Tíminn - 10.03.1963, Síða 7

Tíminn - 10.03.1963, Síða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Ritstjórar: Pórannn Þói’arinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs- ingastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur t Eðdu húsinu. Afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka stræti 7. Símar: 18300—18305 - Auglýsingasími: 19523 Ai. greiðslusimi 12323, — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði tnnan lands. t lausasölu kr. 4.00 eint — Prentsmiðjan Edda h.f. — Sjálfstæðissigurinn hans Bjarna Þeir keppast nú við það forustumennirnir í stjórnar- flokkunum að boða þjóðinni hið nýja sjálfstæði, er eigi að leysa af hólmi hið úrelta sjálfstæði Jóns Sigurðssonar. Fyrstur fór fram á vígvöllinn viðskiptamálaráðherr- ann, Gylfi Þ. Gíslason. Hann notaði 100 ára afmæli þjóðminjasafnsins til að lýsa yfir því, að ekkert væri nú meira áríðandi, en að smáþjóðirnar gengu í stórveldi eða bandalög. Sjálfstæðisflokkurinn og forustumenn hans vildu að sjálfsögðu ekki láta Gylfa og Alþýðuflokkinn einan um það að boða þessa nýju sjálfstæðisstefnu. Fjármálaráðherrann, Gunnar Thoroddsen, lét því einka- málgagn sitt Vísi, taka mjög kröftuglega undir ummæli Gylfa og fordæma harðlega hið úreita sjálfstæði. Þegar Gunnar var þannig kominn á stúfana, vildi Bjarni Benediktsson ekki láta hlut sinn eftir liggja. Bjarni eyðir næstum tveimur síðum Morgunblaðsins í gær til að sýna fram á það, að raunverulega hafi hann 'og Guðmundur í. verið búnir að marka þessa nýju sjálf- stæðisstefnu á undan þeim Gylfa og Gunnari. Bjarni segir nefnilega, að unnizt hafi hinn mesti sigur í sjálfstæðisbaráttunni með landhelgissamningnum, sem gerður var við Breta 1961. Hver var þessi sigur? Samkvæmt yfirlýsingum Bjarna sjálfs, marggefnum á Alþingi haustið 1960, voru íslendingar þá búnir að vinna fullan sigur í baráttunni fyrir 12 mílunum. Það þurfti því ekki að ræða neitt frekar við Breta um þau mál. Samt voru viðræður hafnar og samningurinn gerð- ur. Og sigurinji, sem fólst í samnmgnum var sá, að Bretar fengu réttmdi til fiskveiða innan íslenzkrar fisk- veiðilandhelgi. ásamt raunverulegu valdi til að stöðva frekari útfærslu hennar um óákveðinn tíma. Sjálfstæðissigurinn, sem þeir Bjarni og Guðmund- ur í. unnu, var því raunverulega sá, að veita útlend- ingum, að tilefnislausu, atvinnuréttindi innán ís- lenzkrar fiskveiðilandhelgi. Það er m. ö. o. sjálfstæðissigur á máli Bjarna Benediktssonar að veita útlendingum atvinnuréttindi í íslenzkri landhelgi og á íslenzku landi. Það myndi því heita sjálfstæðissigur á máli Bjarna Benediktssonar ef við semdum pannig um aukaað- ild að EBE, að útlendingar fengu hér atvinnuréttindi. Það er þannig sem sjálfstæðishugtakið — nýja sjálf- stæðishugtakið — er nú túlkað af forustumönnum stjórnarflokkanna. Af þessu má öllum vera ljóst, hvílíka sjálfstæðissigra íslendingar myndu vinna í væntanlegum samningum við EBE. ef núverandi stjórnarflokkar fengu einir að ráða þeirri samningagerð. Viðtalið við Pétur Jafnframt því. sem Bjarni Beneuiktsson hælist yfir landhelgissamningnum við Breta frá 1961 í Mbl. í gær. lætur hann bh'ta viðtal við Pétur S/gurðsson, forstjóra landhelgisgæzlunr.ar. Pétur segir þar, að Bretar hafi sáralítið notað undanþágurnar. Mbl bætir því við frá eigin bnósti að augljóst sé, að undanþágurnar ha^i ekki skert veiðai íslendinga. Hvað á þetta að þýða? Er kannske verið með þessu að undirbúa nýjan sjálf- stæðissigur álíkan þeim, þegar Bretun\ voru fyrst veitt- ar undanþágur fvrir tveimur áfurn? JAMES REST0N; " ■■■■■■ ■ > ■ ... Mannfjölgun í heiminum verður alltaf meira og meira vandamál Efnahagsaðstoð Bandaríkjanna sýnir því minni árangur en ella í ÞINGINU í Washington er að hefjast hin árlega bar- átta út af fjárhagsaðstoð við erlendar þjóðir, og nú er að- staðan erfiðari en nokkru sinni fyrr fyrir stjórn Kennedys. Vaxandi andstaða gegn stjórninni stafar einkum af tvennu. Ráðgeröur halli á fjárlögum hefur gert þing- menn erin ákveðnari' í að lækka öll þau útgjöld, sem ekki renna til hernaðarþarfa. í öðru lagi eykst mannfjölg- unin í öðrum heimshlutum meira en gróandinn í efna- hagslífinu þar og eykur á mannleg, efnahagsleg og þjóðfélagsleg vandamál, þrátt fyrir nálega 90 þús. milljón dollara framlög Bandaríkjanna í styrkjum og lánum síðan stríðinu lauk. SAMTÖK til framfara í Suður-Ameríku, sem Kenne- dy hefur beitt sér fyrir, eru táknræn í þessu efni. Þau hafa bæði valdið forsetanum og andstæðingum hans mikl- um vonbrigðum. Samtökin voru grundvölluð á þeirri skoðun, að þúsund milljónir dollara á ári I tíu ár nægðu til undirstöðumenntunar •íbúanna og útrýmingar sulti og þörf fyrir verulega aðstoð eriendis frá. En jafnvel helztu aðstoðarmenn foíset-' ans játa, að hann hafi bæði gert ráð fyrir minna fé og styttri tíma en þörf sé á til þess að ná markinu. Mannfjölgunin í Suður- Ameríku er nú meiri en nokk urs staðar annars staðar í heiminum ,'eða um 2,5%. Samkvæmt skýrslum Samein uðu þjóðanna er mannfjölg- unin 1,7% í Bandaríkjunum og Kanada, í Asíu (að und- anteknu Japan) 2,3%, Afríku 1,9%, Evrópu 0,8%, Sovét- ríkjunum 1,8%. X Japan hef- ur tekizt með mjög róttæk- um ráðstöfunum að minnka mannfjölgunina niður í 1%. MANNFJÖLGUNIN í heim- inum befur tvöfaldazt síðam að aðstoð við erlendar þjóð- ir hófst árið 1945. Stafar þetta einkum af fækkun dauðsfalla, vegna tilkomu ágætra lyfja og skordýraeit- urs. Mannfjölgunin er nú um 2% á ári og alltaf aö aukast. Með 2% fjölgun tvöfaldast íbúatala jarðarinnar á 35 ár um, úr 3 þús. milljónum í 6 þús. milljónir. Fjölgunin er nú milli 2 óg 4% í Mið-Ame- ríku, en forsetinn fer þangað i heimsókn í marzmánuði. Sérfræðingum um erlenda aðstoð er ljós hin mikla nauð syn á að fást við þessi vanda mál. „Eg verð að vera berorð ur“, sagði Eugene R. Black, þegar hann lét af starfi sem bankastjóri Alþjóðabankans. „Mannfjölgunin ógnar að gera að engu allar tilraunir okkar til þess að bæta lífs- kjörin i mörgum hinna fá- tækari landa. Ástandið er að verða þanriig, að sá maður telzt bjartsýnn, sem trúir því. að lífskjörin geti haldizt." andi mótspyrnu í þinginu. Kennedy stjórnin heldur heldur áfram að berjast fyr- ir áætlun sinni um 5 þús. milljónirt'doHariy á árj; til að- stoðar erlendum þjóðum, eins og þéSsí f járútlát hægðu tii þess að leysa vandann í fyr- irsjáanlegri framtíð. Vand- inn virðist þó verða erfiðari og óleysanlegri með hverju árinu, sem líður. PASSMAN fulltrúadeildar- þingmaður frá Louisiana — erkióvinur aðstoðar við er- lendar þjóðir — er því ekki einn um aukna gagnrýni á kröfur stjórnarinnar um fé til erlendrar aðstoðar. Eins er því varið með Mike Mans- field, leiðtoga Demókrata- meirihlutans, og J. W. Ful- bright, formann utanríkis- málanefndarinnar. Það er auðvitað mjög erf- itt fyrir Kennedy forseta að taka upp þá stefnu að veita þjóðum aðstoð við að draga úr mannfjölgun, jafnvel þó að þær biðji um aðstoð Bandaríkjanna í því efni. Kirkja hans, kaþólska kirkj- an, er andstæð flestum að- ferðum til takmörkunar barn eigna. Forsetinn hefur viður- kennt tilveru vandamálsins, en hann hefur ekki iagt á nein ráð um aðferðir til að sigrast á því. í KOSNINGABARÁTTUNNI 1960 kvaðst Kennedy mundi ákvarða um opinbera stefnu gagnvart mannfjölgunar- vandamálinu í samræmi viö hagsmuni bandarísku þjóðar innar. í júlí 1961 sagði hann samt sem áður: „Þessi hem- ill á mannfjölgun er persónu leg ákvörðun og þjóðarleg ákvörðun, sem þjóðirnar verða sjálfar að taka . . . “ Og hann hefur haldið fast við þessa stefnu æ síðan. Ástandið er því sem hér segir: Þegar ríkisstjórn Banda- ríkjanna ráðstafar fé til að- stoðar erlendum þjóðum hik- ar hún ekki við að segja, að ef ríki það, sem veitir að- stoð viðtöku, hefur ekki vald yfir efnahagslífinu eða breytir ekki stefnu sinni í skatta- og landeignamálum, sé ekki sanngjarnt gagnvart bandarískum skattþegum að inna af hendi fé, sem ekki bæti efnahagsástand í því ríki, sem í hlut á. 1 mjög mörgum ríkjum er hemill á fólksfjölgun mun mikilvæg- ara atriði en vald yfir gjald- miðlinum. Samt er sjaldan á þetta atriði litið og þó aö því sé gaumur gefinn, þá er það sjaldan nefnt. 1 ÞESSU máli eru senni- lega mestar vonir við það tengdar, -að kaþólska kirkjan sjálf breyti stefnu sinni gagn vart takmörkun barneigna á kirkjuþingi því, sem kemur aftur saman síðar á þessu ári. Innan kirkjunnar verð- ur vart nokkurs vilja til stefnubreytingar. Sumir stjórnmálaleiðtogar, einkum Lopez Mateos, forseti Mexíkó hafa að minnsta kosti í einka samtölum talað um mögu- leika á stefnubreytingu. Hann var þó það hreinskil- inn að segja, að hann sæi ekki, hvernig vandinn ætti að verða viðráðanlegur i fyr irsjáanlegri framtíð ,ef eng- in stefnubreyting yrði. í þinginu í Washington gætir óvenjumikillar ókyrrð ar. Farið er fram á að það samþykki að verja stórum fjárfúlgum til að ná árangri, sem það getur ekki séð að unnt sé að ná, nema þvi að- eins aö mannfjölftunarvanda málið sé viðurkennt og tii at- löngu lagt gegn því Og þvi lengur, sem bannig er ástatt því meira vonleysi ríkir í málinu. (Þýtt úr The New York Times) TIMINN, sunnudaginn 10^ rnarz 2

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.