Alþýðublaðið - 28.01.1941, Page 4
MUBJUDAG 28. JAN. 1941
Bókin er ■Hl mm mm mma awanm mp n BóEdn er
ÞÝDDAR SÖGUR l I ff Tt TFH YY1]11 f JlSITlIk ÞÝ'DDAB SÖGUB
eftir 11 heimsfræga höfunda. JUiPz L UJILAlllil eftir 11 heimsfræga höfunda.
ÞRIÐJUDAGUR
Næturlæknir er í nótt Jónas
Kristjánsson, Grettisgötu 81, sími
5204.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,25 Hljómplötur: I<ög úr óper-
ettum og tónfilmum.
19,35 Erindi: Þegar lopinn kemur
(frú Anna Ásmundsdóttir).
20,00 Fréttir.
20,30 Viðskiptamálin 1940 (Ey-
steinn Jónsson viðskipta-
málaráðherra).
21,15 Tónleikar Tónlistarskólans:
a) La folia, eftir Corelli
(fiðla: Björn Ólafsson). b)
Tríó í G-dúr, eftir Mozart.
21,50 Fréttir.
Náttúrisfræðifélagið
hefir samkomu í kvöld kl. &Vz í
Austurbæjarskólanum (gengið inn
frá Vitastíg).
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur fund kl. 8,30 í Iðnó. Þar
verður m. a. rætt um kaupgjalds-
málin.
Skrifsiofa Mæðrastyrksnefndar
er í Þingholtsstræti 18. Opin
alla virka daga kl. 4—6. Lög-
fræðilegar leiðbeiningar veittar
hvern mánudag og fimmtudag á
sama tíma.
Tveir dagar eftir.
Kosningin í Dagsbrúri hefst í
dag kl. 5 og stendur til kl. 10. Á
morgun, síðasta daginn, verður
kosið frá kl. 5 til kl. 11. Dags-
brúnarmenn, fjölmenniö á kjör-
staðinn og kjósið B-listann.
Fermmgarbörn
séra Árna Sigurðssinar eru
beðin að koma til viðtals í frí-
kirkjúna á fimmtudaginn kemur
kl. 5 síðdegis.
Forðum í Flosaporti
hefir verið sýnd 45 sinnum, allt-
af við húsfylli og vaxandi vin-
sældir.
Ke 'tátur „29“
heiiir amerísk kvikmynd frá Co-
lumbiafilm um kafbátahernað og
njósnastarfsemi, sem Nýja Bíó sýn-
ir núna. Aðallilutverkin leika Con-
rad Veidt og Valerie Hobson.
Murionette-leikfélagið
sýndi „Faust“ í fyrrakvöld í
Varðarhúsinu fyrir troðfullu húsi.
Var gerður hinn mestl rómur að.
Kl. 2.30 í gær var hann sýndur
fyrir börn, en ofurlítið breyttur.
Aðalfandur
Kvennadeildar Slysavarnafélags
fsland, í Hafnarfirði, var haldinn
þar s.l. þriðjudag. Hefir félags-
konum fjölgað all-verulega á árinu
og einkum seinnipart ársins og nú
eftir áramótin. í stjórn voru kosn-
ar: Frú Rannveig Vigfúsdóttir
form., frú Marta Eiríksdóttir rit-
ari, frú Kristensa Kristófersdóttir
gjaldkeri; voru þær allar endur-
kosnar. Varastjórn: Frú Sólveig
Eyjólfsdóttir varaform., frú Guð-
rún Eiríksdóttir vararitari, Am-
dís Kjartansdóttir varagjaldkeri.
Endurskoðendur voru kosnar: Jó-
hanna Jónsdóttir og Jenny Guð-
mundsdóttir.
Gjafir
til væntanlegs húsmæðraskóla í
Reykjavík: Hr. lyfsaíi Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson kr. 1000,
Hr. Sigfús Bjarnason, c/o fieildv.
Hekla kr. 50, Óli V. Jóhannesson
kr. 10, Hr. lyfsali Mogensen kr.
100, Heildverzlunin Edda kr. 500.
Kærar þakkir. Vigdís Steingríms-
dóttir.
Skíðaferð í Jósepsdal.
S.l. laugardagskvTd fóru Ár-
menningar í skála sinn í Jósepsdal
og dvöldu þar 62 manns yfir nótt-
ina. Skíðafæri er hið bezta og næg-
ur snjór í Bláfjöllum, en lítill á
láglendi. Þó er hægt dð þræða
snjóftannir frá bílunum og upp
eftir.
Vinstúlkan hans pabba
heitir amerísk gamanmynd, frá
Radio Pictures, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Aðalhlutverkin leika:
Ginger Rogers, Walter Conmolly,
Verree Teasdale o. fl.
Æfintýri H. G. Andersen:
Svinahirðirinn
60
Hans klaufi.
Bókav. isafoidarprentsmíðjn
DAGSBRÚNARKOSNINGIN
Frh. af 1. síðu.
Dassbrðn verðnr ekki
.ðhrifa- og valdalans*, ef
Haraldnr verðnr kosinn!
Þá hekiur Mgbl- því fram, að
þrátt fyrir skattinn, myndi Dags-
brún verða „með öllu áhrifa- og
valdalaus í Alþýðusambandinu“.
Það er broslegt að bjóða Dags-
brúnanmönnum upp á slíka blekk-
ingu. Þeir vita það, að Daigsbmn
gengur vitanleiga ekíki í Alþýðu-
sambandið, nema þvi að eins að
listi Alþýðufloikksverkamanna, B-
listínn, verði kosinn. En hvaða
verkamanni heldur Mgbl- að það
geti talið trú um það, að nokkr-
usn ráðum verði ráðið i Aiþýðu-
sambandinu, eftíir að eins
istórt og þýðingarmikið fé-
<'ag o^g Dagsbrún væri aftur
foomfið í það, án þess að ráðgast
við forystumenn þess? Það er að
vísu xétt, að Dagsbrún getur ekki
formlega fongið mann i stjóm
Alþýðusambandsins fyrr en á
næsta Alþýðusambandsþingi. En
hvaða Dagsbrúnairmaðuír mun
láta segja sér annan eins þvætt-
ing og þann, að Dagsbrún yrði
„áhrifa- og valdalauis í Alþýðu-
sambandinu" fyrir það, eftir að
hún hefði kosið Hárald Guð-
mundsson fyrir formann simn.
Dagsbrúnarmenn þurfa engan
kvíðboga að bera fyrir því, að
hagsmuna þeirra, réttar og álits
verði ekki að fullu gætt i Al-
þýðusaimbandinu, eins og annars
staðar, eftir að Haraldur Guð-
mundsson væri orðinn formaður
félagsins. Það vita þeir líka —
og þess vegna kjósa þeir í kvöid
og annað kvöid B-listann.
Fermingarbörn
gjöri svo vel að koma til viðtals
í Dómkirkjunni í þessari viku sem
hér segir: Til séra Friðriks Hall-
grímssonar á fimmtudaginn, til
séra Bjarna Jónssonar á föstudag-
inn, báða dagana kl. 5 síðdegis.
■ NYJA BfO
Kafbátur 29.
Mikilfengleg og spennandi
ameríksk kvikmynd um
kafbátahernað og njósna-
starfsemi. Aðalhlutverkin
leika:
Comad Veidt og
Valerie Hobson.
|j Sýnd klukkan 5, 7 og 9.
IQAMLA BÍC
Fifth avenue g»rl.
Amerísk gamanmynd frá
RKO Radio Pictures.
Aðalhlutverkin leika:
Ginger Rogers.
Walter Connolly.
Verree Teasdale o. fl.
Aukamynd: Umsátrið nra
Varsjá.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(Lækkað verð kl. 5).
Litli sonur okkar og bróðir
Daníel Jón Steindórsson,
sem andaðist* 20. þ. m., verður jarðsunginn frá heimili okkar,
Teig á Seltjarnarnesi, miðvikudaginn 29. þ. m. kl. 1.
Oddný Hjartardóttir. Steindór Ingimundarso og börn.
Re/yan 1M0.
Fofðfln í Flosapsrti
ÁSTANDS-ÚT! JÁF A
verður leikið í Iðnó annað kvöld kl. 8%.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag
og eftir kl. 1 á morgun. — Sími 3191.
ALLT AF SKEÐUR EITTHVAÐ.
Daasbrúnarienn!
Kjósið K-listani.
84. THEODORE DREISER:
JE ÍNIE GERHARDT
í nýrri litaverksmiðju í Chicago, sem virtist ætla að
verða stórt og voldugt fyrirtæki. Lester, sem þekkti
eigendur gömlu verksmiðjunnar í New York og vissi,
að þeir voru traustir og áreiðanlegir viðskiptamenn,
og vissi, að þeir höfðu árum saman verið miklir
vinir föður hans, mótmælti þessari ráðstöfun ein-
dregið. Og í fyrstu leit svo út, sem gamli maður-
inn væri á sama máli og Lester. En Robert hélt
fast á sínu máli á sinn rökvísa hátt, horfði sínum
köldu, hyggnu augum beint í augu bróður síns og
sagði: — Við getum ekki haldið áfram að skipta
við gamla viðskiptavini aðeins vegna þess, að faðir
okkai' hefir yerið vinur þeirra og skipt við þá, eða
vegnf þess, að þér þykir vænt um þá. Við verðum
að breyta til. Við verðum að auka verzlunina. Keppi-
nautar okkar eru stöðugt að verða skæðari og skæð-
ari.
— Það er allt undir því komið, hvaða álit faðir
okkar hefir á málinu, sagði Lester að lokum. •»—
Tilfinningar mínar skipta engu máli hér. Það móðg-
ar mig ekki á neinn hátt. Þú heldur, að fyrirtækið
græði á því að breyta um, en ég hefi lagt fram rök
fyrir því gagnstæða.
— Mér finnst Robert hafa rétt fyrir sér, sagði
Archibald Kane rólega. — Flest sem hann hefir
stungið upp á hefir reynzt happadrjúgt.
Lester roðnaði. — Þá tölum við ekki meira um
það, sagði hann. Svo stóð hann á fætur og gekk út
úr skrifstofunni.
Þessi ósigur, sem hann beið rétt um það leyti,
sem hann hafði ætlað sér að fara að vinna af áhuga
að verzlunarmálunum, gerði hann mjög niðurbeygð-
an, enda þótt hann hefði ekki ástæðu til að taka sér
þetta mjög nærri. En Kann hafði samt beðið ósigur
og athugasemd föður hans um kauþsýslumannshæfi-
leika Roberts særði hégómagirnd hans mjög. Hann
fór nú að hugsa um, hvort faðir sinn myndi ekki
hafa sig útundan, þegar hann skipti arfinum. Skyldi
hann hafa heyrt nokkuð um samband hans og
Jennie? Skyldi hann vera óánægður yfir því, að
Lester væri svo oft og lengi fjarverandi? Lester
fannst ekki með réttu vera hægt að segja, að hann
væri duglaus verzlunarmaður eða væri áhugalaus
um starf sitt. Hann hafði unnið starf sitt vel og trú-
lega. Það var hann, sem rannsakaði allar nýjar
uppástungur, sem félaginu bárust, samdi alla samn-
inga og var ráðgjafi föður síns í öllum vandamál-
um. En hann var ofurliði borinn af bróður sínum.
Hvar skyldi þetta enda? Hann hugsaði þetta mál
lengi, en komst ekki að neinni niðurstöðu.
Seinna þetta sama ár lagði Robert fram áætlun
um endurskipulagningu söludeildar fyrirtækisins.
Hann stakk upp á því, að byggt yrði geysistórt vöru-
sýnirigahús, sem jafnframt væri vörugeymsluhús,
við Michigan Avenue í Chicago og flytja þangað
beztu vagnana. Chicago lá nær hringiðu lífsins en
Cincinnati. Það var auðveldara að ná í efnaða við-
skiptamenn á þeim slóðum. Auk þess vairi þetta
ágætis auglýsing fyrir fyrirtældð. Kano amli og
Lester féllust strax á uppástunguna. Þeir áu báðir
þegar í stað, að af þessu hlaut að verða tórgróði.
Róbert stakk upp á því, að Lester stjórnaði fyrir-
komulagi þessara nýju bygginga. Það jrði heppi-
legast, að hann dveldi í Chicago, meðan húsin væru
byggð.
Lester varð hrifinn af þessari uppástungu, enda
þótt hann yrði að fara burtu frá Ciricinnati að
minnsta kosti um tíma, ef ekki að fullu og öllu.
Honum þótti þetta ekki svo lítill virðingarauki og
bar það vott um, að hann væri fyrirtækinu ómiss-
andi starfsmaður. Hann gat búið í Chicago og haft
Jennie hjá sér þar. Ráðagerð sú, sem hann ’ fði
verið að yfirvega, aö stofna heimili, gat nú kori ið
til framkvæmda, án nokkurra erfiðleika. Þess vegna
samþykkti hann strax þessa uppástungu. ivóbert
brosti og sagði: — Ég held, að við munum alli • hafa
hag af þessu.
Vegna þess, 'að bygging húsanna bar bráðan að,
ákvað Lester að flytja strax til Chicago Hann ser di
Jennie skeyti og bað hana að hitta s .g og þau völdu
íbúðina í félagi. Það var mjö? þægileg bú 5 í hliðar-
götu nálægt sjónum. Hann áleit, ao í Chicago gæti
hann þótzt vera piparsvebm. Hanr. þyrfti aldrei að
bjóða kunningjum sínum til sín. Þeir gátu hitt hann
á skrifstofunni í klúbfcnum og á gistihisunum. Sám-
kvæmt skoðun hans var þetta fyrirkomulag mjög
hagkvæmt.
Auðvitað hlaut brottför Jennie frá Cleveland að