Alþýðublaðið - 18.11.1927, Side 2
ALfeÝÐUBUAÐI Ð
|ALÞÝÐUBLAÐIÐ[
| kemur út á hverjum virkum degi. |
IAfgreiðsla i Alpýðuhúsinu við [
Hverfisgötu 8 opin frá kl. 9 árd. t
til kl. 7 síðd. \
Skrifstofa á sama stað opin kl. t
i 91,/;—10l/a árd. og kl. 8—9 siðd.
ji Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 ►
J (skrifstofan).
j Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,50 á |
J mánuði. Auglýsingarverðkr.0,15 í
hver min. eindálka. t
Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan !
(i sama húsi, sömu simar).
Siðabót Kr. A.
Kristján Albertsson hóí rit-
stjórnarstarfsemi með pví að ger-
est umvandari og siðbótarfröm-
■Rður islenzkrar blaðamensku. Það
má sjálfsagt gera ráð fyxir, að
það Iiafi verið einlæ'gur vilji hans
að gera sitt til, að blaðamensk-
an yrði prúðari, ráðvandari og
heiðarlegri en hún er nú, en sú
snurCa hefir hlaupið á öriagaþráð
hans að lettda í blaðamenskuvinnu
hjá flokki, sem viðgangur hans er
undir því kominn, að blöö hans
séu óprúð, óráðvönd og óheiðar-
leg. Þess vegna hefir Kr. A. ver-
ið neyddur til að traðka á sjálf-
um sér og „hugsjón“ þeirri, sem
hann hefir talið sína. Síðasta
dæmið um það, hversu snara auð-
valdsins herðist að hálsi honum,
er fxásögn „Varðar“ 12. þ. m. af
rannsókninni á atkvæðafölsunar-
iriálinu vestfirzka. Þar er alveg
farið eftir „Vesturlonds“-skeytun-
um, sem alllr eru á einu rnáli um
að hafi veriö ósæmilega hlutdræg
og fjandsamleg réttvísinni. Það
á sjálfsagt að gilda sem handa-
þvottur Kr. A. af sök hans í hlut-
drægninni, 'að þess er að vísu
getið, að farið sé eftir ,,Vestur-
landi“, en hann vottar þó hlut-
drægninni samúð sína með því
að geta annara fréttaskeyta af
rannsókninni á þann hátt, að ó-
kunnir lesendur hljóta að halda,
að frásögn „Vesturlands" sé í þvi
því einu ábótavant, að af því sjá-
ist ekki, að rannsóknardómarinn
ha£i sjálfur greitt far sitt tU ísa-
fjarðar frá Bolungarvik með 40
kr.(!).
Ef þetta þykir ekki lævíslega
hlutdrægur frásagnarháttur, vaf-
:inn yfirdrepsskap og hræsni, þá
er óhætt að fullyrða, að fólk viti
ékki, hvað það er, en eftirtektar-
vert er, að þetía verður eitthvað
hið síðasta, sem Kr. A. sýnir í
framkvæmd jreirrar „hugsjónar“
sinnár að gera íslenzka blaða-
mensku prúðmannlegri, ráðvand-
legri og heiðarlegri.
Á þetta, sem erekki nema eitt
dæmi af mörgum um það, hversu
rauna’.ega aubvaldið hefxr beygt
Kr. A , er drepið nú sérstaklega
að etns af því, að {>etta verður
víst eitthvert síðasta afrek Kr. A.
í ,,siðbótarstaríi“ hans. Hann er
nú að slep’pa úr þrælkun'inni og
á þapn hátt að deyja frá blaða-
starfk og þá gildir um hann í
þessu efni látnesfea reglan að
segja ekki annað en gott um
dauðan mann.
Frá bæjarstjórnarfundi
í gær.
Á fátækranefndarfuncli 10. þ.
m. bar Sigurjón Á. Ólafsson fram
þá tillögu, að rannsakað verði á
næsta ári, hvað bygging og rekst-
ur barnahælis og gamalmennahæl-
is muni kosta, og sé fjárveiting
til rannsóknarimiar heimiluð úr
bæjarsjóði í fjárhagsáætluninni.
Fátækranefndin vísaði tillögunni
til fjárhagsnefndar, en ekki hefir
hún enn verið tekin ti! umræðu
þar. Við umræðu málsins á bæj-
arstjómarfundinum vittu jafnað-
armenn þá ráðstöfun bæjaxstjórn-
aríhaldsins, að lána gamalmenna-
hælissjóð bæjarins, 90 þúsund kr„
til dliheimilis einstaklinga og
binda hann þar, í stað þess að
koma upp elliheimili bæjarins
'sjálfs. K. Z. ýfðist vib og svaraði
engu fyrirspurnum, er þar að lutu.
Spurði þá Haralclur Guðmunds-
son, hvort honum hefði stigið
launahækkunin svo til höfuðs, að
hann þykist síðan of góöur til að
svara fyrirspurnum bæjaTfulItrú-
anna. Urðu talsverðar ■ umræður
um elliheimilismálið.
Samþykt var eftir tillögu fá-
tækranefndar að fela borgarstjóra
að láta setja upp innvaTpstæki
(móttökutæki útvarps) á Selja-
landi (fátæklingabústaðnum).
20 mönnum hafði verið veittur
ellistyrkur, auk þeirra, er hon-
um var áður úthlutað i haust, 25
kr. hverjum.
Borgarstjóri skýrði frá, að bú-
ið væri að ryðja bátavör hjá Ið-
unni. Hinn hlutann af tillögu Ól-
afs Friðrikssonar á næsta bæj-
arstjórnarfundi áður, að þar verði
ger bryggja eða steinkampur, svo
að hægt sé að kasta þar upp
fiski, hafði hafnamefnd falið hafn-
arstjóra að athuga.
Staðfest var svofeld samþykt
brunamálanefndar:
„Brunamálanefndin ákveður, að
hvergi megi liggja á almannafæri
benzíntunnur, hvort heldur tómar
eða með benzíni. Enn fremur á-
kveður neíndin, að ekki megi láta
benzín úr tunnum í benzingeyma
’á almannafæri á timabilinu frá
kl. 10 að morgni til kl. 1 að
nóttu.“
1 sambæidi við þetta mál
gat Ól. Fr. þess, að þótt tóbaks-
reykingar séu bannaðar í kvik-
myndahúsum, þá sé þó rnikið gert
iað þeim þar, en það eigi alls ekki
að eiga sér stað. Það geri salina
óvistlega og auki eldhættu.
Fundi var loks skotiö á x gær-
morgun í bæjarlaganefndinni, en
næst áður kom hún samian ná-
lægt máðju sumri. Héðinn Valdi-
marason og Stefán Jöh. Stefáns--
son víttu það, hve borgarstjóri
kallaði neíndina sjaldan saman,
og á fundi nefndarinnar kröfðust
þeir þess áður en honum var slit-
ið, að aftur yrði haldinn fundur í
nefndinni áður en bæjarstjómin
kæmi i annað sinn saman á reglu-
legan fund. Héðinn kvað borgar-
stjóra liggja á þeim málum, er
vfsað væri til nefndarinnar, og sið-
asta fundinum hefði verið slitið í
miðju kafi og fyrir því yrðu að-
almálin út undan. St. J. St. benti
á, að auk skólanefndarinnar er
bæjarlaganefndin eina nefndin í
bæjarstjórninni, sem skipuð er á
réttilegan hátt, svo að jafnaðar-
menn hafi þátttöku að tiltölu, 2
menn af 5, af því að borgarstjóri
er ékki sjálfkjörinn í þær nefndir
eins og hinar. Þess vegna kyn-
oki borgarstjóri sér rneira við að
kalla hana saman. Héðinn skoraði
á Knút að gæta embættisskyldu
sinnar og kalla nefndina á fund,
svo að mál þau, er fyrir henni
liggja, verði afgreidd.
Þeir H. V. ag St. J. St. fluttu
tillögu um, að bæjarstjórnin skari
á alþingi að samþykkja sams kon-
ar frumvarp og það, sem H. V.
flutti á síðasta þingi um skyldu-
söfnun atvinnuleysisskýrslna.
Frumvarpið var birt hér í blað-
inu um þingtímann s. 1. vetur.
Þingið sendi bæjarstjórninni frv.
þetta til umsagnar s. I. vetur, og
var því vísað til bæjarlaganefnd-
ar. Það konr það ekki íjtt til
urnræðu, og' vildi borgarstjóri
jafnvel færa það fram til afsök-
unar nefndinni, að það hefði aldr-
ei verið lagt fram fyrir hana, en
H. V. benti á, að K. Z. hafbi haft
frumvarpið til athugunar allan
tímann, i 8—9 mánuði. Til þess
að enginn bæjarfulltrúanna gæti
borib því við, að þeir hefðu eldri
heyrt frumvarpið, las Héðinn það
upp á fundinum. Pétur Magnús-
son vildi visa málinu enn til bæj-
arlaganefndar. Það var felt. Síð-
an var tiJJaga þeirra H. V. og
St. J. St. sjálf feld með 8 auð-
valdsatkvæðum gegn atkvæðum
jafnaðarmannanna 6.
Samþ. var að Itaupa Melblett
III.
Niðurjöfmmamefndin var end-
urkosin. Fyrst var Magnús V. Jó-
hannesson kosinn af Alþýöulista,
en Sigurbjöm Þorkelsson í „Vísi“
og Páll Steingrimsson, ritstjóri
„Vísis“ af Burgeisalista, en f'elix
Guðmundsson (á Alþýðulistan-
um) og Pétur Zóphóníasson (á
B-Iista), fengu jöfn atkvæði, en
Pétur komst að á hlutkesti.
Otdráttur fór fram á einu
skuldabréfi af Lauganessláni, og
kom upp nr. 40, og á 5 skulda-
bréfum af baðhússláni, og voru
dregin nr. 38, 39, 40, 48 og 58.
Á skóIanefndarfunrJi 8. þ. m.
var samþykt:
„Skólanefndin beinir því til fjár-
hagsnefndar, að hún athugi, hvort
ekki muni fært að taka- upp á
fjárhagsáætlun fyrir árið 1928 50
—100 þúsund króna f járveitingu
til byggingar nýja bamaskólans."
Málið hefir enn ekki verið tekið
fyrir í fjárhagsnefndirini. — K.
Z. kvað gert ráö fyrir því, að
kjaliari skólans sé reistur í ár,
hæðir hússins næsta ár, en full-
gerður verði skólinn árið 1929.
K. Z. lagði fjárhagsáætlmi bæj-
arins fram til fyrri umr. næstum
þegjandi, eins og hann hefir verið
vanur. Haraldur Guðmundsson
kvað réttara, að borgarstjóri
breytti þeim hætti og skýrði á-
ætlunina þá þegar fyrir bæjar-
stjóminni. Benti Haraldur á, að-
útsvörin eru sífelt að verða meiri
og meiri hluti af tekjum bæjar-
sjöðsins, en nú hefir úrskurðar-
valdið um útsvatskærur verið
dregið úr höndum bæjarstjórnar
og fengið yfirskattanefnd. Benti
hann á grein Magnúsar V. Jóhann-
essonar niðurjöfnunarnefndar-
manns, sem birtist hér x blaðinu á
þriðjudaginn var, og þann ójöfn-
uð, sem af því ieiðir, ef skatt-
svikurum er hlíft. Bentu þeir ól.
Fr. á nokkur merk atriði bæjar-
stjórninni til athugunar í sam-
bandi við fjárhagsáætlunina. M. a..
spurði Haraldur um, hvernig á því
stæði, að stöðugt yrði meira og
meira tap á grjótnámi bæjarins
og hvernig stjórnnini á því væri
varið. K. Z. kannaðist við, að þar
væri eitthvert ólag á ferðum, sem
athuga þyrfti nánara. Þessar ræð-
ur urðu tii þess, að hann skýrði
fjárhagsfrumvörpin dálítið. Har-
aldur benti m. a. á, að nú hækka
útsvörin um á priðja hundrað
þúsxxnd kr. vegna vangreiddra-út-
svara frá 1926. K. Z. kvað 970
þúsund kr. nú vera greiddar af
þessa árs útsvörum og séu það
betri heimtur en í fyrra.
I fjárhagsáætlun hafnarinnar er
gert ráð fyrir 50 þúsund kr. til
kaupa á dráttarbát og ísbrjót.
Einnig er þar gert ráð fyrir, að
Vitatorgsviti verði færður sökum
þess, hve erfitt er að greina hann
þar, sem hann er nú, og að nýtt
grunnmerki (dufl) verði reist á.
Akureyjarrifi.
Síðast fór fram 2. umr. um
breytingu á skipun fátækrafull-
trúanna. Hafði borgarstjöri bætt
mokkuð orðalagið á tillögu meiri.
hlutans og breytt því eftir tillögu
Hallbjamar Halldórssonar, en að-
alatriðið var óbreytt: Borgarstjóri
skipi sjálfur fátælcrafulltnxana. í
þessu formi flutti borgarstjóra-
hluti fátækranefndarinnar tillög-
una nú. Hallbjörn brýndi fyrir
bæjarfuUtrúunum að athuga vel,.
ao samkvœmf peirri tillöcju eru
fátœklingarnir alveg ofurseldir:
einrœdi borgarstjóm. St. J. St.
kvaðst hafa í hyggju að hreyfa í
bæjarlaganefndinni nokkrum
breytingum á bæjarsamþyktinni...
Færi bezt á, að þetta mál væri
ekki tekið út úr, heldur yrði það
athugað ásamt öðrum væntanleg-
um breytingum á henni. Lagði
hann til, að Jrví yrði frestað til
næsta fundar, og kæmi það til
nánari athu'gunar í bæjarlaga-
nefnd. Sú tillaga var feld með 7
atkv. gegn 6 (Alþýðuflokksins) og
tillaga meiri hlutans síðan sam-