Alþýðublaðið - 03.08.1940, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1940.
Byggingaleyfi
á nýhýlalöndum riklssjóðs
Að gefnu tilefni skal vakin athygli leigutaka x
Digraneslandi, Kópavogslandi og sunnanverðum
Fossvogi, á því, að bannað er að byggja hús eða
skúra á löndum þessum, nema fengizt hafi leyfi
Skipulagsnefndar, sem hefir eftirlit með staðsetn-
ingu bygginganna.
Viðtalstími vegna hyggingaleyfa er á skrif-
stofu nefndarinnar í Arnarhvoli, þriðjudaga
og föstudaga kl. 11—12, en ekki á öðrum
tímum.
í umhoði Skipulagsnefndar.
Horðnr B|amasoii.
verður lokuð Mánii-
dag 5. p. m.
Ættn að snða sér til
Hitlers og biðja bann
nm mat.
Amerísk blðð um matvæla-
skortinn í Evrópu.
BLAÐINU „NEW YORK
SUN“ er slíýrt frá því, að
amerískir sérfræðingar hafi kynnt
pér hiorfumar í himwn ýmsu lönid-
um Evrópu að pví er matvæla-
birgðir snertir, einkanlejga í lönd-
lum peim, sem Þjóðverjar hafa
lagt undir sig.
Blaðið segir, með skírskotun til
ummæla hinna sérfróðu manna,
að hungur vofi ekki aðeins yfir
milljónum manna í Evrópulönd-
um, pegar vetrar, ; heldur eigi
milljónir manna nú pegar við
hungur að búa, og er gizkað á,
Bð í héruðunum kringum Varsjá
jeigi 6—7 milljónir mawna við
«ii.kinn matarskort að búa.
En petta er aðeins upphaf
peirrar neyðar, sem koma mun,
eftir öllum líkum að dæma. —
Blaðið „Washington Post“ skýrir
frá jivi, að franska stjórnin í
Vichy áfionni að leita fyrir sér
vestra um stórlán til eldsneytis-
og matarkaupa, og verði lánið
tekið til langs tíma. Blaðið bend-
ir á, að matvæli heyri undir pann
iflokk afurða, sem teljist til styrj-
aldarparfia, og pegar farið sé
fram á, að Bandarikin leggi til
knatvæli, sé í xauninni farið fram
á, að rofið sé hafnbann Breta,
sem raunverulega séu að berjast
fyrir Bandaríkin eins og fyrir
sig sjálfa.'Þjóðirnar í peim lönd-
Um, segir blaðið, sem búa við
matarskort eða sjá fram á hann,
ættu að snúa sér til Hitlers og
biðja hann um mat.
KAUPI GULL og silfur
hæsta verði. Sigurþór, Hafnar-
stræti 4.
Lord Beaverbrook
fær sæti i stríðs-
stjðrn Churcbills.
SAMKVÆMT tilkynningu,
sem birt var í London í
gærkveldi, hefir Winston
Churchill, forsætisráðherra, boð
ið Lord Beaverbrook sæti í
sjálfri stríðsstjórninni, en í
henni hafa hingað til átt sæti
aðeins fimm ráðherrar, Chur-
chill, Lord Halifax, Chamber-
lain, Attlee og Greenwood.
Þegar ráðuneyti Churchills var
myndað, var stofnað nýtt ráðu-
neyti, flugvélaframleiðsluráðu-
neyti, og var Lord Beaverbrook
falin forstaða pess. Hafði hann
fiarizt fyrir pví lengi í blöiðum
sínUm, að flugvélaframleiðslan
væri aukin sem mest og flugber
landsins efldur og Ioftvarnir.
Hefir Beaverbrook pegar orðið
mikið ágengt í starfi sínu.
Brezk blöð láta í ljós mikla
ánægju yfir pví, að Beaverbrook
lávarður hefir fengið sæti í stjríðs
stjórninni. Þau eru á einu máli
um pað, áð pótt Beaverbrook
faki sæti í henni, verði að sjá
um, að flugvélaframleiðslumálun-
Um verði sinnt af sama kappi og
að undanförnu. Beaverbrook
gegnir áfram fyrst um sinin for-
stöðu flugvélaframileiðsturáðu-
neytisins, en vafasamt er, að
hann geti gegnt pví til lengdar
jjafnhliða störfunum í stríðsstjórn-
inni.
Lof tárásir Breta gera
Hikiin nsla á Þfzka
landi.
Frásögn amerísks frétíaritara
RÉTTARITARI frá Asso-
ciated Press, sem ferðazt
hefir um Þýzkaland, liefir skrif-
að grein um ferðalag sitt, og
kemur þar ýmislegt fram, sem
sýnír, hversu mikið tjón hefir
orðið af loftárásum Breta.
T. d. getur hann þess, að í
Bielefeld, sem er í útjaðri iðn-
aðarsvæðisins í Ruhr, hafí verið
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
gerð loftárás á hverri einustu
nóttu í 2—3 vikur, og varð fólk-
ið að hafast við í loftvarna-
byrgjum fram undir kl. 3 á
hverjum morgni.
í einni borg var honum sagt,
að 17 menn hefðu beðið bana í
loftárás, og væri það meira en í
mörgum borgum öðrum. Loft-
varnastjóri Þýzkalands, von
Schröder, hefir látið birta við-
tal við sig í „Deútsche Allge-
meine Zeitung“ fyrir nokkru,
og fer hann ekki dult með,
hvaða spjöllum brezku sprengi-
kúlurnar geta valdið. Hann við-
urkennir og, að loftárásirnar
fari illa með taugar manna, og
sé farið að bera mikið á því í
Þýzkalandi.
Bretar fá nn bæði
flnpéter 01 flag-
nenB frá Amerikn.
AÐ er talið, að sprengju-
■"^ flugvélar þær, sem Bretar
eru nú að fá frá Bandaríkja-
mönnum, verði að nokkru leyti
mannaðar ameríkskum flug-
mönnum, en fjölda margir flug-
menn frá Bandaríkjunum hafa
að undanförnu gengið í hrezka
flugherinn.
Bretar gera mesta hveiti
iaohaap 1 Kaaada, sem
dæmi ern til.
AÐ var tilkynnt í London í
gær, að matvælaráðuneyti
Bretlands hefði samið um kaup
á 100 milljónum skeppa af hveiti
í Kanada og á afhendmgu að
vera lokið í júnímánuði næsta ár.
Áður hafði ráðuneytið samið
um kaup á 50 miiljónum skeppa
af kanadisku hveiti. Eru petta
mestu hveitikaup, sem gerð hafa
verið. 1 i I !
BaHnað að haida af-
mæii flákonar kon-
nigs hátíðlegt í
loregi.
HÁKON VII. NOREGSKON-
UNGUR, sem dvalizt hefir
i Bretlandi síðan hann varð að
flýja land, er 68 ária í dag.
Stjórnarnefindin í Oslo hefir
bannað, að afmælið verði haldið
hátíðlegt í Noregi á nokkum hátt.
Mönnum er jafnvel bannað að
draga fána • á stöng í tilefmi af
afmælinu!
Tveir Japaiir teknir
fastir í London.
firimaðir um njósnir.
ÞAÐ var tilkynnt í Loodon í
gær, að tvéir Japanir hefðu
verið settir í gæzluvarðhald par
vegna gruns mn njósnastarfsemi.
Það var tilkynnt, að petta
stæði ekki á nókkurn hátt í sam-
bandi við handtökur brez'kra
manna í Japan.
Skvodlbrottf intHlignr í ólks úr bæi
m „ef óvæntir atburðir gerasr
------»-----
í tilefni af umræðum
þeim, sem hafa orðið um
síðasta plagg loftvarna-
nefndar, hefir fram-
kvæmdastj. hennar, Lúð-
víg Guðmundsson, beðið
Alþýðublaðið um rúm fyr-
ir eftirfarandi grein:
AÐ er engum láandi, þótt
hann hugsi með nokkrum
kvíða til framtíðarinnar, ef til
þess þyrfti að koma, að fram-,.
kvæmdar yrðu ýmsar þær ráð-
stafanir, sem ráðgerðar hafa
verið í öryggis skyni, ef til
hernaðarátaka kæmi hér í bæn-
um eða næsta nágrenni hans.
Er það hvorttveggja, að við
íslendingar höfum fram til
hinna síðustu tíma lifað hér í
trúnni á fullkomið öryggi gegn
ógnum styrjalda og mannvíga,
og höfum enn ekki sætt okkur
við þá hugsun, að þurfa, þeirra
hluta vegna, að breyta frá fyrri
venjum. Og svo er hitt, að langt
er nú liðið á sumar, nóttin leng-
ist og veður kólnar, og áður en
langt um líður má eiga allra
veðra von, svo að ekki er væn
legt að þurfa ef til vill að neyð-
ast til þess að yfirgefa heimili
sitt og bæ og leggja leið sína
með léttan mal, eða engan, út í
auðnir, hraun og heiðar, og eiga
þar engan vísan samastað, ekk-
ert skjól að flýja í.
Það er því að vonum, að frá-
sögn og leiðbeiningar um leiðir
út úr bænum, „ef óvæntir at-
burðir gerast“, sem loftvarna-
nefnd birti í samráði við ríkis-
stjórnina, hafi valdið nokkrum
ugg hjá mörgum.
Og vonlegt er, að spurt sé
hvernig megi koma slíkum
brottflutningi svo fyrir, að ör-
yggi borgaranna sé að nokkru
bætt.
Og eðlilegt er einnig, að innt
sé eftir því, hvaða ráðstafanir
hafi nú þegar verið gerðar, eða
áformaðar séu, vegna skýlis fyr-
ir brottflytjendur, eða vegna
matar handa þeim, þegar þrot-
inn er sá litli skammtur, sem
þeir hafa náð að taka með sér.
—o—
Enda þótt nokkuð hafi borið
á ábyrgðarleysi í tali manna hér
undanfarið um áform þessi, og
jafnvel hafi verið hent hnútum
og beizkyrðum að loftvarna-
nefnd, vegna afskipta hennar af
málinú, mun ég engu svara
þessu. Nefndinni sjálfri, eða
einhverjum nefndarmanna,
stendur það nær en mér.
En þar eð mér eru ýms atriði
þessa máls kunn, mun ég nú
skýra málið nokkuð, ef verða
mætti til þess, að umræður
manna um þetta viðkvæma
vandamál verði hóflegri eftir en
áður.
Mér er fullkunnugt um það,
að Joftvarnanefndin hefir þegar
frá byrjun skoðað sig sem ráð-
gefandi aðila einungis, og hefir
hún í engu atriði, svo ég viti,
stigið út fyrir þau mörk.
Ákvarðanir um „leiðir, sem
kunna að verða tepptar fyrir al-
menning um stundarsakir
vegna herflutninga“, hafa því
vissulega engar verið teknar af
nefndinni, — enda hefir hún
enga herflutninga með höndum
og mun engin áform hafa um
að taka þá upp!
En vegna ákvarðana, sem yf-
irstjórn brezka setuliðsins hafði
tekið, varðandi herflutninga,.
„ef óvæntir atburðir gerast“,
vegna bendingar frá sama aðila,,
um nauðsyn þess, að almenn-
ingur yrði búinn undir það, að
„óvæntir atburðir“ kynnu að
gerast, og að hugsað væri þá
fyrir tilhögun á skyndibrottför-
einhvers hluta, eða alls þorra,.
íbúa Rvíkur og Hafnarfjarðar,,
fekk nefndin eigi skorast und-
an því hlutverki, að birta al-
menningi nauðsynlegustu leið-
sögn um þessi efni, ef verða
mætti, að það gæti komið í veg,
fyrir óþarfa árekstra, slys eða
manntjón. En áður voru leið-
beiningar þessar ræddar lið fyr~
ir lið á sameiginlegum fundíí.
ríkisstjórnarinnar og loftvarna-
nefndar, og voru þæx síðan —•
eins og áður segir — birtar í
samráði við ríkísstjórnina.
Mér er fullkunnugt um, aö
nefndinni eru ljósir hinir miklu
annmarkar og hættur, sem því
fylgja, að taka upp hundruð,
þúsundir eða jáfnvel tugi þús-
unda og flytja þá, eða hvetja þá
til að flytja á burt úr bænum,
nú þegar haust og hret fara £
hönd.
En af fyrrnefndum ástæðum
fekk nefndin heldur eigi skor-
ast undan þeim vanda, að hugsa
fyrir bráðabirgðaskýlum og
matarbirgðum handa brottflytj-
endum. Varð það því að ráði,,
að stjórn Rauða kross íslands
athugaði möguleika á þessu, og
er þeirri athugun lokið fyrir
nokkru og liggur álit hennar og
tillögur í málinu fyrir ríkis-
stjórninni. Aðrar leiðir og úr-
ræði en þar eru tilgreind. eru.
einnig í athugun.
Fyrsta þætti þessa máls er nú.
langt komið. Varað hefir verið
við hættum, sem yfir kunna að
vofa. Bent hefir verið á ótrygga
vegi og leiðsögn gefin um ör-
uggari leiðir, nauðsynlegasta
útbúnað brottflytjenda o. s. frv.
Gerðar hafa verið ráðstafanir
til, að sú leið, sem öruggust
megi teljast, þ. e. Vatnsveitu
vegurinn gamli, verði lagfærð-
ur, og er von um, að endurbót-
um á honum verði lokið á næstu
dögum. Loks er verið að undir-
búa merkingu leiða,
Nánari tillögur um tilhögun
brottflutnings — ef nokkru;
sinni þyrfti að grípa til slíks ó-
yndisúrræðis — eru einnig í
undirbúningi og fjalla þær um
aðvaranir til almennings um
hættu, löggæzlu á vegum, flutn-
inga m§ð bifreiðum o. fl.
—o—
Annar þáttur þessa máls, þ..
e: framkvæmd brottflutnings,,
hefst væntanlega aldrei.
Lúðvíg Guðmundsson.