Tíminn - 18.05.1963, Síða 1
!
FYRIR UPPÞVOTT,
NYLON OG ULL
110. tbl. — Laugardagur 18. maí 1963 — 47. árg.
VORUR
BRAGÐAST
BEZT
BLEKKINGAR í TRYGGINGAMÁLUM
Ellílaun hækkuðu um 10 þús.
en daggjaldið um 20 þúsund
Eitt hið helzta, sem stjórnarflokkarnir hæla sér nú af, er hækkun
bóta úr kerfi almannatrygginganna. Alþýðuflokkurinn eignar sér þetta
sérstaklega, eða aukningu trygginganna, eins og hann kallar það, og
segist hann eiga allan heiður af því í stjórnarsamvinnunni. Hins vegar eru
blöð Sjálfstæðisflokksins líka óspör að hæla sér af þessu, og eru ekki
nema tveir dagar síðan Vísir birti heila forsíðu um þetta ásamt mynd af
gömlum hjónum, sem hafa öll yngst upp (á myndinni að sjá) við þessar
stórmannlegu ellitryggingar.
Eins og kunnugt er áttu
auknar tryggingabætur að
vaga upp á mót kjaraskerðingu
dýrtíðar og giengisifellmgar,
sem voru og eru enn meginstoð
ir „viðrcisnarinnar". En þó að
nefndar séu háar tölur í aukn-
ingu trygginga, kemur í ljós,
að þær vega hvergi nærri á
móti þeim reginbyrðum, sem
„viðreisnin“ hefur lagt á fólk
ið á móti. Þetta er hverjum
manni í landinu ljóst, þrátt fyr-
ir skrum stjórnablaðanna.
Af því að stjórnarblöðin hafa
tekið gömul hjón sem dæmi,
er rétt að halda því og reikna
það áfram, enda eru þar fyrir
hendi skýrar tölur og þær eru
þessa.
Stjórnarblöðin segja, „að elli
og örorkulífeyrir hjóna hafi í
árslok 1959 verið kr. 15.927,00
á ári en í febrúarlok 1963 kr.
25.920,00. Einstaklingslífeyrir
var kr 9.955,00 en er nú kr.
18.230,00 eða 83% hækkun”.
Þessa tölur er ekki ástæða til
að rengja, og víst er hækkunin
töluverð' í krónutölu, en þá
vantar hækkanir „viðreisnar-
innar“ á móti. Einfaldast er
að iita á gjaldskrá Elli- og
hjúkrunarhemiilisins Grundar,
því að áreiðanlega hefur sú
• stofnun ekki hækkað gjöld sín
meira en nauðsyn var af völd-
um „viðreisnarinnar". Þær töl-
ur eru þessar:
Dvalargjald á Grund á ári
1958:
Á sjúkradeild kr. 25,550,00.
Á „almennri deild“
kr. 21.900,00.
Dvalargjald einstaklings á
Grund á ári 1963:
Á sjúkradeld kr. 47.450,00.
Á „almennri deild“
kr. 41.975,00.
Hækkun er því
kr. 21.900.00
á sjúkradeild Grundar og
kr. 20.075.00
á almennri deild.
Hækkun ellilífeyris trygging
anna á einstakling varð hins
vegar aðeins eins og áður seg-
ir:
kr. 9.955.00
Framhald á 13. sfðu.
1200 MANNS A FUNDUM
IGÞ-Reykjavík, 17. maí.
FORMAÐUR Framsóknar-
flokksins, Eysteinn Jónsson,
ásr'.mt frambjóðendum við-
komandi kjördæma, hefur
undanfarið haldið fundi víðs-
vegar um landið. Fundir þess-
ír hafa alls orðið sjö og hefur
fundarsókn verið sérstakleg*
góð, enda hafa alls um tólf
hundruð manns sótt þá.
Fundirnir voru haldnir á
Sauðárkróki,Akureyri, Borgar
nesi, Stykkishólmi Vest
mannaeyjum, Selfossi og
Grindavík Báru þeir með sér
að stjórnmálaáhugi er óvenju
/rvikill og áhuginn fyrir efl-
ingu Framsóknarfíokksins
meiri en nokkru sinni fyrr.
Sums staðar var fullt út úr
dyrum og kom fólkið langar
leiðir að til að sitja fundina
þrátt fyrir ótíð, óvenjulega
vonda vegi og erfiðar aðstæð-
ur að öðru leyti.
Hver stal
kosninga-
bombunni?
MB—IGÞ-Reykjavík, 17 maí.
Maður að' nafnl Ásgeir Magnús
son, hefur kært tll Sakadómara
embættisins í Reykjavík yftr
þjófnaði á skjölum úr íbúð slnni
og segtr þessi skjöl hafa birzt
undanfarið í dagblaðinu „Þjóð-
viljanum“, sem njósnaskýrslur.
tll bandaríska sendtráðsins hér.
Stendur rannsókn í þessu máli
nú yflr hjá rannsóknarlögregl-
unnl, og vlrðíst einsætt að Ás-
geir hafi ritað skýrslur þær um
elnkahagi manna, sem Þjóðvilj-
Inn hefur undanfarið blrt mynd
ir af.
Þjóðviljinn hefur undanfarið
gert mikið veður út af þvi, sem
hann hefur kallað „njósnir
bandaríska sendiráðsins um ís-
lendinga“. Hefur ekki staðið á
svörum hjá Morguhblaðinu og
Vísi, og hafa þau eftir fremsta
megni reynt að draga úr því,
sem þau töldu sýnilega vont at-
hæfi sendiráðsins, með ýmsum
fúkyrðum í garð kommúnista og
Þjóðviljans. Hér hefur því verið
um mikið kosningamál að ræða
hjá þessum aðilum og talið
mjög þýðingarmikið.
Nú er hins vegar komið á
daginn, að einn af kynlegri kvist
um bæjarins hefur verið að
föndra við það árum saman, að
gera skýrslur um menn, og að
það eru þessar skýrslur, sem
kosningaslagurinn stendur um
hjá Þjóðviljanum, Morgumblað-
inu og Vísi. Segir Visir frá því
í dag, að þessi maður hafi kært
stuld á „gögnum“ sínum til
rannsóknarlögreglunnar.
Gögn þessi eins og þau hafa
birzt í Þjóðviljanum, hafa verið
all einkennileg, eins og von er
til. Hins vegar hefur Þjóðviljinn
gripið gögn þessa kynlega kvists
fegins hendi og birt þau með
Framhald á 15. sISu.