Tíminn - 10.03.1963, Page 2

Tíminn - 10.03.1963, Page 2
 ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Hún fékk mikið hrós, þótt ekki væru orðin mörg, móðir ungu stúlkunnar, sem hið illa vald hafði náð tökum á. Þótt hún væri grísk, og því talin trúlaus, guðlaus heiðingi að dómi Gyðinga, sem einir þóttust hafa þekk- ingu á Guði og rétt samband við hann, var hennar , trú hennar aðstaða betri að dómi meistarans, sem var höfund- ur og íullkomnari kristinnar lífsstefnu. fsraelsmenn að minnsta kosti fræðimenn þeirra og andlegir leiðtogar mundu hafa kallað fólk eins og hana hunda og þvegið sér um hendurnar, ef þeir neyddust til að heilsa því eða snerta það. Svona getur trúhræsnin verið mikil og rangtúlkun játninga og helgivenja orðið allsráðandi í framkomu og hugsunarhætti þeirra; sem telja sig standa Guði næst. Og í þeim anda er hægt að fremja jafnvel hryllilegustu glæpi í nafní trúar sinnar, æsa til styrjalda og grimmd- arverka í nafni Guðs. Og er það ’út af fyrir sig engin furða, þegar hægt er að túlka guðshugmynd sína á þann veg, að Guð sé máttur eða persóna, sem dæmi eða leyfi að dæma meginhluta mann- kyns tll eilífra' kvala og tor- tímingar, ekki eina kynslóð . þeidur allar kynslóðir allra alda. Slíkan Guð myndi vafa- laust ekki flökra við nokkr- um Gyðingamorðum eða negrafangelsunum, svo að eitthvað sé nefnt af því sem samvizku kristinna manna finnst þó nóg um að sjálf- sögðu. Hvað höfðingjarnir hafast að, í þessu tilfelli Guð sjálfur, samkvæmt slíkri trú arboðun, hinir ætla sér leyf- ist það. Það er naumast hægt að ætlast til, að menn séu betri en sá Guð. sem þeir trúa á. Sú trú, sem Kristur dáist að, er hins vegar bjargfast traust á Guði sem almætti kærleikans, ekki einhverri glansmynd ofan og utan við líf mannanna heldur krafti í mönnunum sjálfum meðal annars og sérstaklega smbr. oröin: „Guðsríki“, það er að segja valdsvið guðsandans „er hið innra í yður“, og svo kemur Páll postuli og segir: Guðs- ríki er réttlæti, friður og fögnuður, og áframhaldið er hjá Jóhannesi: „Guð er kær leikur og sá, sem er stöðug- ur í kærleikanum er stöðug- ur i Guði, og Guð er stöðugur í honum. „Hann lætur sína sól renna upp yfir vonda og góða, rigna yfir réttláta og rangláta. Sú trú, ,sem ekki gjörir manninn fyrst og fremst góð an er ekki kristin trú, jafnvel þótt hún sé kölluð svo. Gott dæmi um slíka trúrækni og trú kom fram í Alþýðublað- in í frásögn af fólki í þorpi nokkru í þýzkalandi . fyrir skömmu. Þorpsbúar voru sagðir mjög kirkjuræknir. Þeir sækja sem sagt allir messu á hverjum sunnudegi eða helgi degi og eru sílofandi Guð. En 1 þorpinu búa hjón, sem eignuðust vanskapað barn Þetta telja nágrannarnir og Guði fýrir synd eða syndir þessara ógæfusömu foreldra ,g i staö pess aó sýna sam- úð og skilning er vesalings hjónunum og sjúku barni þeirra sýnd svo mikil andúð og kuldaleg grimmd, að þau haldast þar ekki við og verða að flýja heimili sitt. Þannig getur einmitt trú- m á hið „refsandi réttlæti" án kærleika gert fólk í lút- herskri kirkju, ef það gleym- ir kærleiksboðskap Krists í vandlætingasemi rétttrúnað- arins og öllum þeim ótta og fordæmingu ásamt hroka og sjálfsánægju, sem þvi fylgir. Þegar á þetta er litið verða Gyðingaofsóknir og striðs- elæpir skiljanlegri hjá . mönnum, sem rækja samt kirkjur og bænir, sálmasöng og trúarsiðu, smbr. Eich- mann og fleiri. Þeir gætu komizt svo langt í trúhræsni sinni eða með tilbelðslu gagn vart rangri guðshugmynd, að þelr teldu sig vinna Guði þægt verk með ofsóknum og morðum, útrýmingu þess, sem þeir telja illt og skað- legt í hans augum. Þeir binda þar skqðun sína við þær kenn ingar Gamla testamentisins, þar sem Guð er látinn skipa svo fyrir, að engu skuli þyrmt í hertekinni borg og slá jafn- vel ungbörnum niður við stein, ef ég man rétt orðalag ið. „Lofið hinni refsandi reiði að komast að“, segja þeir. sem hafa svona trú. Og sömu forsendu byggjast dauða- dómar, sem meira að segja þjóðir, sem telja sig bezt kristna likt og Bretar og Bandaríkjamenp, reyna að halda fast í lögum sínum kynslóð eftir kynslóð fram á þennan dag. Og á slíkri „guðshugmynd" ■ og „guðs- trú' 'er hægt að æsa til styr;- alda og manndrápa hvenær sem er Kannske er hún und irrót eða , einn meginþáttur i þvi, hve hinar svoköjluðu kristnu þjóðir eru herskáar og hafa um aldaraðir haft for ystu í stærstu styrjöldum mannkynsins. En auðvitað er ekki hægt að komast lengra frá anda Kramh a bls 15 Febrúar-bók Almenna bókafélagsins farfýerizt hÍr? eftir Fitz Gibbon er komin út, þýSandi er Hersteinn Pálsson When the kissing had to stop — þegar kossarnir urSSu aS hætta — er nafn- ið, sem hinn enski höfundur valdi bók sinni, og gefur það nafn efnið vel til kynna. Bókin varð strax þegar hún kom út metsölubók ( enskumielandi löndum, og hefur hún hvarvetna rumskað óþægilega við lesendum sínum. — Spurningin, sem stöðugt sækir á við lestur bókarinnar, er þessi: Þetta gerist aldrei hér — eða hvað? ÓSKADRAUMURINN er peysa ur PATONS garni Mikið lita úrval Verzlunin MÖRK Álfhólsvegi 34, Kópavogi. ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Ekki svona Heldur svona Norsku Nauma mykjudreifararnir kosta aðeins kr. 15.300,00. G^} ARNI GESTSðÖN __ Vatnsstíg 3 — Sími 17930 Landrover jeppabifreið model 1962, stærri gerðin með diesel aflvél, er til sölu nú þegar, lítið notuð. Þórhallur Sæmundsson, Akranesi Keflavík — Suðurnes ðkukennsla Kenm akstuj og meðferð bifreiða fyrir hið minna próf bifrelðastjóra. Tryggvi Kristvinsson Hrmgbraut 55, Keflavík, símí 1867 Verkamenn Verkamenn óskast í byggmgavinnu við Hallveig- arstaði við Garðastræti. Upplvsingar hjá verkstjóranum á vinnústað. Verklegar framkvæmdir h.f. TIMINN, sunnudafiinn 10. marz 1963 —

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.