Tíminn - 10.03.1963, Side 6

Tíminn - 10.03.1963, Side 6
Vor lánveitinga og loforða Menn, sem vita lengra en nef þeirra nær, eru farnir að spá þvl, að vorið 1963 verði peningasælt og loforðasælt. Undanfarin misseri hafa ver- ið tekin erlend lán, sem dreg- ið hefur verið að ráðstafa, sparifé hefur verið fryst í Seðlabankanum og mikið fé hefur safnazt í atvinnuleysis tryggingasjóð. Víðs vegar hef ur líka skapazt hin mesta fjár þröng. Þess vegna er því spáð, að fyrir kosningarnar verði farið að veita úr þessum gildu sjóðum og jafnframt muni vera ávísað ríflega á þá af frambjóðendum stjórnar- flokkanna og þess þá ekki alltaf gætt, hvort næg inn- stæða sé fyrir hendi. En þó peningum verði þann ig ráðstafað og mörg lán veitt og boðin, verða loforðin, sem verða á té látin, þó langtum stórfenglegri. Það er nú kom- ið á þriðja ár síðan stjórnin fékk norska hagfræðinga til að gera drög að eins konar lof orðalista, en þeir norsku höfðu hann hvergi nærri nógu veglegan, enda töldu þeir næsta ógerlegt að gera nokkurn slíkan lista sökum þess, hve mikil óvissa ríkti í efnahagslífi íslendinga. Minna ábyrglr hagfræðingar hérlendir voru þá látnir taka við og hafði þvi verið heitið, að áætlun þeirra skyldi gerð opinber fyrir alllöngu síðan. Þetta hefur dregizt, því að ráðlegast mun hafa þótt, að menn kynntust ekki efndun- um fyrir kosningar. Hrímkalt haust Hinir fróðu menn, sem álitnir eru geta skyggnzt nokkuð fram í tímann, telja sig geta séð meira en pen- ingasælt og loforðasælt kosn- ingavor. Þeim virðist annar blær verða yfir haustinu ef núv. valdhafar stjórna áfram Þá muni sannast orð skálds- ins um hrimkalt haust og horfna sumarbliðu. Þá verði sjóðirnir þrotnir og þá verði talið nauðsynlegt að fara að frysta peningana aftur. Þá munu mörg fallegustu loforð- in fölna og gleymast, a.m.k. þeim, sém gáfu þau. Þá mun því vera meira á loft haldið, að laun opinbérra starfs- manna og fleiri stétta, hafi hækkað og nú vofi vá mikil yfir útflutningsatvinnuveg- unum. Enn einu sinnl mun verða sagt, að óhjákvæmilegt sé að höggva skarð I verðgildi krónunnar. Náttúrlega verð- ur því haldið fram jafnframt, að það megi auðveldlega gera án þess að skerða nokkuð kjör launþega Nýtt sjálfstæði Hinir visu menn sjá fyrir meira en nýja aðgerð á krón unni, ef ríkisstjórnin heldur velli. Það verður einnig haf- izt handa um að veita þjóð- inni nýtt sjálfstæði. Sjálfs- forræðið, sem Jón forsetij barðist fyrir á öldinni, sem j leið, er orðið úrelt sjálfstæöi | að dómi hinna vitrustu og | framsýnustu manna núv. J stjórnarflokka, eins og Gylfa Þ. Gíslasonar, Gunnars Schram, Benedikts Gröndals og Eyjólfs Konráðs. Þess vegna verður að fórna því og fá hið rétta sjálfstæði nú- tímans í staðinn. Þetta sjálf- stæði er fólgið í því að ganga með einum eða öðrum hætti í j Efnahagsbandalag Evrópu og verða þannig aðnjótandi fjöldaframleiðslu hringanna, geta orðið þátttakandi i geim ferðum og hlotið önnur slík hlunnindi, sem talin voru upp í þjóðminjasafnsræðu ríkis- stjórnarinnar. í staðinn verð- ur bara að fórna því, að út- lendingar fái jafnrétti við ís lendinga til atvinnureksturs og landsnytja á íslandi. Að visu verður þvi ekki hampað fyrir kosningar, að þessu nýja sjálfstæði verði komið á eftir þær. Enn eru margir íslendingar svo gam- aldags, að þeir trúa enn á hið úrelta sjálfstæði Jóns Sigurðssonar. Þess vegna hef ur Bjarni Benediktsson fund- ið upp þá kenningu, að þessi mál eigi ekki að vera á dag- skrá i kosningabaráttunni. Það eigi ekki að tala um þau fyrr en eftir kosningar. Loforðin 1959 Ýmsum kann ef til vill að finnast, að spádómar hinna fróðu manna, sem raktir eru hér á undan, beri meiri keim af hrakspádómum en rökrétt um spádómum. Þessir menn segja, að reynslan sýni, að lof orðum stjórnarflokkanna megi treysta. Hafa kannske ekki kosn- ingaloforðin frá 1959 verið efnd? Hefur það kannske ekki verið efnt að stöðva dýrtíð- ina og draga úr verðbólg- unni? Hafa lífskjörin kann- ske ekki batnað? Þurfa menn kannske að strita eins lengi til þess að komast af og i tíð vinstri stjórnarinnar? Er kannske ekki orðið miklu auðveldara nú að reisa bú og kaupa skip en þá var? Er kannske ekki orðið auðveld- ara fyrir unga fólkið að stofna heimili og eignast eig- ið húsnæði? Og hefur kann- ske ekki verðgildi krónunruar verið styrkt? Hefur „viðreisin- in‘ kannske ekki heppnazt? Og síðast, en ekki sízt: Stóðu stjórnarflokkarnir svo sem ekki við það loforð sitt að hleypa ekki útlendum togurum inn fyrir tólf milna mörkin? Er það þá nokkuö annað en hrakspádómur að spá því, að annað hljóð verði í stjórn- arherrunum eftir kosningar en fyrir þær? Sýnir ekki öll reynslan, að Er ■ sjálfstæMS sem Jón Sigurðsson barðist fyrir, orðið úrelt? það eru menn, sem ekki lofa upp í ermina? Óheppni Dana Það virðist ekki ein báran stök hjá Dönum um þessar mundir. Þeir háfa með litlu millibili misst tvo forsætis- ráðherra á bezta aldri og sá' þriðji hefur orðið að hætta vegna heilsubrests. Markaðir þrengjast fyrir útflutnings- vörur þeirra og verðlag á þeim ^ækkar. Þeir hafa því orðið að grípa til sérstakra efnahagsaðgerða til að tryggja rekstur útflutnings- framleiðslunnar. Og þá kem- ur versta óhappið til sögunn- ar. Danir virðast ekki eiga neina hagfræðinga, er jafn- ist á við þá íslenzku. Að minnsta kosti segja hinir dönsku hagfræðingar, að það komi ekki til mála að lækka krónuna. Það auki bara dýrtíð og verðbólgu og geri illt verra. í stað þess að láta allt hækka, reyna, þeir að stöðva hækkanir með marg- háttuðum aðgerðum. Svo ræð ir stjórnin við launþegasam- tökin um tillögur sínar áður en hún leggur þær fyrir þing ið og miðar þær jafnframt við það, að bændur megi vel við una. Stóratvinnurekendur og gróðamenn í Danmörku hafa að vonum lýst óánægju sinni yfir öllu þessu háttalagi. Danir eiga bersýnilega ekki neinn Gylfa eða Bjarna, Jó- hannes Nordal eða Jónas Har alz. Þá hefðu þeir getað leyst allan vanda með einu penna- striki — gengisfellingu. Og þá hefði stjórnin ekki verið að eyða tíma sínum í það að tala við launþegasamtökin og að íslendingar væru miklu frægari, ef land þeirra væri ekki eins afskekkt og það er. Það er vafalítið legu lands- ins að kenna, hve lítið „við- reisnin" er enn þekkt í öðr- um löndum og engin þjóð skuli enn hafa tekið „við- reisnarstefnuna" til eftir- breytni. í öðrum löndum eru menn enn að basla við þá úreltu kenningu, að það sé grund- völlur heilbrigðs efnahags- lífs að standa sem traustast vörð um verðgildi gjaldmið- ilsins. Þess vegna eigi að gera sem allra sjaldnast og allra minnstar breytingar á gengi hans. „Viðreisnarstefnan" er hins vegar fólgin í þvi, að verðfelling gjaldmiðilsins leysi , allan efnahagslegan vanda. Hún segir það hreina vitleysu, sem Erhard hinn þýzki og aðrir slíkir eru að klifa á, að halda beri gjald- miðlinum sem stöðugustum og hreyfa sem minnst við skráningu hans, nema þá helzt til hækkunar. Hér hefur „viðreisnin" bor- ið hinn glæsilegasta árangur að dómi þeirra, sem standa að henni. Hún hefur meira að segja haft áhrif á síldar- göngur og veðurfar, svo að aldrei hefur aflazt betur við íslandsstrendur. Og samt hefur engin þjóð fetað enn í fótspor íslend- inga og tekið upp „viðreisnar stefnuna". Gylfi og Bjarni, Jóhannes og Jónas eru enn ekki orðnir neitt frægir. Svona er það að búa afskekkt ir og vera á „kænu smáríkis". Það er ekki undarlegt, þótt þeir félagar vilji komast í skipsrúm á „hafskipi stórrík- því síður verið að taka nokk- urt tillit til bænda. Þá hefðu líka danskir stór- atvinnurekendur og gróða- menn verið glaðir. Ólafur hefur fundið Ólafur Thors sagði á sin- um tíma, að ekki þyrfti að kvíða efnahagserfiðleikum af völdum dýrtíðar og verðbólgu. Slikt mætti lækna með einu pennastriki. Þetta var á þeim árum, þeg ar tilhugalíf Ólafs og komm- únista stóð hvað hæst. Það hefur hins vegar tekið Ólaf nokkurn tíma að finna þetta pennastrik. Nú telur hann sig hafa fundið það, að ráði færstu íslenzkra hag- fræðinga. Það er bara að láta Seðlabankann fella gengi krónunnar nógu mikið og nógu oft. Gylfi mun orða þetta þannig, að ráðið til að stöðva dýrtíðina sé að auka hana, sbr. að ráðið t.il að efla sjálfstæðið, sé að fóma því. Ólafur rejmdi þetta penna- strik 1961. Síðan hefur verð- bólga og dýrtíð magnazt hér meira en i nokkru öðru landi. Ráð Ólafs við þeim vanda er: Nýtt pennastrik eftir kosn- ingarnar. Bjarni telur þetta þó vera eitt af þeim málum, sem ekki eigi að ræða fyrir kosningar. Illt er að búa í pfskekkiu landi Það er sennilega rétt, sem haft er eftir þekktum manni, ísins. Ingólfur yrði frægastur * j'fc,. UM MENN OG MÁLEFNI Margt bendir til þess, að það yrði þó ekki Gunnar eða Gylfi, Jóhannes eða Jónas, sem hlytu mesta frægð, þeg- ar komið væri um borð í „haf skipið". Sennilega mun Ing- ólfur skáka þeim öllum. Ing- ólfur myndi nefniiega geta bent stjórnendum „hafskips- ins“ á einfalt ráð til að leysa úr öllum lánsbeiðnum, sem berast þeim, en þær berast þeim nú úr mörgum áttum. Ráðið er einfaldlega það, að þeir, sem þurfa að fá lánin, skattleggi sig og láni svo sjálf um sér. Það væri t.d. ekki ónýtt fyrir stjórnendur „haf- skipsins" að geta bent van- þróuðu þjóðunum á þessa ein földu og bráðsnjöllu lausn. Já, Ingólfur hefur sennilega enn betri skilyrði til þess að verða heimsfrægur en þeir Jó hannes og Jónas, nema þeim takist að sanna, að þetta mikla snjallræði sé ekki fætt í kollinum á Ingólfi, heldur sé það runnið undan rifjum þeirra sjálfra. En það breytir ekki því, að svona snjöll úrlausn verð- skulda^ það sannarlega að verða heimsfræg. 6 T í MIN N. sunnudaginn 10. mari 1963

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.