Alþýðublaðið - 02.08.1940, Síða 4
Kaupið bókina
Hver var að hlæja?
©g brosið meðt
ALÞYÐDBLAÐIÐ
Hver var að hlæja?
er bók, sem þér
þurfið að eignast.
FOSTUDAGUR.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Tataralög.
20.30 íþróttaþáttur (Pétur Sig-
urðsson).
20,50 Hljómplötur: a) Sónata eftir
Beethoven (C-dúr, Op. 2,
nr. 3). b) Frægir söngvarar.
c) 21,25 Harmonikulög.
Kátir gestgjafar
heitir ameríksk gamanmynd, sem
Gamla Bíó sýnir um þessar mund-
ir. Aðalhlutverkin leika: Alice
Brady, Tom Brown og Charles
Winninger.
Meistaramót ÍSÍ
í fimmtarþraut, 10 km. kapp-
göngu, 4X100 m. og 1000 m. boð-
hlaupum verður um helgina. Hafa
fjórar sveitir tilkynnt þátttöku í
hvort hlaupanna, fjórir menn í
gönguna og fimm í fimmtarþraut.
Gangan og boðhlaupin eiga að fara
fram á laugardag kl. 6, en fimmt-
arþrautin á sunnudag kl. 2.
Knattspyrna.
Keppt var í öðrum flokki í gær-
kveldi. K. R. vann Val með 2 gegn
1 og Víkingur Fram með 2 gegn 0.
Dilkakpt
Nautakjöt af ungu.
Kálfakjöt. Lax.
Grænmti, lækkað verð.
Jón MaHalesen.
Sími 9101 og 9102.
Salttjit
Verzlunln
Kjöt & Fiskur
Símar 3828 og 4764.
Þrjár fjrrsto bækur
Mennmsarsjóðs oo
Þjóðvioafél. koraa
At f uæstu viku.
RJÁR af þeim bókum, sem
Menningarsjóður og ÞjóS-
vinafélagið hafa ákveðið að gefa
út á þessu ári, eru nú að koma
út, og verður byrjað að afgreiða
þær til áskrifenda hér í bænum
um miðja næstu viku, en alls
verða bækurnar sjö, sem þessi
fyrirtæki gefa út á árinu. Hinar
bækurnar koma væntanlega út
í haust.
Áskrifendur eru alls á þrett-
ánda þúsund víðs vegar um land,
og er upplagið miðað við það.
Bækurnar, sem koma út næstu
daga, etu: Sultur eftir Knut Ham-
sun, bókin, sem gerði höfundinn
frægan, og/ hefir Jón Sigurðsson,
skrifstofustjóri - alþingis, sem
þýddi „Pan“ og „Victoríu", ís-
lenzkað hana, Viktoría drottning
eftir Lytton Strachey, þýdd af
Kristjáni Albertssyni, og Mark-
mið og leiðir eftir Aldous Hux-
ley, einhvern frægasta rithöfund,
sem nú er uppi í heiminum.
Hefir Guðmundur Finnbogason
íslenzkaði hana.
Eftir eiga þá að koma út í
haust þessar bækur: Mannslíkam-
inn og störf bams eftir Jóhann
Sæmundsson lækini, Uppreisnin í
Eyðimörkinni eftir T. E. La,w-
repce, Almanak Þjöðv'inafélags-
ins 1941 og Andvari 1940.
Áskripendur hér í bíænum verða
að sækja bækumar, og verður
byrjað að afgreiða þær um miðja
næstu viku. Út um land verða
bækurnar sendar umboðsmönn-
Um, en þeir em rúmlega 150 í
öllum hyggðarlögurn landsins.
Er þetta langstærsta bókaupp-
lag, sem gefið er út hér á landi.
Útbreiðið Alþýðublaðið.
BÆJARSTJÖRNARFUNDURINN
Frh. af 1. síðu.
mörkun dansleikja og lokun
kaffihúsa. Nú virðist allt vera á
huldu um þetta. Meirihluti bæj-
arstjórnar virðist vera mjög á
annarri skoðun en lögreglu-
stjóri, og víst er, að almenning-
ur í bænum er algerlega and-
vígur myrkvun, nema augljóst
sé, að hennar sé þörf, hvað sem
sagt er um takmörkun dans-
leikja og lokun kaffihúsa fyrr
á kvöldin en verið hefir, enda
telja flestir að myrkvun myndi
jafnvel, eins og nú er ástatt í
bænum með allar sundurgröfnu
göturnar, valda meiri slysum en
ein loftárás, þó að hún kæmi að
óvörum.
* i
Hins vegar er allur almenn-
ingur sammála um það, að
fyrsta varúðarráðstöfunin hér
eigi að vera lokun áfengisverzl-
unar ríkisins, en um það mál
þegja flestir og virðist helzt að
á þessari nauðsynlegu og sjálf-
sögðu ráðstöfun sé mest tregða.
Samtal viö lögregiu-
stjóra.
— (
Alþýðubiaðið sneri sér til lög-
reglustjóra í morgun og spurði
hann hvað hann vildi segja út
af umræðunum á bæjarstjórn-
arfundi.
„Ég hefi fátt um þær að
segja,“ sagði lögreglustjóri. „Ég
hefi skrifað bæjarráði um málið
og vænti svars þess. — Mér var
alltaf Ijóst að lögreglan hafði
ekki vald til að fyrirskipa þetta.
Undanfarið hefir verið ráðist á
lögregluna fyrir aðgerðaleysi.
Þess vegna er mér yfirleitt kær-
komið að almenningur fái að
vita um það, hve þröngt vald-
svið lögreglunnar er. Um
myrkvunina er það að segja, að
tilmæli hafa komið frá brezku
hernaðaryfirvöldunum um
myrkvun borgarinnar.
PAH9LA BSOV
Kátir gestijafar
(GOODBYE BROADWAY.)
Skemmtileg og fyndin am-
erísk gamanmynd frá UNI
VERSAL félaginu. Aðal-
hlutverkin leika:
Alice Brady,
Tom Brown,
Charles Winninger.
Aukamynd:
LÍF EÐA DAUÐI.
Iirikalegustu atburðir, sem
kvikmyndaðir hafa verið.
BSS
NYJA BHO M
Æflntýri á
ökuf ör
(Fifty Roads to Town.)
Amerísk skemtimynd frá
FOX iðandi af fjöri og
fyndni og spennandi við-
burðum. — Aðalhlutverkið
leikur kvennagullið DON
AMECHE, ásamt hinni
fögru ANN SOTHERN og
skopleikaranum fræga
SLIM SUMMERVILLE.
RÆÐA MOLOTOVS
Frh. af 1. síðu.
hefði áhuga fyrir bættri sambúð.
Um sambúðina við Bandaríkin
sagði Molotov, að þau hefðu ekki
komið fram af fullum skilningi í
garð Rússa, 'því aö -’vrssar á-
kvarðanir Bandaríkjastjóm'ar
gagnvart Rússlandi bæm ekki
vitni um velvild. Kennir nokkurs
kulda í Rússlandi -í garð Banda-
ríkjanna úm þessar mundir, m. a.
vegna þess, að gull þ.að, sem
Eistland, Lettland og Lithauen
áttu í Bandaríkjunum, hefir verið
kyrrsett i bönkum þar eða
„fryst“.
Sakar Finna enn mn and
úð gegn Rássnm.
Ennfremur ræd-di hann við-
horfið til Norðurlanda, viðskipta-
samninga, sem yfir standa við
Svía, og þeim samningum bæri
að hraða, en um Finnia sagði
hann, að það væri mest un-dir
þei-m sjálfum komið, hvemig
sambúðin yrði við Rússa. Það
væri skref í rétta átt, að þeir
hefðu fallizt á kröfur Rússa
varðandi afvopnuin , Álandseyja,
en andúðina gegn Rússlandi yrði
að uppræía.
FLU GMIÐ AÁRÁS.
Frh. af 1. síðu.
þýzkar flugvélar flugu inn yfir
Bretland síðastliðna nótt og
vörpuðu í stað sprengikúlna
niður áróðursmiðum, sem síð-
asta ræða Hitlers var prentuð
á undir fyrirsögninni „Seinasta
skírskotun til heilbrigðrar sky»
semi.“
Brezka útvarpið segir, að það
hafi verið óþarfi að varpa niður
ræðunni, því að mörg brezk
blöð hafi getið hennar mjög ít-
arlega.
Vðrn móttaka
í næstu strandferð vestur um
land er til hádegis á morguM-
og næstkomandi þriðjudag.
Auglýsið í Alþýðublaðinu.
Hínn Sakamálasana eltir Seamark
ósigrandi
— Þér áttuð von á mér, einmitt það, sagði hann.
— Þér stundið símahleranir, býst ég við.
— Já, sv-o mætti ef til vill kalla það. Það var
skemmtilegt samtal, sem þér áttuð við herra Tansy
frá Notting Hill. Ég hefi verið að leita yðar lengi,
herra greifi. Þér földúð yður vei. En ég fann yður
samt að lokum. Þér getið ekki falið _yður fyrir mér.
En rnætti ég spyrja yður, til hvers þér hafið komið
hingað. Þér getið ekkert mein gert mér, það er á-
reiðanlegt. Lyall framdi sjálfsmorð um leið og hann
reyndi að ráða mig af dögum.
— Þér emð ekki huglaus maður, herra Dain. En
nú verðið þér þó að játa, að þér fáið ekki rönd við
reist.
Augu Dains leiftruðu.
— Álítið þér það í raun og veru? Rödd Dains var
helköld.
— Hvers vegna hafið þér þá leyft mér að komast
hingað inn? spurði Lazard.
— Kæri greifi, sagði Dain. — Það er vegna þes:,
að það er auðveldara að komast inn í þetta herbergi
en út úr því aftur — þ. e. a. s. lifandi.
— Ög hvað eigið þér við með því?
— Ég skal nefna eitt dæmi. Villard Lyall hugsaði
eins og þér hugsið. En hann mat mig ekki rétt. Auð-
æíi mín og fraegð eru ekki byggð á blekkingum. Og
ég er ekki heldur að blekkja yður núna, það megið
þér vera sannfærður um. Þér kunnið ekkert með þær
vélar að fara, sem hér eru. Og þessar vélar -geta meðal
annars hljóðritað hvert orð, sem hér er sagt.
— En gerum nú ráð fyrir, að eitthvað kæmi fyrir
þessar vélar yðar. Gerum ráð fyrir, að ég hreyfði
vísifingurinn ofurlítið og skyti vélarnar 1 rúst.
Lazard greifi var að reyna að komast eftir því,
hvað hann mætti bjóða sér. Og hann vildi unifr-am
allt fá að vita, hvo.rt n-okkur annar en Dain hefði
hugmynd um það, að hann, Lazar-d greifi, hafði ætlað
sér að heimsækja Dain, hugvitsmann í Denbigh H-ouse,
þetta kvöld.
— Lazard greifi, sagði D-ain rólega. — Þaö eru
margar ástæður til þess, að þér snertið ekki hár á
höfði mínu. í kvöld eða n-okkru sinni. Ég skal segja
yður eina ástæðuna strax. 1 kvöld lét ég bréf í póst
til sjálfs mín. I þessu bréfi er nákvæmlega skýrt frá
því, sem við hefir borið síðustu sex mánuðina. Þar er
, ennfremur getið um yður og heimsókn yðar hingað í
kvö-dl. Ég skýrði frá því, að ef lík mitt findist, þá
værúð þér morðinginn. Þar var enn fremur nákvæm
lýsing á einkalifi yðar. Vinur minn einn mun hirða
bréfið og -opna það, ef ég kem ékki fram1 í dagsljósið.
Bréfið kemur ekki fram fyrr en eftir tvo daga. En á
þeim tíma mun Sootland Yard hafa uppgötvað morðið,
því að ég sendi vini mínúm símskeyti, sem hann átti
að sýna Sootland Y-ard, ef ég kæmi ekki á sjónar-
sviðið fyrir miðnætti í nótt. Lögreglan verður þvl
komin á vettvang, þegar bréfið kemur fram.
Greifinn borfði á Dain og ofurlitlum óttasvip brá
fyrir í augum hans. Hin kuldaleg-a ró og sjálfsöryggi
Val-mon Dains hafði verkað á hann. Þessi uppfinninga-
maður átti meira undir sér en hann hafði álitið. Gáf-
ut hans og hugvit voru töluvert yfir meðallagið.
Lazard hampaði byssunni og sagði:
— Þér virðist gleyma því, að ég held ennþá á þess-
ari í hendinmi. Og svo lengi, sem ég held á henni,.
mun ég e ga síðasta orðið.
•— Satt er það. Þér hafið byssuna ennþá í fórum
yðar. En hún er yður ekki mikils virði, eins og nú er
ástatt. Yður væri bezt að fá mér hana í hendur og
spara yðu,r ómak síðar meir.
Lazard greifi horfði á Dain stundarkom og gat ekki
áttað sig á því, hversu mikil alvara fælist á bak við
þessi orð.
— Sitjið hreyfingarlaus, hreytti hann út úr sér að
lokum. Þér eigið að svara örfáum spurningum, sem
ég legg fyrir yður.
— En ef ég neita að svara, hvað skeður þá?
— Þá sendi ég nálarnar beint í höfuðið á yður.
— Og hvað skeður svo?
— Ég nota símann, og eftir hálftíma verður k-ominn
hingað hópur félaga min-na. Líki yðar verður komið
fyrir á góðum stað. Við rannsökum herbergið og
eyðileggjum myndimar. Við mölbrjótúm allarvélarnar,
sem þér hafið sett hér upp. Og ég skal útvega mér