini verulegi munurinn á
þessari sókn og áhlaupum Þjóð-
verja í heimsstyrjöldinni er
sagður vera sá, að þeir láti nú
einnig steypiflugvélar taka þátt
í árásinni, en í gær hafi ekki
verið teflt fram nema tiltölu-
lega litlu af skriðdrekum, og er
ekki talið óhugsandi, að það
stafi af því ógurlcga skrið-
drekatjóni, sem Þjóðverjar hafa
orðið fyrir í orustunum í Flan-
dern.
Sagt er að Weygand, yfir-
hershöfðingi Frakka og alls
Bandamannahersins, sé þó við
því búinn, að skriðdrekaárás-
irnar fari aftur í vöxt, og hafi
fundið upp nýja hernaðaraðferð
til þess að gera þær óskaðlegar.
Á þessi aðferð að vera falin í
því, að dreifa vörninni á stærra
svæði en hingað til, þannig að
hægt sé að umkringja skrið-
drekana, þótt þeir brjótist í
gegnum aðalvígstöðvarnar. Eru
þær hersveitir, sem þannig er
dreift, útbúnar sérstökum byss-
um til þess að vinna á skrið-
drekunum.
Eftirmaður Weygands i
Vestnr-Asfu.
Middlehouse herforingi, sem
tekur við herstjórninni af Wey-
gand yfirherforingja í hinum ná-
iægu Austurlöndum, er kominn
til Ankara, og hefir rætt þar við
Tyrklandsforseta og æðstu her-
foringja Tyrklands.
, í Beirut í Sýrlandi ræddi hann
við æðstu embættismenn og her-
O EYNAUD, forsætisráð-
herra Frakka, tilkynnti
í gærkveldi breytingar, sem
gerðar hefðu verið á stjórn
hans. Er aðalbreytingin í því
fólgin, að hann sjálfur tekur
við utanríkismálaráðuneyt-
inu til viðbótar við hermála-
ráðuneytið, sem hann hefir
Hrundvallarlagadag-
urinn i Ðanmörbn.'
Kristján konnngur á fundi
rikisstjórnarinnar.
RISTJÁN X. konungur D.an-
■**■ merkur kom í dag tíl fund-
ar við ríkisstjórn Dana í tilefni
af því, að 25 ár eru iiðin frá
gildistöku hinnar nýju stjórnar-
skrár Danmerkur, en hun gekk
í gildi 5. júní 1915.
Stauning forsætisráðherra á-
varpaÖi konung og vottaði hon-
urn þakklæti fyrir hönd dönsku
þjöðarinnar.
Tilkpniogfrðbrezkn
herstjðrninni hér.
Frá yfirstjórii brezka
seMiðsins hefir Alþýðrj-
blaðinu borist eftirfar-
andi:
13REZKUR hermaður á íslandi
■*■“* hefir verið sakaður um ó-
siðsamlegt athæfi í garð stúlku-
barns„
Rannsókn var þegar hafin og
framkvæmdu hana brezkir her-
foringjar með aðstoð lögreglu-
stjórans.
Sökudólgurinn hefir fundist
og er nú í fangelsi og bíður
réttarhalds fyrir herrétti. —
Brezku yfirvöldin hafa stungið
upp á því, að fulltrúa íslenzku
ríkisstjióirnarinnar verði boðið
að vera viðstaddur réttarhald
þetta.
gegnt síðan breytingin var
gerð á stjórninni í maí.
Daladier, sem þá tók við
utanríkismálaráðuneytinu í
stað hermálaráðuneytisins,
og var forsætisráðherra
Frakka á undan Reynaud,
hverfur nú alveg úr stjórn-
inni.
foringja Frakka.
Flýjar breytingar gerðar ð
Mnskn sljórninni í gær.
------1-----
Daladler hverfur úr stjérninni.