Tíminn - 20.03.1963, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.03.1963, Blaðsíða 8
HERRANÓTT MENNTASKÓLANS: KAPPAR OC VOPN eftir Bernard Shaw Nýir Opel-bílar HERRANÓTT er ekki lengur aðalviðburffur leikhúslífs í Reykja vík, svo sem hún áður var, en flestir, sem til þekkja, mundu sakna þess, ef svo liði þorri og góa, að ekki hillti undir Herranótt. Um þessar mundir stendur hún yfir nokkur kvöld í Iðnó, full af fjöri og ærslum eins og vera ber. Að þessu sinni eru það Kappar og vopn, eftir Bernhard Shaw, sem Heranótt býður upp á undir stjórn Helga Skúlasonar, en þýð- andinn, Lárus Sigurbjörnsson, stjórnaði sýningum Herranætur á þessu sama leikriti fyrir einum 16 árum, og það er tilvalið verk- efni handa ungu fól'ki til að spreyta sig á. Það ætti að vera öðrum, sem skammt eru komnir í leiklistinni, til fyrirmyndar, að færast ekki stærra í fang en við- ráðanlegt má teljast. Gamanleik- ir þurfa ekki ætíð að vera ómerki legir og oft og tíðum alveg eins merkilegir og dramatísk verk. — Kappar og vopn er nærri 70 ára gamalt leikrit, eitt hinna fyrstu, er Shaw samdi og ætlaði undir niðri gamninu að draga hermenn sundur og saman í háði, skafa af þeim hernaðarglansinn, en gaman leiksins ræður fyrst og fremst ríkjum. Verkið liggur svo vel við að semja um það söngleik, að Oscar Strauss stóðst ekki mátið og byggði á því verk sitt Súkkulaði- prinsinn, nefnt eftir einni aðal- persónunni, Bluntschli, hinum svissneska herforingja í serb- neska hernum, sem nestaði sig með súkkulaði í stað byssukúlna. Það er vissulega dregið dár af rómantík stríðsins og einnig ást- arinnar, og leikritið morar og sindrar af fyndnum orðræðum. Nokkrir leikenda eru svo „sviðs vanir“, að þeir hafa hvorki meira né minna en einu sinni áður leik- ið opinberlega á Herranótt. Allir þeir, sem sáu Eranus Montanus í fyrra, hljóta að muna eftir hinni fyrirferðarmiklu maddömu Ás- dísi Skúladóttur. Hér kemur hún fram á ný afbragðsroskin og ráð- sett, skýr og skemmtileg, eins og hún hafi verið á leiksviði frá blautu barnsbeini. Ef hún leggur ekki fyrir sig leiklist, þá má þó vera tilhlökkunarefni, að fá að sjá hana enn einu sinni á sviðinu í Iðnó, þvi Ásdís á enn eftir einn vetur til stúdentsprófs, og það verður tæplega hægt án hennar að vera á næstu Herranótt. Ásdís leikur hér höfuðsmanns- frúna, en bónda hennar, Pál Pet- koff höfuðsmann, leikur Már Magn ússon, sem er hinn spaugilegasti ’ brandaraeldhnöttur frá hvirfli til ilja. Frá í fyrra þekkjum við hér Andrés Indriðason og Friðrik Sóphusson, Andrés er sem fyrr ísmeyginn og eðlilegur Friðiik tals verður „karakter“. Kristín Waage, Þórunn Klemensdóttir og Kjartan Thors standa sig rétt dável, eru raunar stundum komin á fremsta hlunn með að skella upp úr, en það er allt svo ósköp fyrirgefan- legt, því að enginn í salnum get- ur heldur varizt brosi. Til þess er leikurinn gerður, að allir skemmti sér á Herranótt. Gunnar Bergmann. Spánarkynning á Hótel Sögu Næstkomandi fimmtudags- kvöld efnir Ferðaskrifstofan Sunna til Spánarkynningar í hinum nýju salarkynnum að Hótel Sögu. Verða þar sýndar litkvikmyndir og litskuggamynd ir frá páskaferðum SUNNU til Kanarieyja og Mallorka, auk þess sem samkomugestir geta stigið dans og þegið veitingar í Súlnasalnum. — Til þessa skemmtikvölds SUNNU, eru sérstaklega boðnir allir þeir, sem tekið hafa þátt í ferðum skrifstofunnar og væntanlegir þátttakendur í Páskaferð SUNNU nú til Kanarieyja og Mallorka. Þar að auki er að- gangur öllum öðrum frjáls. — Aðgan.gur er ókeypis. OPEL-verksmiSiurnar í Bochum tilkynntu í dag útkomu nýrrar blfreiðar, Opel Kadett Stjtion. — Bifreið þessl sem væntanlega kemur á markaðinn hér í maí, er með 4 cylindra, 46 hestafla. Lengdin er 3,92 m. breidd 1,48 m., þyngd 720 kg. hjólbarðar 600x12. Hámarkshraði er 120 km. Brennsla áætluð 7—8 lítrar á 100 km. — Opel Caravan bifreiðin sem hér hefur verið á markaðnum undanfarin ár hefur notið mikilla vinsælda og má bú- ast við mikllli eftirspurn eftir þessum „litla bróður" hans. Verðið hefur ekki borizt tii umboðsins enn sem komið er. nmnn Þorrablót í Finnlandi Laugardaginn 23. febrúar, hélt Félag íslenzkra stúdenta í Hels- ingfors þorrablót. Var það haldið í skíðaskála Teknologföreningen í nágrenni Helsingfors. Þátttak- endur voru tíu talsins, þ.á.m. tveir íslenzkir nemendur á lýð- háskólum hér. Þorramaturinn kom alla leið frá Reykjavík. Hafði Þorbjöm eigandi kjötbúðarinnar Borg gef- ið matinn af rausnarskap miklum, en Loftleiðir fluttu án endur- gjalds. Fór blótið hið bezta fram í hvívetna, og kann Félags ísl. stúdenta í Helsingfors báðum þessum aðilum beztu þakkir fyr- ir rausnarsemina. NÝLEGA kom á markaðinn frá Opel-verksmiðjunum í Rússelsheim ný gerð af Opel Rekord 2ja dyra fólks- bifreiðinn). Bíll þess^ sem hefur notið geysimikilla vinsælda ndanfarin ár, er töluvert mikið breyttur í útllti. Hann er jafnlangur og áður eða 4,51 m. en 6,4 cm. breiðari eða 1,70, þyngd er um 965 kg. — Vélln hefur og stækkað úr 62 hestöflum í 67 hö. Hjóibarðar eru áfram 590x13. — Hámarkshraði er 138 km. og á- ætluð benzfnnotkun 9—10 lítrar á 100 km. — Fyrstu bílarnir af þessari gerð eru væntanleglr til landsins í apríl og eru þegar seldir. Friðrik Ólafsson skrifar um skák: EINVIGIÐ INGI - FRIÐRIK 3. SKAKIN. Hvítt: Friðrik. Svart: Ingi. Spánski leikurinn. 1. e4, e5. 2. Rf3, Rc6. 3. Bb5, a6. 4. Ba4, Rf6. 5. o—o, Be7. 6. d4. (Þessu afbrigði er sjaldan beitt, en hefur það til síns ágætis að KAPPAR OG VOPN: Sergíus höfuðsmaður (Kjartan Thors) og Lúka þjónustustúlka (Þórunn Klemensdóttir) 8 I vera lítt kannað). 6. — exd4. (Bezta svarið). 7. Hel. (Hér er hins vegar öllu algengara áfram- 1 haldið 7. e5, Re4. 8. Hel, Rc5. 9. Bxc6, dxc6. 10. Rxd4, o-o. 11. Rc3, o s. frv. 7. Hel er leikig hér til að flækja stöðuna enn meira). 7. — o-o. (í sjálfu sér ágætur leikur, en skarpara er 7. — b5 með áfram- haldinu 8. e5, Rxe5. 9. Hxe5, d6. Ilvítur á þá kost á að fá tvo menn fyrir hrók, en vafasamt er, að hann græði mikið á því: 10. Hxe7t Dxe7. 11. Bb3, c5. 12. c4. Staða þessi býr yfir margs konar mögu- leikum, en ekki virðist ástæða fyr- ir svart að vera uggandi um sinn hag). 8. e5, Re8. (8. — Rd5 virð- ist einnjg fullboðlegur möguleiki hér). 9. Bf4. (Lítið er græðandi á 9 Rxd4, Rxd4. 10. Dxd4, d5 og hvíti biskupinn á a4 er í hættu vegna möguleikans 11. — C5, á- samt 12. — b5 og 13. — c4). 9. — b5. (9. — d5 mundi gefa hvíti nökkuð frjálsar hendur vegna veik leikans sem myndast á c5: 9. — C.5. 10. Bxc6, bxc6. 11. Rxd4, Bd7. 12. Rb3 og nú stefnir hvítur drottn | ingarriddara sinum til c5 eftir hinni venjulegu boðleið bl-c3-a4- c5. Hins vegar er 9. — f6 mögu- leiki, sem verður er rannsóknar). 10. Bb3, d5. 11. c3! (Eftir 11. Rxd4, Rxd4. 12. Dxd4, Be6 stæði svartur vel). 11. — Bf5. (Eftir 11, — dxc3. 12. Rxc3, d4. 13. Rd5, vinnur hvítur peðig fljótlega aft- ur og stendur þá vel. Hins vegar kom hér til greina að leika 11. — Ra5. 12. cxd4, Rxb3 o. s. frv.). 12. cxd4, Ra5. 13. Bc2, Dd7. 14. Rc3, c6. 15. Re2. (Riddarinn gerir meira sagn á kón"?vængnum). 15. — Rc7. 1S. Rg3, Bg6, 17. b3. (Svarti riddarinn skal ekki til c4). 17. — Rb7. (Hér var skárra að leika 17. — Re6 til að koma í veg fyrir eftirfarandi uppskipti). 18. Bg5, c5. (Svartur verður fyrr eða síðar að leika þessum leik til að losa um sig). 19. Bxe7, Dxe7. 20. dxc5, Rxc5. 21. Hacl, Hfd8(?). (Eftir þennan leik tekur hvítur öll völd á borðinu í sínar hendur. Bezt var 21. — R5e6). 22. Rd4. (Hótar 23. Rc6). 22. — Df8. 23. f4, Bxc2. 24. IIxc2. 24. Hxc2, R7e6. 25. Rxe6. (í sjálfu sér er ekkert út á þennan leik að setja, en 25. f5 hefði veitt svarti erfiðari vanda- mál að glíma við). 25. — fxe6. 26. Dd4, Re4. (Svartur ákveður að Framhald á 13. síðu. T í M IN N: miðvikudaginn 20 marv 1963

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.