Alþýðublaðið - 16.08.1940, Síða 1
XXI. ÁRGAN6UR
FÖSTUDAGUR 16. águst 1940.
187. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Hltler belð stærsta óslgnr slnn
f ner, flmtánte ágúst, itfngað til
169 pýzkar flagvélar voru skotnar nlðurf
DAGURINN í GÆR, 15. ágúst, þegar Hitler ætlaði að ♦
vera kominn til London, varð svartasti dagurinn fyrir
loftflota hans í árásunum á England hingað til.
Samkvæmt tilkynningu, sem brezka flugmálaráðuneyt-
ið gaf út um hádegi í dag, skutu Bretar niður hvorki
meira né minna en 169 þýzkar flugvélar víðsvegar við
strendur Englands í gær. Sjálfúq misstu Bretar, samkvæmt
tilkyjnningu flugmálaráðuneytisins, ekki nema 34 flugvélar
í gær. Frásagnir ameríkskra fréttaritara á Englandi stað-
festa þessa skýrslu hrezka flugmálaráðuneytisins.
1000 þýzkar flugvélar tóku þátt
í árásunum á England í gær.
----------o---------
Þjóðverjar hafa aldrei áður gert loftárásir á eins marga staði
á ströndum Englands og í gær, og aldrei með eins miklum f jölda
flugvéla. Bretar telja, að 1000 þýzkar flguvélar hafi tekið þátt í
árásunum og loftorustunum. Það var barizt svo að segja við alla
suðurströndina, vestan frá Plymouth, og alla austurStröndina,
norður að Newcastle við Tyne, á 750 km. löngu svæði. En tjónið
af loftárásunum er talið hafa verið furðanlega lítið, að minnsta
kosti með tilliti til hins ógurlega flugvélafjölda, sem tók þátt í
þeim.
Mestu árásirnar voru gerðar
á nokkra staði í Midlands og
norðanlega við austgrströndina
og biðu þar margir menn bana
en byggingar skemmdust.
Árás á Croydon.
Við suðurströndina varð lítið
tjón. Þó komust 30 þýzkar
sprengjufiugvélar inn yfir flug-
stöðina í Croydon sunnan við
London.
í tilkynningu brezka flugmála-
ráðuneytisins í miorgun segir, að
skemmdir hafi orðið á bygging-
um við Croydonstö'ðina, eldur
hafi komið upp á nokkrum stöð-
Hm, en verið slökktur fljótlega,-
nokkrir menn í nágrenniniu hafi
særzt, og einn maður beðið bana.
Frh. á 2. síðu.
Tanner hefirlnú orðið að
fara úr finnskn stjúrninni.
-----«-----
Álitlð, ad Það hafi w@rlll pwingall
fram með liétuaum af hálfu Rássa
BREYTINGAR hafa nú
verið gerðar á finnsku
síjórninni, sem vekja mikla
athygli um allan heim, og
þykja ills viti fyrir nánustu
framtíð Finna.
Jafnaðarmennirnir Tann-
er og Hakkila hafa gengið úr
stjórninni, og er almennt lit-
ið svo á, að þeir hafi orðið að
víkja vegna þess að Rússar
hafi gert kröfu til þess.
Það er fyrir löngu kunnugt,
að enginn finnskur stjórmnála-
maður hefir verið Rússum ann-
ar eins þyrnir í auga og Tanner,
Frh. á 4. síðu.
Metaxas, forsætisráöherra Grikklands.
Heimta Italir kafbátastððv-
ar á ItrikklandsstrSndDm?
Tanner.
MSTAXAS, forsætisráðherra
Grikklands, tilkynnti í
gærkveldi, að enn væri með öllu
óvíst, hvaða kafbátur það hefði
verið, og hverrar þjóðar, sem
sökkti gríska beitiskipinu „Hel-
Ias“ í gærmorgun. Forsætis-
ráðherrann átti snemma í gær
tal við ítalska sendiherrann í
Aþenu, en sat eftir það hér um
bil allan daginn á fundum með
ráðherrum sínum.
Gríska beitiskipið var statt
við eyjuna Cythos í Grikklands-
hafi, þegar því var sökkt. Stóð
svo á, að þar á eyjunni var ver-
ið að halda trúarhátíð, sem
menn hafa sótt víða að. Fjöldi
pílagríma voru á hafnarbakkan-
um, meðal þeirra veikir menn
og farlama, sem tóku þátt í há-
tíðahöldunum til þess að fá bót
meina sinna. Yarð manntjón
þeirra meðal, þegar tundur-
skeytunum var skotið á beiti-
skipið, því að eitt tundurskeyti
sprakk á ströndinni. Herskipið
lá aðeins hálfa mílu frá landi.
Var skotið þremur tundur-
skeytum á það frá kafbátnum
og kom þriðja tundurskeytið í
mark.
„Hellas“ var smíðað í Banda-
ríkjunum árið 1912 fyrir kín-
versku stjórnina, en Grikkir
keyptu það síðar. Það var síðar
endurbyggt og útbúið til þess
að leggja tundurduflum.
Gríska stjórnin bannaði í gær-
kveldi öllum grískum skipum
að fara úr höfn við Grikklands-
strendur.
Vaxaodl vítsjár með
ftðlom og Grikkjum
Horfurnar, sem skapazt hafa
við árásir ítalskra blaða og ít-
alska útvarpsins á Grikkland
undanfarið, eru taldar mjög al-
varlegar. Líklegt þykir, að ítal-
ir hafi borið fram einhverjar
kröfur á hendur Grikkjum, og
að viðræður Metaxas forsætis
ráðherra við ítalska sendiherr-
ann í Aþenu í gær hafi staðið í
sambandi við það.
Metaxas neitaði í gærkveldi,
að nokkur hæfa væri í orðrómi,
sem gosið hefir upp um það, að
ítalir krefðust þess af Grikkj-
um, að þeir afsöluðu sér hjálp
Breta, ef á þá væri ráðizt.
í ítölsku blöðunum og ítalska
útvarpinu voru hins vegar í gær
harðar árásir á Grikkland og
þær kröfur bornar fram, að ítal-
ir fengju bækistöð fyrir kafbáta
sína í Saloniki og víðar á Grikk-
landsströndum.
Langt strið í vænd-
nm, segir eitt af
stærstn biöðnm
Þýzbalands!
Þýzka stórblaðið
„Hamburger Frem-
denblatt“ segir samkvæmt
frásögn Lundúnaútvarps-
ins í dag, þar sem lesin
voru upp orðrétt ummæli
blaðsins, að það megi bú-
ast við löngu og hörðu
stríði.
Svipuð ummæli voru
íesin uþp í Lundúnaút-
varpinu úr ítalska hlaðinu ;
„Corriere della SeraV
Strangari reglnr nm
ferðir f skip.
Kaffifmsum verður ekki lokað
danssamkomur ekki bannaðar
BÆJARSTJÓRN vildi í gær
ekki fallast á þá tillögu
lögreglustjóra að ákveða lokun
veitingahúsa og knattborðsstofa
kl. 10 á kvöldin og hanna dans-
leiki eftir þann tíma.
Hins vegar voru á fundinum
í gær samþykktar til annarrar
umræðu ýmsar breytingar á
lögreglusamþykktinni og er lik-
legt, að þær nái fram að ganga.
Samkvæmt þeim verður öll-
um óviðkomandi, konum jafnt
sem körlum, bannað að fara út
í skip hér í höfninni kl. 8 að
kvöldi til kl. 8 að morgni vetur
og haust, *nema menn hafi mjög
brýnt erindi, en frá kl. 10 að
kvöldi til 8 að morgni vor og
sumar. Lögreglustjóri hafði lagt
til að bannið næði aðeins til
kvenna.
Þá var samþykkt ákvæði í lög-
Frh. á 4. síöu.
750 pfisHDd bróna
nppbðt á gærmn
tii framleiðenda.
RÍKISSTJORNIN hefir
ákveðið að greiða
verulega uppbót á gærum
til útflytjenda, gegn því
að þeir ábyrgist, að upphót
in komi framleiðendum
sjálfum til góða. Hér er
um mikla fjárupphæð að
ræða, eða um 700—800
þúsundir króna.
Uppbótin fæsí af gær-
um, sem seldar voru til
Þýzkalands í fyrra. .