Tíminn - 29.03.1963, Blaðsíða 15
Að Jökulsá á Brú
Framhald af 16. síðu.
bátinn, þar eS hann hélt aff eitt-
'hYa’ff'hefði komið í skrúfuna.
PJ-DALVÍK. — Fyrsti kippurinn
héma var harður og stóð í um
tuttugu sekúndur. Hann var ekki
eins snarpur og mikli jarðskjálft-
inn 1934, en hins vegar voru öld-
umar gildari. Lausir munir rótuð-
ust til og féllu úr hillum. Hér fund
ust fjórir kippir fyrir miðnætti og
sá fimmti rétt eftir miðnættið. —
Kippir fundust fram eftir nóttu.
BS-ÓLAFSFIUÐI. — Hér var fyrsti
kippurinn mjög harður og stóð í
12—20 sekúndur en var þó ekki
líkt iþví eins siæmur og þeir verstu
1934. Ljós slokknuðu og fólk þusti
út á göturnar og varð mikil ring-
ulreið. Ekki er mér kunnugt um
nein slys á fólki, en margir urðu
hræddir, einkum konur, sem voru
einar heima með börn og hefur
læknis verið vitjað fyrir sumar
þeirra í dag.
VS-BLÖNDUÓSI. — Hér fundust
snarpir kippir og urðu nokkrar
skemmdir i nágrenninum, t.d.
sprungu veggir í húsum í Langa-
dal og fjósveggur hrundi á Þverá
í Laxárdal. í Hvammi í Vatnsdal
og víðar urðu kýr í fjósi yfir sig
hræddar og slitu si glausar á bás
um og hestar fældust sums stað-
ar. — Fólk varð viða skelkað og
hélt að hús cnyndu hrynja. í búð
um hér á Blönduósi fór allt úr
skorðum og var t.d. ekki unnt að
opna útibú kaupfélagsins hér fyrr
en klufckan 11 í morgun og þar
höfðu- orðið talsverðar skemmdir
á munum, sem lágu brotnir út um
allt gólf
GPV- BÆ, TRÉKYLLISVÍK. —
Fyrsti jarðskjáilftakippurinn, og
sá harðasti kom til kl. 23,20. Lék
þá allt á reiðiskjálfi. Á eftir þess-
um fyrsta komp svo þrír til fjórir
kippir, en vægari, og vart varð
við jarðhræringar hér klukkan 6
og klukkan 8 í morgun.
Hálfgerður uggur var í fólki,
og mun lítið hafa verið sofið um
nóttina, enda fylgdi jarðhræring-
unum mikill gnýr. í fyrsta kippn-
um hrukku til ýmsir munir og
bækur runnu fram úr hillum. Á
bænum Norðurfirði komu sprung
ur í steinsteypt íbúðarhús.
GS-ÍSAFIRÐI. — Hér varð vart
að minnsta kosti þriggja snarpra
kippa. Komu sprungur í múr'húð-
un innanhúss, hurðir opnuðust og
limburhús róluðu til. í einu húsi
stóð fullur þvottabali fyrir kipp-
inn, en að honum loknum var kom
ið 8 tommu borð á hann. Glös
skullu saman og bækur duttu úr
hillum.
Fólk varð að vonum bylt við,
enda eru jarðskjálftakippir hér
mjög sjaldgæfir, hafa ekki fund-
ist síðan 1934 og þá miklu væg-
ari en nú
KRJÚL-BOLUN G AVÍK. — Hér
varð vart snarpra jarðskjálfta-
kippa og var sá fyrsti mestur sem
annars staðar, en einnig kom tals
vert snarpur kippur tuttugu mín
útur yfir miðnætti. Allmikill
hristingur varð, og ljósakrónur
titruðu og hlutir duttu út úr skáp
um.
SJ-PATREKSFIRÐI. - Hér fanrist
jarðskjálftinn greinilega, en það
er mjög sjaldgæft, menn hér muna
varla til þess að hafa fundið jarð
hræringar fyrr. Hákon hrepp-
stjóri í Haga sagði mér að húsið
þar hefði allt skolfið og bollar
og glös færzt til. Ólafur Sveins-
son á Kambavatni á Rauðasandi
vaknaði við jarðskjálftann og þar
skulfu myndir á veggjum og smá
hlutir færðust úr stað Á Hval-
látum varð enginn jarðskjálftans
var, en hér á Patreksfirði urðu
menn hans varir, sömuleiðis í
Tálknafirði.
MÁ-TWtLiíANESI. — Töluverð-
ir jarðskjálftakippir fundust hér
um slóðir í gærkvöldi, eða nánar
til tekið um kl. 23.20. Jarðhrær-
ingarnar stóðu eiginlega yfir í
tíu mínútur samfleytt. Virtist sem
um tíða smákippi væri að ræða
Engar skemmdir urðu á bygg
ingum, enda var ekki um skarpa
kippi að ræða.
Hér muna menn ekfci eftir að
hafa fundið jarðskjálfta síðan
árið 1901.
KBG STYKKISHÓLMI. — Hér
um slóðir varð víða vart við jarð
skjálftann og einnig mikinn hvin
er kom rétt á undan honum. Stóri
kippurinn hér varaði um hálfa
mínútu og ein rúða sprakk hér í
glugga. Klukkur stönzuðu á bæj-
um í sveitinni í kring og eins
hér í Hólminum.
De Gaulle neitar
rpjv •< ■i,CJ
íall. Tæknistarfsmenn frönsku
fréttastofunnar AFP hófu síðan
sólarhringsverkfall kl. 3 í dag eft-
ir íslenzkum tíma. Franskir blaða
menn fara íram á 20% kauphækk-
. iin, fimm daga vinnuviku og einni
viku lengra sumarleyfi, en ekkert
hefur gengið saman með þeim og
I blaðaútgefendum.
Háhýsabúar —
Frnmhald af 16 síðu
óandi. Einn gesturinn var að
fara niður með lyftunni þeg-
ar fyrsti kippurinn kom og
varð ekki um sel, þegar lyft-
an fór ailt í einu að hlaupa nið
ur, hann hélt hún hefði bilað
og var stórfeginn. þegar hún
stanzaði á réttum stað og hann
komst út.
Birgir, sonur húsvarðarins í
Austurbrún 2, sagði:
— Það komu margir niður af
efri hæðunum og lyftan alltaf
í gangi. Sumir biðu lengi hérna
niðri og einhverjir fóru burt úr
húsinu. Þú ættir að fara upp á
elleftu hæð og tala við hana
Valgerði. Svo hringdi hann í
Valgerði og hún sagði að ég
mætti koma upp. Valgerður var
með gesci í kaffi og tveggja ára
kútur hljóp um gólfið. Eg
spurði, hvort mikið hefði geng-
ið á. Valgerður sagðist hafa
I skroppið í næsta hús og tólf
ára bróðir hennar hefði verið
I að gæta Hjartar litla sonar
hpnnpr. °r +'’<',rrrrio
| ára. Bróðir hennar varð ofsa
! hræddur þegar fyrsti kippur-
j inn kom og rauk fram á gang.
j Þegar Hiörtur litli sá æðið á
i frænda sínum, fór hann að
gráta og þeir lögðu af stað nið-
ur með iyftunni. — Það var
I hringt i mig, sagði Valgerður,
— og ég kom strax. Það var
uppi fótur og fit á mörgum hæð
j um. allir vildu komast niður,
með lvfrunni Eg sá mér ekki
annað fairt en að fara með
drengina ' næsta hús og var
þar i nótt Bróðir minn varð
svo hræddur, að hann er ekki
búinn að ná sér enn.
i M@$ti jiaröskjálftinn —
Framhald at i siðu
orðig í miðstöðvarkatlinum og
hlióp niður kjallara. Jarðskjálft-
inn var ekk: afstaðinn, þegar Þor-
steinn kom upp aftur. Kippirnir
héldu svo áfram með 10—15—20
mín. millibili alla nóttina, og síð-
ast hafði orðiff vart hræringar kl.
3,30 í dag, þegar blaðiff talaði við
Þorstein. Sprungur mynduðust í
j veggjum og miðstöðvarleiðslur
j slitnuðu í húsgrunnum í þorpinu,
j smáhlutir brotnuðu. Margir voru á
i ferli útivið í nótt, og allir á fótum
I til klukkan að ganga 6 um morgun
inn.
GÓ-SAUÐÁRKRÓKI. — Fyrsti
kippurinn hér varð mjög harður
og honum fylgdi geysilegur hávaði.
Hús nötruðu og munir duttu um
koll. Skemmdir urðu talsverðar á
nýja sjúkrahúsinu hér, þar
j sprungu milliveggir úr holsteini
og plötur duttu úr lofli Ekki er
unnt aff segja fyrir um þai£ hversu
j miklar skemmdirnar eru í pen-
1 ingum mælt, en viðgerð mun taka
talsve-t langan tíma. Fólki varð
eðlilega bilf við og vildi forða sér
út úr húsum og slösuðust tvær
konur við það. Fullorðin kona hæl-
brotnaði, er hún flýtti sér niður
stiga og unglingsstúlka tognaði
illa. Gamalt fólk varð margt all-
skelkað og mun læknir hafa þurft
að róa það eitthvað.
Úti á Skaga urðu víða talsverðar
skemmdir, enda gekk þar hvað
mest á. Á Sævarlandi í Laxárdal
hrundu tvær torfhlöður og
steyptur hlöðuveggur sprakk. Göm
ul fjárhús, sem voru áföst við hlöð
una bókstaflega færðust úr stað
og er nú tveggja til þriggja tommu
þil á milli þeirra og hlöðunnar, —
einnig skekktust þau talsvert.
Bóndinn á Fossi skarst talsvert
illa á hendi, er hann forðaði sér
út um glugga á húsi sínu, er lék á
reiðiskjálfi. Varð hann að leita
læknis.
Búsmali mun einnig víða hafa
ókyrrzt, hestar fældust og kýr
urðu hræddar í fjósi.
Rögnvaldur Steinsson, bóndi á
Hrauni á Skaga, sagði að heimil-
isklukkan hefði stöðvast við fynsta
jarðskjálftakippinn k.l 23,15. Sá
kippur stóff yór rúmlega hálfa
mínútu og var langharðastur fyrst
og síðast. Kl. 11,55 kom annar
langur kippur, en hinir voru flest
ir stuttir og snarpir. — Bækur
hrundu úr hillum og glermunir
brotnuðu; engar skemmdir urjðu á
byggingum á Hrauni. Heimilisfólk
ið flutti sig úr íbúðarhúsinu, sem
er tvílyft steinhús, yfir í gamalt
timburhús. Rögnvaldur kvaðst
hafa sofnað kl. 3, og hafði þá orð-
ið var við fimm kippi. Kýr voru
leystar út á nokkrum bæjum. —
Sums staðar var fé rekið úr hús-
um. í Víkum á Ska.ga og á Hafra-
gili hrundi úr veggjum og sprung
ur komu í múrhúðun.
Blaðið talaði við símstöðlna á
Skagaströnd og viff Pál Jónsson
skólastjóra þar. Stöðvarmaðurinn
taldi 12 kippi frá kl. 23,16 til 24.
Sá fyrsti var mjög langur og harð
ur fyrst og síðast. í fullar 20 sek.
skalf allt og nötraði. Símstöðvar-
húsið er sprungið á fjórum stöð-
um upp við þakið. Steinsteypt
stigahandrið er sprungið inni í
húsinu og burðarveggur gegn-
sprunginn. Páll sagði, að kippirnir
á Skagaströnd múndu hafa verið
miklu harðari ‘en á Blönduósi. Á
m. k. 3—4 hús hafa orðið fyrir
skemmdum, m. a. hrundi ofan af
reykháf á einu húsi og í tveim hús
um hafa vatnsleiðslur slitnað. —
Skagstrendingar höfðust mest við
í bílum og á götunni í nótt. Páll
kvaðst hafa heyrt, að fjárhúsin í
Víkum á Skaga hefðu verið að því
kornin að hrynja, en það eru reka
viðarbyggingar. Húsin standa þó
uppi. Kennsla í barnaskólanum á
Skagaströnd var felld niður í dag.
Smákippir mældust i morgun
og í dag hér í Reykjavík og fund-
ust sumir þeirra Norðanlands. Síð
asti kippurinn, sem vart varð við
fyrir klukkan hálf níu í kvöld í
Reykjavík, mældist klukkan 15,08
og við hann varð vart Norðan-
lands, m. a. á ólafsfirði.
á MSA
ir.ni, og hafi bandarískir flugu-
verk hafi verði unnið á flugvél-
menn að öllum líkindum unnið
það í þeim tilgangi að myrða kú-
banska diplómata og komasf yfir
skjöl þeirra. Sýndi þetta samvizku
leýsi og glæpsamlegt hugarfar
Bandaríkjar.na, segir í tilkynningu
Castros.
StóSust
Framhalcl al 1 síðu
fyrir hrun hans. Fyrsti jarð-
skjálftakippurinn var mjög
snarpur á Vatnsnesi. Mið'stöðv-
arpípur slógust saman, og
sprungur mynduðust í veggi á
Ósum og fleiri bæjum.
íjjróttir
Framhald af 5. síðu
gengu vitrari menn á milli og
vildu stöðva bardagann — eitt-
hvað gekk það þó erfiðlega og
endaði ekki fyrr en formaður
Handknattleiksdeildar Vals,
sem kominn var á vettvang,
fékk slæmt högg á nefið. Rann
þá móðurinn af mönnum og
cldurinu slokknaði.
— En Valsmenn kærðu þetta
atliæfi FH-ingsins, sem þeir
sögðu ekki samræmast anda
íþróttanna, og liggur sú kæra
sem sé fyrir HKRR um þessar
mundir og má búast við dómi
fljótlega.
Segið svo að handknattleiks-
menn okkar hafi ekkert skap.
— alf.
Rússneskur jeppi
með húsi óskast Verð og
ástand sendist Tímanum
merkt ,Rússneskur jeppi“
EINANGRUN
Ódýr og mjög góð einangrun.
Vönduð framleiðsla.
J. Þorláksson &
Norðmann h.f.
Skúlagötu 30 - Bankastræti 11
TRLILOFU.NAR
HRINGIR
kAMTMANNSSTIG 2
HALLÖÖR KRISTINSSON
gullsmiður
Simi 16979
Auglýsið í íímanum
SKIPAÚTG6RB RIKISINS
Ms. Esja !
fer héðan laugardaginn fyrir |
páska kl. 21,00 tl Vestmnnaeyja
á veguoi Kvennakórs Slysa-
varnafélags Reykjavíkur og j
Kalakórs Keflavíkur, en laus j
farrúm, ca. 40, verða seld öðr- 1
um, og ganga þeir fyrir, sem \
kaupa far báðar leiðir ásamt
fæði. i
Áætlaður komutími til Ve.
kl. 06,00 á páskadag, en þá e.t.v.
siglt kringum eyjarnar, ef veð-
ur reynist hagstætt og áður
nefnd félög óska. Frá Ve. kl.
24,00 og til Reykjavíkur kl.
09,00 2. páskadag.
Ms. Hekla
fer vestur um land til Akureyr-
ar 3/4. Vörumóttaka í dag og
árdegis a morgun til Patreks-
fjarðar, Sveinseyrar, Bildudals,
Þingeyrar, Flateyrar, Suður-
eyrar, ísafjarðar, Siglufjarðar
og Akureyrar. — Farseðlar seld
ir á þriðjudag.
Heróubrefö
fer vestur um land í hringferð
4/4. Vörumóttaka á mánudag
til Kópaskers, Þórshafnar,
Bakkafjarðar, Vopnafjarðar,
Borgarfjarðar, Mjóafjarðar,
Stöðvarfjarðar, Breiðdalsvíkur,
Djúpavogs og Hornafjarðar. —
Farseðlar seldir á Miðvikudag.
Ms. Skjaldbpeif
fer vestur um land til Akureyr-
ar 1/4. Vörumóttaka í dag og
árdegis a morgun til Húnaflóa-
og Skagafjarðarhafna og Ólafs-
fjarðar. — Farseðlar seldir á
mánudag.
ílres
mlli
Eg þakka innilega allar gjafir skeyti og heillaóskir á
áttræðisafmæli minu 24. marz. Einmg þakka ég af heil-
um hug alla vinsemd og hlýju í minr. garð fyrr og síðar.
GuSrún Guðbrandsdótt'r frá Sunnuhlíð
Kornsá.
Higinmaður minn,
( Eiríkur Jónsson
Vorsabte, Skeiðum,
andaðist að heimili dóttur slnnar, Barmahlið 51, aðfaranótt 28. þ.i
Krlstrún Þorstelnsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
Valtýs Stefánssonar
ritstjóra.
Helga Valtýsdóttir, Hulda Valtýsdóttir,
Björn Thors, Gunnar Hansson,
Hulda Á. Stefánsdóttlr.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim nær og fjær fyrlr auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannslns mlns og bróður
okkar,
Snorra Þórarinssonar
Guð blessi ykkur öll.
Helga Friðriksdótfir og systkini hins látna.
T f M I N N, föstudagur 29. marz 1963. —
15