Alþýðublaðið - 12.08.1940, Síða 1

Alþýðublaðið - 12.08.1940, Síða 1
XXI. ÁRGANGIÍR MáNUDAGUR 12. ÁGÚST 1940 183. TÖLUBLAÐ RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN 60 þýzkar Hogvélar af f ur skotn ar nlðnr f loftorustnm f gær í ----+-- Það var barizt meðfram allri suðurstrond Engiands. Bretar segjast hafa misst 26 flugvélar í orustunum. i£í5ú' iiggSi IÍíussffS Kort af Albaníu. Uppreisn í Allianía. Blóðugar skærur milli íbúanna og ítalskra hermanna víðsvegar um landið ALVARLEGAR óeirðir hafa brotizt út í Alban- íu og hefir komið til blóðugra viðureigna milli íbúanna og ítalskra hermanna, sem þar eru. Óeirðirnar byrjuðu á fimmtu- dagskvöldið í þorpi skammt frá landamærum Júgóslavíu, þegar Brezht herflutnlnga sbip skotið í kaf. lesíurn hiuta áhaínariunar tókst að bjarga. ÞAÐ var tilkynnt í London í gærkveldi, að skipið „Mo- hammed el AIi Kabir“ hefði orðið fyrir tundurskeyti þýzks kafbáts á Atlantshafi. Skip þetta var 7500 smálestir og var eign brezk-indverska skipafé- lagsins, og hafði brezka stjórn- in tekið við því og notað það til herflutninga. Var það í her- flutningum, er þýzkur kafbátur skaut á það tundurskeyti fyrir- varalaust. Af 860 mönnum, sem á skip- inu voru, hefir 740 verið bjarg- að. Sjór var mikill, er skipinu var sökkt. Margir hermenn vörpuðu sér í sjóinn og drukknuðu sum- ir þeirra. kveðja átti íbúa þess í ítalska herinn og reynt var að leggja hald á búpening og ýmsar land- búnaðarafurðir handa hernum. Lenti í blóðugri viðureign milli þorpsbúanna og ítölsku her- mannanna. ítalir reyndu að stilla til frið- ar með því að senda háttsetta herforingja á fund uppreisnar- mannanna, en þeim fundi lauk þaunig, að allir herforingjarnir voru drepnir. Óeirðirnar hafa síðan breiðzt út um landið og hefir verið bar- izt á mörgum stöðum. Talið er að af ítölum hafi þegar fallið um 100 menn, þar á meðal 7 herforingjar. ítalir hafa þegar sent mikið lið til Albaníu og fara fram með mikilli grimmd. Hafa þrjú þorp verið brennd til ösku til þess að hræða íbúana frá frekari mót- spyrnu. Bretar búa nm síg í fjaliaskðrðnnum snðnr I Somaiilandi. FREGNIR frá Brezka Soma- lilandi herma, að brezkt herlið sé búið að koma sér fyrir í fjallaskörðum og í öllum helztu varnarstöðvum öðrum. Frh. á 4. síðu. /L1 jíILEGAR LOFTORUSTUR voru háðar yfir suður- ■*~*-*11 strönd Englands mikinn hluta dagsins í gær, á öllu svæðinu frá Dover til Weymouth. Er talið, að um 400 þýzk- ar sprengjuflugvélar og orustuflugvélar hafi teltið þátt í þeim, og segjast Bretar hafa skotið niður 60 flugvélar, en^ sjálfir hafa misst 26. Er orustum þessum líkt við viður- eignina yfir Ermarsundi á fimmtudaginn, enda er flugvéla- tjón Þjóðverja það sama og þá, en flugvélatjón Breta nokkru Göring, sem síðustu hálfu vikuna hefir fengið slæmar fréttir af flug- flota sínum. meira. Loftorusturnar hófust með hrikalegum loftárásum Þjóð- verja á flotahöfnina í Weymouth og eyjuna Portland fram undan henni, Portsmouth, Dover og á brezka skipalest und- an ströndum West-Anglia. í árásunum á Weymouth og Portsmouth tóku þátt um 200 þýzkar sprengju og orustuflugvélar, en brezkar orustuflugvélár af gerðunum Spitfire og Hurricane lögðu tafarlaust til atlögu við þær og lauk þeim viðuréignum þannig, að 40 þýzkar flugvélár voru skotnar niður á þessum tveimur stöðum. Það er viðurkennt af Bretum, að töluvert tjón hafi orðið af l'Oftárás Þjóðverja á Weymouth af sprengjubrotum, hafnar- mannvirki skemmdust og olíu- geymir var skotinn í bál. Þjóðverjar gera miklu meira Úr því tjóni, sem' Bretar hafi orðið fyrir í loftárásunum og ioft'orustunum. Sögðust þeir seinnipartinn í gær hiafa skotið 75 brezkar flugvélar, en í gær- kvöidi var tala hjá peim komin Upp í 89. Sjálfir sögðust peir hafa misst 16. Þá segjast peir og hafa hitt bæði hafnargarða og bryggjur á Portland og eyði- iagt flest skip, sem par ýoru. Þýzkar flugvélar héidu áfram ioftárásum víðsvegar á strendur Englands, par á meðal morðan- verða austurströndina, í morg- un og voru víða háðar loftor- ustur milli peirra og hinna brezku orustuflugvéla. En Lund- únaútvarpið taldi fyrir hádegið lítið tjón hafa orðið af pessum árásum, enda hafi pær aðeins verið gerðar af einstökum pýzk- um flugvélum. Brezkar gprengjuflugvélar hafa gert nýjar árásir á margar flug- stöðvar Þjóðverja í Holiandi og Frakklandi, á verksmiðjur við Frankfurt og Köin, flotahöfnina í Wilhelmshaven og víðar. Þrjár brezkar sprengjuflugvélar eru sagðar ókomnar úr pessum leið- öngrum. Þjóðverjar hafa orðið að hætta við að nota flugstöð pá, sem þeir voru að koma sér upp á Ermarsundseyjunni Guernsey. Síðastliðið föstudagskvöld gerþu brezkar flugvélar árás á eyjuna og urðu miklar skemmdir á 40— 50 flugvéium, sem Þjóðverjar voru búnir að koma pangað'. Þegar brezkar sprengjuflugvélar flugu yfir eyjuna núna um helg- ina, sáust engar flugvélar, en sprengjum var varpað á flug- skýlin. Bræðslusíidin beln- ingi meiri en í fyrra. Svartair sjór við Horn Brædslusíldarafl- INN er nú orðinn um helmingi meiri en í fyrra sumar. Allur bræðslusíldaraflinn var á laugardag orðinn 1 572 000 hektólítrar. En í þessa tölu vantar það, sem landað var í ríkisverksniiðjurnar á laugar- daginn. En sama dag í fyrra vay bræðslusíldaraflinn orðinn 814- 707 hl. og 1938 1 093 045 hl. Síldaraflinn er alltaf jafnmik- ill og er síldin á mjög stóru svæði. Um helgina var sjórinn svartur af síld við Horn og Irh. á 4. sfttu. Með 32 smálesta vélbát frá Danmðrkn tU íslands. ------4.----- Frásögn Gísla Jónssonar vélstjóra í samtali við Alþýðublaðið í morgun. ------4----.- TVT ÝTT SKIP í fiskiflota okkar kom hingað í nótt beint frá ^ Danmörku. Það er 32 smálesta vélbátur, að vísu 52 ára gamall, keyptur í Friðrikshöfn af Gísla Jónssyni vélstjóra, en Gísli hefir dvalið í Danmörku síðan landið var hernum- ið og beðið heimferðarleyfis með bátinn. Alþýðublaðið hafði tal af Gísla í morgun og sagði hann svo frá ferðalaginu heim: ,,Það var vitanlega mjþg miklum erfiðleikum bundið að fá leyfi til að komast heim. Ég sendi fyrst beiðni um heimfar arleyfi 13. júní, en það var bundið því skilyrði, að við fær- um til Noregs og fengjum þar leyfi til að halda ferðinni áfram til íslands. Það, sem fyrst og fremst olli því, að erfitt var að fá leyfi hjá þýzku yfirvöldun- um, var það, að ef'til vill gætu Bretar tekið bátinn til her- flutninga, en eftir að fulltrúar Þjóðverja höfðu skoðað bátinn, töldu þeir óhætt að leyfa honum að sigla. En þó að heimferðarleyf ið væri fengið hjá Þjóðverjum, þá var björninn ekki unninn fyr ir því. Eftir var að fá gjaldeyr- isleyfi, útflutningsleyfi fyrir bátinn og leyfi til að taka olí- (Frh. á 4. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.