Tíminn - 10.04.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.04.1963, Blaðsíða 3
DIEFENBA KER TAPAR John Diefenbaker, forsætis- ráðherra Kainada og foringi íhaldsmanna, sem bi'ðu mikinn ósigur í kosningunum í gær, mun aS öllum líkindum biðjast lausnar innan tveggja vikna, o,g ríkisstjóm frjálslyndia flokks- ins taka við. Samkvæmt bráðabirgðaat- kvæðatölum fékk íhaldsflokkur inn undir forystu Dicfenbakers aðeins 96 þingsæti af 265, en frjálslyndir undir forystu Pear sons fyrrum utanríkisráðherrá fengu 126 þings'æti og 42% allra greiddra atkvæða. ‘ Diefenbaker gaf að vísu í skyn í kvöld, að hann hygðist reyma að sitja áfram með minni hlutastjórn, en fréttamenn í Ottawa telja ólíklegt að honum muni takast það, þar eð flokk hans skortir a. m. k. 37 þing- sæti til að hafa meirihluta á þingi. Fræðilega séð er hugsan legt að D'iefenbaker geti setið áfram, ef 'hann fær stuðning minni flokkanna á þingi, en þá verða jafnólíkir flokkar og þjóðlánaflokkurinn lengst til hægri og hinn vinstri sinnaði Nýdemokratiski flokkur að taka 'höndum saman til stuðn- ings honum, og til þess eru litlar líkur. Að öllum líkindum verður Lester Pearson næsti forsætis- ráðherra landsins. Hann gaf út yfirlýsingu í kvöld og tók þar fram, að kosningaúrslitin lægju enn ekki fyrir, þar eð eftir væri að telja atkvæði- her- manna, en hann kvaðst vona, að þau gæfu'frjálslyndum enn fleiri þingsæti en þegar væru fengin. Diefenbaker benti í yfirlýsingu sinni á þetta sama, og gerir sér sömu vonir fyrir hönd flokks síns. En þessi ótöldu atkvæði geta naumast breytt miklu um þingmanna- fjöldann, þótt þau hims vegar geti haft einhver áhrif og hafi haft haft það við fyrri kosning- ar. SLYS VEGNA VATNS- ROKS AF RAUD AVATNI GB-Reykjavík, 9. apríl Bílslys varð í kvöld er tvær bifreiðir rákust á hjá Rauðavatni, var ekill annarrar bifreiðarinnar fluttur meðvitundarlaus í slysa- varðstofu og þaðan á Landakots- spítala, og var ekki enn kominn til meðvitundar, er blaðið átti sfð- ast tal við sjúkrahúsið í kvöld. Slysið varð með þeim^hætti, að aætlunarbifrcið kom austan frá Selfossi með 17 farþega og þegar kom á beygjuna suðvestan við RUSSAR KOMA ENN MED HÓTANIR NTB-Moskva, 9. aprfl Sovétríkin sendu í dag orðsendingu til ríkisstjórna Bandaríkjanna, Bretlands og Vestur-Þýzkalands og er þar farið hörðum orðum um ráð- gerðan kjarnorkuvígbúnað Atlantshafsbandaíagsins. Öðr- um aðildarríkjum Atlantshafs bandalagsins hefur verið send afrit af orðsendingunni. Segir Sovétstjórnin m. a. í plagg inu, sem er 3 þúsund orð á lengd, að tilgangurinn með stofnun kjarn orkuhers bandalagsins sé sá, að veita her Vestur-Þjóðverja kjarn- orkuknúin eldfláugavopn og þann veg efla undirbúning þeirra undir kjarnorkustríð, en það muni þýða aukið vígbúnaðarkapphlaup, sem muni ekki takmarkast við nein landamæri. Segir í orðsendingunni að Sovétstjörnin vilji vara Vestur veldin við stefnu, sem veiti flciri þjóðum kjarnorkuvopn, og lclur sig þurfa að gera viðeigandi ráð- stafanir, ef ekki verði af hcnni látið. Þá segir í orðsendingunni, að hafnir kafbáta og annarra skipa útbúnum með eldflaugum, yrðu afmáðar á fyrstu mínútum nýrrar slyrjaldar. Einnig segir þar, að Atlantshafsbandalagið hafi í hyggju að dulbúa herskip sín sem kaupskip, en ef það kæmi fyrir að slík skip sigldu um heimshöf- in, jafngilti það styrjaldarástandi, þótt engu stríði hefði verið lýst yiir. Mannskaðaveður Framhald at 1. síðu. ir hlutaðeigandi fréttaritara af þeim atburðum: HS og JJ-Hólmavík, 9. apríl. Hér skall á norðan hvassviðrl og snjókoma klukkan 10,45 og var komin blindhríð eftir skamma stund, skyggni vart yfir 50 metra upp úr hádeginu. Héðan voru tveir bátar á sjó, Bergvík, sem er 5 smálesta trilla og Hilmir, ST 1, sem er 29 smálesta bátur og voru þeir 3—4 tima siglingu frá landi, þegar veðrið skall á. Bergvík náði landi á Eyjum, við norðanverðan Bjarnarfjörð en Hilmir komst upp >að svokölluð- Bjarnarfjarðarrifi, sem er grynn- ingar, er loka fyrir grunnleiðina hér inn á Steingrímsfjörð. Þar varð hann að snúa við, enda kom- in stórhríð, svo að ekki sá út úr augum. Hefur hgnn haldið sjó síð- an. (Fréttin send klukkan 18,00). Um svipað leyti var vélbáturinn Pólstjarnan frá Drangsnesi, sem . er 12 smálestir, stödd utan við Bjarnarfjarðarrif, og var þar með þilaða vél og viðtæki, en gat kall- að út og beðið um aðstoð, ef unnt væri. Þá var klukkan 12,35. Heyrð ist síðan ekki meir frá Pólstjörn- unni. Hilmir, sem heyrði kallið, reyndi að svipast um eftir Pól- stjörnunni, en það bar ekki árang ur, enda skyggni sama og ekkert. Var þá haft samband við Slysa- varnafélag fslands og jafnframt smalað saman mönnum og tveir bílar fengnir í leiðangur með tæki slysavarnardeildarinnar hér og skyldi haldið á svokallaða Nes- strönd eða Bjarnarneshöfða, ef bátinn ræki að landi. En um það leyti kom frétt um að báturinn væri kominn að landi á Kaldrana nesi heilu og höldnu. Vélbáturinn Smári frá Drangs- nesi var einnig á sjó, langt úti á flóa. Smári er 8 lesta bátur og hafði ekkert til hans heyrzt til klukkan 3, en þá kallaði hann og sagðist halda, að hann væri ein- hvers staðar á Bjarharfirði en væri með bilaðan dýptarmæli og andæfði við bauju. Nú um sex- leytið í kvöld komu svo fréttir um það hingað til Hólmavíkur, að Smári hefði náð landi í Kaldrana- nesi. Hilmir, Smári og vólbátur- inn Guðmundur frá Bæ, sem er héðan frá Hólmavik, 37 lestir að stærð, höfðu samband sín á milli um talstöðvar með nok'kru milli- bili, en Guðmundur var á leið inn með Skaga og ætlaði að ná Skaga- strönd, en hefur ekki cnn náð landi og andæfir. JJ-Skagaströnd, 9. apríl. Bátarnir frá Hólmavík og Drangsnesi eru komnir í var hér undan Skaganum. Hilmir var kom inn á 60 faðma dýpi í landvar, sennilega út af Kálfshamarsvíkur vita klukkan rúmlega átta og lagst ur við bauju og andæfði. Guð- mundur frá Bæ var mjög skammt undan landi hér og var ætlunin að reyna að leiðbeina honum til lands með ljósum, þegar dimmdi. Annars er hér í kvöld svarta hríð. Ég er búinn að eiga hér hcima í 16 ár og minnist vart, að hafa séð hér svo svarta hríð. TF-Flateyri, 9. apríl. VÉLBÁTURINN Einar Þveræ- ingur, sem er 64 lesta bátur héðan frá Flateyri ,sendi út neyðarkall klukkan hálf tvö í dag og tilkynnti að líkur væru til þess að báturinn væri að sökkva ijm fjórar sjómílur NV af Barða. Voru þegar gerðar ráðstafanir til bjargar bátnum, en betur fór en á horfðist, því hann komst af eigin rammleik inn á ' fjörðinn'. Báturinn fékk á sig mikinn sjó á bakborðshornið að aftan og fyllt- ist báturinn alveg að aftan og ótt- uðust skipverjar, að hann næði sér ekki upp aftur. Engin slys urðu á mönnum, en styttur og skjól- borð'eru brotin bakborðsmegin. Annar bátur héðan, Mummi, var cinnig á sjó, en hann mun hafa verið veslar og komizt inn á Suð- urfirðina. AS-Ólafsvík, 9. apríl. VEÐRIÐ skall hér á upp úr há- deginu. Smærri bátarnir héðan náðu allir landi fljótlega, utan einn, Kristleifur, sem er 3—4 tonna trilla. Var farið að óttast um bátinn og leitað til Slysavarnafé- lagsins og Landhelgisgæzlunnar og leit hafin úr lofti. En um hálf sex leytið í kvöld komst báturinn inn af eigin rammleik, en þá var hér komið foráttubrim. Var þá aðeins einn bátur úti, Steinunn, sem er 72 lcsta bátur og fór að svipast um eftir Kristleifi. GÓ-Sauðárkróki, 9. apríl. VEÐRIÐ skall snöggt hér á, sem annars staðar, en bátarnir voru allir skammt undan, enda fiskur- | inn hér inni á firði. Komust þeir j allir að landi heilu og höldnu. Afli hefur verði hér tregur hjá netabátum, en sæmilegur hjá línu- og handfærabátum. Húsavík, 9. apríl. Húsavíkurbátar náðu allir heilu og höldnu heim, en tvær trillur þar sukku í kvöld, önnur í höfn-' inni, en hina rak til hafs og talið víst, að hún hafi sokkið. Sandi, 9. apríl. Þá var og óttazt um tíma um bátinn Klukkutind frá Sandi, en á honum var aðeins einn maður o-g var hann á leið inn, er veðrið I skall á Vélbáturinn Sæborg fór | að Ieita Klukkutinds og fann hann iOg ligg.ia bátarnir nú í vari inni I á feeruvík. i Það var sameiginle.gt með frá- sögnum allra frétlaritara blaðsins á Norðurlandi, að þar var iðulaus 'Stórhríð í dag. Veður var einnig mjög slæmt á Vestfjörðum og varð veðurhæð á þessu svæði upp í tíu vindstig og írost einnig mik- ið, 10—11 stig mest. Snjókoma var um allt norðanvert landið og á fjöllum sunnan lands. Þessu slæma veðri hafði ekki verið spáð fyrr en seinnipartinn i dag, en það brast á á tíunda tím anurn í morgun á Vestfjörðum. Orsökin var lægð, er var milli Vest fjarða og Grænlands, en hún fór miklu hraðar yfir en búizt hafði verið við. Þess má geta til marks um, hve snögg veðrabrigðin voru, að í veðurskeytum frá Hornbjargs^ vita klukkan 9 í morgun var sagt, j að þar væri norðan gola og bczta veður, en fyrir klukkan tíu var sent þaðan aukaskeyti, þar sem sagt var, að komin væru sex vind stig, snjókom'a og frost. Ekki var í kvöld talin ástæða til að óttast um báta frá Reykja- vík, en þó voru þeir ekki allir komnir að landi um tíuleytið. Bát ar, er fengu síld við Vestmanna- eyjar í nótt og morgun, lágu í vari i sunnan undir Reykjanesi í kvöld og munu verða þar í nótt. Vél eins Sandgerðisbátsins, Munins, bilaði er báturinn var út af Eldey í dag, en varðskip kom til aðstoðar og var með bátinn i togi. Um miðnættið í nótt var Lóðs- inn í Vestmannaeyjum á leið inn með tvo báta, er hann fór út til aðstoðar Voru það ísleifur II og Fróði ÁR Var þá ekki talin ástæða til að óttast um báta í grennd við Eyjar. Ekki er blaðinu kunnugt um slysfarir á landi, vegna veðursins. Vitað er um hjón frá Siglufirði, er tepptust uppi í Siglufjarðar- Rauðavatn mætti hún bíl, sem var á leið austur. Skipti það engum togum, að bílarnir runnu og skullu saman. Fór áætlunarbíllinn út í vegarbrúnina, en hinn bíllinn valt út af veginum í vatnið. í honum var maður við stýrið og stúlka í sæti hjá honum. Voru þau bæði flutt í slysavarðstofuna. Var gert að meiðslum stúlkunnar, sem ekki voru alvarleg, en bílstjórinn var, sem fyrr segir, fluttur áfram á spítala, og ekki enn útséð um, hve alvarlega hann var slasaður. Fólkið í áætlunarbílnum sakaði ckki svo teljandi væri. Orsök á- rekstursins er sú, að í rokinu í dag, sem stóð af vatninu, skvett- ist stöðugt upp á veginn og fraus jafnharðan, þegar leið á kvöldið. Munu bílstjórarnir ckki hafa var- að sig. á þessu fyrr en út á svellið var komið. Það skal tekið fram, að varað var við hálkunni á þess- um stað í kvöld. í kvöld slitnaði i'afstrengur hjá Hlégarði í Mosfellssveit og kvikn- aði í staurnum við straumrofið. Fóru viðgerðarmenn strax á stað- inn. Mikið bar á því, að uppsláttur kringum nýbyggingar fyki út í veð- ur og vind, en engin slys hlutust af svo vitað væi'i í kvöld. ARABARIKIN SAMEINAST NTB-Kairó, 9. april Samkomulag hcfur nú náðst um það í Kaíró, að Arabíska sam- bandslýðveldið, Sýrland og frak myndi með scr ríkjasamband með sameiginlegri stjórn og sameigin- lcgum her. í samkomulaginu er gert ráð fyr ir að hvcrt ríki hafi eftir sem áð- ur cigin ríkisstjórn og eigið' þing. Utanríkisstefna landanna verður hins vegar sameiginleg og utanrík- isþjónusta þeirra sameinuð. Þá reun hinn sameiginlegi’lier fá leyfi til afskipta i hverju landanna sem er, ef hætta er á að á það verði ráðizt eða byltingarhætla er inn- an lands, og forseti verður skip- aður sameiginlegur fyrir öll rík- in. Honum til aðstoðar verður sér stakt forsetaráð, sem fer með stjórn sambandsins ásamt forseta og sambandsstjórn. Gert er ráð fyr ir að i sambandsráði hafi Egypta- land_ fjögtir atkvæði, on Sýrland og írak þrjú hvert, og ráði ein- faldur meirihluti samþykktum ráðs i.ns. Kairó a að verða höfuðborg sambandsins. \ Efnahagur landanna þriggja verð ur ekki sameinaður, en hins veg ar er ráðgert að koma á fót áætl- urarráði allra landanna og verða ákvarðanir þess bindandi. skarði í jeppabiíreið í dag með 2 eða 3 ungbörn í bílnum. — Menn frá Siglufirði, er voru á ferð uppi í skarðinu í dag sáu bílinn fastan við svokallaðan Skarðshól, sem er Skagafjarðarmegin í Skarðinu. — Náðist í síma í Brúnastaði og það an náðist í bíl frá Vegagerðinni, er var á leig inn Skagafjörð. — Sneri hann vð og hélt til aðstoðar og frá Siglufirði fór einnig hjálp- arleiðangur af stað. Var ekki tal- in ástæða til að óttast um fólkið, þótt veður væri vont. Ekki var unnt að keppa á skíða- landsmótinu á Siglufirði í dag vegna veðurs, eins og áætlað hafði verið. T I M I N N, miðvikudagurinn 10. apifl 1963

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.