Alþýðublaðið - 15.06.1940, Blaðsíða 4
LAUGAlDÁGUR 15. JONMS49.
Öll prentup fljótt og
vel af liendi leyst.
Álþýðuprentsmiðján h'.f?
LAUGARDAGUR
Næturlæknir er Pétur Jakobsson,
Leifsgötu 9, sími 2735.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Gamlir dansar.
20.00 Fréttir.
' 20.30 Erindi: Á heiðum uppi (Sig-
urður Helgason kennari).
21.00 Hljómplötur: Norrænir kór-
söngvar.
21.10 Útvarpstríóið: Einleikur og
tríó.
21.30 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
75 ára er í dag
síra Matthías Eggertsson, fyrrum
prestur í Grímsey. Ber hann nafn
síra Matthíasar Jochumssonar, föð-
urbróður síns. en hann er uppal-
inn á heimili þjóðskáldsins.
Gullbrúðkaup
eiga í dag hjónin Stefán Jóns-
son og Guðfinna Sigurðardóttir að
Öndólfsstöðum í Reykjadal. Hafa
þau búið góðu búi í 32 ár á Önd-
ólfsstöðum, komið upp stórum og
og mannvænlegum barnahóp og
byggt og ræktað jörð sína mjög
myndarlega.
Kaupsýslutíðindi
19. tbl. yfirstandandi árg. er ný-
komið út. Hefst það á yfirliti yfir
gjaldeyris og bankamál og verð-
lag. Þá er skýrsla um reikninga
Landsbanka íslands 1939 og dóm-
ar frá Bæjarþingi Reykjavíkur.
Menntaskólanum
vrður sagt upp í sal neðri deild-
ar Alþingis kl. 10 á mánudags-
morgun.
K.R.
hefir gönguæfingu í dag kl. 5.30
í Kveldúlfsporti (gengið inn frá
Vatnsstíg). Allir, sem taka þátt í
skrúðgöngu 17. júní, eiga að mæ.at
Rauði Kross íslands
getur nú, með aðstoð Alþjóða-
Rauða Krossins komið stuttum orð-
sendingum bréflega frá fólki á ís-
landi til náinna vina og vanda-
manna erlendis í Danmörku, Nor-
egi og Þýzkalandi. Þeir, sem óska
að koma slíkum orðsendingum
snúi sér til skrifstofu Rauða
Kross íslands, Hafnarstræti 5, kl.
14—16 alla virka daga og verða
þar veittar nauðsynlegar leiðbein-
ingar í þessu efni. Stjórn Rauða
Kross íslands.
Eggert Stefánsson
söngvari hélt íslenzka hljóm-
leika í fyrrakvöld við ágætar und-
irtektir. Er þess að vænta að
söngvarinn láti aftur til sín
heyra, áður en langt um líður.
SUNNUDAGUR:
Helgidagslækniir er Alfred
Gíslason, Brávallagötu 22. sími:
3894.
Næturlæknir er Karl S. Jónas-
son, Sóleyjargötu 13, sími 3925.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfs-Apóteki.
Verkafélk i
Ráðningarstofa landbúnaðar-
ins í Alþýðuhúsinu
er opin kl. 6—9 síðdegls alla
virka daga nema laugardaga.
SÍMI 13 2 7.
Margar ágætar vistlr í boði.
1 1 ’1 . . .....1
Plöntur og grænmeti selt dag-
lega frá kl. 9—12 á daginn við
Steinbryggjuna og á laugardög-
um einnig á torginu við Njálsg.
og Barónsstíg.
CAIVILA
Á flótta.
(Prison Farm).
Spennandi amerísk saka-
málakvikmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Lloyd Nolan,
Shirley Ross og
John Howard*.
Aukamynd:
Skipper Skræk-teiknimynd.
Börn fá eltki aðgang.
mm bio
Neyðarópið í
frumskóginum
Spennandi og viðburðarík
kvikmynd er sýnir sér-
kennilega viðburði er ger-
ast í frumskógum Afríku,
Aðalhlutverkið leikur of-
urhuginn HARRY PIEL,
sem er eftirlætisleikari
allra þeirra er vilja óvenju
spennandi 'myndir.
Börn fá ekki aðgang.
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlái og jarð--
arför dóttur okkar og systur,
Ebbu Unnar Jónsdóttur,
og öllum hinum mörgu, nær og fjær, sem fyri- og síðar sýndu:
henni vinsemd og kærleika biðjum við guðs blessunar.
Halldóra Jónsdóttir, Jón Sigurðsson og systkini.
Gunnlaugur Einarsson,
áður bóndi í Einarsnesi, andaðist þ. 13. þ. m. að heimili sínu,
Eskihlíð A, Reykjavík.
Jarðarförin fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 22. þ,
m. og hefst með húskveðju að heimili hins látna kl. 1 e. h.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Friðrikka Friðgeirsdóttir. Anna Gunnlaugsdóttir.
Geir G. Gunnlaugsson. Björn Gunnlaugsson.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
StRndum og stDndmn ekki
Sýning annað kvöld kiukkan SVz-
Aðgöngumiðar frá 1,50 stykkið
Seldir frá ki. 4—7 í dag.
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu annað kvöld — sunnudag-
inn 16. júní.
Hljómsveit undir stjórn Fritz Weisshappel.
Aðgöngumiðar frá kl. 7 annað kvöld.
Danzaðir verða bæði gömlu og nýju danzarnir.
ÚTVARPIÐ:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.30 Miðdegistónleikar —
(plötur): Ýms tónverk.
20.00 Fréttir.
20.30 Lleikþáttur: „Njósnarinn‘,
eftir Loft Guðmundsson —
(Haraldur Björnsson o. fl.)
21.05 Hljómplötur: Frægir söngv-
arar.
21.25 Danshljómsveit Bjarna Böð-
varssonar likur og syngur.
21.55 Fréttir.
22.05 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
MESSUR:
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Bjarni Jónsson. Engin síðdegis-
messa.
í fríkirkjunni kl. 5, síra Halldór
Kolbeins.
í kaþólsku kirkjunni í Landa-
koti. Lágmessa kl. 6.30 árd. Há-
messa kl. 9 árd. Bænahald qg pré-
dikun kl. 6 síðd.
Engin messa í Hafnarfjarðar-
kirkju á morgun.
Ný tepnd liðstððv-
areldavéla.
JÓHANN FR. KRISTJÁNS-
SON bauð í gær tíðinda-
mönnum blaða og útvarps að
skoða nýja miðstöðvareldavél,
sem hann hefir gert. Hefir hann
þegar selt 10 stykki og hafa
þær reynst ágætlega og uppfyllt
þær kröfur, sem til þeirra eru
gerðar, ágætlega.
Þessi nýja vél, sem kölluð er
Sóló, er ætluð bæði til eldunar
og miðstöðvarhitunar. Aðalnýj-
ungin er sú, að reykurinn er
leiddur frá eldhólfinu undir
suðuplötur eða hringi, yfir bak-
arofninn, niður með hlið hans
allri, undir allan botninn, en
síðan undir vatnskassa, sem
liggur undir eldhólfinu. Að því
búnu fer reykurinn út í hliðar-
og bakgöng vatnskassans. Alls
staðar í þessum göngum eru tvö
faldir veggir með vatnshólfum.
Gefur reykurinn þar frá sér hit-
ann til vatns þess, sem hitar
miðstöðvarofnana, áður en
hann fer út í reykháfinn. Með
þessu móti má auk eldunar og
baksturs hita sex til sjö meðal-
stór herbergi. Vél þessi er mjög
hentug fyrir móbrennslu. Eins
og áður er getið- hefir hún
reynzt ágætlega og sízt staðið
erlendum eldavélum að baki.
ÁVARP BRETADRQTTNINGAR
Frh. af 1. síðu.
Drottningin fór mikhim virð-
ingar- og aðdáunarorðum um
frönsku þjóðina, drengilega og
frækilega baráttu franska hersins,
fórnarlund þjóðarinnar og ást til
síns fagra lands.
Land, sem er svo hetjulega
varið og elskað svo heitt af dætr-
um Frakklands, Uður aldrei undir
Iok, sagði drottningin.
Hún ræddi einnig afstöðu
brezkra kvenna, samúð þeirra i
garð hinna frönsku systra sinna,
og drottningin kvað þær einnig
mundu leggja allt í sölurnar fyr-
ir sitt land og frelsi sinnar
þjóðar og styðja frönsku þjóðina
einhuga, en barátta beggja þjóð-
anna væri sameiginleg, og fram-
tíð beggja undir því komin, að
þær ynnu sigur.
HLUTVERK STALINS
Frh. af 3. síðu.
mön-num trú um, að Stalin sé
að undirbúa úrslitabaráttuna
gegn nazismanum. En í sumum
öðrum löndum tekur enginn
þetta trúanlegt lengur, þegar
það er stöðugt að koma betur
og betur í ljós, hvílíkan banda-
mann Hitler á þar sem Stalin
er. Það verður alltaf betur og
betur ljóst, hve nánir banda-
menn Stalin og Hitler eru. Bar-
átta Stalinista gegn Hitler í
Þýzkalandi er gersamlega hætt.
Það er ekki hægt að finna eina
einustu grein gegn nazisma í
nokkru kómmúnistisku blaði,
sem gefið er út á þýzku.
En þar með er ekki öll sag-
an sögð. Menn hafa komizt að
því, að mjög náið samband er
milli ýmsra kommúnistiskra fé-
laga og yfirmanna njósnara
Hitlers. Það er hægt að trúa
þessu vegna þess, að það er
bein afleiðing af stefnubreyt-
ingu Stalins.
Þegar málin eru skoðuð í
þessu ljósi, er afstaða Stalins
til styrjaldarinnar augljós. Hit-
ler og Stalin hafa gert banda-
lag gegn Vestur-Evrópu-ríkjun-
um. Og það er Stalin, sem á
upptökin að þessu bandalagi og
hefir áformað það og undirbúið
fyrir löngu.
En Hitler þarfnast ekki
hjálpar Stalins á vesturvíg-
stöðvunum. En ef að því kæmi,
að þörf væri á her, sem þó er
„einskis virði“, þá mun Stalin
ekki láta á sér standa. Hann
getur ekki neitað Hitler um
neitt. Rás viðburðanna er hröð.
Sá tími nálgast, að hernaðar-
legar aðgerðir fari fram í Tur-
kestan og Kákasus.
Pólitískt séð hefir Stalin
brennt skip sín. Hann dansar
nú eftir sama hljóðfalli og Hit-
ler.
FLOTANN VANTAR IS
Frh. af 1. síðu.
sambandi við Isbjöminn. Var til-
lögu um þetta vísað til bæjar-
ráðs. Ekkert hefir orðið úr fram-
kvæmdum. Er það vitanlega hið
mesta sleifarlag, að flotann skuli
vanta ís, þegar öll afkoma okkar
veltur á ísfisksveiðunum, eins og
nú er.
NÝTT „FRIÐARTILBOÐ" ?
Frh. af 1. síðu.
allt undir því, að friður yrði
saminn nú, en sá friður yrði
sams konar friður og Tékkar og
Pólverjar fengu.
Erfiðleikar Hitlers munu fara
æ vaxandi því lengra sem líður,
sagði Nicolson, en aðstaða
Bandamanna þatnandi, því að
þefr hafa aðgöngu að auðlindum
heimsins.
MAÐURINN, SEM GAF STÁL-
LUNGAÐ
Frh. af 2. síðu.
hergagnaverksmiðjur og rekur
þær nú fyrir reikning brezka
ríkisins.
sem viðurkenningu fyrir hið
rausnarlega góðgerðastarf sitt.
Þegar endurvígbúnaður Breta
hófst, bauð hann fram aðstoð
sína, og hefir hann síðan unnið
sem ólaunaður ráðunautur flug-
málaráðuneytisins um flugvéla
framleiðslu. Hefir hann breytt
flestum verksmiðjum sínum í
vopnaverksmiðjur.
Daglegar loftárásir
á nýleodnr itala.
ítalir hafa ekkert samband-
við pær lengur anuað en
loftleiðina.
IKILL ÁRANGUR er sagóur
hafa oröið af árásum
brezkra sprengjuflugvéla á flug-
stöðvar Itala í Assab og Ash-
mara I Erythreu og Diredawa
og Gura í Abessiníu í gær, en
það var þriðji dagurinn í röð,
scm loftárásir vom gerðar á
þessar bækistöðvar Itala.
Sprengjuflugvélar frá Suður-
Afriku hafa einnig gert árásir á
ítalskar stöðvar syðst í ítalska
hlutanum af Somalilandi, en
ítalsbar flugvélar hafa gert árásir
á brezkar stöðvar nyrst í Kenya,
með litlum árangri.
Til bækistöðva sinna í Erythreu,,
Somaliiandi og Abessiníu geta
ítalir nú ebki flutt benzín nema
loftleiðis frá Libyu, en þaðan;
eriu 1800 km og yfir brezkt lantl
að fara. Horfir því illa fyrir flug-
mönnum Italá i nýlendunum og
Abessiniu er fram I sækir.