Alþýðublaðið - 24.05.1941, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXM. ÁSGANGUB
LAUGABDAGUR 24. MAl 1941.
122. TÖLUBLAÐ
Þjóðverjar hraktir úr tveimur
af premur hækistiiðvum á Krít
----4--
Haida ennþá flugvellinám við Malemi.
FEEGNIR FRÁ LONDON í gærkveldi og morgun
herma, að liersveitum Breta, Grikkja og Nýsjálend-
inga hafi nú tekizt að ráða niðurlögum Þjóðverja á tveim-
ur af þeim þremur stöðum á Krít, þar sem þeir höfðu náð
fótfestu: í höfuðborginni Kandia við Soudaflóa og í Hera-
klion, austar á norðurströnd eyjarinnar.
í Malemi, vestast á eyjunni, skammt frá Kanea, hefir
hins vegar ekki tekizt að hrekja Þjóðverja burt, og halda
þeir ennþá flugvellinum þar, þrátt fyrir hörð áhlaup og
magnaða stórskotahríð Breta. Útvarpið í London sagði í
gærkveldi, að Þjóðverjum hefði enn borizt liðsstyrkur í
lofti þangað.
Það er borið á móti þeirri fregn í London, sem breidd
hefir verið út frá Berlín, að Georg' Grikkjakonungur sé
flúinn frá Krít.
Sýtt vopn Breta
í lofthernaðlonm
liðimartæki, sem gerlr miklu
uuðveidara en áður að skjðta
uiður flugvéíar.
LUGMÁLARÁÐHERRA
Kanada skýrði frá því í
ræðu í gær, að nú væri búið að
taka til notkunar nýtt tæki í
"Bretlandi, sem gerðí það mögu-
Jegt að hægt væri að miða á
flugvélar um 50% nákvæmar
en áður var.
, Frá þessu var skýrt í Ljrnd-
únaútvarpinu í gær, en það
jafnframt tekið fram, að nánar
værí ekki hægt að segja frá
þessu tæki.
Eftir ummælum Cyril Laiken
að dæma, en hann gefur yfirlit
yfir fréttir í brezka útvarpinu á
hverjum morgni, er hér um ein-
hvers konar radiomiðunartæki
að ræða — og er talið að hægt
sé að miða flugvélarnar í mjög
mikilli fjaríægð — og skjóta á
þær, þó að þær sjáist ekki, ef
þær eru aðeins svo nærri, að
byssurnar dragi. Bretar gera
sér miklar vonir um að þetta
nýja tæki muni auka mjög
flugvélatjón Þjóðverja og gera
þeim loftárásirnar á England
miklu erfiðari.
Rfstárlegir bardagar.
I fnegnum frá Londion er bar-
dögunum á Krít lýst þannig ,að
Um Ie:ð og herflutningaflugvéiar
Þjóðverja láti fallhlífarheTmenn-
ina svífa til jarðair, sé byssum og
skotfærum varpað niðuir í fall-
hlífum úr öðrum flugvélum.
Þurfa fallhlífarhermennirnir 10
mínútna tíma fil þess að losa sig
við fallhlífina, ná í voþniin og
búa sig undir bardaga. Pað eru
þessar lo mínútur, sem Bnetar
og bandamenn þeirra reyna að
nota sér e:ns og fnekast er unt til
þess að gera fa] Ih 1 ífarhérmennina
óskaðlega. En það er erfitt,
því að Þjóðverjar nota steypi-
flugvélar sínar til þess að skýla
hermönnunum, þangað til þeir
hafa náð voþnum sínum, og enu
þær látnaf halda uppi látlausum
árásum á vígstöðvar Breía og
bandamanna þeirra á meðan.
En Bretax hafa svo að segja
engar omstuflugvélar á eyjunni
og hafa því engar aðrar varnir
gegn steypiflUgvélunum en loft-
varnabyssUr. En þæT eru líka
sagðar i'eynast vel í því lands-
Iagi, fjalllendi, sem er á Krít —
og manntjón Þjóðverja á jörðu
i niðri er sagt miklu meira en
hjá Bretum, vegna þess að
þeir hafa miklu öflugra stófskota-
lið, fallbyssur af stærstu gerð,
en Þjóðverjar ekki nema litlar,
sem hægt er að flytja í lofti.
Margar þýzkar herflutninga-
flUgvéfar hafa líka brotnað í
lendingu og fjöldi þýzkra her-
rnanna farizt við það.
Lára ,miðt!I‘ vsar dæmd
í eins árs fangelsi.
»-----
Þorbergitr fékk sex iBáewði og Knstj~
án og Óskar fjóra, skilorðisbundið.
DÓMUR var upp kveðinn í
gær í Lárumálinu / al-
kunna. Kvað sakadómari, Jóna-
tan Hallvarðsson, upp dóminn,
en niðurstaða hans er: Frú Lára
fær eins árs íangelsi, Þorberg-
ur Gunnarsson 6 mánaða fang-
elsi, Kristján Ingvar Kristjáns-
son og Óskar Þórir Guðmunds-
son hljóta 4 mánaða fangelsi
hvör. Dómur tveggja hinna síð-
astnefndu er skilorðsbundinn.
Mál þetta er mönnum kunn-
ara en svo, að frekar þurfi að
lýsa því. Brot frú Láru og fé-
.laga hennar varða við 248. gr.
hegningarlaganna, þar sem
segir svo m. a.:
,,Ef maður kemur. öðrum
manni til að hafast eitthvað að
eða láta eitthvað ógert með því
á ólögmætan hátt að vekja,
stýrkja eða hagnýta sér ranga
eða óljósa hgumynd hans um
einhver ' atvik, og hefir þannig
fé af honum eða öðrum, þá
varðar það fangelsi allt að sex
árum.“
Langar forsendur fylgja
dóminum, 19 vélritaðar síður
alls, þar sem málavextir' eru
allir nákvæmlega raktir, en
síðan segir dómarinn:
„Eins og áður segir, verður
eigi talið sannað, að ákærða
hafi beitt vísvitandi brögðum í
sambandi við sufm fyrirbærin,
sem gerðust á fundum ákærðu,
i Frh. á 2. sí.öu.
Vlönreiggfi á s]énnm.
Af fregnUm bæði frá London
og Berlín verður þa'ð meö degi
hverium Ijósara, hve þýðingar-
mikið hlutv'erk brezki flotinn
vinnur í omstunni um Krít.
Hann hefir hingað til hindrað
allar ti]raunir Þjóðverja til þess
að flytja her og hergögn sjó-
leiðina til Krítar, sundrað hverri
skipa’.estinni af annarri og sökkt
fjölda skipa úr þéim. En meðan
Þjóðverjar geta ekki flutt þung
vopn ti'l éyjarinnar, svo sem
skriðdreka qg stórar fallbyssur,
er aðstaða Þjóðverja á eyjiunni
mjög erfið, þrátt fyrir alla her-
fiútning'a í lofti.
Þýóðve jar ge"a hinsvegar mjög
milrið úr herskipatióni Breta í
viðureigninni um Krít og sögðust
í gær vera búnir að sökkva fjór-
)um bteitiskipum og mörgum
tundurspillum, enn fremur sögð-
ust þeir hafa hæft eitt orustuskip
fyrir peim með flugvéiasprengju.
Bretar segja þessar tijkynning-
ar Þjóðverja vera mjög ýktar,
Frh. á 4. jsíðu.
Tommyhyssan — það er lítil vélbyssa — sem
maður hefir, var upprunalega notuð gegn bófunum
Nú eru þær framleiddar í stórum stíl fyrir brezka
notaðar gegn hermönnum Hitlers.
Prien, pekktastl kafbátsfor
ing! Þiáðverja talinn af.
----«-----
Hann sökkti ,Arandora Star4, er ÞjóðverJ
arnir héðan voru með á leið til Kanada*
AÐ var viðurkennt í út-
varpinu í Berlín í gær,
að kafbát Giinthers Prien,
hins fræga þýzka kafbátsfor-
ingja, hefði nú vantað svo
lengi, að hann væri talinn af.
í brezkum fregnum var fyr-
ir þó nokkru síðan búið að
skýra frá því, að Prien myndi
ekki fara fleiri ferðir út á haf-
ið, þar eð kafbát hans hefði
verið sökkt.
Prien hefir, ásamt þeim
Kretschmar og Schepke, verið
mest umtalaður af öllum þýzk-
um kafbátaforingjum í þessu
stríði, en þeir síðarnefndu eru
nú báðir stríðsfangar á Eng-
landi.
Berlínarútvarpið sagði í gær,
að Prien hefði sökkt skipum
fyrir feretum og bandamönnum
þeirra, sem voru samtals 256
þús. smálestir. Og hvað sem
þeirri tölu líður, þá er það víst,
að þau eru mörg skipin og
mennirnir margir, sem hann
hefir sent. niður á hafsbotninn.
Lundúnaútvarpið skýrði frá
þyí í gærkveldi, að á meðal
þessara skipa hefði Áerið ferða-
mannaskipið „Arandora Star“,
sem komið hefir hingað mörg
undanfarin sumur, og hafði
mörg hundruð þýzka og ítalska
stríðsfanga innanborðs, þegar
því var sökkt á leiðinni frá
Englandi til Kanada. Þar á
meðal voru margir Þjóðverjar,
sem Bretar höfðu tekið til
fanga hér, þegar þeir komu
hingað.
En þekktastur var Prien af
hinni fífldjöríu árás sinni á
herskip Breta inni í Scapa
Flow skömmu eftir að stríðið
byrjaði og sökkti orustuskipina
„Royal Oak“.
Berlínarútvarpið lauk miklu'
lofsorði á Prien í gærkveldi og
hældist meðal annars um yfir
því, að hann hefði tekið þátt í
„refsiaðgerðum" Þýzkalands,,
eins og það komst að orði, gegn
spánska lýðveldinu rheðan.
borgarastyrjöldin var háð á
Spáni, og kveður því nú við
annan tón en þegar því var
neitað á sínum tíma, að Þjóð-
verjar tækju nokkurn þátt i
þeirri borgarastyrjöld. En yfir
það þykir nú ekki ástæða til að
breiða lengur.
Þýzkur maður
handtekinn á
Patreksfirði.
Mef ur f&Iizf i laudlniE
I eitt ár.
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag
handtóku Bretar á Pat-
reksfirði þýzkan mann, August
Lehmann að nafni, sem farið
hefir huldu höfði hér á land-
inu, síðan Bretar hertóku land-
iði
Hann var í Borgarfirði í
fyrravor og ákvað að þrjózkast
við fyrirmælum Breta um að
allir Þjóðverjar í landinu
skyldu gefa sig fram við her-
stjórnina. S.l. sunnudag urðu
tveir piltar varir við Lehmann.
Frh. á 2. síðu.