Tíminn - 23.05.1963, Side 16
HÚSMÓÐIR BORGAR NÚ 315,85 FYRIR MATVORl, SEM KOSTAÐI 18610 ARIÐ1958
Fimmtudagur 23. maí 1963
114. tbl.
47. árg.
ÞAÐ ER DYRT
LIFA!
TÍMINN brá sér í innkaupaferS
með reykvískri húsmóður í gær-
dag til þess a3 komast a3 raun um
dagleg útgjöld íslenzkra heimila
nú á túnum. f heimili húsmóður-
innar eru fimm manns, þau hjón-
in, fjórtán ára stúlka, 11 ára dreng
ur og 5 ára stúlka. Þegar inn-
kaupin höfíSu verið ger®, hafði
l-eimilið orðiið að greiða 315,85 kr.
þrátt fyrrr það, að aðeins var
um helztu nauðsynjavörui- að
ræða. Tíminn aflaði sér upplýsinga
um, hvað sama magn af sömu
vöru hefði kostað í október 1958,
og niðurstaðan varð: 186,00 krón-
ur. Þessar tölur sýna, að á þess-
um tíma hefur hækkunin á um-
ræddum vörutegundum orð'ið 70%
BANA
SLYS
JK-Reykjavík, 22. maí.
Lárus Hjálmarsson, skipverji á
Hvassafell'i, slasaðist til ólífis í
Rotterdam í Hollandi síðdegis á
laugardaginn var. Hvassafell hef-
ur verið í þurrkví þar í nokkrar
vikur, og féll Lárus af brún þurr-
kvíarinnar niður á botn hennar.
Hann var strax fluttur á sjúkra-
hús, en andaðist þar fljótlega.
Skýrsla hefur enn ekki borizt hing
að til lands um slysið.
og sú mesta sem sögur fara af.
Listinn yfir innkaup húsmóður-
innar í þetta sinn fer hér á eftir
og til samanburðar tölur um verð
á sömu vörutegundum í október
1958:
Verð
VÖRUR:
Verð
í ofkt.
1958:
kr. 12,50 kr. 8,50
6,45
í mai
1963:
Fiskflak, 1 kg.
Skyr, IV2 pund — 9,75
Smjör, V2 kg. — 41,60 — 28,15
Mjólk. 5 pottar — 27,00 — 21,50
Súpu|urtlr, 1 bréf — 8,30 — 5,50
Hangikjöt, álegg,
6 sneiðar — 6,00 — 4,20
Egg, 4 stk. — 14,00 — 8,70
Kaffl, 1 pakki — 12,05 — 10,75
Laukur, 300 gr. — 3,70 — 2,45
Kartöflur, 5 kg. — 32,50 — 14,75
Franskbr., 1 stk. — 5,80 — 4,00
Normalbr. 1 stk. — 4,65 _ 3,20
Jólakaka, 1 stk. — 15,50 — 10,40
Hveiti, 1 kg. — 7,50 — 3,20
Haframjöl, 1 kg. — 7,25 — 3,05
Sagógrjón, 1 kg. — 9,95 — 5,65
Te, 100 gr. — 20,30 — 9,35
Kakó, 250 gr. — 17,45 — 11,35
Strásykur, 2 kg. — 21,30 — 9,40
Molasykur, 1 kg. — 20,75 — 6,55
Smjörlikl 1 kg. — 18,00 — 8,90
Þetta þýðir 70% hækkun á nauð-
synjavamingnum, sem húsmóðir-
in keypti, og hver einasta húsmóð-
ir í landinu verður að kaupa til
heimilis síns. Það má því öllum
vera ljóst, hve viðreisnarmismun-
urinn er gífurlegur, og ekki eru
horfur á því, haldi núverandi
stjórn völdum eftir kosningar, að
ástandið batni. Það líður þá áreið-
anlega ekki á löngu, unz viðreisn-
arstjórnin hefur potað sínum við-
reisnarmismun upp um önnur
70% — það munu heimilin verða
vör við, engu síður en nú.
Samtals kr. 315,85 kr. 186,00
Innkaup þessa dags hjá húsmóð-
urinni hafa því kostað heimili
hennar hundrað tuttugu og níu
krónum meira núna, undir við-
reisnarstjórn, en í október 1958.
260 þúsund
króna dómur
IH-Seyðisfirði, 22. maí. — f kvöld
! gekk dómur í máli Þórarins Ein-
| ars Olgeirssonar, skipstjóra á
! brezka togaranum SPURS GY-697,
sem tekinn var í landhel'gi í gær-
morgun. Hlaut hann 260 þúsund
króna sekt og afli og veiðarfæri
i voru gerð upptæk. Skipstjórinn
bar ekki á móti sekt sinni, en
sagði, að það hefði verið óvilja-
verk, er hann rak inn fyrir land-
helgi.
TÍMINN í fylgd með húsmóðurlnnl, þegar hún gerðl innkaupln sín
fyrlr daginn.
Kvöldskemmtun FUF 45 T0NNA YTA
VEGNA miklllar þátttöku í skemmtun Félags ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík í súlnasal Hótel Sögu flmmtudagskvöldið 16. þ. m.
þar sem færri komust að en vildu, hefur önnur skemmtun með' sama
snfði verið ákveðin á sama stað fimmtudagskvöldið 30. þ. m. Skemmti-
atriði verð'a fjölbreytt. Alllr Framsóknarmenn og stuðningsfólk B-list-
ans er velkomið meðan húsrúm leyfir. — Pantið miða tímanlega á
næstu hverfaskrifstofu, en þær eru á eftlrtöldum stöðum:
Fyrir Laugarás og Langholtsskóla: LAUGARÁSVEGUR 17, síml 37073.
Fyrir Breiðagerð'isskóla: MELGERÐI 18, sími 32389 og 34420.
Fyrir Sjómannaskólal MIKLABRAUT 60, síml 17941 og 17942.
Fyrir Austurbaéjarskóla: BERGSTAÐASTRÆTI 45, sími 17940; 17943.
Fyrir Miðbæjarskóla: TJARNARGATA 26, sími 12942.
Fyrir Melaskóla: KAPLASKJÓLSVEGUR 27, sími 19102 og 19109.
Hverfaskrlfstofurnar verða OPNAR frá kl. 2—22 DAGLEGA.
F0R I SJ0INN
JK-Reykjavík, 22. rnaí.
Eitthvert stærsta tækið á hjól-
um, sem til er hér á landi, 45
tonna jarðýta frá Sameinuðum
verktökum, lenti í morgun í sjón-
um, þegar verið var að skipa ■
henni á land inni í Grafarvogi. |
Jarðýtan hefur undanfarið verið
notuð hjá loranstöð varnarliðsins
við Hellissand, en var flutt suður
með sementsferjunni frá Akranesi.
Jarðýtan átti að fara í land í Graf
arvoginum, en þegar til kom,
reyndist fjaran of gljúp fyrir hana.
ÞEGAR FERDINAND FÉKK SANNLEIKANN UPP ÚR BJARNA UM VIÐREISNINA
Hún festist í fjörunni og varð ekki
náð upp. Síðan flæddi og jarðýt-
an fór alveg í kaf. Um sjöleytið í
kvöld fóru dráttarbílar frá Björg-
un h.f. inn í Grafarvog til þess að
ná henni upp á fjörunni í nótt.
Þegar reynt var að ná ýtunni upp
um hádegið, notaði björgunarfélag-
ið níu dráttarbíla, en allt kom fyr-
ir ekki Iláfjara var rétt fyrir ei’.t
í nótt og töldu björgunarmenn
sennilegt, að þá mundi verða unnt
að ná ýtunni, sem er nokkurra mill
jón króna virði.
Basar
Freyja, félag Framsók,narkvenna
í Kópavogi, heldur basar sunnu-
daginn 26. maí á skrifstofu Fram-
sóknarflokksins að Álfhólsvegi
4 A. Þær konur, sem vilja gefa
muni, eru góðfúslega beðnar a'ð
koma þeim á skrifstofuna á föstu-
dag og laugardag. — Stjórnin.