Alþýðublaðið - 27.11.1940, Qupperneq 1
r
.í«r
XXI. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGUR 27. NÓV. 1940. 280. TÖLUBLAÐ v *
Badoglío marskálkur á að
stöðva flótta ítala i Albaniu!
" Grikkir sækja ört fram frá
Koritza áleiðis til strandar.
Og hafa sett lið á land að haki
Ítðlum beint á móti Korfu.
GRIKKIR sækja nú ört fram nyrzt á vígstöðvunum í
Albaníu, frá Pogradec í norðvesturátt, áleiðis til El-
bazan, sem liggur um það bil í miðju landinu, og frá Ko-
ritza í vesturátt áleiðis til strandar. Eru hersveitir þeirra
þegar komnar meira en 50 km. vestur fyrir Koritza.
Ákafar orustur standa enn yfir syðst og vestast á víg-
stöðvunum, við Argyrokastro, þar sem ítölum hefir borizt
verulegur liðsstyrkur. Þeir hafa borgina enn á sínu valdi.
En það var tilkynnt í Aþenu í gærkveldi, að grískt lið
hefði verið sett á land á ströndinni að baki ítölum, beint
á móti Korfu, og að aðstaða þeirra við Argyrokastro hefði
versnað stórum við það.
Hve alvarlegum augum ítalir líta á ástandið í Albaníu
má marka af því, að Mussoljni hefir nú sent Badoglio mar-
skálk, yfirmann alls ítalska hersins, þangað til þess að
reyna að stöðva flóttann.
Pétnr Hallðórs-
son borgarstjórl
andaðist í gær.
Hann varð aðeins
53 ára gamall.
PÉTUR HALLDÓRSSON
borgarstjóri og alþingis-
maður lézt í Landakotsspítala í
gær kl. 3V2.
Pétur Halldórsson haf5i verið
sjúkur um langt skedð, lá hann -
fyrst á heiirdli sínu, en nú síðast
í Landakotsspítala. Fékk hann
við og við nokkurm bata, en sló
allt af niður aftur. Talið er, að
banamein hans hafi verið mein-
semd í lungum.
Pétuir Halldórsson hefir um
fjölda ára skeið verið forystu-
maður Sjálfstæðisflokksiins í bæj-
armálefnum Reykjavíkur, fyrst
sem bæjaTfulltrúi og síðan, að
Jóni Þorlákssyni látnum, sem
boTgarstjóri. Alþingismaður hefir
hann verið hin síðari ár. — Pétur
Halldórsson var fæddur 26. apríl
1887 og varð pví rúmlega 53
ára gamall.
Alþýðuflokkurinn
boðaði til opinbers
landsmálafundar í Vest-
manneyjum í gærkveldi.
Var fundurinn vel sóttur og
umræður fjörugar. Fundar-
stjóri var Guðmundur Helga-
son, formaður Sjómannafélags-
ins, en málshefjandi var Har-
aldur Guðmundsson alþingis-
maður, sem dvelur í Vestmanna
eyjum um þessar mundir.
Talaði Haraldur í rúma
klukkustund og talaði aðallega
um skattamál, dýrtíðina og
varnir gegn henni og kaup-
gjaldsmál. Var ræðu Haralds
tekið mjög vel.
Engir ræðumenn voru frá
Sjálfstæðisflokknum eða Fram-
sóknarflokknum, en kommún-
istinn ísleifur Högnason talaði
Lðtlansar loftárásir
Breta á her ítala.
Sprengjuflugvélar Breta
halda uppi stöðugum loftárás-
um á her ítala á undanhaldinu
svo og á allar aðalborgir lands-
næstur á eftir Haraldi og hafði
vitanlega allt illt á hornum sér.
Áttust þeir nokkuð við Harald-
ur og kommúnistinn og reynd-
ist það ójafn leikur, enda fór
og eftir málstaðnum.
Bretar flnna ó-
löglegan póst.
jO REZKIR eftirlitsmenn, sem
voriu að leita hér í skipi,
sem Var að fara til Ameríkiu í
fyrrakvöld, fandu sendibréf hjá
þpemsir skipsmömwim.
Það er stranglega bannað, að
sjómenn taki með sér sendibréf
eða böggla til útlanda, og getur
það haft alvarlegar afleiðingar.
ins, Tirana, Durazzo og Valona.
Á veginum milli Pogradee og
Elbazan var ítelskri hersveit,
sem send hafði verið til þess að
stöðva flótta ítala þar, sundrað
með 'sprengikúlnaregni úr loft-
inu.
Á Argyrokastro gera flugvél-
ar Breta einnig hverja loftárás-
ina af annarri, og hafa kveikt
þar í stórum birgðaskemmum
ítala.
.Aðstaða ítala í loftstríðinu
hefir nú versnað stórkostlega
við það, að Bretar og Grikkir
hafa náð á sitt vald tveimur
flugvöllum þeirra í landinu, við
Koritza og Pogradec, og hafa
ítalir nú ekki nema þrjá flug-
velli þar’ við Tirana, Durazzo
og Valona.
í sókninni vestur af Koritza
hafa 6 ítalskar flugvélar fallið
í hendur Grikkjum á jörðu
niðri. Höfðu þær verið yfir-
Frh. á 2. síðu.
BADOGLIO
Alnýðiflokknrinn boðaði til
Mar f Vestm.epm i gær
Har. Guðimindsson hafði framsögu um
skattamál, dýrtíðina og kaupgjaidsmál.
Kort af Albaníu, landinu, sem barizt er um. Sókn Grikkja held-
ur áfram í norður og vestur á allri herlínunni frá landamærum
Júgóslavíu til Adríahafs.
\ '
Brezka stjórnin bjðst til að
ábyrgjast fnilveldi Búlgaria
Ef Búlgarar gera ekki bandalag við óvini
Breta eða ráðast á bandamenn þeirra.
BUTLER aðstoðarutanríkis-*
málaráðherra Breta las í
gær upp yfirlýsingu í hrezka
þinginu varðandi Búlgaríu, sem
mikla athygli vekur hvarvetna
um heim í sambandi við við-
burðina á Balkanskaga. Var
yfirlýsingin gefin í tilefni af
fyrirspurn, sem komið hafði
fram í þinginu.
Hún var á þá leið, að brezka
stjórnin væri fús til að ábyrgj-
ast, að fullt tillit yrði tekið til
sjálfstæðis og fullveldis Búlg-
aríu við væntanlega friðar-
samninga, svo fremi að Búlgar-
ar gerðu ekki bandalag við ó-
vini Breta, veittu þeim lið á
beinan eða óbeinan hátt eða
réðust sjálfir á einhvern af
bandamönnum Breta.
Það þykir augljóst, að þessi
yfirlýsing hafi verið gefin til þess
hö stappa stálinu í Búlgara, sem
nú virðast hafa horfið frá því
með öllu, að gera bandialag við
Þýzkaland, og fá þá til þess að
verja hendur sínar, ef Þjóðverjar
skyldu reyna að fara með her
gegn um land þeirra til árásar á
Grikki. |
Stúdeotaóelrðir 1 Sofia.
Óeirðir urðu í Sofia, höfuð-
borg Buigaríiu1, í gær, milli naz-
istiskra og frjálslyndra stúdenta.
Fóru nazistastúdentarnir með
kröfuspjöld um göturnar og
heimtuðu landvinninga á kostnað
Grikklands og Júgóslavíu. Lög-
reglan skarst í leikinn og tvístr-
aði stúdentunum; þrír þeirra
særðust.
Alnennt nanntal á
landinn n.k. nðnnd.
N-ESTKOMANDI mánudag
fer fram almennt mamital
um allt land, en manntal hefir
ekki vterið tekið hér á landi síð-
ast liðin tíu ár. i
Um leið og manntalið verður
tekið, verður safnað húsa- og
bæjaskýrsluim.
! kaupstöðum annast bæjar-
stjórnir manntalið, en annars
staðar prestar með aðstoð hrepp-
stjóra og hreppsnefnda.
Verður hverjum kaupstað eða
prestakalli skipt í svo mörg um-
dæmi eða hverfi, að einn maður
komist yfir það á einum degi,
að afla þaðan þeirra upplýsinga,
sem krafizt er.
Nær manntalið ekki til setu-
liðsins hér og ekki til erlendra
skipa á höfnum landsins. Að öðru
leyti nær manntalið til erlendra
manna, sem dvelja hér manntals-
daginn, og enn frernur til er-
lendra flóttamanna, sem kunna
að dvelja hér.
í íslenzkum skipum, sem koma
hér að landi eftir 2. dezember, er
tekið manntal, þegar þau koma í
höfn. 1
Úthlutun á kaffi og- sykurseðlum
fyrir mánuðina des., jan. og febr.
stendur nú yfir. Þegar hafa verið
afhentir 17.400 seðlar. Úthlutun-
in fer fraifi daglega • þessa viku í
Tryggvagötu 28. Afgreiðslutíminn
er frá kl. 10—21 f. h. og 1—6 e. h.