Tíminn - 22.05.1963, Page 3

Tíminn - 22.05.1963, Page 3
STORBRUNI AÐ LAUGAVEG111 BÓ-Reykj avík, 21. maí. Klukkan 13,40 í dag kom upp eldur suðvestanmegin á þriðju í hæ5-á»Laugavegi 11. Páum mín- Msíðar lagði mikinn reyk úsinu. Slökkviliði og lög- hpjlú b'arust margar tilkynn- Ifngar um þetta nær samstundis, 'og skömmu síðar var dælubíl og tveim stigabílum lagt að for- htið húsins. Um sama leyti var stigabDl kominn að bakhliðinni, en þeir, sem fyrstir komu á vett- vang sáu, að menn létu sig síga út um gluggana hjá Otto Mieh- elsen. Eldurinn var þá magn- aður á þriðju hæðinni sunnan- vert, og þykka reykbólstra lagði út um gluggana á ljósmynda- stofu Jóns Kaldals á þriðju hæð í vesturálmunni. Þar sást eng- in hreyfing, en fjöldi manns vann að því að bjarga skrif- stofuvélum frá Michelsen út um gluggana á hæðinni fyrir neð- an. Löreglan girti umhverfið með köðlum, en gífurlegur mann fjöldi hnappaðist allt í kringum húsið og uppi á þökum sunnan við Laugaveginn. Tvær bruna- slöngur voru í notkun á forhlið- inni, og skömmu síðar var dælu- bíl lagt á Hverfisgötu og slang- an dregin upp Smiðjustíg og vatninu beint inn um miðglugg- ana á þriðju hæð, blakhlið. Þá voru fjórar slöngur lleknar í notkun að sunnan. Þeir, sem horfðu á brunann, furðuðu sig á herkju slökkviliðsmanna, sem stóðu við gluggana grímulausir í efstu stigaþrepunum í þykkri reykjarsvælunni, en mökkinn lagði yfir nágrennið svo mönn- um súrnaði í augum. Laugavegur 11 er gamalt timb urhús, járnklætt, nema vestur- álman. Þar er timbur í öllum gólfum. MÖrg fyrirtæki hafa að- setur í húsinu, sem er eign Silla og Valda. Sjálfir horfðu þeir á brunann, og á Smiðjustígnum sáu menn Jóhannes Geir málara með málverk í annarri hendi og ramma í hinni. Vinnustofa Jó- hannesar var á þriðju hæð í austurálmunni. Þar átti Jóhann es verk sín, bækur og áhöld, en sagt var, að honum hefði ekki tekizt að bjarga öðru en því, sem hann hélt á. Margir spurðu um Kaldal, en í ljósmyndastof- unni var allt plötusafn hans og margir aðrir óborganlegir hlut- ir, myndir af listaverkum, ara- grúi af mannamyndum — flest- öll verk hans. Um klukkan þrjú hafði slökkviliðið rofið þakið á báðum álmum og komið í veg fyrir, að eldurinn kæmist inn í Ijós- myndastofuna með því að beina slöngum undir þakjárnið, og sömuleðis var komið í veg fyrir að eldurinn kæmist inn í vinnustofu Jóhannesar Geirs. Á báðum stöðum höfðu þegar orð- ið miklar reykskemmdir, en við þetta löðruðu öll gólf í vatni. Efsta hæðin gegnt Laugavegin- u.m var þá kolbrunnin, en suð- vestanmegin, yfir klæðaverzlun- inni Vouge ,hafði eldurinn kom- izt niður á miðhæðina og valdið stórskemmdum á gangi. Vatnið fossaði í stríðum straumum nið- ur stigann og út um dyrnar, og inni i Vouge hripaði það niður úr loftinu. Þá hafði búslóð leigjendanna í austurálmu, fyrstu -og annarri hæð, verið bjargað út á Smiðju- stíg, og nokkru af málverkum Jóhannesar og búslóð annarra leigjenda á þriðju hæð. Slökkvi- liðið hafði þá náð tökum á eld- inum, og klukkan hálf fjögur virtist hann kulnaður. Um stund arfjórðungi síðar kom eldtunga út með þakskegginu að sunnan, en var þegar kæfð með vatni innanfrá. Leigjendur gengu nú um húsið og svipuðust um. Kona, sem bjó á þriðju hæð í austurálmunni ,horfði með tár- in í augunum á sótugar vistar- verur flóandi í vatni og hluti, sem náðust ekki út. Undir fótum manna á gólfinu lágu nokkur málverk eftir Jóhannes Geir, og þar missti hann bækur sínar. Vatnið hélt áfram að drjúpa og síga niður úr loftunum og innan skamms mundi það ná um allt húsið. Á þriðju hæð að sunnan, inn- an um brunna rafta og gjall- hrúgur, stóð aldraður maður með blauta sæng í fanginu; þar inn af hittum við slökkviliðs- mann að skófla vatni af gólfinu í Ijósmyndastofu Kaldals. Á veggjunum héngu myndir, blakk ar af reyk og verptar af hita — Kjarval, Halldór Kiljan Laxness, öskjurnar í filmu- og plötu safninu voru huldar gráu sót- lagi, en hvort plöturnar eru heil ar vissi enginn með vissu. Lík- ur benda þó til, að hið óborgan- lega plötusafn sé nokkurn veg- inn heilt. í suðvesturherberginu á þriðju hæð var Magnús Eggertsson, varðstjóri hjá rannsóknarlög- reglunni að kanna ummerkin. Leigutaki þar er Eirikur Bjarna- son, heildsali, en í þessu her- bergi kom eldurinn upp. Með hverjum hætti það varð, er eng- an veginn ljóst, en heildsalinn taldi, að herbergið hefði verið mannlaust, þegar eldurinn kom upp. Þar voru geymdir nælon- sokkar og undirfatnaður, en ekki eldfim efni, að talið er. Slökkviliðið tjáði blaðinu, að þetta væri að minnsta kosti í þriðja sinn sem eldur kemur upp á Laugavegi 11, þó ekki hafi fyrr verið svo mikið að gert. Þetta hús má nú teljast ónýtt. Myndin að ofan til vinstri er tekin um kl. 14 eða 20 mínútum eftir að eldurinn brauz* út. Til hægri er piltur með hluti, sem bjargað var úr húsinu. (Ljósm: Tíminn, GE) — Þrfiðja myndin er tekin við gluggana hjá Otto Michelsen í sama vetfangi og starfs fólkið þar varð þess áskynja, að eldurinn var að læsa sig um húsið sunnanvert laus* fyrir kl. 14. (Ljósm: Tíminn, SB). T f'M I N N, miðvikudagurinn 22. maí 1963. 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.