Alþýðublaðið - 25.09.1940, Blaðsíða 1
rflTSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGUR 25. Sept. 1940
221. TÖLUBLAÐ
Nýkomnir íslendingar iim ástandið á Englandi:
Bretar ganga að störfum
með kaldri ró, prátt fyrir
allar loftárásir Þjóðver ja.
-----------------4------:------------
Þeir eru vissir nm úrslitasigur.
Sendiherra Ðana kjðr
inn heiðarsðoktor við
Mskélann.
IGÆR var gestkvæmt á
heimili danska sendiherr-
ans, Fr. Sage de Fontenay, í til-
efni af sextugsafmæli hans.
Meðal þeirra, sem heimsóttu
hann, voru prófessorarnir vlð
heimspekideild Háskólans. Til-
kynntu þeir honum, að deildin
hefði kjörið hann heiðursdokt-
or við Háskólann.
Þá var sendiherranum hald-
in heiðursveizla í Oddfellow.
Stýrði Stefán Jóh. Stefánsson
félagsmálaráðherra hófinu.
BREZKA ÞJÓÐIN sýnir alveg undraverða ró og óbil-
andi kjark. Enginn Breti efast um það, að Banda-
menn vinni úrslitasigur í styrjöldinni, en flestir álíta að hún
verði löng.
Flugvélaárásir Þjóðverja eru ægilegaií, en varnir Breta
og gagnárásir þeirra eru ekki síður ægilegár."
Þetta er svo að segja orðrétt álit tveggja manna, sem
Alþýðublaðið hafði samtal við í morgun, en þeir voru þá
nýkomnir hingað, annar frá London, en hinn frá L-iverpool.
Astandið í Londoa.
Kveiktverðurá
vitum landsins
RÍKlSST JÓRNIN hef ir
rætt um það við yfir-
mann brezku flotadeildarinn-
ar hér, að kveikt yrði aftur á
þeim vitum, sem sjómenn teldu
nauðsynlegt að ljós væru á.
Varð aðmírállinin vel við þeirri
málaleitun, og verður bráðum
kveikt á vitunum.
Sveinn Ingvarsson forstjóri
Bifreiðaeinkasölunnar hefir
dvalið í Londön mestan tímann
síðan aðalárásirnar byrjuðu á
borgina.
Hann sagði enn fremur:
,,Ég hefi aldrei fyrr séð loft-
árásir og loftorustur, en þó að
þær væru tilkomumiklar í öll-
um sínum ægileik, þá var þó
ró Lundúnabúa stórfenglegri.
London hefir orðið fyrir ægi-
legum árásum og miklum
skemmdum, en Lundúnabúar
eru nú sterkari og baráttuhugur
þeirra öflugri en nokkru sinni
áður. Bretar eru raunverulega
í sókn. Þeir eflast dag frá degi.
Fólkið vinnur og starfar, eins
og ekkert hafi ískorizt. Verka-
lýðurinn gengur til vinnu sinn-
ar óskelfdur og með vaxandi
kjarki. Gamansögur ganga í
loftvarnaskýlunum og við
Bandalag lilli Japana
og Þjóðverja f aðsigi?
Japanir sagðir óttast fhiutan
Bandarikjanraa í Austur~Asíu.
REGNIR hafa borizt um, að 'samkomulagsumleitanir
, standi yfir milli Japana og Þjóðverja um varnar-
bandalag.
Sagt er, að samkomulag hafi náðst í grundvallaratrið-
um, og hafi Japanir snúið sér til Þjóðverja og byrjað um-
ræður um þessi mál, er það fréttist, að Bandaríkjamenn,
Ástralíubúar og Bretar hyggðu til náinnar samvinnu á
Kyrrahafi og komið hefði til orða, að Bandaríkjamenn
fengju not af flotahöfninhi í Singapore^
Það liggur ekki ljóst fyrir enn I kína, en eftir sumum fregnum að
hvað er að geraslt í Franska Indó- I . Frh. á 4. síðu.
vinnuna, þegar verið er að
hreinsa göturnar af braki og
kúlnabrotum.. Ein þeirra er á
þessa leið: „Nokkrir verka-
menn voru að grafa upp tíma-
sprengju. Hún gat" vitanlega
sprungið þá og þegar. Einn
verkamannanna var niðri í
gryfjunni og var hann búinn
að grafa .allt í kringum sprengj-
una, en hinir stóðu uppi yfir
honum.. Allt í einu hrópar
verkamaðurinn á hjálp. Hann
var dreginn upp í skyndi.
Verkamaðurinn hafði orðið var
við mús í holunni!
Erfiðast er um svefn í Lond-
on — og maður sefur lítið á
venjulegum svefntíma. Þýzku
flugvélarnar koma' venjulega
kl. 8 á kvöldin og fara kl. 5Vfe á
morgnana. Allan þennan tíma
heyrast loftvarnamerkin. Marg-
ir reyna að sofa í byrgjunum,
en fáir geta það og aðalsvefn-
tíminn er því frá kl. ð1/^ á
morgnana til kl. 9^ f. h.
Ég vil taka það fram, að mín
skoðun er sú, að þær fréttir,
sem brezka útvarpið flytur af
þessum málum, séu nákvæm-
lega réttar. Eins er um flug-
vélatjónið. Við getum reitt
okkur á brezku fréttirnar."
í sprengjnregninn á hðfn
inni í liverpool.
íslenzkt skip, sem legið hefir
upp undir hálfan mánuð í höfn
í Liverpool, kom hingað í morg-
un. Einum eða tveimur dögum
eftir að skipið kom þangað, var
skýrt frá því í jitvarpinu hér
samkvæmt fréttum frá Berlín,
að þýzkar sprengjuflugvélar
hefðu gert ægilega loftárás á
Liverpool og valdið ægilegu
tjóni.
Margir óttuðust því um þetta
ágæta skip okkar, sem ekki má
Frh. á 4. síðu.
Kletturinn við GibraÍtar
Bmdmimnir um Dak^
ar byrjuðu aftur í gær.
—.—*—.—_
Loffskeytastöð borgarinnar er pðgnuð.
,---------------4--------------„.
FREGNIRNAR af árásinni á Dakar eru enn mjög óljósar eg
flestar frá Vichystjórninni á Frakklandi. En svo virðist þó,
sem bardagarnir hafi byrjað aftur í gær, skömmu eftir ai De
¦I
Gaulle dró lið sitt til baka^í bili.
Loftskeytastöðin í Dakar hefir ekki heyrzt síðan á mánu-
dag, og er því talið líklegt, að hún hafi verið eyðilögð í bard©g-
UEum.
Stjórnin í Vjchy segir í tilkynningu í morgun, að manntjónið
í liði hennar í Dakar sé orðið 185 fallnir og 363 særðir.
Það er óljóst enn, hvort De Gaulle hefir tekizt að setja liS
sitt á land. En því var neitað af Vichystjórninni í gærkveldi.
Tilkynning frá aðalbækistöð De
Gaulle herfioringia, Jei'ðtogH hkina
frjálsu Frakka, var gefin út í
gærkveldi, og fjallar hím um at-
bmrðina í Dakar tog tildrög þeirra,
Dg er itarlegri en tilkynning sú,
sem birt var fyrr í gær um sama
efni.
Er tekið fram í .þessari tíl—
kynningu, að De Gaulle hafi farið
til Dakar vegna þess, að íbúarnir
hafi óskað þess. Hafi hann farið
þangáð á frönsku herskipi og
sent fulltrúa sína á land, en einn
þeirra er barnabarn Pochs mar-
skálks, sigiurvegarans úr heims-
slyrjöldinni 1914—1918, til þess
að' bera fram kröfur á hendur
nýlendustjórninni, en skotið var á
fulltrúana, sem höfðu hvítaoi fána
uppi iog voru óvopnaðir.
Síðan gerði De Gaulle tilraun
til þess'að setja lið á land með
friðsamlegu móti, en þar sem
skotið var á menn hans, fyrir-
skipaði hann undanhald, því að
hann vildi ekki að Frakkar berð-
ust innbyrðis.
1 tilkynningunni segir, að strax
í júli hafi Þjóðverjar og Italir
verið farnir að senda herforingia
til Dakar með það fyrir augum,
að ná flugstöðiími þar á sitt vald,
(Frh. á 4. síðu.)
Fronsk loftárás á
fiiferiltiF I gær.
Svar ViGhisíjórnaríonar vlð
árásinni á Ðakar!
FRANSKAR FLUGVÉLAR
gerðu loftárás á Gibraltar
í gær, og er litið svo á, aS hún
hafi átt aS vera svar Vichy-
stjórnarinnar við árásinni á Da-
kar.
Öpinber brezk tilkynning w
loftárásina segir, aS tuttugu
eða fleiri flugvélar af franskri
gerS hafi tekið þátt í árásinni
og varpaS um 100 sprengjum
á klettinn og nágrenni hans.
Flugvélarnar voru í 20 000
feta hæS, en lækkuSu flugiS
annaS veifiS. Nokkurt tjón
varS á byggingum og járn-
brautum, og 4 menn biðu bana,
en 12 særðust. Árásin stóð yfir
í 4 klukkustuudir. — Reuter-
fregn hermir, að sprengjunum
hafi veriS varpaS af handahófi,
og hafi margar þeirra fariS í
sjóinn og á spánska grund í
nánd við La Linea.