Tíminn - 10.04.1963, Page 5
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
T akmarkið með þátttöku er að
ðlast reynsiu í harðri keppni
■ i| | • iri I •, ir • ■• | | ■•jk • r' laust á allar æfingar fram að þessu
— segir Helgi Johannsson pjalfari unglmgalandsliosms i
körfuknattleik, sem keppir á EM í París í september | hér í bænum — éf áhuginn er slík
Það vakti ekki svo lítinn
h=>magang og úlfúS á sínum
i ^a, þegar hér í blaSinu birt
i frétt um væntanlega þátt-
t" m íslenzks unglingalands-
liðs í Evrópukeppni í körfu-
knattleik, en ýmsir ágætir
menn ruku þá upp til handa
og fóta og kepptust viS — af
einhverjum annarlegum á-
stæSum — að reyna að bera
fréttina til baka, sem þeir
töidu þjóðsögu líkari en sann-
leika, En það var nákvæmlega
sama hvað menn hömuðust og
miklu moldviðri var þyrlað
upp — íslenzkt unglingalands-
lið í körfuknattleik var engu
að síður til og þeirri staðreynd
varð ekki haggað, að þátttöku
tilkynning fyrir það hafði ver
ið send í Evrópukeppni.
Síðan þetta skeði eru liðnir
rettir tveir mánuðir og sem bet-
ur fer hefur sá.tími reynzt nógu
langur til að græða öll sár — og
gera mönnum allar helztu stað-
reyndir ljósar. Þegar í upphafi
var gert ráð fyrir að undanúrslit
keppninnar færu fram í þessum 1
mánuði, en málið hefur tekið ýms-
ar sveiflur og síðar kom í ljós,
að nokkur þeirra landa, sem voru
í riðli með íslandi treystu sér ekki
til að vera með á síðustu stundu
— þessi lönd voru England, Skot-
iand og Wales — og var þá grip-
ið til þess ráðs, að breyta riðlun-
um verulega og fresta keppninni
þar til í haust. — Og fyrir skömmu
gekk svo alþjóðakörfuknattleiks-
sambandið írá öllum undirbúningi |
fyrir keppnina og ákvað alla keppn I
isdaga og jafnframt riðla. Löndin,
sem taka þátt í keppninni, verða
2? talsins oa er þeim skipt niður
; fjóra riðla — með fimm löndum
í hverjum, en Tékkóslóvakía, sig-
urvegarinn > síðustu keppni, Rúss-
ar og ftalir koma beint inn í loka-
keppnina, sem fer fram fyrir jan-1
úarlok 1964 á Ítalíu.
íslandi héfur verið skipað í riðli
mcð Frakldandi, Luxemburg, Sví
þjoð og írlandi — og er ákveðið,
að þessi lönd keppi saman í París
dagana 15.—20. september n.k. —
cg liðið, sem ber sigur úr býtum
í riðlinum, fer í aðalkeppnina.
Erfiðleikar með æfingatíma
— Áhuginn er mjög mikill hjá
pdtunum-, en okkur hefur skort
æíingatíma, sagði Helgi Jónsson.
þjálfari unglingalandsliðsins, er
við ræddum lítillega við hann í
íyrradag um æfingar og undirbún-
ins liðsins fyrir keppnina. — Það
hefur verið æft frá febrúarbyrjun
os fram að þessu hefur aðeins ver
ið um eina æfingu að ræða í viku
— að vísu liöfum við tvo samliggj-
andi tíma — en engu að síður hef-
ur þetta ekki verið nægilegt. Á-
stæðan fyrir því að æfingatímarn-
ir skuli ekki vera fleiri, er hinn
sífelldi húsnæðisskortur yfir vetr-
artímann — við værum illa stadd-
UNGLINGALANDSLIÐIÐ í körfuknattleik 1963, sem tekur þátt í Evrópukeppninni í París 15.—20. september
n. k. Fremri rö8 frá vinstri: ViSar Ólafsson, ÍR; Gunnar Gunnarsson, KR; Tómas Zöega, ÍR; Dónald Ráder, ÍR;
Kristján Steinarsson, KR; Kolbeinn Pálsson, KR; og þjálfarinn 'Helgi Jóhannsson. — Aftari röð: Hjörtur
Hansson, KR; Anton Bjarnason, ÍR; SigurSur Ingólfsson, Ármanni; Kristinn Stefánsson, KR; Agnar Frið-
riksson, ÍR; og Þors’teinn Ólafsson, KR. — Þess má geta, aS allir leikmenn eru sautján ára eða yngri.
(Ljósm.: Sveinn Þormóðsson).
ir, ef körfuknattleiksdeildir ÍR og I
KR hefðu ekki hlaupið undir
bagga með okkur og látið okkur
í té þessa tíma, sem við erum með,
en við gerum okkur þó von um,
aö fá fleiri æfingatíma á næst-
u.nni, þar sem knattspyrnumenn-
iinir eru farnir að stunda útiæf-
ingar og þá ætti að losna eitthvað
sf æfingatímum.
— Og er þá memingin ag æfa |
i allt sumar?
— Já, helzt tvisvar sinnum í
viku í íþróttahúsunum hér í
Reykjavík — og ef leyfi fæst, eitt-
hvað í íþróttahúsinu á Keflavíkur
flugvelli, en þar eru aðstæður iík
asiar því, sem mun vera ytra.
— Og hefurðu trú á, að pdtarn-
FASTEIGNAVAL
ir stundi æfingar vel í sumar?
— Það leikur enginn vafi á því,
að æfingar verða stundaðar vel í
sumar, satt að segja hef ég aldrei
komizt í kyhni við jafn mikinn á-
huga og hjá þessum piltum —■ þeir
hafa mætt nær undantekningar-
ur þarf maður ekkert að óttast.
Tilgangukinn er að öðlast
reynslu
Er við spurðum Helga hvaða
möguleika hann héldi að við ætt-
um í Evrópukeppni sem þessa,
hvað hann lítið vera hægt að segja
um það. — f síðustu Evrópu-
keppni, sem fram fór í Bologne
á ftalíu í fyrra, urðu Frakkar í
þriðja sæti, að öllu forfallalausu
verða þeir líklega sterkastir í okk
ar riðli, en annars veit ég að Sví-
ar eiga nokkug sterkt lið.
— Hvað vilt þú segja okkur um
kosti og galla íslenzka liðsins?
— Sem betur fer eru kostirnir
langtum fieiri en gallarnir — liðið
er taktiskt, langskot eru góð og
yfirleitt eru piltarnir fljótir að
læra þau kerfi, sem sett hafa verið
fram til þessa. — Gallana er erf-
itt ag ráða við, en það sem kemur
til með að há okkur mest, er skort
ur á hæð — hæsti pilturinn okkar
er 1,94 m. — sá næsti er 1.91 —
en hinir eru um 1.86. Eg geri
fyllilega ráð fyrir, að meðalhæð
andstæðinga okkar verði nokkuð
hærri en okkar.
Annars er aöalmarkmið okkar
með þátttöku, að öðlast reynslu
í harðri kepni — einnig ættum
við að geta fengig samanburð á
getu íslenzku piltanna og jafnaldra
þeirra erlendis. Hingað til hefur
yngri körfuknattleiksmenn skort
verkefni — ég held, að við getum
varla fengið Verðugra verkefni fyr
ir þá, en einmitt þátttöku í þess-
ari Evrópukeppni — fyrst og
fremst vegna þess, að hér erum
vig að byggja upp landslið fram
tíðarinnar, sagði Helgi að iokum.
—alf.
HELGI JÓHANNSSON, þjálfari ungl.
ingalandsliðsins — hann er einnig
þjálfari íslandsmeistara ÍR og
landsliðsins
í skiptum fyrir íbúð í Reykja-
vík, Hafnafirði eða á suður-
nesjum. Jörðin er rétt við kaup
tún austan fjalls. Henni fylgir
lax og silungsveiði og jarðhiti.
Búslóð gæti fylgt.
Höfum kaupanda að einbýlis-
húsi í smíðum, Má vera í Kópa
vogi.
Hef kaupanda ag góðri 2ja
herb íbúð.
Höfum kaupendur að íbúðum
og húsum, fullgerðum og í
smíðum.
lögfræSiskrifstofa
og fasteignasala,
Skólavörðustíg 3 a, III
Símar 22911 og 14624
Sími eftir kl. 7, 22911 og 23976
Jón Arason
Gestur Eysteinsson
VERZLUNARSTARF
Afgreiðslumaður
Vér viljum ráða sölumann til starfa í herra-
fataverzlun, sem gæti enn fremur séð um
fatamarkaði úti á landi
Nánari upplýsingar gefur Starfsmannahald
SÍS. Sambandshúsinu.
STARFSMÁN NAHALD
T í M I N N, miðvikudagurinn 10. apríl 1963
OXLAR
með fólks- og vörubílahjólum, vagnbeizli og beizlis-
grindur fyrir heyvagna og kerrur. Notaðar felgur
og ísoðin dekk. — til sölu hjá h.ristjáni Júlíussyni,
Vesturgötu 22, Reykjavík. Sími 22724.
Póstkröfusendi.